Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Lovísa Arnardóttir skrifar 11. apríl 2026 07:31 Á heimasíðu stripadvisor segir að síðan eigi að opna fljótlega. stripadvisor.is Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði nýlega Hugverkastofuna af kröfum Stripadvisor en fyrirtækið krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar í máli nr. 3/2022, kveðinn upp 20. febrúar 2025, þar sem staðfest var ákvörðun Hugverkastofunnar um að fella úr gildi skráningu merkisins Stripadvisor.
Stripadvisor hefur ekki enn opnað neina þjónustu á léninu stripadvisor.is en við leit má sjá í lýsingu að síðan „veiti bestu umsagnirnar á netinu um erótíska klúbba og tengda þjónustu“. Málið snýst að miklu leyti um líkindi vörumerkisins við síðuna Tripadvisor þar sem fólk getur leitað að hótelum, veitingastöðum og afþreyingu á ferðalagi. Hægt er að skilja eftir athugasemdir um upplifun af ákveðinni ferð eða stað. Í dómi héraðsdóms kemur fram að Stripadvisor sé einkahlutafélag og handhafi lénsins stripadvisor.is sem skráð var 18. desember 2014 í lénaskrá ISNIC. Þann 18. ágúst 2015 sótti stefnandi um skráningu vörumerkisins og vísaði til þess að um væri að ræða „Samansöfnun margvíslegra vara (þó ekki flutningur á þeim) til hagsbóta fyrir aðra, sem gerir viðskiptavinum kleift að skoða og kaupa þessar vörur á auðveldan og þægilegan hátt“. Tripadvisor mótmælti skráningu Í dómi kemur fram að vörumerkjaumsóknin hafi verið tekin til skráningar í janúar árið 2016 og svo birt sama ár í febrúar. Í apríl sama ár hafi Hugverkastofunni svo borist andmæli frá bandaríska fyrirtækinu Tripadvisor gegn skráningunni og vísað til þess að vörumerkin væru of lík. Vörumerki Tripadvisor nyti ríkari verndar sem heimsþekkt merki, notkun annarra gæti haft í för með sér rugling af hálfu neytenda, tengingu við þjónustu Tripadvisor LLC og rýrnun á aðgreiningareiginleikum og orðspori vörumerkis þess félags, auk þess sem skráning stefnanda væri gerð í vondri trú. Einkaleyfastofan úrskurðaði svo árið 2017 og var skráning Stripadvisor látin halda gildi sínu og var þá ekki talið að ruglingshætta væri á vörumerkjunum tveimur. Krafa um að skráning merkisins Stripadvisor yrði felld úr gildi var því ekki tekin til greina. Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda staðfesti svo úrskurð Einkaleyfisstofu í júní árið 2021. Þá varð Einkaleyfisstofa orðin að Hugverkastofu. Sóttu um alþjóðlega skráningu Árið 2018 hafi Tripadvisor svo sótt um alþjóðlega skráningu vörumerkisins Stripadvisor og krafðist þess á sama tíma að skráning vörumerkisins yrði felld úr gildi. Hugverkastofan tilkynnti Stripadvisor um kröfuna og gaf þeim frest til að svara. Í dómi segir að engin svör hafi borist og hafi því vörumerkið verið fellt úr gildi. Stripadvisor vísaði ákvörðun Hugverkastofunnar til áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda og gerði kröfu um að ákvörðun Hugverkastofunnar um að fella skráningu úr gildi yrði felld úr gildi. Vísað var til þess að eigandi vörumerkisins gæti ekki sýnt fram á að hann hefði raunverulega notað vörumerkið með einhverjum vörum, markaðssetningu eða einhverju álíka. Skráning í fyrirtækjaskrá og lénaskráning væri ekki fullnægjandi. Nefndin féllst að enda á ákvörðun Hugverkastofunnar.
Dómsmál Höfundar- og hugverkaréttur Ferðaþjónusta Bandaríkin Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fleiri fréttir Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Sjá meira