Arsenal glopraði niður tveggja marka forystu á heimavelli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Þungt yfir Skyttunum þessa dagana
Þungt yfir Skyttunum þessa dagana vísir/getty
Það var boðið upp á Lundúndarslag á Emirates leikvangnum í dag þegar Arsenal fékk Crystal Palace í heimsókn.

Gestirnir mættu seint til leiks og Arsenal færði sér það í nyt. Staðan eftir 10 mínútna leik 2-0 fyrir Arsenal og markaskorararnir óvæntir því miðvarðaparið Sokratis og David Luiz sá um markaskorun.



Luka
 Milivojevic minnkaði muninn fyrir Palace með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd með aðstoð VAR en áður hafði dómari leiksins spjaldað Wilfried Zaha fyrir leikaraskap.

Á 52.mínútu jafnaði Jordan Ayew metin fyrir gestina. Skömmu síðar var Granit Xhaka, fyrirliða Arsenal, skipt af velli. Svisslendingurinn var ekkert að drífa sig af velli og fékk í kjölfarið að heyra það frá stuðningsmönnum Arsenal. Hann hélt engu að síður áfram að labba af velli og svaraði stuðningsmönnum fullum hálsi áður en hann reif sig úr treyjunni á leið sinni til búningsherbergja. Ótrúleg framkoma fyrirliðans.

Sokratis skoraði sitt annað mark skömmu fyrir leikslok en það var dæmt af eftir VAR skoðun. 

Fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 2-2.

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira