Sport
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - ÍA 2-3 Skagamenn unnu sinn annan sigur í röð í Pepsi-deild karla í kvöld þegar þeir sóttu þrjú stig til Keflavíkur í 15. umferð deildarinnar. Skagamenn voru jafnframt að vinna sinn fyrsta útisigur í deildinni síðan að þeir unnu Fylkismenn um miðjan maí. Íslenski boltinn 12.8.2012 18:30
GR-stelpurnar unnu Sveitakeppnina þriðja árið í röð Golfklúbbur Reykjavíkur vann 1. deild kvenna í Sveitakeppni Golfsambands Íslands en konurnar spiluðu á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. GR vann 3-2 sigur á Keili í úrslitaleiknum og vann því Sveitakeppnina þriðja árið í röð. Golf 12.8.2012 18:19
Di Matteo ánægður með Hazard og Torres Roberto Di Matteo var ánægður með margt í leik sinna manna en fannst rauða spjaldið eyðileggja möguleika liðsins í 3-2 tapi gegn Manchester City í leik um Samfélagsskjöldinn. Enski boltinn 12.8.2012 18:00
GKG Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er Íslandsmeistari karla í sveitakeppni í golfi eftir sigur á Golfklúbbi Setbergs í úrslitaleik en 1. deildin fór fram á Hólmsvelli á Leiru. Þetta er í fjórða sinn sem GKG vinnur sveitakeppnina en Íslandsmeistaratitilinn kom einnig í hús 2004, 2007 og 2009. Golf 12.8.2012 17:48
Podolski skoraði tvö í endurkomu sinni Arsenal vann í dag öruggan 4-0 sigur á Köln í Þýskalandi. Þetta var síðasti undirbúningsleikur liðsins fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst í næstu viku. Enski boltinn 12.8.2012 17:34
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - ÍBV 0-4 ÍBV vann í kvöld auðveldan 4-0 útisigur á hörmulegu Fylkisliði í fimmtándu umferð Pepsi-deildarinnar. Eyjamenn náðu forystunni strax á fyrstu mínútu leiksins og litu aldrei til baka eftir það, en þeir hreinlega völtuðu yfir heimamenn í leiknum. Íslenski boltinn 12.8.2012 17:15
Liverpool vann síðasta æfingarleik sinn fyrir úrvalsdeildina Liverpool vann síðasta undirbúningsleik sinn áður en tímabilið byrjar sannfærandi en leiknum lauk með 3-1 sigri Liverpool gegn Leverkusen. Enski boltinn 12.8.2012 17:15
Kolbeinn skoraði í jafntefli Kolbeinn Sigþórsson tryggði Ajax 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar í fyrstu umferð hollensku deildarinnar í dag. Fótbolti 12.8.2012 16:30
Newcastle að kaupa miðjumann frá Ajax Newcastle virðast vera að ganga frá kaupunum á Vurnon Anita, 23 ára leikmanni sem leikur með Ajax í Hollandi. Newcastle hafa verið að leitast eftir að styrkja lið sitt og hafa lengi fylgst með Anita. Enski boltinn 12.8.2012 16:30
Bandaríkin unnu gullið í spennuleik gegn Spánverjum Bandaríkjamenn tryggðu sér gullið í 107 - 100 sigri á Spánverjum í London. Þetta er í fimmta sinn á síðustu 6 Ólympíuleikum sem Bandaríkjamenn sigra körfuboltamót Ólympíuleikanna og aðra Ólympíuleikanna í röð sem þeir sigra Spánverja í úrslitum. Körfubolti 12.8.2012 16:14
Hver er þessi Chukwudi Chijindu sem er að slá í gegn hjá Þór? Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara í 2-1 sigri á Víkingum í toppslag 1. deildar karla í Ólafsvík í gær. Chijindu hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Þór og er þegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins í sumar. Íslenski boltinn 12.8.2012 15:45
Frakkar Ólympíumeistarar á öðrum leikunum í röð Frakkar eru Ólympíumeistarar í handbolta karla eftir eins marks sigur á Svíum, 22-21, í úrslitaleik í London í dag. Frakkar vörðu þar með titil sinn frá því fyrir fjórum árum þegar þeir unnu Íslendinga í úrslitaleik. Handbolti 12.8.2012 15:38
Rory Mcllroy efstur á US PGA Rory Mcllroy er efstur á US PGA mótinu eftir þrjá daga en leikmenn voru að ljúka síðustu holum þriðja hringsins rétt í þessu. Leik var frestað í gær vegna veðurs og í dag fóru fram síðustu holur þriðja dagsins. Golf 12.8.2012 15:00
Alfreð með tvö mörk og eina stoðsendingu í stórsigri Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg unnu 7-2 stórsigur á Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Alfreð skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og lagði síðan upp mark í þeim seinni. Fótbolti 12.8.2012 14:57
Manchester City vann tíu menn Chelsea - Chelsea manni færri í 47 mínútur Englandsmeistarar Manchester City byrjuðu tímabilið eins og þeir enduðu það eða með því að vinna titil. Liðið vann 3-2 sigur á bikarmeisturum Chelsea á Villa Park í árlegum leik meistaraliða síðasta árs um Samfélagsskjöldinn. Enski boltinn 12.8.2012 14:31
Aron Pálmarsson valinn í úrvalslið Ólympíuleikanna Aron Pálmarsson var valinn í úrvalslið handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en valið var tilkynnt fyrir úrslitaleik Svía og Frakka sem stendur nú yfir. Handbolti 12.8.2012 14:28
Zlatan bjargaði stigi fyrir PSG Zlatan Ibrahimovic kom í veg fyrir neyðarlegt tap í fyrsta leik sínum fyrir Paris Saint German í gærkvöldi. Zlatan sem kom til liðsins frá Milan skoraði tvö mörk í jafntefli liðsins við Lorient. Fótbolti 12.8.2012 13:45
Tvær norskar í úrvalsliði Ólympíuleikanna Norski markvörðurinn Kari Aalvik Grimsbo og norski línumaðurinn Heidi Loke voru báðar valdar í úrvalslið handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London en val sérstakar nefndar á vegum IHF var tilkynnt í dag. Handbolti 12.8.2012 13:15
Bannað að taka við bronsinu sínu Landslið Suður-Kóreu vann brons í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en einn leikmanna liðsins var þó hvergi sjáanlegur þegar Kóreumenn tóku við bronsinu sínu í gær. Alþjóðaólympíunefndin útilokaði hann nefnilega frá verðlaunaafhendingunni eftir að leikmaðurinn varð uppvís að því að veifa fána með pólitískum skilaboðum eftir sigurinn á Japan í leiknum um 3. sætið. Fótbolti 12.8.2012 13:00
Everton og Manchester City komast að samkomulagi um Rodwell Enski miðjumaðurinn Jack Rodwell virðist vera fyrstu kaup Manchester City þetta sumarið en Everton gaf frá sér yfirlýsingu fyrir stuttu sem staðfesti samkomulag liðanna um kaupverð á honum. Enski boltinn 12.8.2012 12:15
Nýju Timberwolves-mennirnir fóru fyrir sigri Rússa í bronsleiknum Rússar tryggðu sér bronsverðlaunin í körfuboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir 81-77 sigur á Argentínu í mjög spennandi leik um 3. sætið. Bandaríkjamenn og Spánverjar mætast í úrslitaleiknum seinna í dag. Körfubolti 12.8.2012 11:58
Króatar tóku bronsið - unnu Ungverja létt Króatar urðu í þriðja sæti í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir öruggan sjö marka sigur á Íslandsbönum Ungverja, 33-26, í leiknum um bronsverðlaunin. Króatar voru fimm mörkum yfir í hálfleik og náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum þannig að sigurinn var afar sannfærandi. Handbolti 12.8.2012 11:39
Barry og Richards verða ekki með meisturum City í dag Ensku landsliðsmennirnir Gareth Barry og Micah Richards verða fjarri góðu gamni í dag þegar Englandsmeistarar Manchester City mæta bikarmeisturum Chelsea í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn sem fer fram á Villa Park. Leikurinn hefst klukkan 12.30 og er í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2. Enski boltinn 12.8.2012 11:30
Fyrsta stórmótið þar sem íslensku strákarnir vinna verðandi meistara Íslenska handboltalandsliðið afrekaði það á Ólympíuleikum í London sem íslensku strákanir hafa aldrei náð áður á stórmóti en það er að vinna verðandi meistara. Þetta varð ljóst um leið og Frakkar og Svíar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í gær. Handbolti 12.8.2012 10:00
Gifti sig í miðri sveitakeppni í golfi Það var nóg að gera um helgina hjá Alfreð Brynjari Kristinssyni, liðsmanni í sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í Sveitakeppninni í golfi því hann gifti sig í gær í miðri sveitakeppni. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Alfreð hefur sigrað í tveimur tvímenningsleikjum af þremur í mótinu hingað til en GKG hefur ekki tapað leik í mótinu til þessa og þykir líklegt til afreka. Golf 12.8.2012 07:00
Besta knattspyrnukona heims búin að spila sinn síðasta landsleik Japanska landsliðskonan Homare Sawa tilkynnti það eftir tapleikinn á móti Bandaríkjunum í úrslitaleik knattpyrnukeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London að hún væri búin að spila sinn síðasta landsleik. Bandaríkin vann leikinn 2-1 og tryggði sér gullið. Fótbolti 12.8.2012 06:00
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Valur 2-3 Titilvonir KR-inga minnkuðu til muna þegar liðið tapaði 3-2 gegn Valsmönnum í 15. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði sigurmark Valsmanna í síðari hálfleik. Íslenski boltinn 12.8.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Selfoss - Fram 4-2 Selfyssingar komu með mikla spennu inn í fallbaráttuna með því að vinna Framara, 4-2, á Selfossi í kvöld í leik liðanna í 15. umferð Pepsi-deildar karla. Selfyssingar voru ekki búnir að vinna leik síðan í maí eða síðan að þeir spiluðu síðast við Framliðið. Íslenski boltinn 12.8.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - FH 0-1 FH vann sannkallaðan vinnusigur gegn Breiðablik á Kópavogskvöldi en leiknum lauk 1-0. FH skoruðu á fyrstu mínútu og héldu svo örugglega í forystuna næstu 90. mínútur. Íslenski boltinn 12.8.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Grindavík 3-4 Grindvíkingar unnu frábæran sigur, 4-3, á Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. Stjörnumenn komust í 2-0 en Grindvíkingar svöruðu með ótrúlegum síðari hálfleik og unnu flottan sigur. Íslenski boltinn 12.8.2012 00:01