Skoðanakannanir

Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins
„Ég skal viðurkenna að eftir allt sem á undan er gengið var á vissan hátt ánægjulegt að sjá könnun þar sem Miðflokkurinn mældist með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn til samans og nánast jafnmikið og stjórnarflokkarnir allir samanlagt.“

Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi
Ríkisstjórnarflokkarnir mælast sameiginlega með tuttugu prósenta fylgi í nýjustu könnun Prósents.

Meiri stuðningur við Borgarlínu í Reykjavík en annars staðar
Tæpur helmingur Reykvíkinga er hlynntur lagningu Borgarlínu en aðeins rúmlega þriðjungur íbúa nágrannasveitarfélaganna. Um það bil þriðjungur er andvígur viðbótinni við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu í nýrri könnun.

Metóánægja með ríkisstjórnina en enn færri ánægðir með stjórnarandstöðuna
Aðeins tæp fjórtán prósent aðspurðra segjast vera ánægð með störf ríkisstjórarinnar í nýrri könnun Maskínu og hefur hlutfallið aldrei mælst lægra. Enn færri segjast ánægðir með stjórnarandstöðuna en töluvert færri eru óánægðir með hana en ríkisstjórnina.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna
Samfylkingin mælist með 26 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallúps og þá heldur fylgi Sjálfstæðisflokks áfram að minnka og hefur flokkurinn þar aldrei mælst minni. Fylgi Miðflokksins heldur áfram að aukast.

Flestir hlynntir inngöngu í ESB og hafa aldrei verið fleiri
Aldrei hafa fleiri verið hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en í nýrri skoðanakönnun sem áhugafólk um aðild lét gera. Umtalsvert fleiri sögðust hlynntir inngöngu en mótfallnir í könnuninni.

Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn
Hægrimenn ættu ekki að splundrast í sundur í marga flokka á hægri væng stjórnmálanna að mati ráðherra Sjálfstæðisflokks. Sögulegt uppgjör er að eiga sér stað á hægri vængnum að sögn prófessors í stjórnmálafræði.

Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar
Alls eru 45 prósent ánægð með störf forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, í september. Nærri jafn hátt hlutfall er hvorki ánægt né óánægt og um tíu prósent eru óánægð. Hlutfall sem var ánægt með Guðna Th. Jóhannesson á sama tíma þegar hann tók við embætti var 71 prósent. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu þar sem spurt var um ánægju með forseta Íslands.

Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn
Miðflokkurinn heldur áfram að bæta við fylgi sitt og nýtur nú marktækt meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Svandís Svavarsdóttir, sem tilkynnti framboð sitt til formanns Vinstri grænna í dag, telur eðlilegt að framtíð stjórnarsamstarfsins verði rædd á landsfundi hreyfingarinnar í næstu viku.

Guðrún skýst upp fyrir Katrínu
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst.

Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur
Einn af hverjum fimm Íslendingum nefnir að Danmörk yrði fyrir valinu ef þeir gæti flutt til hvaða lands sem er.

Ómarktæk skoðanakönnun
Með fullri virðingu fyrir Gallup, þá er ekkert hægt að lesa út úr svörum við spurningunni „Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aukinni grænni orkuframleiðslu á Íslandi?“

Níu af hverjum tíu Íslendingum myndu kjósa Harris
Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, eða 91 prósent, myndu kjósa demókratann og varaforseta Bandaríkjanna, Kamölu Harris, ef þeir væru með kosningarétt í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara í nóvember. Níu prósent myndu kjósa repúblikanann og forsetann fyrrverandi, Donald Trump.

Meirihluti vill að hið opinbera nýti vindinn
Mikill meirihluti þjóðarinnar telur mikilvægt að vindorkuframleiðsla sé í höndum opinberra aðila, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Helmingur þjóðarinnra er hlynntur fyrirhugaðri vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi.

Treystir sér til formennsku ef Bjarni hættir
Formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki búinn að ákveða hvort hann sækist eftir áframhaldandi setu á formannsstól, en varaformaðurinn kveðst tilbúinn að taka við keflinu ef svo ber undir. Ungliðahreyfingin sendi forystu flokksins væna pillu vegna sögulega lítils fylgis í könnunum.

Sósíalistar næðu manni inn
Sósíalistaflokkurinn mælist með tæplega sex prósent fylgi í þjóðarpúsli Gallúp, nóg til að ná manni inn á þing. Lítill munur er á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins.

„Við snúum bökum saman og náum tökum á stöðunni“
Formaður Sjálfstæðisflokksins segist mest allra bera ábyrgð á dræmu fylgi flokksins eins og það mælist í skoðanakönnunum. Mælingar séu þó aðeins vísbending um stöðuna hverju sinni og ekki ávísun á niðurstöðu í kosningum.

Segir fylgi flokksins óviðunandi
Ritari Sjálfstæðisflokksins segir niðurstöður nýjustu skoðanakannana um fylgi flokksins óviðunandi. Hann segir enga skammtímalausn til staðar og skýringin leynist í málefnunum.

Fjórðungur landsmanna vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið
Um það bil 24 prósent landsmanna vill sjá Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, sem næsta forsætisráðherra Íslands. Næstur er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, með níu prósent.

Miðflokkurinn að taka fram úr Sjálfstæðisflokknum í fylgi
Miðflokkurinn er orðinn næst stærsti flokkurinn á Alþingi, en ekki er marktækur munur á fylgi hans og Sjálfstæðisflokksins. Formaður Miðflokksins segir þetta til marks um að skynsemin sé farin að ná til kjósenda.

Sanna orðin vinsælust
Samanlagt fylgi borgarstjórnarflokkanna hækkar lítillega frá því í mars. Sanna Magdalena Mörtudóttir þykir hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili.

Lögreglumenn vopnast rafbyssum í byrjun september
Almenningur má eiga von á að sjá lögreglumenn vopnaða rafbyssum á næstunni en þær verða afhentar lögregluembættum á landinu í fyrstu viku september. Lögreglan segir um helming landsmanna hlynntan rafbyssuburði lögreglumanna.

Framsókn og VG útiloki ekkert
Formenn þingflokka Vinstri Grænna og Framsóknar segja flokkana ganga óbundna til kosninga og útiloka ekkert samstarf, líkt og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hefur gert. Áhugaverður síðasti þingvetur kjörtímabilsins sé fram undan.

Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista
Sósíalistar segja þá sem áður kusu Vinstri græna nú flykkjast að flokknum. Þeir telja kjósendur komna með nóg af sviknum loforðum um félagslega uppbyggingu. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nánast jafn mikið og ríkisstjórnarflokkanna til samans.

VG mælist með 3,5 prósent
Vinstri græn mælast enn utan þings, samkvæmt nýjum þjóðarpúsli Gallúp. Fleiri myndu kjósa Sósíalistaflokkinn.

Skákar Trump í skoðanakönnun
Kamala Harris mælist með tveggja prósenta forskot á Donald Trump í skoðanakönnun sem framkvæmd var eftir að Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann myndi draga framboð sitt til forseta til baka.

Mikill meirihluti landsmanna ánægður með Guðna
Ný könnun Maskínu sýnir að 81 prósent landsmanna segjast vera ánægðir með Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands síðasta ár hans í embætti. Miðað við niðurstöður Maskínu er Guðni talsvert vinsælli en Ólafur Ragnar Grímsson á síðasta ári hans í embætti en þá sögðust 59 prósent landsmanna vera ánægð með hans störf.

Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við
Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu.

Meirihluti sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu ekki svo mikill
Rúmlega 55 prósent landsmanna vill að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rúmlega fjörutíu prósent er fylgjandi fullri aðild Íslands að sambandinu samkvæmt nýrri könnun.

Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur
Formaður Framsóknarflokksins rekur lítið fylgi Framsóknarflokksins til stöðunnar í efnahagsmálum, en segist eiga von á að fylgið taki við sér með vetrinum. Prófessor í stjórnmálafræði segir fleira ráða fylgistapinu en mikil verðbólga og háir vextir.