Sport Bíllinn ekki áhrifavaldur í slysi De Villota Marussia-liðið hefur lokið rannsókn sinni á því hvað olli slysi Mariu de Villota fyrir tveimur vikum. Maria er tilraunaökuþór liðsins og var að prófa bílinn á flugbraut á Englandi þegar slysið varð. Formúla 1 16.7.2012 14:30 Rakel Logadóttir: Ætlum að sjálfsögðu að verja titilinn "Mér líst bara mjög vel á að fá KR,“ sagði Rakel Logadóttir leikmaður Vals í dag þegar ljóst var að bikarmeistaralið Vals fékk útileik gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna. Dregið var í hádeginu í dag. Þessi lið áttust við í úrslitum keppninnar í fyrra. Fótbolti 16.7.2012 14:22 Krzyzewski hefði valið Luol Deng í bandaríska landsliðið Bandaríska landsliðið í körfuknattleik karla er þessa dagana að leggja lokahöndina á titilvörn sína fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í London í lok júlí. Bandaríska liðið er þessa stundina við æfingar í Manchester á Englandi þar sem liðið mun leika æfingaleik gegn Bretlandi á fimmtudag. Mike Krzyzewski, þjálfari bandaríska liðsins, segir að Luol Deng, leikmaður breska liðsins hefði líklega verið valinn í bandaríska liðið ef hann hefði verið með rétt ríkisfang. Körfubolti 16.7.2012 14:00 Ibrahimovic vill launahækkun hjá PSG Zlatan Ibrahimovic hefur verið sterklega orðaður við franska liðið PSG að undanförnu og formlegar viðræður hafa staðið yfir um vistaskipti hans frá AC Milan á Ítalíu. Sænski landsliðsmaðurinn er samningsbundinn AC Milan fram til loka ársins 2015 og er talið að PSG sé reiðubúið að greiða rétt rúmlega 50 milljónir punda fyrir Ibrahimovic og brasilíska varnarmanninn Thiago Silva – sem nemur rétt um 10 milljörðum kr. Fótbolti 16.7.2012 13:00 Borgunarbikarkeppnin: KR sækir Grindavík heim | Stjarnan fékk Þrótt Stjarnan og 1. deildarlið Þróttar eigast við í undaúrslitum Borgunarbikarkeppninnar í karlaflokki, og Grindavík fær bikarmeistaralið KR í heimsókn. Dregið var í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ. Fyrst var dregið um hvaða lið fengu heimaleiki og komu Stjarnan og Grindavík upp fyrst. Undanúrslitaleikirnir fara fram 1. og 2. ágúst. Fótbolti 16.7.2012 12:34 Berbatov vill fá svör um framtíð sína hjá Man Utd Dimitar Berbatov er ekki sáttur við stöðu sína hjá enska úrvalsdeildarliðinu Manchester United og hann vill komast frá liðinu. Hinn 31 árs gamli framherji frá Búlgaríu var í algjöru aukahlutverki hjá Man United á síðustu leiktíð og hann segir í færslu á fésbókarsíðu sinni að það væri best fyrir alla aðila ef hann færi frá félaginu. Enski boltinn 16.7.2012 12:30 Borgunarbikarkeppnin: Valur mætir KR | Stjarnan gegn Þór/KA Stjarnan og KR fengu heimaleiki þegar dregið var í undanúrslitum Borgunarbikarkeppni kvenna í knattspyrnu í höfuðstöðvum KSÍ í dag. KR fær bikarmeistaralið Vals í heimsókn en þessi lið áttust við í úrslitaleiknum í fyrra á Laugardalsvelli. Íslandsmeistaralið Stjörnunnar mætir liði Þórs/KA í hinni undanúrslitaviðureigninni. Fótbolti 16.7.2012 12:25 Capello tekur við rússneska landsliðinu Fabio Capello var í dag ráðinn sem landsliðsþjálfari Rússlands en samningaviðræður höfðu staðið yfir í nokkrar vikur. Nikita Simonjan, varaforseti rússneska knattspyrnusambandsins, greindi frá ráðningu Ítalans í dag. Fótbolti 16.7.2012 11:30 Náði 101 sentímetra hæng á fimmuna Þetta er annar laxinn úr Víðidalsá í sumar sem rífur 20 punda múrinn en það er óhætt að fullyrða að hængurinn hans Jóhanns vigtar ekki minna en 21 pund. Veiði 16.7.2012 11:24 Woods mættur til Englands | býst við erfiðum aðstæðum Tiger Woods er mættur til Englands þar sem hann undirbýr sig fyrir opna breska meistaramótið sem hefst á fimmtudaginn á Royal Lytham vellinum á Englandi. Bandaríski kylfingurinn, sem hefur sigrað á 14 stórmótum á ferlinum sagði eftir fyrsta æfingahringinn að karginn utan brautar væri gríðarlega erfiður á vellinum og á nokkrum stöðum væri ekki hægt að leika boltanum úr slíkri stöðu. Golf 16.7.2012 10:45 Real Madrid og Tottenham nálgast samkomulag um Modric Spænska meistaraliðið Real Madrid og króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric er skrefi nær því að leikmaðurinn gangi í raðir félagsins frá Tottenham á Englandi. Daily Mail greinir frá því að Tottenham muni fá allt að 30 milljónir punda fyrir leikmanninn eða sem nemur um 6 milljörðum ísl. kr. Hinn 26 ára gamli miðvallarleikmaður hefur einnig verið orðaður við Chelsea á Englandi og PSG í Frakklandi. Enski boltinn 16.7.2012 10:00 Liverpool ætlar ekki að lána Carroll til Newcastle Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool ætla ekki að taka tilboði Newcastle í enska landsliðsframherjann Andy Carroll. Newcastle hafði áhuga á að fá fyrrum leikmann liðsins að láni út næstu leiktíð og taka þátt í því að greiða laun leikmannsins sem er með um 16 milljónir kr. í laun á viku eða 80.000 pund. Enski boltinn 16.7.2012 09:15 Johnson tryggði sér sigur eftir bráðabana Bandaríski kylfingurinn Zach Johnson fagnaði sigri á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í gær. Johnnson hafði betur gegn landa sínum Troy Matteson í bráðabana en þeir voru báðir 20 höggum undir pari að loknum 72 holum. Golf 16.7.2012 09:00 Veiðistaðurinn – Kríueyja í Blöndu Veiði 16.7.2012 08:00 Guðmundur: Óli hefur ekki verið svona góður í tíu ár Guðmundur Guðmundsson hrósar landsliðsfyrirliðanum Ólafi Stefánssyni í hástert. Ólafur er í ótrúlegu formi og skoraði tíu mörk í ellefu skotum gegn Túnis í gær. Hreiðar Levý Guðmundsson sneri þá töpuðum leik við með hreint út sagt magnaðri markvörslu á síðustu fimmtán mínútum leiksins. Handbolti 16.7.2012 07:30 Formaður KKÍ: Þurfum að endurskoða vinnubrögð okkar Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður Íslands í körfubolta, hefur dregið sig úr æfingahópi íslenska landsliðsins sem tekur þátt í undankeppni Evrópumóts karlalandsliða í ágúst og september. Hörður heldur þess í stað til móts við félag sitt Mitteldeutscher BC í efstu deild þýska körfuboltans og æfir með liðinu á undirbúningstímabilinu. Körfubolti 16.7.2012 06:45 Enginn yfirburðamaður á Íslandi Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, segir jákvæða þróun vera í íslenska golfinu. Það sé ekki lengur einn yfirburðamaður á landinu og breiddin sé orðin það mikil að menn þurfi að vera á tánum til þess að fá sæti í landsliðinu. Golf 16.7.2012 06:00 Ótrúlegt sjálfsmark í Ukraínu Heldur skrautlegt sjálfsmark leit dagsins ljós í Ukraínu um helgina þegar leikmaður Goverlia, Evgen Eliseev, skaut boltanum í eigið net, nokkuð laglega gert en í rangt mark. Fótbolti 15.7.2012 23:30 Fyrirtækjafluga sem lifði góðærið af Fyrir fáeinum árum létu mörg helstu stórfyrirtæki landsins hnýta fyrir sig laxaflugur í litum fyrirtækisins. Flestar þeirra reyndust dægurflugur og lifðu ekki af "góðærið". Fáeinar sönnuðu sig þó, lifa enn og gefa góða veiði. Veiði 15.7.2012 23:06 Valsmenn í banastuði - myndir Valsmenn gerðu sér lítið fyrir í kvöld og lögðu heitasta lið Pepsi-deildar karla, FH, um þessar mundir. Eftir að hafa lent undir komu Valsmenn til baka og unnu góðan sigur. Íslenski boltinn 15.7.2012 23:00 Magnús Gylfason: Við verðum að teljast heppnir með þennan sigur "Þetta var algjör vinnusigur hjá okkur í dag,“ sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, eftir sigurinn gegn Fram fyrr í dag. Eyjamenn unnu sinn fimmta sigur í röð í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 15.7.2012 18:43 Framarar gáfu ekki viðtöl eftir tapið í Eyjum Framarar voru ekki borubrattir eftir tapið gegn ÍBV í dag. Þetta var áttunda tap Fram í ellefu leikjum og liðið er aðeins með níu stig þegar mótið er hálfnað. Íslenski boltinn 15.7.2012 18:39 Spear til Víkings R. | Dani á leiðinni Víkingur frá Reykjavík hefur fengið góðan liðsstyrk því Aaron Spear, leikmaður ÍBV, hefur verið lánaður til félagsins út sumarið. Íslenski boltinn 15.7.2012 18:33 Matthías sjóðheitur í norska boltanum Ísfirðingurinn Matthías Vilhjálmsson heldur áfram að gera það gott með norska B-deildarliðinu Start. Matthías skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Start á Alta í dag. Fótbolti 15.7.2012 18:27 Mellberg á leiðinni í bandarísku MLS-deildina Svínn Olof Mellberg mun líklega ganga til liðs við Toronto í bandarísku MLS-deildinni í sumar, en þessi frábæri varnarmaður hefur verið á mála hjá Olympiakos. Fótbolti 15.7.2012 17:15 Umboðsmaður Zlatan: PSG er líklegur áfangastaður Það bendir margt til þess að Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, sé á förum frá félaginu og þá til Paris Saint-Germain í Frakklandi. Fótbolti 15.7.2012 16:30 Coloccini: Síðasta tímabil var enginn heppni Fabricio Coloccini, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Newcastle, vill meina að síðasta tímabil hafi ekki verið heppni og félagið verði aftur í baráttu um Evrópusæti í ár. Enski boltinn 15.7.2012 14:45 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - FH - 3-1 Valsmenn komu heldur betur á óvart og unnu FH, 3-1, á Vodafone-vellinum í Pepsi-deild karla í kvöld. FH-ingar komust yfir í upphafi leiksins en Valsmenn svöruðu með þremur mörkum. Íslenski boltinn 15.7.2012 14:29 Umfjöllun og einkunnir: ÍBV - Fram 3-2 Eyjamenn unnu frábæran sigur, 3-2, gegn Fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Íslenski boltinn 15.7.2012 14:25 Hreiðar Levý bjargaði strákunum okkar gegn Túnis Strákarnir okkar höfnuðu í þriðja sæti á æfingamóti í Frakklandi. Þeir unnu bronsleikinn gegn Túnis, 31-27, en Túnis er einn af andstæðingum íslenska liðsins á ÓL í London. Hreiðar Levý Guðmundsson markvörður kom til bjargar er staðan var orðin mjög slæm. Handbolti 15.7.2012 14:18 « ‹ ›
Bíllinn ekki áhrifavaldur í slysi De Villota Marussia-liðið hefur lokið rannsókn sinni á því hvað olli slysi Mariu de Villota fyrir tveimur vikum. Maria er tilraunaökuþór liðsins og var að prófa bílinn á flugbraut á Englandi þegar slysið varð. Formúla 1 16.7.2012 14:30
Rakel Logadóttir: Ætlum að sjálfsögðu að verja titilinn "Mér líst bara mjög vel á að fá KR,“ sagði Rakel Logadóttir leikmaður Vals í dag þegar ljóst var að bikarmeistaralið Vals fékk útileik gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna. Dregið var í hádeginu í dag. Þessi lið áttust við í úrslitum keppninnar í fyrra. Fótbolti 16.7.2012 14:22
Krzyzewski hefði valið Luol Deng í bandaríska landsliðið Bandaríska landsliðið í körfuknattleik karla er þessa dagana að leggja lokahöndina á titilvörn sína fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í London í lok júlí. Bandaríska liðið er þessa stundina við æfingar í Manchester á Englandi þar sem liðið mun leika æfingaleik gegn Bretlandi á fimmtudag. Mike Krzyzewski, þjálfari bandaríska liðsins, segir að Luol Deng, leikmaður breska liðsins hefði líklega verið valinn í bandaríska liðið ef hann hefði verið með rétt ríkisfang. Körfubolti 16.7.2012 14:00
Ibrahimovic vill launahækkun hjá PSG Zlatan Ibrahimovic hefur verið sterklega orðaður við franska liðið PSG að undanförnu og formlegar viðræður hafa staðið yfir um vistaskipti hans frá AC Milan á Ítalíu. Sænski landsliðsmaðurinn er samningsbundinn AC Milan fram til loka ársins 2015 og er talið að PSG sé reiðubúið að greiða rétt rúmlega 50 milljónir punda fyrir Ibrahimovic og brasilíska varnarmanninn Thiago Silva – sem nemur rétt um 10 milljörðum kr. Fótbolti 16.7.2012 13:00
Borgunarbikarkeppnin: KR sækir Grindavík heim | Stjarnan fékk Þrótt Stjarnan og 1. deildarlið Þróttar eigast við í undaúrslitum Borgunarbikarkeppninnar í karlaflokki, og Grindavík fær bikarmeistaralið KR í heimsókn. Dregið var í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ. Fyrst var dregið um hvaða lið fengu heimaleiki og komu Stjarnan og Grindavík upp fyrst. Undanúrslitaleikirnir fara fram 1. og 2. ágúst. Fótbolti 16.7.2012 12:34
Berbatov vill fá svör um framtíð sína hjá Man Utd Dimitar Berbatov er ekki sáttur við stöðu sína hjá enska úrvalsdeildarliðinu Manchester United og hann vill komast frá liðinu. Hinn 31 árs gamli framherji frá Búlgaríu var í algjöru aukahlutverki hjá Man United á síðustu leiktíð og hann segir í færslu á fésbókarsíðu sinni að það væri best fyrir alla aðila ef hann færi frá félaginu. Enski boltinn 16.7.2012 12:30
Borgunarbikarkeppnin: Valur mætir KR | Stjarnan gegn Þór/KA Stjarnan og KR fengu heimaleiki þegar dregið var í undanúrslitum Borgunarbikarkeppni kvenna í knattspyrnu í höfuðstöðvum KSÍ í dag. KR fær bikarmeistaralið Vals í heimsókn en þessi lið áttust við í úrslitaleiknum í fyrra á Laugardalsvelli. Íslandsmeistaralið Stjörnunnar mætir liði Þórs/KA í hinni undanúrslitaviðureigninni. Fótbolti 16.7.2012 12:25
Capello tekur við rússneska landsliðinu Fabio Capello var í dag ráðinn sem landsliðsþjálfari Rússlands en samningaviðræður höfðu staðið yfir í nokkrar vikur. Nikita Simonjan, varaforseti rússneska knattspyrnusambandsins, greindi frá ráðningu Ítalans í dag. Fótbolti 16.7.2012 11:30
Náði 101 sentímetra hæng á fimmuna Þetta er annar laxinn úr Víðidalsá í sumar sem rífur 20 punda múrinn en það er óhætt að fullyrða að hængurinn hans Jóhanns vigtar ekki minna en 21 pund. Veiði 16.7.2012 11:24
Woods mættur til Englands | býst við erfiðum aðstæðum Tiger Woods er mættur til Englands þar sem hann undirbýr sig fyrir opna breska meistaramótið sem hefst á fimmtudaginn á Royal Lytham vellinum á Englandi. Bandaríski kylfingurinn, sem hefur sigrað á 14 stórmótum á ferlinum sagði eftir fyrsta æfingahringinn að karginn utan brautar væri gríðarlega erfiður á vellinum og á nokkrum stöðum væri ekki hægt að leika boltanum úr slíkri stöðu. Golf 16.7.2012 10:45
Real Madrid og Tottenham nálgast samkomulag um Modric Spænska meistaraliðið Real Madrid og króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric er skrefi nær því að leikmaðurinn gangi í raðir félagsins frá Tottenham á Englandi. Daily Mail greinir frá því að Tottenham muni fá allt að 30 milljónir punda fyrir leikmanninn eða sem nemur um 6 milljörðum ísl. kr. Hinn 26 ára gamli miðvallarleikmaður hefur einnig verið orðaður við Chelsea á Englandi og PSG í Frakklandi. Enski boltinn 16.7.2012 10:00
Liverpool ætlar ekki að lána Carroll til Newcastle Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool ætla ekki að taka tilboði Newcastle í enska landsliðsframherjann Andy Carroll. Newcastle hafði áhuga á að fá fyrrum leikmann liðsins að láni út næstu leiktíð og taka þátt í því að greiða laun leikmannsins sem er með um 16 milljónir kr. í laun á viku eða 80.000 pund. Enski boltinn 16.7.2012 09:15
Johnson tryggði sér sigur eftir bráðabana Bandaríski kylfingurinn Zach Johnson fagnaði sigri á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í gær. Johnnson hafði betur gegn landa sínum Troy Matteson í bráðabana en þeir voru báðir 20 höggum undir pari að loknum 72 holum. Golf 16.7.2012 09:00
Guðmundur: Óli hefur ekki verið svona góður í tíu ár Guðmundur Guðmundsson hrósar landsliðsfyrirliðanum Ólafi Stefánssyni í hástert. Ólafur er í ótrúlegu formi og skoraði tíu mörk í ellefu skotum gegn Túnis í gær. Hreiðar Levý Guðmundsson sneri þá töpuðum leik við með hreint út sagt magnaðri markvörslu á síðustu fimmtán mínútum leiksins. Handbolti 16.7.2012 07:30
Formaður KKÍ: Þurfum að endurskoða vinnubrögð okkar Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður Íslands í körfubolta, hefur dregið sig úr æfingahópi íslenska landsliðsins sem tekur þátt í undankeppni Evrópumóts karlalandsliða í ágúst og september. Hörður heldur þess í stað til móts við félag sitt Mitteldeutscher BC í efstu deild þýska körfuboltans og æfir með liðinu á undirbúningstímabilinu. Körfubolti 16.7.2012 06:45
Enginn yfirburðamaður á Íslandi Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, segir jákvæða þróun vera í íslenska golfinu. Það sé ekki lengur einn yfirburðamaður á landinu og breiddin sé orðin það mikil að menn þurfi að vera á tánum til þess að fá sæti í landsliðinu. Golf 16.7.2012 06:00
Ótrúlegt sjálfsmark í Ukraínu Heldur skrautlegt sjálfsmark leit dagsins ljós í Ukraínu um helgina þegar leikmaður Goverlia, Evgen Eliseev, skaut boltanum í eigið net, nokkuð laglega gert en í rangt mark. Fótbolti 15.7.2012 23:30
Fyrirtækjafluga sem lifði góðærið af Fyrir fáeinum árum létu mörg helstu stórfyrirtæki landsins hnýta fyrir sig laxaflugur í litum fyrirtækisins. Flestar þeirra reyndust dægurflugur og lifðu ekki af "góðærið". Fáeinar sönnuðu sig þó, lifa enn og gefa góða veiði. Veiði 15.7.2012 23:06
Valsmenn í banastuði - myndir Valsmenn gerðu sér lítið fyrir í kvöld og lögðu heitasta lið Pepsi-deildar karla, FH, um þessar mundir. Eftir að hafa lent undir komu Valsmenn til baka og unnu góðan sigur. Íslenski boltinn 15.7.2012 23:00
Magnús Gylfason: Við verðum að teljast heppnir með þennan sigur "Þetta var algjör vinnusigur hjá okkur í dag,“ sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, eftir sigurinn gegn Fram fyrr í dag. Eyjamenn unnu sinn fimmta sigur í röð í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 15.7.2012 18:43
Framarar gáfu ekki viðtöl eftir tapið í Eyjum Framarar voru ekki borubrattir eftir tapið gegn ÍBV í dag. Þetta var áttunda tap Fram í ellefu leikjum og liðið er aðeins með níu stig þegar mótið er hálfnað. Íslenski boltinn 15.7.2012 18:39
Spear til Víkings R. | Dani á leiðinni Víkingur frá Reykjavík hefur fengið góðan liðsstyrk því Aaron Spear, leikmaður ÍBV, hefur verið lánaður til félagsins út sumarið. Íslenski boltinn 15.7.2012 18:33
Matthías sjóðheitur í norska boltanum Ísfirðingurinn Matthías Vilhjálmsson heldur áfram að gera það gott með norska B-deildarliðinu Start. Matthías skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Start á Alta í dag. Fótbolti 15.7.2012 18:27
Mellberg á leiðinni í bandarísku MLS-deildina Svínn Olof Mellberg mun líklega ganga til liðs við Toronto í bandarísku MLS-deildinni í sumar, en þessi frábæri varnarmaður hefur verið á mála hjá Olympiakos. Fótbolti 15.7.2012 17:15
Umboðsmaður Zlatan: PSG er líklegur áfangastaður Það bendir margt til þess að Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, sé á förum frá félaginu og þá til Paris Saint-Germain í Frakklandi. Fótbolti 15.7.2012 16:30
Coloccini: Síðasta tímabil var enginn heppni Fabricio Coloccini, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Newcastle, vill meina að síðasta tímabil hafi ekki verið heppni og félagið verði aftur í baráttu um Evrópusæti í ár. Enski boltinn 15.7.2012 14:45
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - FH - 3-1 Valsmenn komu heldur betur á óvart og unnu FH, 3-1, á Vodafone-vellinum í Pepsi-deild karla í kvöld. FH-ingar komust yfir í upphafi leiksins en Valsmenn svöruðu með þremur mörkum. Íslenski boltinn 15.7.2012 14:29
Umfjöllun og einkunnir: ÍBV - Fram 3-2 Eyjamenn unnu frábæran sigur, 3-2, gegn Fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Íslenski boltinn 15.7.2012 14:25
Hreiðar Levý bjargaði strákunum okkar gegn Túnis Strákarnir okkar höfnuðu í þriðja sæti á æfingamóti í Frakklandi. Þeir unnu bronsleikinn gegn Túnis, 31-27, en Túnis er einn af andstæðingum íslenska liðsins á ÓL í London. Hreiðar Levý Guðmundsson markvörður kom til bjargar er staðan var orðin mjög slæm. Handbolti 15.7.2012 14:18