Sport NBA: Los Angeles Clippers vann í San Antonio Los Angeles Clippers vann San Antonio Spurs í annað skiptið á þessu tímabili í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og að þessu sinni í San Antonio. Denver Nuggets endaði átta leikja sigurgöngu Memphis Grizzlies og Golden State Warriors vann Dallas Mavericks eftir framlengingu. Körfubolti 20.11.2012 09:00 Arnór: Markmiðið að spila með Flensburg á ný Arnór Atlason leggst undir hnífinn á morgun eftir að hann sleit hásin í leik með Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni um helgina. Hann missir af HM á Spáni í janúar en stefnir að því að spila á ný áður en keppnistímabilinu lýkur í vor. Handbolti 20.11.2012 07:00 Chelsea má ekki misstíga sig Sex félög geta tryggt sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld þegar næstsíðasta umferðin fer fram í riðlum E til H en það þarf þó mikið að gerast til að sum liðanna komist áfram. Fótbolti 20.11.2012 06:00 John Daly kastaði pútternum út í skóg John Daly er einn þekktasti kylfingur heims en hann þarf að stóla á að fá boð frá styrktaraðilum til þess að komast inn á PGA mótin í Bandaríkjunum og hann hefur reynt fyrir sér á Evrópumótaröðinni. Daly var langt frá sínu besta á opna Hong Kong meistaramótinu sem lauk um helgina. Þar missti hann stjórn á skapi sínu þar sem hann kastaði pútternum sínum út í skóg. Golf 19.11.2012 23:30 Meiðslin tóku sig upp í keilu Óvíst er hvenær Andrew Bynum geti spilað körfubolta á ný en hnémeiðsli tóku sig upp eftir keiluferð kappans á dögunum. Körfubolti 19.11.2012 22:45 Stjörnusigur ekki nógu stór | Þór og Tindastóll áfram Tindastóll og Þór frá Þorlákshöfn töpuðu bæði sínum leikjum í Lengjubikarkeppni karla í kvöld en tryggðu sér engu að síður tvö síðustu tvö sætin í undanúrslitum keppninnar. Körfubolti 19.11.2012 21:19 Cabaye spilar ekki meira á árinu Yohan Cabaye, leikmaður Newcastle, er meiddur í nára og verður af þeim sökum frá næstu 4-6 vikurnar. Enski boltinn 19.11.2012 20:15 Kagawa frá í fjórar vikur til viðbótar Shinji Kagawa, leikmaður Manchester United, verður frá keppni enn lengur en talið var. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, staðfesti það í dag. Fótbolti 19.11.2012 19:53 Andrea Pirlo: AC Milan leyfði mér ekki að fara til Chelsea Andrea Pirlo, miðjumaður Juventus, verður í sviðsljósinu annað kvöld þegar Juve tekur á móti Chelsea í gríðarlega mikilvægum leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Pirlo sagði frá því í viðtali í Daily Mail að litlu hefði munað að hann hefði orðið leikmaður Chelsea fyrir nokkrum árum. Fótbolti 19.11.2012 19:00 Clattenburg dæmir ekki um helgina Mark Clattenburg mun ekki dæma fjórðu helgina í röð en dómarinn liggur nú undir ásökunum um kynþáttaníð. Enski boltinn 19.11.2012 18:31 Nýr þjálfari þýðir vonandi fleiri tækifæri fyrir Birki Birkir Bjarnason og félagar í ítalska liðinu Pescara fá nýjan þjálfara á næstunni eftir að Giovanni Stroppa hætti með liðið eftir 1-0 tap á móti Siena um helgina. Fótbolti 19.11.2012 18:15 Úrslitahelgi í Hólminum í boði í kvöld Lokaleikir riðlakeppni Lengjubikars karla í körfubolta fara fram í kvöld og þá ræðst hvaða lið komast í lokaúrslitin úr riðlum C og D. Í gær tryggðu Grindavík og Snæfell sér sigur í riðlum A og B. Úrslitahelgin verður síðan í Stykkishólmi um næstu helgi. Körfubolti 19.11.2012 17:30 Shevchenko sagði nei Andriy Shevchenko sagði nei við því að taka við úkraínska landsliðinu í fótbolta en honum var boðið þjálfarastaðan þrátt fyrir að hafa enga reynslu af þjálfun. Oleg Blokhin hætti óvænt með landsliðið á dögunum og tók þess í stað við Dynamo Kyiv. Fótbolti 19.11.2012 16:45 Freyr Brynjarsson ekki að hætta - fésbókargrikkur Freyr Brynjarsson, handboltamaður í Haukum, hefur ekki verið að spila með liðinu að undanförnu vegna meiðsla en það styttist í endurkomu hans þrátt fyrir dramatíska yfirlýsingu á fésbókinni í morgun. Handbolti 19.11.2012 16:00 Raheem Sterling mun gera langtímasamning við Liverpool Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er fullviss um það að hinn 17 ára gamli Raheem Sterling muni skrifa undir langtímasamning við félagið á næstunni. Sterling hefur slegið í gegn á tímabilinu og enskir miðlar hafa birt fréttir af áhuga annarra liða. Enski boltinn 19.11.2012 15:30 Jesper Jensen sleit aftur krossband Danski miðjumaðurinn Jesper Jensen verður ekki með Skagamönnum í Pepsi-deild karla næsta sumar en í ljós hefur komið að hann er með slitið krossband. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net. Íslenski boltinn 19.11.2012 15:02 Litlar breytingar í Elliðavatni - aðeins veitt á flugu í Hólmsá Veiði 19.11.2012 14:48 Veigar Páll yfirgefur Stabæk og er á heimleið til Íslands Veigar Páll Gunnarsson mun leika fótbolta á Íslandi á næsta keppnistímabil en hinn 32 ára gamli framherji hefur ákveðið að snúa heim úr atvinnumennsku. Veigar staðfestir þetta í samtali við TV2 í Noregi. "Þetta var mjög erfið ákvörðun en ég hef ákveðið að flytja heim til Íslands,“ sagði Veigar en hann á eitt ár eftir að samningi sínum við Stabæk sem endaði í neðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 19.11.2012 14:21 Jafnt hjá West Ham og Stoke West Ham náði ekki að komast upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þar sem að liðið mátti sætta sig við 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Stoke City. Enski boltinn 19.11.2012 14:07 Ólafur Stefánsson: Gæti farið til Katar eða þjálfað í Þýskalandi Wolfgang Gütschow, umboðsmaður Ólafs Stefánssonar, segir í viðtali við vefsíðuna handball-world.com að valið hjá Ólafi gæti staðið á milli þess að spila í Þýskalandi eða fara til Katar ef hann tekur fram skóna á ný eftir áramót. Handbolti 19.11.2012 13:57 Bjarki Már þarf ekki að fara í aðgerð: "Kraftaverk" Bjarki Már Elísson, hornamaður HK, þarf ekki að fara í aðgerð eins og óttast var. Bjarki Már staðfesti þetta inn á twitter-síðu sinni í dag og jafnframt það að hann yrði með HK-liðinu á móti Aftureldingu á fimmtudaginn. Handbolti 19.11.2012 13:45 Atli Hilmarsson sleit tvisvar hásin á ferlinum Atli Hilmarsson, faðir landsliðsmannsins Arnórs Atlasonar, veit vel hvað sonur hans er að ganga í gegnum um en Arnór sleit hásin í Meistaradeildarleik Flensburg og HSV Hamburg í gær. Atli Hilmarsson var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum á X-inu í dag þar sem Atli ræddi meðal annars um sín kynni af því að slíta hásin sem gerðist tvisvar sinnum á hans ferli. Handbolti 19.11.2012 12:30 Frimpong lánaður til Charlton eins og Eggert Gunnþór Emmanuel Frimpong, miðjumaður Arsenal, mun spila með Charlton út árið 2012 en hann hefur verið lánaður til enska b-deildarfélagsins fram í janúar. Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson kom til Charlton á láni frá Úlfunum á dögunum. Enski boltinn 19.11.2012 11:45 Rio Ferdinand gæti elt Anelka og Drogba til Kína Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United, er að renna út á samningi næsta sumar og er enn ekki viss hvað hann ætlar að gera. Guardian hefur þó heimildir fyrir því að hann sé alvarlega að hugsa um að yfirgefa Old Trafford í sumar. Enski boltinn 19.11.2012 11:15 Carragher: Liverpool getur náð Meistaradeildarsæti Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, hefur fulla trú á því að liðið geti náð Meistaradeildarsæti í vor þrátt fyrir slaka byrjun í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann 3-0 sigur á Wigan um helgina og er nú átta stigum frá Meistaradeildarsæti. Enski boltinn 19.11.2012 09:45 Hvernig fór Norwich að því að vinna Man. United? - allt inn á Vísi Þeir sem misstu af enska boltanum um helgina eða vilja bara horfa á það helsta aftur þá er hægt að sjá svipmyndir um öllum leikjum helgarinnar inn á Sjónvarpsvef Vísis. Enski boltinn 19.11.2012 09:15 NBA: Kobe Bryant og Kevin Durant báðir með þrefalda tvennu Kobe Bryant og Kevin Durant sýndu báðir fjölhæfni sína í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar þeir voru með þrefalda tvennu í sigrum sinna liða. Los Angeles Lakers vann í fjórða sinn í fimm leikjum og það þótt að nýi þjálfarinn Mike D'Antoni hafi frestað komu sinni á bekkinn. New York Knicks og Brooklyn Nets héldu áfram góðu gengi sínu en Boston Celtics tapaði á móti Detroit Pistons. Körfubolti 19.11.2012 09:00 Konungur ljónanna Ljónin hans Guðmundar Guðmundssonar hafa byrjað leiktíðina með miklum látum og eru búnir að vinna fyrstu tólf leiki sína í þýsku úrvalsdeildinni. Liðið er mikið breytt milli ára og Guðmundur segist hafa valið sigurvegara í sitt nýja lið. Handbolti 19.11.2012 07:30 Guðmundur: Alexander er sigurvegari Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá Rhein-Neckar Löwen í vetur. Hann á stóran þátt í frábæru gengi liðsins á þessari leiktíð. Hann er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar og ef við drögum mark af vítalínunni frá er Alexander markahæstur ásamt Filip Jicha og Hans Lindberg. Handbolti 19.11.2012 07:00 Aron: Ekki auðvelt að fylla skarð Arnórs Íslenska landsliðið og þýska liðið Flensburg varð fyrir miklu áfalli í gær þegar Arnór Atlason meiddist illa í leik með Flensburg gegn Hamburg í Meistaradeild Evrópu. Arnór sleit þá hásin í fyrri hálfleik. Handbolti 19.11.2012 06:30 « ‹ ›
NBA: Los Angeles Clippers vann í San Antonio Los Angeles Clippers vann San Antonio Spurs í annað skiptið á þessu tímabili í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og að þessu sinni í San Antonio. Denver Nuggets endaði átta leikja sigurgöngu Memphis Grizzlies og Golden State Warriors vann Dallas Mavericks eftir framlengingu. Körfubolti 20.11.2012 09:00
Arnór: Markmiðið að spila með Flensburg á ný Arnór Atlason leggst undir hnífinn á morgun eftir að hann sleit hásin í leik með Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni um helgina. Hann missir af HM á Spáni í janúar en stefnir að því að spila á ný áður en keppnistímabilinu lýkur í vor. Handbolti 20.11.2012 07:00
Chelsea má ekki misstíga sig Sex félög geta tryggt sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld þegar næstsíðasta umferðin fer fram í riðlum E til H en það þarf þó mikið að gerast til að sum liðanna komist áfram. Fótbolti 20.11.2012 06:00
John Daly kastaði pútternum út í skóg John Daly er einn þekktasti kylfingur heims en hann þarf að stóla á að fá boð frá styrktaraðilum til þess að komast inn á PGA mótin í Bandaríkjunum og hann hefur reynt fyrir sér á Evrópumótaröðinni. Daly var langt frá sínu besta á opna Hong Kong meistaramótinu sem lauk um helgina. Þar missti hann stjórn á skapi sínu þar sem hann kastaði pútternum sínum út í skóg. Golf 19.11.2012 23:30
Meiðslin tóku sig upp í keilu Óvíst er hvenær Andrew Bynum geti spilað körfubolta á ný en hnémeiðsli tóku sig upp eftir keiluferð kappans á dögunum. Körfubolti 19.11.2012 22:45
Stjörnusigur ekki nógu stór | Þór og Tindastóll áfram Tindastóll og Þór frá Þorlákshöfn töpuðu bæði sínum leikjum í Lengjubikarkeppni karla í kvöld en tryggðu sér engu að síður tvö síðustu tvö sætin í undanúrslitum keppninnar. Körfubolti 19.11.2012 21:19
Cabaye spilar ekki meira á árinu Yohan Cabaye, leikmaður Newcastle, er meiddur í nára og verður af þeim sökum frá næstu 4-6 vikurnar. Enski boltinn 19.11.2012 20:15
Kagawa frá í fjórar vikur til viðbótar Shinji Kagawa, leikmaður Manchester United, verður frá keppni enn lengur en talið var. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, staðfesti það í dag. Fótbolti 19.11.2012 19:53
Andrea Pirlo: AC Milan leyfði mér ekki að fara til Chelsea Andrea Pirlo, miðjumaður Juventus, verður í sviðsljósinu annað kvöld þegar Juve tekur á móti Chelsea í gríðarlega mikilvægum leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Pirlo sagði frá því í viðtali í Daily Mail að litlu hefði munað að hann hefði orðið leikmaður Chelsea fyrir nokkrum árum. Fótbolti 19.11.2012 19:00
Clattenburg dæmir ekki um helgina Mark Clattenburg mun ekki dæma fjórðu helgina í röð en dómarinn liggur nú undir ásökunum um kynþáttaníð. Enski boltinn 19.11.2012 18:31
Nýr þjálfari þýðir vonandi fleiri tækifæri fyrir Birki Birkir Bjarnason og félagar í ítalska liðinu Pescara fá nýjan þjálfara á næstunni eftir að Giovanni Stroppa hætti með liðið eftir 1-0 tap á móti Siena um helgina. Fótbolti 19.11.2012 18:15
Úrslitahelgi í Hólminum í boði í kvöld Lokaleikir riðlakeppni Lengjubikars karla í körfubolta fara fram í kvöld og þá ræðst hvaða lið komast í lokaúrslitin úr riðlum C og D. Í gær tryggðu Grindavík og Snæfell sér sigur í riðlum A og B. Úrslitahelgin verður síðan í Stykkishólmi um næstu helgi. Körfubolti 19.11.2012 17:30
Shevchenko sagði nei Andriy Shevchenko sagði nei við því að taka við úkraínska landsliðinu í fótbolta en honum var boðið þjálfarastaðan þrátt fyrir að hafa enga reynslu af þjálfun. Oleg Blokhin hætti óvænt með landsliðið á dögunum og tók þess í stað við Dynamo Kyiv. Fótbolti 19.11.2012 16:45
Freyr Brynjarsson ekki að hætta - fésbókargrikkur Freyr Brynjarsson, handboltamaður í Haukum, hefur ekki verið að spila með liðinu að undanförnu vegna meiðsla en það styttist í endurkomu hans þrátt fyrir dramatíska yfirlýsingu á fésbókinni í morgun. Handbolti 19.11.2012 16:00
Raheem Sterling mun gera langtímasamning við Liverpool Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er fullviss um það að hinn 17 ára gamli Raheem Sterling muni skrifa undir langtímasamning við félagið á næstunni. Sterling hefur slegið í gegn á tímabilinu og enskir miðlar hafa birt fréttir af áhuga annarra liða. Enski boltinn 19.11.2012 15:30
Jesper Jensen sleit aftur krossband Danski miðjumaðurinn Jesper Jensen verður ekki með Skagamönnum í Pepsi-deild karla næsta sumar en í ljós hefur komið að hann er með slitið krossband. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net. Íslenski boltinn 19.11.2012 15:02
Veigar Páll yfirgefur Stabæk og er á heimleið til Íslands Veigar Páll Gunnarsson mun leika fótbolta á Íslandi á næsta keppnistímabil en hinn 32 ára gamli framherji hefur ákveðið að snúa heim úr atvinnumennsku. Veigar staðfestir þetta í samtali við TV2 í Noregi. "Þetta var mjög erfið ákvörðun en ég hef ákveðið að flytja heim til Íslands,“ sagði Veigar en hann á eitt ár eftir að samningi sínum við Stabæk sem endaði í neðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 19.11.2012 14:21
Jafnt hjá West Ham og Stoke West Ham náði ekki að komast upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þar sem að liðið mátti sætta sig við 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Stoke City. Enski boltinn 19.11.2012 14:07
Ólafur Stefánsson: Gæti farið til Katar eða þjálfað í Þýskalandi Wolfgang Gütschow, umboðsmaður Ólafs Stefánssonar, segir í viðtali við vefsíðuna handball-world.com að valið hjá Ólafi gæti staðið á milli þess að spila í Þýskalandi eða fara til Katar ef hann tekur fram skóna á ný eftir áramót. Handbolti 19.11.2012 13:57
Bjarki Már þarf ekki að fara í aðgerð: "Kraftaverk" Bjarki Már Elísson, hornamaður HK, þarf ekki að fara í aðgerð eins og óttast var. Bjarki Már staðfesti þetta inn á twitter-síðu sinni í dag og jafnframt það að hann yrði með HK-liðinu á móti Aftureldingu á fimmtudaginn. Handbolti 19.11.2012 13:45
Atli Hilmarsson sleit tvisvar hásin á ferlinum Atli Hilmarsson, faðir landsliðsmannsins Arnórs Atlasonar, veit vel hvað sonur hans er að ganga í gegnum um en Arnór sleit hásin í Meistaradeildarleik Flensburg og HSV Hamburg í gær. Atli Hilmarsson var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum á X-inu í dag þar sem Atli ræddi meðal annars um sín kynni af því að slíta hásin sem gerðist tvisvar sinnum á hans ferli. Handbolti 19.11.2012 12:30
Frimpong lánaður til Charlton eins og Eggert Gunnþór Emmanuel Frimpong, miðjumaður Arsenal, mun spila með Charlton út árið 2012 en hann hefur verið lánaður til enska b-deildarfélagsins fram í janúar. Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson kom til Charlton á láni frá Úlfunum á dögunum. Enski boltinn 19.11.2012 11:45
Rio Ferdinand gæti elt Anelka og Drogba til Kína Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United, er að renna út á samningi næsta sumar og er enn ekki viss hvað hann ætlar að gera. Guardian hefur þó heimildir fyrir því að hann sé alvarlega að hugsa um að yfirgefa Old Trafford í sumar. Enski boltinn 19.11.2012 11:15
Carragher: Liverpool getur náð Meistaradeildarsæti Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, hefur fulla trú á því að liðið geti náð Meistaradeildarsæti í vor þrátt fyrir slaka byrjun í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann 3-0 sigur á Wigan um helgina og er nú átta stigum frá Meistaradeildarsæti. Enski boltinn 19.11.2012 09:45
Hvernig fór Norwich að því að vinna Man. United? - allt inn á Vísi Þeir sem misstu af enska boltanum um helgina eða vilja bara horfa á það helsta aftur þá er hægt að sjá svipmyndir um öllum leikjum helgarinnar inn á Sjónvarpsvef Vísis. Enski boltinn 19.11.2012 09:15
NBA: Kobe Bryant og Kevin Durant báðir með þrefalda tvennu Kobe Bryant og Kevin Durant sýndu báðir fjölhæfni sína í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar þeir voru með þrefalda tvennu í sigrum sinna liða. Los Angeles Lakers vann í fjórða sinn í fimm leikjum og það þótt að nýi þjálfarinn Mike D'Antoni hafi frestað komu sinni á bekkinn. New York Knicks og Brooklyn Nets héldu áfram góðu gengi sínu en Boston Celtics tapaði á móti Detroit Pistons. Körfubolti 19.11.2012 09:00
Konungur ljónanna Ljónin hans Guðmundar Guðmundssonar hafa byrjað leiktíðina með miklum látum og eru búnir að vinna fyrstu tólf leiki sína í þýsku úrvalsdeildinni. Liðið er mikið breytt milli ára og Guðmundur segist hafa valið sigurvegara í sitt nýja lið. Handbolti 19.11.2012 07:30
Guðmundur: Alexander er sigurvegari Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá Rhein-Neckar Löwen í vetur. Hann á stóran þátt í frábæru gengi liðsins á þessari leiktíð. Hann er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar og ef við drögum mark af vítalínunni frá er Alexander markahæstur ásamt Filip Jicha og Hans Lindberg. Handbolti 19.11.2012 07:00
Aron: Ekki auðvelt að fylla skarð Arnórs Íslenska landsliðið og þýska liðið Flensburg varð fyrir miklu áfalli í gær þegar Arnór Atlason meiddist illa í leik með Flensburg gegn Hamburg í Meistaradeild Evrópu. Arnór sleit þá hásin í fyrri hálfleik. Handbolti 19.11.2012 06:30