Viðskipti innlent

Hafna á­sökunum um hönnunarstuld

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Thelma segir hönnun peysunnar vera alveg eins og hennar en Icewear hafnar því með öllu.
Thelma segir hönnun peysunnar vera alveg eins og hennar en Icewear hafnar því með öllu.

Fataframleiðandinn Icewear segist hafna með öllu ásökunum um að prjónauppskrift sem fyrirtækið selur sé eftirherma af hönnun íslenskrar prjónakonu. Prjónahönnun byggi oft á sameiginlegri hefð og þannig geti líkindi komið fram án þess að um eftirhermu sé að ræða.

Tilefnið er viðtal við prjónahönnuðinn Thelmu Steimann í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir Icewear hafa stolið af sér uppskrift að peysu og gert að sinni en Thelma vakti fyrst athygli á hinum meinta stuldi á Facebook síðunni Handóðir prjónarar. Í Bítinu á Bylgjunni segir hún málið rista djúpt.

Telur meinta eftirlíkingu enga tilviljun

„Ég er sem sagt á Íslandi núna í síðustu viku og rek augun í peysu sem ég trúði nú bara að væri mín eigin af því að hún hefur verið ótrúlega vinsæl og prjónuð af yfir hundrað prjónurum á Íslandi, þannig að ég sá nú ekkert athugavert við það að peysan mín væri í útsetningu hjá Icewear, enda er þar verið að selja uppskriftir og garn. En við nánari athugun tók ég eftir því að þetta var svo ekki mín peysa. Ég rak sem sagt augun í að þetta er uppskrift sem þeir gefa út sem sína eigin.“

Er hún þá nákvæmlega eins og þín?

„Hún er nákvæmlega eins að svona stærstu leyti. Hún er náttúrulega prjónuð í öðru garni. Bara það er til dæmis ákveðin breyta sem oft þykir í lagi og er oft látið slæda upp á það að geta endurútgefið eitthvað.“

Skemmtilegt sé við prjónaheiminn að það sé mikill fjölbreytileiki og að fólk geti sniðið uppskriftir að eigin þörfum, notað mismunandi garn. Thelma segist ekki vita hvern hún ætti að hafa samband við hjá Icewear þar sem fyrirtækið titli ekki hönnuði.

„Sem er oft mjög óvanalegt í prjónaheiminum því að yfirleitt gefa fyrirtæki sínum hönnuðum kredit fyrir vinnuna sína. Þannig að ég í raun og veru get ekki bent á eða haft samband við einhvern ákveðinn hönnuð sem ég tel að ég eigi sök á þessu. Það er þess vegna sem ég ásaka fyrirtækið sjálft. Af því ég vil sjá breyttari og vandaðri reglur í kringum svona. Og ég tel það einhvern veginn enga tilviljun út af vinsældum peysunnar síðan ég gaf hana út að upp séu að koma bara hreinar eftirlíkingar í einhverju formi.“

Færsla Thelmu á Facebook hópnum Handóðir prjónarar hefur vakið mikla athygli.

Mál séu yfirleitt felld niður

Thelma segir afar erfitt að bregðast við slíkum málum. Henni vitandi hafi aldrei verið dæmt í hönnunarstuldarmáli á Íslandi.

„Og það er nefnilega út af því að þessi mál eru yfirleitt bara felld niður. Ég er lítið fyrirtæki, ég starfa ein, sjálfstætt og ég er ein af örfáum, einyrkjum sem að ná að lifa á þessu og skapa sér tekjur og hafa þetta sem eina tekjulind. Þannig að fyrir mig að fara í stríð við svona fyrirtækja, það tæki mörg ár og er ótrúlega kostnaðarsamt og ótrúlega erfitt að sanna.“

Hún segist hafa fengið mikil viðbrögð við færslum sínum vegna málsins. Thelma segist aldrei myndu nýta sér vinnu annarra til að skapa sína eigin.

„Það er þess vegna sem þetta særir svo djúpt að eitthvað svona skuli ske. Ég ákvað að tala þetta upp bara til að vekja athygli á þessu því þetta þykir oft rosalega sjálfsagt og þetta á ekki að vera þannig.“

Thelma segir í Bítinu það fara ótrúlega mikil orka í að hanna svona uppskrift. Ekki allar uppskriftir skili sér í hagnaði, enda seldar ódýrt.

Hafna ásökunum með öllu

Í yfirlýsingu á Facebook síðu Icewear Garn bregst fyrirtækið við ásökunum Thelmu. Þar segir að fyrirtækið hafni þeim ásökunum alfarið. Hönnun og þróun prjónafatnaðar sé unnin af reyndum hönnuðum sem leggi metnað sinn í frumleika, gæði og fagmennsku í hverju verkefni. Hjá fyrirtækinu starfi að jafnaði fimm til sex hönnuðir í fullu starfi auk þess sem fyrirtækið eigi í samstarfi við fjölda sjálfstæt starfandi hönnuða.

„Hönnunarferlið byggir á áratuga reynslu, íslenskri prjónamenningu og skapandi vinnu hönnuðateymis fyrirtækisins. Í allri starfsemi sinni leggur Icewear ríka áherslu á að virða hugverkarétt og störf annarra hönnuða og myndi fyrirtækið aldrei meðvitað selja eða dreifa hönnun sem brýtur gegn réttindum annarra.“

Thelma bendir meðal annars á munstur á ermum peysunnar máli sínu til stuðnings.

Þá segir í yfirlýsingunni að Icewear vilji standa vörð um mannorð þerra hæfileikaríku hönnuða sem starfa hjá fyrirtækinu og hönnuða almennt. Ásakanir af þessu tagi geti haft áhrif á einstaklinga sem vinni af heilindum og faglegum metnaði við að þróa nýjar hönnunarlínur.

„Prjónahönnun, líkt og önnur form hönnunar, byggir oft á sameiginlegri hefð og handverksmenningu. Líkindi í mynstrum eða stíl geta því komið fram án þess að um eftirhermu sé að ræða, enda eiga mörg prjónamynstur rætur í langri norrænni og íslenskri prjónamenningu.“

Segist Icewear fagna uppbyggilegu samtali um þróun prjónahönnunar og mikilvægi þess að styðja við skapandi starf innan prjónasamfélagsins. Fyrirtækið muni áfram vinna með hönnuðum af fagmennsku og virðingu fyrir íslenskri handverkshefð.

„Málið hefur verið rætt opinberlega án þess að haft hafi verið beint samband við fyrirtækið áður. Icewear leggur áherslu á að leysa slík mál í góðu samstarfi og með málefnalegum hætti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×