Framhaldsskólar

Fréttamynd

Sumir fram­halds­skólar líti fram hjá ung­linga­drykkju

Bjarni Gautur Eydal Tómasson, tómstunda- og félagsmálafræðingur, segir suma framhaldsskóla líta fram hjá unglingadrykkju. Hún hafi aukist síðustu ár. Það sé áríðandi að byggja upp jákvætt félagslíf fyrir ungmenni sem ekki felur í sér drykkju í stað þess að banna hana bara.

Innlent
Fréttamynd

Að­eins um 28 prósent inn­flytj­enda með grunn­færni í les­skilningi

Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði.

Innlent
Fréttamynd

PISA: „Þetta er á­kveðinn sorgardagur“

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir PISA-niðurstöðurnar ekki koma sér neitt á óvart. Hann hafi verið búinn að spá fyrir um hrap í mælingum. Hann segir þörf á samfélagsátaki til að bregðast við. Ráðherra boðaði fjölda aðgerða í kynningu sinni fyrr í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Ís­land sé með rauða spjaldið í náms­árangri barna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir Ísland með rauða spjaldið þegar kemur að námsárangri barna. Þessu verði að snúa við og hennar von sé að í næstu PISA-könnun verði hægt að sjá betri niðurstöður. Til að bregðast við niðurstöðunum verður lagður um hálfur milljarður í gerð nýrra námsgagna og aukin áhersla á ákveðin kjarnafög. 

Innlent
Fréttamynd

„Við hefðum viljað sam­ráð frekar en sam­tal“

Formaður Kennarasambandsins segir að kennarar hefðu viljað samráð frekar en samtal um ákvörðun er varðar breytt námsmat í grunnskólum landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur mikill hiti verið á fundum kennara, skólastjórnenda og fulltrúa ráðuneytisins síðustu daga.

Innlent
Fréttamynd

MR vinnur gegn mark­miðum menntayfirvalda

Á næstu vikum hefst fyrsta námsár í Menntaskólanum í Reykjavík þar sem fyrsta árs nemar á málabraut fá ekki að læra fornmál, jafnvel þó þeir hyggi á áframhaldandi nám á fornmáladeild. Þetta er sorgleg staða og vísir að því sem varla er hægt að sjá sem annað en hægfara dauða einu fornmáladeildar íslensks menntaskóla og þar með klassískrar menntunar í landinu. Því miður virðist ástæðan helst vera metnaðarleysi skólayfirvalda gagnvart fornmálum og klassískri menntun og skilningsleysi á vægi þeirra og gildi fyrir samfélagið, sem er þróun sem við horfum upp á víðar um hinn vestræna heim.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja fá ó­keypis að­gang að gommu af höfundar­vörðu efni

Hildur Knútsdóttir rithöfundur segir að hún hafi fengið sérkennilegt viðskiptaboð fyrir skömmu sem gekk út á „samstarf“ við aðila sem eru að þróa gervigreindarforrit til að styðja við lestrarkennslu. Meinið er að það stóð ekki til að greiða neitt fyrir texta hennar.

Innlent
Fréttamynd

Hall­dór Árni Sveins­son er látinn

Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, er látinn. Halldór Árni var fæddur 22. febrúar 1955 en hann varð bráðkvaddur að heimili sínu í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Enginn fram­halds­skóla­kennari meti stöðu ný­nema mjög góða

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lokið fyrstu greiningu á stöðu námsefnis í stærðfræði grunn- og framhaldsskóla. Þrjátíu prósent kennara segja aðalnámsskrá styðja vel við skýra framvindu í námi og sextíu og tvö prósent framhaldsskólakennara meta stöðu nýnema frekar eða mjög veika. Lagt er til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára.

Innlent
Fréttamynd

Hætta á að náms­fram­boð dragist saman

Bæjarstjóri Akureyrar segir eftirspurn eftir námi í bænum meiri en kerfið ræður við. Ríkið þurfi að grípa til aðgerða og styðja við menntastofnanir bæjarins. Hætta sé á að námsframboð dragist saman. 

Innlent
Fréttamynd

Skipuð skóla­meistari eftir storminn á Bif­röst

Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Margrét var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár en hætti eftir að hún kærði þrjá kennara við skólann til siðanefndar.

Innlent
Fréttamynd

Sálin tekin úr skólunum

Ræða Karls Frímannssonar, skólameistara Menntaskólans á Akureyri, við útskrift skólans 17. júní sl. hefur vakið mikla athygli.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar skorar á íslenska ríkið að setja í forgang að útbúa námsefni fyrir öll fög og alla bekki í samræmi við endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi haustið 2024. Jafnframt er skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni svo að nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur flestir sem út­skrifast af náttúrufæðibraut

Í fyrra var fyrsta árið þar sem náttúrufræðibraut var ekki fjölmennasta brautin meðal brautskráðra stúdenta í nær áratug, eða frá árinu 2016. Flestir sem brautskráðust með stúdentspróf í fyrra útskrifuðust af öðrum en hefbundnum námsbrautum.

Innlent
Fréttamynd

Keili form­lega slitið

Félaginu Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hefur formlega verið slitið en námsbrautir skólans hafa flestar verið færðar undir hatta annarra námsstofnana. Háskólabrú Keilis heldur áfram undir Háskóla Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Syngjandi dúx

Ína Berglind Guðmundsdóttir er dúx Menntaskólans á Egilsstöðum. Hún brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,92. Alls voru 47 nemendur brautskráðir frá ME laugardaginn 23. maí. 

Innlent
Fréttamynd

Segir Ragnar Þór af­hjúpa van­þekkingu á skóla­starfi

Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokki, gerði fjárframlög ríkisins til framhaldsskóla að umfjöllunarefni í óundirbúnum fyrirspurnum. Til svara var Ragnar Þór Ingólfsson, staðgengill Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, en Jón Pétur taldi svör hans ekki margra fiska virði.

Innlent