Vestri

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Vestri 74-67 | Nýliðarnir reyndust Valsmönnum erfiðir
Valur tók á móti nýliðum Vestra í Subway-deild karla að Hlíðarenda í kvöld. Valsmenn áttu erfitt með að hrista nýliðana af sér, en unnu að lokum góðan sjö stiga sigur, 74-67.

Umfjöllun og viðtöl: Vestri - Þór Ak. 88-77 | Dýrmætur sigur heimamanna
Vestri vann frábæran 11 stiga sigur á Þór Akureyri er liðin mættust á Ísafirði í Subway-deild karla í kvöld, lokatölur 88-77.

Lykilmenn framlengja við Vestra
Þeir Pétur Bjarnason og Vladimir Tufegdzig, eða Túfa eins og hann er yfirleitt kallaður, hafa framlengt smaningum sínum við knattspyrnufélag Vestra frá Ísafirði.

Stórsigrar hjá KR og ÍR | Þór Akureyri, Vestri einnig áfram
Fimm leikir fóru fram í VÍS-bikar karla í körfubolta í kvöld. KR og ÍR komust áfram eftir stórsigra. Þór Akureyri og Vestri eru einnig komin áfram.

Vestri heldur Jóni Þór og lykilmönnum
Jón Þór Hauksson verður áfram við stjórnvölinn hjá Vestra á næstu leiktíð og tveir lykilmanna liðsins hafa framlengt samninga sína við félagið.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Vestri 100-77| Fyrsti sigur Íslandsmeistaranna í Subway-deildinni
Þór Þorlákshöfn vann sinn fyrsta leik í Subway-deildinni. Íslandsmeistararnir voru ekki í vandræðum með nýliða Vestra. Þór Þorlákshöfn gerði 30 stig í 3. leikhluta og stakk af. Þór vann á endanum 23 stiga sigur 100-77.

Hafa meiri trú á Breiðablik en Vestra
Subway deildin í körfubolta fór af stað með pompi og pragt fyrir helgi.

Umfjöllun: Vestri - Keflavík 99-101 | Nýliðarnir óheppnir að ná ekki sigri gegn deildarmeisturunum
Vestri tók á móti deildarmeisturunum frá Keflavík í sínum fyrsta leik í efstu deild í háa herrans tíð. Það er óhætt að segja að nýliðarnir hafi staðið í deildarmeisturunum, en lokatölur urðu 99-101, Keflvíkingum í vil, eftir tvöfalda framlengingu.

Ég hafði alltaf góða tilfinningu
„Mér fannst við byrja þennan leik frábærlega, fyrstu tuttugu mínúturnar. Ég er ógeðslega svekktur með fyrsta markið,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari Vestra eftir súrt tap gegn Íslandsmeisturum Víkings í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Umfjöllun, myndir og viðtal: Vestri - Víkingur 0-3 | Íslandsmeistararnir geta enn unnið tvöfalt
Íslandsmeistarar Víkings unnu 3-0 sigur á Vestra í undanúrslitum Mjólkurbikars karla. Kristall Máni Ingason gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk Íslandsmeistaranna.

Jón Þór: „Fyrst og fremst leiðinlegt fyrir fólkið fyrir vestan“
„Við slógum Íslandsmeistarana út í 8 liða úrslitum og núna þurfum við aftur að slá Íslandsmeistarana út í undanúrslitum“, segir Jón Þór Hauksson þjálfari Vestra sem mætir Víkingum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á Meistaravöllum á morgun. Hann harmar þó að leikurinn geti ekki farið fram á Ísafirði.

Vestri og Víkingur mætast í Vesturbænum
Snjóblásarar, gröfur og bænir um betri tíð dugðu ekki til að Torfnesvöllur á Ísafirði, Olísvöllurinn eins og hann heitir í dag, yrði tilbúinn fyrir komu nýkrýndra Íslandsmeistara Víkings á laugardaginn.

Auglýsa eftir snjóblásurum en spila líklega í boði liðs sem vill að þeir tapi
„Hvað eru til margir snjóblásarar hér í bænum?“ Svo spyr Samúel Samúelsson í stjórn Vestra en Vestfirðingar ætla að reyna allt sem þeir geta til að geta spilað á Ísafirði um helgina, gegn Íslandsmeisturum Víkings í Mjólkurbikarnum.

Veðrið gæti blásið Vestfirðingum suður í Kaplakrika
Svo gæti farið að Vestri neyðist til að spila undanúrslitaleik sinn gegn Víkingi, í Mjólkurbikar karla í fótbolta, á höfuðborgarsvæðinu. Olísvöllurinn á Ísafirði verður mögulega ekki leikhæfur eftir snjókomu.

Jafntefli í lokaleik Lengjudeildar
Kórdrengir misstu frá sér tveggja marka forystu á Ísafirði er liðið gerði 3-3 jafntefli við Vestra í lokaleik tímabilsins í Lengjudeild karla. Um var að ræða frestaðan leik og því var þetta síðasti leikur deildarinnar áður en haldið er í frí.

„Svart ský yfir Hlíðarenda“
Valsmenn töpuðu fjórða leiknum í röð og misstu um leið möguleikann á því að vinna titil á þessu sumri þegar Hlíðarendaliðið féll út úr Mjólkurbikarnum á móti Lengjudeildarliði Vestra. Mjólkurbikarmörkin ræddu Valsliðið.

Búið að draga í undanúrslitin: Bikarmeistararnir fara á Ísafjörð og Keflavík á Skagann
Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslit Mjólkurbikars karla. Vestri - eina liðið úr Lengjudeildinni sem er í undanúrslitum - fær bikarmeistara Víkings í heimsókn á meðan Keflavík mætir ÍA á Akranesi.

Umfjöllun og viðtal: Vestri - Valur 2-1 | Íslandsmeistararnir fengu rothögg á Ísafirði
Vestri er kominn í undanúrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir að hafa slegið út fráfarandi Íslandsmeistara Vals með mögnuðum 2-1 sigri á Ísafirði.

Kórdrengir halda lífi í baráttunni um sæti í efstu deild
Nú rétt í þessu lauk tveimur leikjum í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Kórdrengir unnu mikilvægan 4-0 heimasigur gegn föllnum Víkingum frá Ólafsvík og halda því enn í vonina um sæti í efstu deild. Á sama tíma gerðu Afturelding og Vestri 2-2 jafntefli.

Kórdrengir, Selfyssingar og Vestri með heimasigra í Lengjudeildinni
Fimm leikir fara fram í Lengjudeild karla í dag og nú er þrem þeirra lokið. Tíu leikmenn Kórdrengja héldu út gegn Þór frá Akureyri og unnu 2-0. Selfyssingar eru að hrista af sér falldrauginn eftir 3-0 sigur gegn Aftureldingu og Vestri vann góðan 2-0 sigur gegn botnliði Víkinga frá Ólafsvík.

Þrír Vestramenn smitaðir og allt liðið í sóttkví
Þrír úr liði Vestra á Ísafirði, sem leikur í Lengjudeild karla, hafa greinst með kórónuveiruna. Allir leikmenn liðsins, auk þjálfarateymis, eru því komnir í sóttkví.

Dregið í átta liða úrslitin í Mjólkurbikarmörkunum í beinni í kvöld
Það verða ekki bara sýnt öll mörkin í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Mjólkurbikarmörkunum í kvöld heldur kemur framhaldið í keppninni einnig í ljós.

Vestri skoraði fjögur á sjö mínútum og er á leið í átta liða úrslit
Það var Lengjudeildarslagur þegar að Vestri tók á móti Þór í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í kvöld. Markalaust var í hálfleik, en heimamenn skoruðu fjögur í seinni hálfleik og unnu að lokum öruggan 4-0 sigur.

Vestri vann annan leikinn í röð með 10 menn
Tveimur leikjum er lokið í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. Vestri vann 2-1 útisigur á Grindavík og Afturelding lagði Þór 2-0.

Ungu Stjörnustrákarnir yfirgefa félagið í körfuboltanum
Karlakörfuboltalið Stjörnunnar hefur misst tvo unglingalandsliðsmenn í önnur félög á síðustu dögum og áður höfðu tvíburarnir af vestan einnig snúið til sín heima.

Tíu leikmenn Vestra unnu Gróttu eftir ótrúlegan lokakafla
Vestri vann 4-3 sigur á Gróttu í síðari leik kvöldsins í Lengjudeild karla í fótbolta á Ísafirði. Sigurinn skýtur vestanmönnum upp í 4. sæti deildarinnar.

Dramatískur sigur Selfyssinga fyrir vestan
Selfoss lagði Vestra 2-1 í eina leik dagsins í Lengjudeild karla í fótbolta á Olís-vellinum á Ísafirði. Sigurmark gestanna var skorað í lok uppbótartíma.

Dramatískur sigur í fyrsta leik Jóns Þórs
Jón Þór Hauksson vann 2-1 sigur á Þrótti í sínum fyrsta leik sem þjálfari Vestra í Lengjudeild karla.

Jón Þór tekinn við Vestra
Jón Þór Hauksson hefur verið ráðinn þjálfari Vestra í Lengjudeild karla. Hann hefur skrifað undir samning við félagið út tímabilið.

Breytingar hjá Vestra
Heiðar Birnir Torleifsson er hættur sem þjálfari Vestra í Lengjudeild karla en þetta staðfesti félagið í kvöld.