Enski boltinn

Sum kaup Dalglish hafa heppnast betur en önnur

Kaup Liverpool á Andy Caroll á 35 milljónir punda frá Newcastle hafa líkast til ekki farið framhjá neinum. Þetta er þó langt í frá í fyrsta skipti sem Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool reiðir fram háar fjárhæðir fyrir framherja. Eins og gengur hafa sum kaupin heppnast betur en önnur.

Enski boltinn

Torres, Drogba og Anelka gætu allir byrjað inná gegn Liverpool

Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Chelsea getur eflaust ekki beðið eftir því að mæta Liverpool á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni þar sem að Fernando Torres mun væntanlega leika sinn fyrsta leik fyrir félagið – gegn sínu gamla liði. Ekkert heiðursmannasamkomulag er í gildi á milli félagana þessa efnis að Torres leiki ekki gegn sínu gamla liði.

Enski boltinn

Carlo Ancelotti: Torres mun spila á móti Liverpool

Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, staðfesti það í kvöld eftir 4-2 útisigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni að Fernando Torres muni spila sinn fyrsta leik fyrir Chelsea á móti Liverpool á sunnudaginn kemur. Chelsea keypti Torres á 50 milljónir punda frá Liverpool í gær.

Enski boltinn

Wayne Rooney með tvö mörk í 3-1 sigri Manchester United

Manchester United ætlar ekkert að gefa eftir í ensku úrvalsdeildinni og lék í kvöld sinn 29. deildarleik í röð án þess að tapa en 24 leikjanna hafa verið á þessu tímabili. Þetta er jöfnun á félagsmetið og United er því áfram með fimm stiga forskot á Arsenal sem vann einnig sinn leik í kvöld.

Enski boltinn

Chelsea og Arsenal komu bæði til baka og unnu

Miðverðirnir John Terry hjá Chelsea og Laurent Koscielny hjá Arsenal skoruðu báðir mikilvæg mörk í sigrum sinna liða í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði lið voru að vinna sinn þriðja leik í röð í deildinni og eru áfram fimm stigum (Arsenal) og tíu stigum (Chelsea) á eftir toppliði Manchester United.

Enski boltinn

Torres tilbúinn í Liverpool-leikinn: Þetta eru örlög

Fernando Torres verður orðinn löglegur þegar nýja liðið hans Chelsea tekur á móti gamla liðið hans Liverpool á Stamford Bridge á sunnudaginn. Chelsea keypti Torres á 50 milljón punda í gær og það munu margir bíða spenntir eftir því hvort spænski framherjinn fái að spreyta sig í stórleiknum á sunnudaginn.

Enski boltinn

Eiður Smári fær gamla Chelsea-númerið hjá Fulham

Eiður Smári Guðjohnsen mun spila númer 22 hjá Fulham en þetta kemur fram í viðtali við hann á heimasíðu Fulham. Eiður Smári lék eins og kynnugt er í númer 22 þegar hann var hjá Chelsea.Eiður æfði í fyrsta sinn með Fulham í dag og verður með liðinu á móti Newcastle á Craven Cottage á morgun.

Enski boltinn

Carroll segir að Newcastle hafi þvingað sig til að fara til Liverpool

Andy Carroll, sem í gær var seldur fyrir 35 milljónir punda frá Newcastle til Liverpool, segir að forráðamenn Newcastle hafi ekki viljað gera nýjan samning við sig og gefið það sterklega í skyn að hann ætti ekki framtíð fyrir sér hjá Newcastle. Alan Pardew knattspyrnustjóri liðsins er ósammála og segir Carroll hafa sett fram kröfur sem voru óraunhæfar.

Enski boltinn

Redknapp var hársbreidd frá því að fá Adam frá Blackpool

Harry Redknapp náði ekki að styrkja Tottenham liðið áður en lokað var fyrir félagaskiptin í gær á Englandi. Redknapp var með mörg járn í eldinum og formleg tilboð bárust frá Tottenham í fyrirliða Everton Phil Neville, Charlie Adam hjá Blackpool. Redknapp sagði í dag að það hefði aðeins munað nokkrum mínútum að Adam hefði gengið í raðir Tottenham.

Enski boltinn

Gabriel Obertan vill fara frá Man Utd

Franski leikmaðurinn Gabriel Obertan hefur óskað eftir því að fá að fara frá enska úrvalsdeildarliðinu Manchester United. Hinn 21 árs gamli Obertan var keyptur frá Bordeaux í Frakklandi fyrir um 18 mánuðum og hann gerði fjögurra ára samning á þeim tíma.

Enski boltinn

Chelsea tapaði 13 milljörðum á síðasta rekstrarári en keypti leikmenn fyrir 13,8 í gær

Það gekk mikið á í gær á leikmannamarkaðinum í ensku knattspyrnunni en á miðnætti var lokað fyrir leikmannakaup og mörg lið vildu styrkja sig fyrir lokasprettinn á Englandi. Samkvæmt útreikningum enska dagblaðsins Daily Mail þá eyddu ensk félagslið um 37 milljörðum kr. í leikmannakaup í janúar 2011 eða 200 milljónum punda en árið 2010 var þessi upphæð „aðeins“ 23 milljónir punda eða 4,3 milljarðar kr.

Enski boltinn

Torres kostar meira en allt byrjunarlið Arsenal

Samkvæmt samantekt Sky fréttastofunnar þá eyddu ensku úrvalsdeildarliðin í fótbolta um 200 milljónum punda í leikmannakaup í janúar, sem eru 37 milljarðar kr. Chelsea keypti spænska framherjann Fernando Torres frá Liverpool fyrir 50 milljónir punda, 9,2 milljarða kr., og samkvæmt útreikningum enska dagblaðsins Daily Mail þá kostaði Torres töluvert meira en allt Arsenal liðið sem sigraði Wigan 3-0 fyrir 10 dögum á Emirates.

Enski boltinn

Torres mun ekki leika gegn Sunderland - fjórir leikir í kvöld

Fernando Torres mun ekki leika sinn fyrsta leik með Chelsea á morgun þriðjudag gegn Sunderland. Hann verður hinsvegar löglegur með Chelsea eftir vistaskiptin frá Liverpool um næstu helgi og svo skemmtilega vill til að þá mætast þessi lið í ensku úrvalsdeildinni á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea.

Enski boltinn