Táknmál

Fréttamynd

Ís­lenskt tákn­mál, ég og við öll

Mig langar til að deila með ykkur hugrenningum mínum um íslenskt táknmál; tungumál sem hefur gefið mér svo mikið og ég á svo ótal mörg tengsl og tækifæri að þakka. En einhver gæti velt fyrir sér af hverju ætti ég að deila með ykkur mínum vangaveltum?

Skoðun
Fréttamynd

Tákn­mál og ís­lenska

Það hefur oft verið sagt að táknmál sé dýrt í krónum talið. Þessi staðreynd er oft sögð í flýti, í vörn, í hálfkæringi eða slengt fram án þess að hugsa aðeins um önnur mál í samanburði. Hefur enginn hugsað um hvað íslenskan er dýr? Að baki hverju einasta íslenska orði er sýnilegur og/eða ósýnilegur kostnaður.

Skoðun
Fréttamynd

Tákn­mál í hjarta mínu

11. febrúar er dagur íslenska táknmálsins. 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu. Þessi tvö mál eiga sinn samnefnara, sinn eigin dag á almanakinu, þau eru jafnrétthá samkvæmt lögum nr. 61/2011. Það er þessum tveim málum virðingarvert að eiga sinn dag, eiga sinn sess í menningu, daglegu lífi og hjörtum landsmanna.

Skoðun
Fréttamynd

Oft er þörf, nú er nauð­syn; textun á inn­lendu sjón­varps­efni

Það er nauðsynlegt að textun á innlendu sjónvarspefni sé gerð meiri skil og sýnt meiri þolinmæði. Það eru mörg ár síðan farið var að minnast á textun á innlendu sjónvarpsefni hér á Íslandi. Það eru líka mörg ár síðan byrjað var að texta í löndum sem við berum Ísland oft saman við. Sumt hefur verið gert en margt annað mætti alveg gera betur.

Skoðun
Fréttamynd

Mál­stefna fyrir ís­lenskt tákn­mál

Í vikunni mælti menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fyrir þingsályktunartillögu um málstefnu íslensks táknmáls og aðgerðaráætlun. Þar er gengið út frá að íslenskt táknmál sé hefðbundið minnihlutamál og fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta og barna þeirra, sbr. lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.

Skoðun
Fréttamynd

RÚV og ís­lenska tákn­málið

Sumarið 2021 var okkur sem grein þessa ritum sagt upp störfum sem táknmáls fréttaþulir. Við erum öll málhafar íslenska táknmálsins - öll heyrnarlaus. Okkur sagt upp á þeim forsendum að táknmálstúlkar (heyrandi) yrðu settir í að túlka fréttatímann kl. 19. Sagt var við undirritun á samningi við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) að þetta yrði til að bæta þjónustu RÚV við táknmálsnotendur.

Skoðun
Fréttamynd

Sigur­lín mátti sín lítils í bar­áttunni við RÚV

Ríkisútvarpið hefur verið sýknað af kröfu Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur sem flutti táknmálsfréttir í sjónvarpinu í 36 ár. Hún vildi fá staðfest að vinnusamband hennar við RÚV hefði verið launþegasamband en ekki verktakavinna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og var afdráttarlaus.

Innlent
Fréttamynd

Tákn­mál í sveitar­fé­lögin

Nú á þessum dögum almanaksárinu eru mörg sveitarfélög að vinna við að uppfæra og betrumbæta í stefnumálum sínum varðandi allt sem sveitarfélögum viðkemur og þeim er skylt að vinna að þ.e. lögbundin verkefni sveitarfélaga.

Skoðun
Fréttamynd

Hindranir heyrnar­lausra

Ég er 57 ára heyrnarlaus kona. Fyrsta mál mitt er táknmál. Ég er notandi táknmálstúlks og þeir hafa gert lífið mitt auðveldara í samskiptum mínum við lækna, hjúkurnarfólk og aðra umönnunaraðila sem ég þarf.

Skoðun
Fréttamynd

Höldum þeim heima

Stefna stjórnvalda í félagslegri táknmálstúlkun virðist vera að halda heyrnarlausum, heyrnarskertum / táknmálsfólki / döff heima. Skilaboðin eru dulin í formi fjármagnsins og senda þar með dulin skilaboð eins og: “Njótið að vera heima, gerið minna úr félagslegri þáttöku ykkar”.

Skoðun
Fréttamynd

Tákn­máls­túlkur Ri­hönnu slær í gegn

Kona sem sá um að túlka hálfleiksatriði söngkonunnar Rihönnu á Ofurskálinni á táknmáli hefur slegið í gegn á internetinu í dag. Sumir hafa kallað eftir því að túlkurinn fái verðlaun fyrir frammistöðu sína. 

Lífið
Fréttamynd

Íslensk táknmál er “þjóðtunga” döff Íslendinga

Dagur íslenska táknmálsins (ÍTM) er þann 11. febrúar, sama dag og afmæli Félags heyrnarlausra. Árið 2011 tóku gildi lög um stöðu íslenskrar tungu og ÍTM. Samkvæmt þeim er íslenska og íslenskt táknmál jafnrétthá til tjáningar og samskipta manna í milli. Þar kemur jafnframt fram að íslenska sé þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi. Íslensk táknmál er á sama hátt „þjóðtunga“ um 300 döff íslendinga. Íslenskt táknmál er ekki alþjóðlegt mál heldur sérstakt fyrir Ísland, líkt og önnur tungumál eru ólík á milli landa.

Skoðun
Fréttamynd

Til hamingju með dag ís­lensks tákn­máls!

Íslenskt táknmál er annað tveggja tungumála sem fjallað er um í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011. Íslenskt táknmál er jafnrétthátt íslensku til tjáningar og samskipta og óheimilt er að mismuna fólki eftir því hvort málið það notar (2. mgr., 13. gr.). Íslenskt táknmál er fyrsta mál um 250-300 manns hér á landi.

Skoðun
Fréttamynd

„Þessi dæmi koma við mig og sýna svart á hvítu að það þarf klárlega að gera betur í þessum málum“

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, segir að fréttir um þjónustuleysi við heyrnarlaus börn komi við sig og segir jafnframt að gera þurfi betur þegar kemur að þjónustu við heyrnarlausa. Hún segir að stjórnvöld muni í samstarfi við sveitarfélögin einhenda sér í að framkvæma aðgerðaráætlun með það að markmiði að gera betur í málaflokknum.

Innlent
Fréttamynd

Kærir leikskóla heyrnarlauss sonar síns: Stundum hafi hann engan til að eiga samskipti við

Móðir heyrnarlauss drengs treystir sér oft ekki til að senda son sinn á leikskólann þótt skólinn sérhæfi sig í að mæta þörfum heyrnarlausra barna. Stundum hafi drengurinn engan til að eiga samskipti við þar sem oft vanti táknmálstalandi starfsmann á vakt. Hún hefur kært skólann til menntamálaráðuneytisins og óttast að þurfa að flytja út fyrir landsteinana í leit að þjónustu fyrir börnin.

Innlent
Fréttamynd

Áttaði sig á því að þau geta ekki flutt

Móðir drengs með alvarlega heyrnarskerðingu vill að táknmál verði skyldufag á öllum skólastigum. Fjölskyldan er utan af landi en getur nú hvergi annars staðar búið en í Reykjavík, þar sem eini skólinn með viðeigandi sérþekkingu er starfræktur.

Innlent
Fréttamynd

Efna til samkeppni um tákn fyrir fjögur hýryrði

Samtökin '78 blása til leitar að táknum fyrir fjögur hinsegin orð í samstarfi við málnefnd um íslenskt táknmál. Dómnefnd mun velja úr innsendum tillögum en niðurstöður verða tilkynntar 11. febrúar næstkomandi, á degi íslensks táknmáls.

Innlent
Fréttamynd

Heyrnar­laus skóla­stjóri Hlíða­skóla lætur ekkert stoppa sig

Skólastjóri Hlíðaskóla er líklega fyrsta heyrnalausa manneskjan í heiminum til að stýra skóla þar sem langflestir nemendur og annað starfsfólk er heyrandi. Hún segist aldrei hafa látið fötlun sína stöðva sig og vonar að vegferð sín sé hvatning til annarra um að láta drauma sína rætast.

Innlent
Fréttamynd

Óvenjuleg byrjun á fundinum í tilefni dagsins

Dagur íslenska táknmálsins er haldinn hátíðlegur í níunda sinn í dag þann 11. febrúar. Af því tilefni hófu þeir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir reglubundinn upplýsingafund vegna kórónuveirunnar á því að heilsa landsmönnum á táknmáli og bjóða góðan daginn.

Innlent
Fréttamynd

Dagur ís­lenska tákn­málsins!

Brátt eru tíu ár síðan Alþingi samþykkti lög nr. 61/2011, lög um íslenska tungu og íslenskt táknmál og því ber að fagna og áfram höldum við baráttunni til að íslenska táknmálið njóti jafnræðis við íslenska tungu.

Skoðun