Höfundar- og hugverkaréttur

Fréttamynd

Britney selur réttinn að tón­list sinni fyrir milljarða

Poppstjarnan Britney Spears er sögð hafa selt réttinn að allri tónlist sinni til útgefandans Primary Wave sem mun hafa greitt um 200 milljónir Bandaríkjadala fyrir réttinn að tónlist söngkonunnar. Britney, sem meðal annars er þekkt fyrir smellina Oops I did it again, Toxic og Baby one more time, hefur sagst aldrei ætla að snúa aftur í tónlistarbransann, en hún gaf síðast út lag árið 2022 með Elton John.

Lífið
Fréttamynd

„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist að­för“

„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“

Innlent
Fréttamynd

Að vera neitað um lista­manna­laun reyndist al­gjör frelsun

Fyrir tveimur árum sléttum tók Vísir viðtal við rithöfundinn Mikael Torfason sem var þá fluttur til Bandaríkjanna eftir að hafa verið búsettur bæði í Vín og Berlín. Hann fór yfir Atlantsála til fyrirheitna landsins. Hann sagðist aldrei ætla að koma aftur til Íslands.

Lífið
Fréttamynd

Gerði leigu­samning við krabba­meinið

Allir sem komnir eru til vits og ára þekkja Magnús Þór Sigmundsson. Maðurinn er goðsögn. Tónlistarmaðurinn síungi er nú 78 ára gamall og þótt hann segist vanda sig við að vinna alls ekki neitt stenst það illa skoðun því Magnús Þór er sískapandi. Magnús Þór er með krabbamein en hefur gert leigusamning við meinið, svo framarlega sem það hefur hægt um sig má það vera.

Lífið
Fréttamynd

„Sorg­legra en orð fá lýst“

„Síðustu mánuðir hafa verið mér afar þungbærir og ég hef þurft að ganga í gegnum ferli sem ég aldrei sá fyrir. Ég hef þurft að verja æru mína og akademískan starfsferil fyrir ótrúlega rætinni aðför að mér, knúinni áfram af eigin yfirmönnum við Háskólann á Bifröst, sem kærðu mig og kollega mína til siðanefndar skólans.“

Innlent
Fréttamynd

Starfs­menn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum

Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn vegna kæru FRÍSK - Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði á hendur ætluðum eigendum ólöglegu deilisíðunnar Deildu.net. Eitt og hálft ár leið frá kæru þar til að rannsókn hófst og átta ár þar til að ætlaður eigandi var yfirheyrður.

Innlent
Fréttamynd

Húsó fjar­lægðir af Rúv

Sjónvarpsserían Húsó hefur verið fjarlægð fyrr en áætlað var af vefsíðu Ríkisútvarpsins. Dóra Jóhannsdóttir, einn handritshöfunda þáttanna, segir að þættirnir verði settir inn aftur þegar framleiðandi afhendir réttan kreditlista. Hún sjálf berst fyrir því að nafn hennar sé sett á kreditlistann.

Menning
Fréttamynd

Ekkert at­huga­vert við fundinn og stjórnin starfshæf

Stjórn Félags akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) segir að stjórnendur bifrastar, þar með talið rektor, byggi á því fyrir stjórn skólans að ekki hafi verið staðið rétt að málunum á fundi félagsins á miðvikudag þegar vantrausti var lýst yfir á yfirstjórn skólans. FAB segir ekkert til í þeim málflutningi.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýnin hugsun skipti máli

Mál rektors Bifrastar er nú til formlegrar skoðunar hjá Persónuvernd. Gervigreind var nýtt til að meta réttmæti höfundarstöðu þriggja starfsmanna skólans. Sérfræðingur í tæknirétti segir mikilvægt að beita gagnrýnni hugsun við notkun gervigreindar og að mannleg dómgreind þurfi að koma að íþyngjandi ákvörðunum.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægt að vanda sig og beita var­úð

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra segir mikilvægt að fara varlega með gervigreind í starfsemi háskóla í kjölfar frétta um að yfirstjórn Bifrastar hafi notað gervigreind til að meta höfundarstöðu þriggja starfsmanna skólans.

Innlent
Fréttamynd

Banda­lag lista­manna lýsir yfir stuðningi við Dóru

Dóra Jóhannsdóttir, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Húsó, hefur birt bréf frá Bandalagi íslenskra listamanna sem lýsir stuðningi við mál hennar en RÚV og Glassriver hafa ekki brugðist við kröfu hennar um að nafn hennar verði birt í tengslum við Húsó. Hún segir að sér hafi verið boðnir samningar með greiðslu upp á fjórar milljónir, sem hún hafi hafnað.

Menning
Fréttamynd

Að gluða tómat­sósu yfir sushi-ið

Staðreyndirnar eftir Hauk Má Helgason eru meðal þeirra verka sem tilnefnd eru til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna, og maklega svo, þetta er afar athyglisverð og vel heppnuð saga.

Menning
Fréttamynd

Stefna Jóni Þor­grími vegna Rauða heftarans

Bandaríska félagið NetApp Inc. hefur höfðað mál gegn Jóni Þorgrími Stefánssyni, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins á Íslandi. Hann er sakaður um að hafa stolið hugverki NetApp og notað það til að undirbúa rekstur í samkeppni við NetApp á meðan hann var enn í vinnu hjá fyrirtækinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á ís­lenskum stjörnum

Svikahrappar hlaða nú upp gervigreindarlögum í nafni vinsælla íslenskra hljómsveita í von um að geta grætt á þeim. Markaðsstjóri Öldu Music segir aðgangarugling ekki nýjan af nálinni á Spotify en nú sé greinilega um markviss svik að ræða. Spotify hafi nýverið fjarlægt tugi milljóna gervigreindarlaga af veitunni.

Tónlist
Fréttamynd

„Lé­leg“ hönnun gervi­greindar reyndist mannanna verk

Fólk sem bölvaði því að plakat af Elly Vilhjálms hefði verið skapað með gervigreind reyndist hafa rangt fyrir sér. Teiknarar af holdi og blóði báru ábyrgðina. Hugkvæmdastjóri Brandenburg segir að fólk sem finnist hlutir „gervigreindarlegir“ dæmi þá greinilega fyrirfram. Hann spyr hvort vitneskjan um ferlið hafi áhrif á skoðanir fólks.

Menning