Innlent
Mun meiri veikindi starfsmanna LSH Samanburður sem sviðsstjórar Landspítala háskólasjúkrahúss hafa gert á fjarvistum starfsmanna spítalans í janúar og febrúarmánuði í fyrra og á sama tíma í ár sýndu að umtalsvert meira var um veikindi starfsmannanna í ár heldur en í fyrra, að sögn Eydísar Sveinbjarnardóttur starfandi hjúkrunarforstjóra. Hún sagði því ekki að neita að mikið vinnuálag væri á spítalanum. Innlent 13.10.2005 19:04
Þrjú kynferðisbrotamál um helgina Þrjú kynferðisbrotamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík um helgina og átti ungt fólk alls staðar hlut að máli. Meint brot voru öll framin í heimahúsum og með þeim hætti að karlmenn notuðu sér ölvunarástand kvenna til þess að ná fram vilja sínum við þær, gegn vilja þeirra. Innlent 13.10.2005 19:04
Slasaðist mikið á Mýrum Erlendur ferðamaður slasaðist mikið þegar bíll, sem hann var farþegi í, flaug út af þjóðveginum við Arnarstapa á Mýrum í gærkvöldi og skall harkalega niður langt utan vegar. Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn og flutti hann á slysadeild Landspítalans þar sem hann lá á gjörgæsludeild í nótt. Innlent 13.10.2005 19:04
Hreyfilistaverk frumsýnt í húsi OR Þvottavélatromlur, keilur, GSM-símar, steinull, svampur, klósettpappír og reiðhjólagjarðir voru meðal þess sem gekk í endurnýjun lífdaga í hreyfilistaverki sem frumsýnt var í Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Bandaríski myndlistarmaðurinn Arthur Ganson vann verkið með hópi íslenskra barna. Hann heillaðist af hugmyndaauðgi barnanna. Innlent 13.10.2005 19:04
Almenningur ehf. stofnsett í dag Í dag hyggst fjárfestahópurinn sem áformar að taka þátt í kaupum á Símanum stofna einkahlutafélag utan um verkefnið. Innlent 13.10.2005 19:04
Virkjað í Albaníu Landsvirkjun áformar að reisa 70 megavatta vatnsaflsvirkjun í Albaníu. Samningsdrög við þarlend stjórnvöld liggja fyrir en albanska þingið á eftir að leggja blessun sína yfir framkvæmdina. Innlent 13.10.2005 19:04
Fjórar líkamsárásir á einni nóttu Óvenju mikilll erill var hjá lögreglunni í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Innlent 13.10.2005 19:04
Réttindalaus á ofsahraða Ökumaður reyndi að komast undan lögreglumönnum um fjögurleytið í nótt, en hann ók á ofsahraða eftir Kringlumýrarbrautinn en eftir eftirför í einhvern tíma lauk ökuferð hans í Miðtúninu. Kom þá í ljós að ökumaðurinn var án réttinda, hafði verið sviptur þeim fyrr og brást við með hraðakstri og undanbrögðum þegar hann mætti lögreglubíl. Innlent 13.10.2005 19:04
Íbúarnir komast ekki leiðar sinnar Enn syrtir í álinn hjá íbúum svonefnds Gestshúss í vesturbæ Hafnarfjarðar en það hefur stórskemmst vegna holræsaframkvæmda sem bærinn hefur staðið fyrir í götunni að undanförnu. Innlent 13.10.2005 19:04
Ríkið sé ekki í fjölmiðlarekstri Ungir sjálfstæðismenn hvetja til þess í ályktun sem þeir hafa sent frá sér að ríkið hætti afskiptum af fjölmiðlum. Þeir mótmæla því að á sama tíma og settar séu fram hugmyndir um að skerða möguleika á fjármögnun einkarekinna fjölmiðla með óviðunandi skilyrðum um eignaraðild að þeim liggi fyrir frumvarp sem tryggi Ríkisútvarpinu rétt til aukinna umsvifa á markaðnum og tryggi því meira fjármagn til reksturs úr vösum skattgreiðenda. Innlent 13.10.2005 19:04
Efla uppbyggingu háhraðanets Heimili, fyrirtæki og stofnanir verða öll komin með möguleika á háhraðatengingum fyrir lok næsta árs samkvæmt fjarskiptaáætlun samgönguráðherra. Efla á háhraðatengingarnar á næstu árum þannig að árið 2010 verði hraðinn í fastneti að lágmarki 100 megabæt á sekúndu og eitt megabæt til notanda í farnetum. Innlent 13.10.2005 19:04
Ótrúlegur bati eftir aðgerð Bati fertugrar einstæðrar, þriggja barna móður sem greindist með illkynja æxli í spjaldhryggnum á síðasta ári þykir ótrúlegur. Spjaldhryggurinn var tekinn úr Borghildi Svavarsdóttur og er hún fyrsti Íslendingurinn sem gengst undir slíka aðgerð. Innlent 13.10.2005 19:04
Á höttunum eftir spurningaliði Framhaldsskólarnir keppa um hylli greindustu grunnskólanemendanna. Á heimasíðu pilts úr sigurliði Hagaskóla í spurningakeppni grunnskólanna segir að piltar tengdir spurningaliði Verzlunarskóla Íslands hafi boðið þeim í heimsókn. Innlent 13.10.2005 19:04
Fríar hringingar í heimasíma Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone hefur hrundið af stað nýrri þjónustu sem nefnist Og1, sem stuðlar að lækkun á símakostnaði heimila. Innlent 13.10.2005 19:04
Einn af sexmenningunum handtekinn Sex farþegar í morgunvél Iceland Express til Kaupmannahafnar í gær voru færðir lögreglu við komuna til Kastrup-flugvallar vegna mikilla óláta um borð. Einn karlmaður var svo handtekinn. Fólkið, tvær konur og fjórir karlar, var að ferðast saman en þegar um borð í vélina var komið hótuðu þau hvort öðru og áhöfninni líkamsmeiðingum. Innlent 13.10.2005 19:04
Algjör viðsnúningur ráðuneytisins Bæjarstjórar spyrna við fótum vegna fyrirætlana um sameiningu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Ráðherra segir málið í kynningu og telur að þjónusta heilsugæslunnar ætti að batna í kjölfarið. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Yfir fimmtíu óku of hratt Mikil umferð var um Blönduós um helgina og hafði lögreglan á svæðinu varla undan við að stoppa ökumenn fyrir hraðakstur. "Fólk verður að fara að gera sér grein fyrir því á hvaða svæði það er að keyra," segir Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi. "Það er að keyra á besta hraðahindrunarsvæði landsins." Innlent 13.10.2005 19:04
Bitist um Kjarvalsverkin Mál Ingimundar Kjarval gegn Reykjavíkurborg verður þingfest í héraðsdómi á morgun. Borginni er gefið að sök að hafa sölsað undir sig yfir 5.000 verk Jóhannesar Kjarval í trássi við erfingja hans. Innlent 13.10.2005 19:04
Erill hjá lögreglunni í nótt Svo virðist sem rigningarsuddinn hafi farið illa í þá sem voru að skemmta sér í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt. Töluverður erill var hjá lögreglu vegna ölvunarláta fólks og mörgum var laus höndin. Um eittleytið var einn maður fluttur á slysadeild eftir átök við skemmtistaðinn Broadway og um svipað leyti var ráðist á dyravörð á Kringlukránni og gleraugu hans brotin. Innlent 13.10.2005 19:04
Um sjö þúsund nýir félagar Ætla má að um sjö þúsund manns hafi skráð sig í Samfylkinguna áður en kjörskrá fyrir formannskosningarnar var lokað. Það þýðir að Samfylkingarmönnum hafi fjölgað um helming frá áramótum. Eftir því sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í <em>Silfri Egils</em> skráðu 3.154 sig í flokkinn á kosningaskrifstofu hennar, um tvö þúsund á starfsstöð Össurar Skarphéðinssonar og svipaður fjöldi á skrifstofu flokksins. Innlent 13.10.2005 19:04
Ræða um viðbrögð við dólgslátum Forráðamenn Iceland Express ætla að ræða við yfirmenn Leifsstöðvar og Icelandair um hvernig koma megi í veg fyrir dólgslæti eins og urðu í vél félagsins á leið til Kaupmannahafnar í gær. Þrír voru handteknir við komuna þangað og verður málið væntanlega fært lögreglunni á Íslandi. Innlent 13.10.2005 19:04
Vaxtabætur skornar niður Vaxtabætur hluta framteljenda skerðast umtalsvert milli ára. Áhrifin eru þó talin minnst á fólkið sem skuldar mest. Samdrátturinn er til kominn bæði vegna breytinga á skattalögum og eins breytts fasteignamats. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Á ekki heima með föndrinu Í burðarliðnum er sýning á málverkum Halldórs G. Dungals, sem verið hefur blindur í fimm ár. Verkin eru ný, máluð eftir að hann missti sjónina. Innlent 13.10.2005 19:04
Sakar Biblíufélagið um falsanir Guð er orðinn gamall og hallærislegur í augum þjóðkirkjunnar, segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. Hann gagnrýnir harðlega Hið íslenska Biblíufélag fyrir að falsa ritningarnar í nýrri þýðingu og segir ýmsa vilja koma að nýrri útgáfu þar sem Guðs orð fái að njóta sannmælis. Innlent 13.10.2005 19:04
Uppselt í lúxusferð Ingólfs Þau þrjátíu sæti sem voru í boði í mánaðarlanga hnattreisu með Ingólfi Guðbrandssyni í haust, seldust upp á kynningarfundi á fimmtudagskvöld. Innlent 13.10.2005 19:04
Styttist í nýtt blað Undirbúningur að stofnun nýs blaðs er langt kominn og viðbúið að áform væntanlegra útgefenda verði kynnt innan skamms. Innlent 13.10.2005 19:04
Frímerki seld fyrir 120 milljónir Erlendir frímerkjasafnarar kaupa íslensk frímerki fyrir um 120 milljónir króna á ári. Níu starfsmenn vinna í sérstakri deild Íslandspóst sem þjónustar safnara. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Sigursælir nemar í matreiðslu Íslenskir matreiðslunemar sigruðu í árlegri keppni Norrænna matreiðslu- og framreiðslunema sem haldin var í Drammen í Noregi að þessu sinni. Þá urðu íslensku keppendurnir í framreiðslu í öðru sæti. Innlent 13.10.2005 19:04
Óskað eftir skýringum Mannréttindadómstóll Evrópu hefur farið þess á leit við íslenska ríkið að það skili greinargerð um mál karlmanns sem var dæmdur fyrir að verða barni að bana með því að hrista það. Maðurinn var dæmdur til fangelsisvistar eftir að barn sem hann og kona hans höfðu í umsjá sinni lést. Innlent 13.10.2005 19:04
Bæði hvatt til sparnaðar og eyðslu Á sama tíma og Landsbankinn ýtir undir aukinn sparnað landsmanna hvetur hann þá til að eyða meiru og jafnvel taka lán til að fara í ferðalög og kaupa sumarhús. Framkvæmdastjóri markaðssviðs bankans viðurkennir að ef til vill sé of langt gengið að hvetja menn til að taka ferðalán. Innlent 13.10.2005 19:04