Innlent
Skortir skýra stefnu Mjög vantar upp á að íslensk fyrirtæki hafi mótað sér skýrar reglur hvað varðar misnotkun áfengis og annarra vímuefna meðal starfsmanna sinna en ekki er talin þörf á hertum lögum hvað þessi mál varðar. Þetta er meðal þess sem fram kom á málþingi um áfengis og vímuvarnir á vinnustöðum sem Vinnueftirlitið stóð fyrir í gær. Innlent 13.10.2005 19:03
Samsæri við neytendur Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir að gera samning við einkaaðila um að kaupa byggingarlóðir í Norðlingaholti "með góðu eða illu og standa að eignarnámi ef eigendur vilja ekki selja. Innlent 13.10.2005 19:03
Jarðvatn flæddi inn hjá Marel Minnstu munaði að verulegt tjón hlytist af þegar jarðvatn fór að flæða inn í kjallarageymslu í húsi Marels við Molduhraun í Garðabæ í nótt. Þegar slökkviliðið var kallað á vettvang var þriggja sentímetra djúpt vatn á þúsund fermetra stóru gólfinu en svo vel vildi til að allt sem geymt var í kjallaranum var á vörubrettum og vatnið náði ekki upp á þau. Innlent 13.10.2005 19:03
Sami vandinn alls staðar Öll lönd Norður-Evrópu eiga við svipaðan vanda að stríða á vinnumarkaði og Ísland hvað varðar flæði á ódýru erlendu vinnuafli framhjá lögum og reglum. Innlent 13.10.2005 19:03
Svefnaðstaða fyrir 800 drengi Í árlegri söfnun ABC barnahjálpar verður að þessu sinni safnað fyrir stórri byggingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi, þar sem verður svefnaðstaða fyrir 800 drengi. Áætlaður byggingarkostnaður er tæplega 10 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:03
Lambasel: Búið að draga Búið er að draga úr þeim 5700 umsóknum sem bárust í einbýlishúsalóðir við Lambasel í Reykjavík. Þrjátíu nöfn voru dregin út fyrir luktum dyrum hjá Sýslumanninum í Reykjavík í dag og tuttugu til vara, skyldu einhver forföll verða. Innlent 13.10.2005 19:03
Skítlega eðlið ekki vítt Salome Þorkelsdóttir vítti aldrei menn í forsetatíð sinni en beitti þess í stað mildari aðferðum til að hafa hemil á orðljótum þingmönnum. "Ég benti mönnum heldur á að gæta orða sinna," segir Salome en viðurkennir að í eitt skipti hefði mátt beita vítum. "Það kom upp eitt alvarlegt atvik sem orkaði tvímælis um hvort ég hefði ekki átt að nota þetta sterka orð; vítur." Innlent 13.10.2005 19:03
Lokunin dapurleg tíðindi Landbúnaðarráðherra og skrifstofustjóri umhverfisráðuneytisins eru sammála um að lokun kjötmjölsverksmiðjunnar í Hraungerðishreppi séu dapurleg tíðindi og skref aftur á bak. Ráðherra segir að til greina geti komið að leggja úrvinnslugjald á hverja skepnu sem slátrað er. Innlent 13.10.2005 19:03
Örgjörvakort á markað Örgjörvakort munu líta dagsins ljós á þessu ári í stað venjubundinna korta með segulrönd. Þetta er gert til að stemma stigu við kortasvindli af ýmsum toga en mun erfiðara, ef gerlegt, verður að afrita kubbinn, að sögn Bergþóru Ketilsdóttur forstöðumanns upplýsingatækni hjá Mastercard. Innlent 13.10.2005 19:03
10 þúsund undirskriftir komnar Yfir tíu þúsund undirskriftir hafa nú safnast í undirskriftasöfnun Blátt áfram þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum. Innlent 13.10.2005 19:03
Höfuðborgarsvæðið rafmagnslaust Stærstur hluti höfuðborgarsvæðisins varð rafmagnslaus í nokkrar mínútur á tólfta tímanum þegar einni aðflutningsleið Landsvirkjunar til borgarinnar sló út. Við það urðu níu af tólf aðveitustöðvum Orkuveitu Reykjavíkur spennulausar. Innlent 13.10.2005 19:03
Verðbólgan niður fyrir þolmörk Verðbólgan mun fara niður fyrir þolmörk Seðlabankans í maí ef spá greiningardeildar Íslandsbanka gengur eftir. Verðbólgan er núna 4,3% en fer samvæmt spá niður í 3,7%. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Með 300 gr. af hassi á leið norður Þrír menn 19 til 25 ára voru handteknir við Blönduós með 300 grömm af hassi. Þeir gista fangageymslur og hefur lögreglan óskað eftir því að þeir verði settir í gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 19:03
Buslað í Elliðaám Þeir voru hressir guttarnir úr Breiðagerðisskóla sem busluðu í Elliðaánum í gær í sól en einungis fimm gráðu hita. Þeir Gunnar Reynir, Arnar Örn, Guðjón Helgi, Þorsteinn Jón, Erlendur Karl og Jón Hávar eru allir níu og tíu ára gamlir. Innlent 13.10.2005 19:03
Kort afrituð og seld á markaði Kortasvindl er víðfemt vandamál sem þekkist alls staðar í heiminum, segir Jón H. B. Snorrason hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir ýmsar aðferðir notaðar til að afrita kort, sem byggist margar á tækniþekkingu. Innlent 13.10.2005 19:03
Vilja ekki hækka leikskólagjöld Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja falla frá hækkunum á leikskólagjöldum sem samþykktar voru af R-listanum fyrir fjórum mánuðum. Þetta kom fram í bókun sem lögð var fram í borgarráði í gær vegna umræðu um gjaldskrá leikskóla á fundinum. Innlent 13.10.2005 19:03
Sættir náðust á síðustu stundu Meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur verið bjargað fyrir horn á elleftu stundu. Sættir náðust innan Sjálfstæðisflokks eftir hatrammar deilur. Gísli Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna mun ekki sækjast eftir að leiða flokkinn í sveitarstjórnarkosningunum að ári. Innlent 13.10.2005 19:03
Fólk má búa í bústað Hæstiréttur úrskurðaði í gær að fimm manna fjölskylda mætti skrá lögheimili sitt í sumarhús í Bláskógarbyggð. Fjölskyldan flutti í febrúar 2004 í húsið í óþökk sveitarfélagsins þar sem forsvarsmönnum þess þótti of kostnaðarsamt að veita þeim sem það kysu lögbundna þjónustu. Innlent 13.10.2005 19:03
Straumur seldi í TM Straumur hefur selt tæplega fjörutíu prósenta hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni. Kaupendur eru Sund ehf., sem keypti 20%, Fjárfestingarfélag sparisjóðanna, sem keypti 12,9%, og Höfðaborg sem keypti 5%. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Par stal skarti og réðst á eiganda Par undir áhrifum fíkniefna lét dólgslega í Gullsmíðaverslun og verkstæði Láru við Skólavörðustíg síðdegis í gær. Maðurinn stal tíu stórum silfurhringjum eftir að hafa hrint gullsmiðnum Láru Magnúsdóttur sem féll og marðist við það illa á baki og stokkbólgnaði á hendi. Innlent 13.10.2005 19:03
Kona slasast á vélsleða Ung kona hlaut opið breinbrot þegar hún féll af snjósleða á Lyngdalsheiði, á milli Þingvalla og Rauðavatns, rétt fyrir níu í kvöld. Innlent 13.10.2005 19:03
Samstarf við háskóla í Kína Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst mun undirrita samstarfssamning við Háskólann í Shanghai í opinberri heimsókn forseta Íslands til Kína í næsta mánuði Innlent 13.10.2005 19:03
Stofna hóp fyrir geðklofa Geðhjálp hefur ákveðið að stofna hóp fyrir fólk með geðklofa. Markmiðið er að bæta líðan þátttakenda á þann hátt, að þeir deili reynslu sinni með öðrum og læri af því sem aðrir hafa gert til að ná betri heilsu. Umfram allt á þátttaka í hópnum að vera uppbyggileg þó svo að málefnið sé á stundum erfitt. Innlent 13.10.2005 19:03
Frumvarp dregið til baka Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, dró í gær til baka frumvarp um að leggja niður tryggingadeild útflutningslána sem hún hafði áður mælt fyrir. Innlent 13.10.2005 19:03
Ný samgönguáætlun Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður bæjarráðs í Kópavogi, hyggst fljótlega birta nýja samgönguáætlun sér að skapi. Innlent 13.10.2005 19:03
Samgönguáætlun gagnrýnd Höfuðborgarsvæðið og Reykjavíkurborg sérstaklega fara verulega varhluta af fyrirhuguðum framkvæmdum ríkisins í samgöngumálum að mati borgarráðs. Er ný fjögurra ára samgönguáætlun Sturla Böðvarssonar gagnrýnd þar sem innan við tíu prósent framkvæmdafjár fari til höfuðborgarbúa þar sem 40 prósent landsmanna búa. Innlent 13.10.2005 19:03
Írsk starfsmannaleiga á Íslandi Írsk starfsmannaleiga hefur opnað útibú hér á landi og hefst starfsemin innan skamms. Forsvarsmaður leigunnar er bjartsýnn á íslenska markaðinn. Innlent 13.10.2005 19:03
Síminn: Frestur frá stjórnvöldum? Hópurinn sem stendur að söfnun hluthafa til kaupa á Símanum íhugar að fá frest hjá stjórnvöldum til að fá ráðrúm til að vinna að málinu. Í dag hafði hópurinn safnað hlutafjárloforðum upp á tólf og hálfan milljarð króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Vantreystir Landsvirkjun Í utandagskrárumræðum um framkvæmdir á Kárahnjúkum í gær spurði Steingrímur J. Sigfússon Valgerði Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hvort Landsvirkjun væri treystandi til að halda byggingu Kárahnjúkastíflu áfram. Innlent 13.10.2005 19:03
Dregið úr umsóknum í dag Dregið verður úr umsóknum um 30 einbýlishúsalóðir við Lambasel í Breiðholti fyrir luktum dyrum hjá Sýslumanninum í Reykjavík klukkan fjögur í dag og fá umsækjendur og fjölmiðlar ekki að fylgjast með útdrættinum. Innlent 13.10.2005 19:03