Innlent

Leikskólastarfsmaður sagðist á Facebook vilja kyrkja barn

Ingimar Karl Helgason. skrifar
Leikskólastafsmaðurinn lét ummælin falla í hálfkæringi. Þau voru engu að síður litin alvarlegum augum. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint.
Leikskólastafsmaðurinn lét ummælin falla í hálfkæringi. Þau voru engu að síður litin alvarlegum augum. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni / Stefán

Ummæli á Facebook hafa orðið til þess að fólk hefur verið rekið úr starfi. Dæmi er um að starfsmaður á leikskóla hafi sagst vilja kyrkja barn og goldið fyrir það með starfinu. Einnig eru dæmi um að konur hafi upplýst um óléttu á Facebook og verið reknar áður en þær tilkynntu vinnuveitanda um það formlega.

Fréttastofu er kunnugt um dæmi um að fólk hafi misst vinnuna vegna annars konar ummæla á Facebook. Dæmi er um að starfsmaður leikskóla hafi verið rekinn úr starfi, eftir að hafa sagt í hálfkæringi á Facebook, að barn væri svo erfitt, að hann vildi helst kyrkja það. Starfsmaðurinn mun aldrei hafa lagt hendur á barnið eða neitt í slíka veru - en málið var litið mjög alvarlegum augum.

Harpa Ólafsdóttir, sviðsstjóri hjá Eflingu, segir all nokkur dæmi um að fólk hafi verið rekið úr starfi fyrir ummæli á Facebook.

„Það eru þá starfsmenn sem hafa verið að sinna annað hvort börnum eða öldruðum. Þeir hafa látið ýmis ummæli falla um viðkomandi skjólstæðing á Facebook síðu. Stundum hafa aðstandendur lesið þessar færslur og ekki verið sáttir."

En hefur stéttarfélagið ekki beitt sér í þágu félagsmanna sinna í þessum málum?

„Við höfum hreinlega þurft að vega það og meta í hverju tilviki fyrir sig, en vissulega grípum við til varna ef við teljum að það sé staða til þess, svo sannarlega."

Harpa segir hins vegar að þau tilvik sem hafi komið upp á, hafi verið þannig vaxin að erfitt hafi verið að grípa til varna. Hún hvetur félagsmenn sína til að flíka ekki málum úr starfi sínu á Facebook.


Tengdar fréttir

Barnshafandi konum sagt upp eftir stöðufærslur á Facebook

Nokkur dæmi eru um það að konur hafi misst vinnuna eftir að hafa tilkynnt að þær væru barnshafandi á Facebook-síðum sínum áður en þær tilkynntu vinnuveitendum sínum það formlega. Vinnuveitendurnir hafi í kjölfarið sagt þeim upp störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×