Fótbolti

Afturelding sótti þrjú stig fyrir vestan

Atli Arason skrifar
Hinn belgíski Marciano Aziz skoraði tvö mörk fyrir Aftureldingu.
Hinn belgíski Marciano Aziz skoraði tvö mörk fyrir Aftureldingu. Twitter/UMFAfturelding

Lið Aftureldingar úr Mosfellsbæ gerði sér góða ferð á Vestfirði og vann 1-4 sigur á liði Vestra í Lengjudeild karla í fótbolta.

Það voru þó heimamenn sem byrjuðu leikinn betur er þeir skoruðu fyrsta mark leiksins á 26. mínútu. Var þar að verki Silas Songani frá Simbabve og Vestri var 1-0 yfir í hálfleik.

Kári Steinn Hlífarsson jafnaði leikinn fyrir Aftureldingu þegar níu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik en rúmum 13 mínútum eftir mark Kára, á 67. mínútu, fékk Elmar Atli Garðarsson, leikmaður Vestra, að líta á sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt.

Gestirnir gengu því á lagið einum leikmanni fleiri. Hrafn Guðmundsson kom Aftureldingu í forystu á 71. mínútu leiksins og Marciano Aziz bætti við tveimur mörkum rétt fyrir leikslok, á 88. og 94. mínútu.

Lokatölur voru því 1-4 fyrir Aftureldingu sem fer með sigrinum upp fyrir Vestra og í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig. Vestri er með jafn mörg stig en töluvert lakari markatölu sem gerir að verkum að þeir sitja í 9. sæti deildarinnar, níu stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Næsti leikur Vestra er einnig á heimavelli en í þetta sinn gegn Gróttu næsta laugardag. Afturelding fer hins vegar í heimsókn til Grindavíkur fimmtudaginn 21. júlí.

Upplýsingar um markaskorara koma af vef KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×