Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Velti allt á því hverjir mæti á kjör­stað

Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað.

Innlent
Fréttamynd

Stein­grímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildar­viðræðum

Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið þann 29. ágúst næstkomandi. Ástæðan sé meðal annars reynsla hans af viðræðunum árið 2009 en að þá hafi hvorki gengið né rekið að ræða undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. 

Innlent
Fréttamynd

For­skot Já-hliðarinnar mælist minna

Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka.

Innlent
Fréttamynd

„Ég get ekki orða bundist“

Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þor­gerður af­þakkaði

Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í samtökunum Sjá, munu mæta þeim Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, í kappræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Utanríkisráðherra var boðið að taka þátt í kappræðunum en þekktist ekki boðið.

Innlent
Fréttamynd

„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún þurfi að stíga upp – Ólafur beri á­byrgð á Nei-inu

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Já-hreyfinguna hafa farið hægt af stað og skorta skýra leiðtoga. Traustur sigur náist ekki nema Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beiti sér af fullum þunga. Á sama tíma hafi Ólafur Ragnar Grímsson orðið nánast óskoraður leiðtogi Nei-hreyfingarinnar og bundið pólitíska arfleifð sína við úrslitin.

Innlent
Fréttamynd

Norskir nei-sinnar bæta við sig

Norðmenn fylgjast grannt með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti Norðmanna er enn andvígur því að sækja aftur um aðild að sambandinu.

Erlent
Fréttamynd

Ekki mót­fallin aðildarviðræðum væru samnings­mark­mið skýrari

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS segir samtökin vilja skýrari samningsmarkmið og að rauð lína verði lögð um eignarhald á fiskveiðiauðlind áður en haldið er í samningsviðræður við Evrópusambandið. Sé það gert setji SFS og sjávarútvegsgrein sig ekki á móti því að það verði haldið áfram með viðræður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Um­deildur fundur Baudenbacher

Opinn fundur Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu er haldinn í Sjálfstæðissalnum í dag. Hægt er að horfa á hann í beinni útsendingu.

Innlent
Fréttamynd

Kaup­endur yfir­leitt með raun­hæft mat og vel undir­búnir

Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, segir sumartímann yfirleitt rólegan í fasteignaviðskiptum en það hafi gengið vel í sumar. Hún er bjartsýn fyrir komandi mánuðum þrátt fyrir mögulega riftingu á kjarasamningum og kosningu um Evrópusambandið. Fólk hafi trú á fasteignamarkaðnum og þurfi á honum að halda.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rósa Björk segir já

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, hyggst segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Í stefnu Vinstri grænna er því haldið fram að hagsmunum landsmanna sé best komið utan Evrópusambandsins en rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast þó segja já. Hún segist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins. 

Innlent
Fréttamynd

Muni hlusta og taka væntingar, þrár og á­hyggjur til greina

Forsætisráðherra vill að þjóðin komi sameinuð út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst, sama hvernig fer. Hún hefur skipulagt ferð um landið í þeim tilgangi að hlusta á væntingar, þrár og áhyggjur fólks í sambandi við atkvæðagreiðsluna.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Banda­ríkjunum

Bogi Ágústsson telur marga landsmenn vera að hluta til í afneitun varðandi breyttan heim og að sú vernd sem við höfum hlotið frá Bandaríkjunum blindi fólk fyrir því að Evrópa gæti verið valkostur. Neikvæð niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst myndi þýða að ekkert verði af framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fóru árin 2009-2013.

Innlent
Fréttamynd

Sakar rektor um að hindra upp­lýsinga­miðlun til þjóðarinnar

Ragnar Árnason, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, sakar rektor um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar til þjóðarinnar um Ísland og Evrópusambandið með færslu fyrirhugaðs fyrirlesturs dr. Carls Baudenbacher. Rektor Háskóla Íslands segir að sérstakar reglur gildi um hátíðarsal háskólans en að fyrirlestrinum standi annar salur til boða.

Innlent
Fréttamynd

Ósk­hyggja að vona að af­gerandi svar fáist þann 29. ágúst

Það er óskhyggja að vonast til að afgerandi stuðningur með eða á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið fáist upp úr kjörkössunum þann 29. ágúst. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði. Sagan í seinni tíð sýni að afar mjótt verði á munum þegar atkvæði verða talin.

Innlent
Fréttamynd

Baudenbacher út­hýst úr há­tíðar­sal há­skólans

Fyrirhuguðum fyrirlestri um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins á að halda 10. ágúst næstkomandi hefur verið færður úr hátíðarsal Háskóla Íslands. Ástæðan mun vera sú að fyrirlesturinn var álitinn of pólitískur.

Innlent