Innlent

Fréttamynd

Vilja Vaðlaheiðargöng

Sveitarstjórn Þingeyjasveitar telur áríðandi að Vaðlaheiðargögn komist nú þegar á samgönguáætlun og nauðsynlegt sé að breyta veglínu Norðausturvegar þannig að stytting náist á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Innlent
Fréttamynd

Um 300 í reiðhjólalest í Reykjavík

Lest reiðhjóla fór um Reykjavík í blíðunni í dag en hún var hluti af fyrirtækjakeppninni <em>Hjólað í vinnuna</em>, sem nú er í fullum gangi. Talið er að allt að 300 manns hafi tekið þátt í hjólalestinni.

Innlent
Fréttamynd

Hjólað um Reykjavík í dag

Reiðhjólalest mun silast um Reykjavík í dag. Tilefnið er fyrirtækjakeppnin Hjólað í vinnuna. Hjólalestin leggur af stað klukkan eitt úr Nauthólsvík en klukkustund áður, klukkan tólf, munu þrjár minni lestir fara úr Spönginni, Mjódd og Smáratorgi og að Nauthólsvík. Meðal lestarstjóra verður Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ræða um náttúruvernd í Skaftafelli

Um hundrað manna hópur norræna áhugamanna og sérfræðinga um náttúruvernd er samankominn í Skaftafelli í Öræfum en þar hefst í dag þriggja daga norræn ráðstefna um náttúruvernd, þjóðgarða, útilíf og heilsu. Að ráðstefnunni standa Norræna ráðherranefndin og umhverfisráðuneytið. Meðal fyrirlesara er Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en hún mun fjalla um gildi þess að standa vörð um náttúruarfleifð Norðurlanda.

Innlent
Fréttamynd

Hækkun tekjumarka baráttumál lengi

Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands fagnar ummælum Karl Steinars Guðnasonar, forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins þess efnis að öryrkjum verði gert kleift að afla sér hærri tekna án þess að örorkubæturnar skerðist eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Fjöldi manns hjólar í vinnuna

Í tilefni af fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna stóð Íþróttasamband Íslands fyrir Hjólalestinni í gær. Lestin lagði af stað úr Nauthólsvíkinni eftir hádegi og hjóluðu fleiri en 250 manns sem leið lá niður í Laugardal þar sem fjölskylduskemmtun beið þátttakenda.

Innlent
Fréttamynd

Má vera veitingahús

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Vesturbrú ehf. hafi verið heimilt að breyta verslunarhúsnæði í veitingahús í fjöleignarhúsi í miðborg Reykjavíkur. Aðrir eigendur í húsinu höfðu kvartað undan því að breytingarnar hefðu valdið raski en í eignaskiptayfirlýsingu var þar gert ráð fyrir verslunarhúsnæði.

Innlent
Fréttamynd

Kröfu vísað frá

Kröfu Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar á hendur leigusölum sínum var vísað frá í Hæstarétti á grundvelli þess að leigusamningnum var aldrei þinglýst. Hitaveitan taldi sig eiga forkaupsrétt á landspildu samkvæmt leigusamningi en þegar eigendur landsins seldu reyndist forkaupsrétturinn ekki standast fyrir dómi.

Innlent
Fréttamynd

Bensínstöð á Landspítalalóð

Fjölmargir starfsmenn Landspítala - háskólasjúkrahúss telja fyrirætlanir um að reisa bensínstöð við lóð LSH brot á samkomulagi ríkisins og Reykjavíkurborgar um samráð frá því í apríl í fyrra. Þetta er mat Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista.

Innlent
Fréttamynd

Stúlka á Akureyri slapp vel

Ekið var á stúlku á tíunda ári á Hörgárbraut á Akureyri um fjögurleytið í gær. Stúlkan var á hjóli og var á leið yfir gangbraut þegar bíll kom aðvífandi og ók á hana. Sem betur fer var bíllinn ekki á mikilli ferð og stúlkan með hjálm.

Innlent
Fréttamynd

Blaðið kemur út á morgun

<em>Blaðið</em>, nýtt dagblað, lítur dagsins ljós á morgun. Því verður dreift inn á 75 þúsund heimili og vinnustaði. Það er útgáfufélagið Ár og dagur sem gefur blaðið út og verður því dreift ókeypis á höfuðborgarsvæðinu til að byrja með en möguleikar eru á enn meiri dreifingu.

Innlent
Fréttamynd

Banaslys á Breiðholtsbraut

Ung kona beið bana í bílslysi á Breiðholtsbraut í morgun. Vegfarandi tilkynnti slysið til lögreglu klukkan níu í morgun en ekki er vitað nákvæmlega hvenær það átti sér stað. Konan, sem er á tvítugsaldri, ók bíl sínum í norðaustur eftir Breiðholtsbraut. Skammt frá Norðlingaholti virðist sem hún hafi ekið á vegrið og farið eftir því öfugum megin og bíllinn síðan oltið fram af veginum, en nokkur halli er þar niður þar sem reiðgöng eru undir veginum á þessum stað.

Innlent
Fréttamynd

Landspítali sýknaður

Hæstiréttur sýknaði Landspítala - háskólasjúkrahús af kröfum hjúkrunarfræðings sem taldi ólögmætar breytingar hafa verið gerðar á starfi hennar og verksviði þegar Landspítalinn og Borgarspítalinn sameinuðust. Hjúkrunarfræðingurinn vildi meina að öll meðferð hennar mála hefði verið verulegum annmörkum háð.

Innlent
Fréttamynd

Blaðið kemur út í dag

Nýtt dagblað, Blaðið, hefur göngu sína í dag. Blaðinu verður dreift með póstinum og berst það til einstaklinga og fyrirtækja á tímabilinu frá níu og fram yfir hádegi. Dreifingin verður fyrst um sinn til allra heimila og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir gáleysi

Maður var dæmdur í Hæstarétti í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir gálausan akstur. Þótti maðurinn ekki hafa gætt nægilega að umferð annarra ökutækja í sömu átt þegar hann skipti um akrein með þeim afleiðingum að hann ók í veg fyrir bifhjól þannig að ökumaður þess kastaðist af hjólinu og slasaðist.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla göbbuð að höfn í Gróf

Lögreglan í Keflavík fékk hringingu rétt fyrir hálfþrjú í nótt og kvaðst sá sem hringdi vera við smábátahöfnina í Gróf og ætlaði hann að henda sér í sjóinn. Var lögreglan send á staðinn en þetta reyndist þó vera gabb og var sá sem hringdi staddur á öldurhúsi í Reykjavík að skemmta sér. Ekki er vitað hver hringdi en lögreglan segir málið vera í rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Spenna um afgreiðsluna

Frumvarp Ágústar Ólafs Ágústssonar alþingismanns um afnám fyrningarfrests í kynferðisbrotamálum gagnvart börnum verður tekið fyrir í Allsherjarnefnd Alþingis í dag og hugsanlega afgreitt úr nefndinni. Spenna ríkir um það hvernig málið verður afgreitt og hvort Jónína Bjartmarz alþingismaður styðji frumvarpið á fundinum í dag.

Innlent
Fréttamynd

G-listinn liðin tíð

Ákveðið var á félagsfundi Samfylkingarinnar í vikunni að bjóða fram S-lista í bæjarstjórnarkosningunum eftir eitt ár. Þar með er síðasti G-listinn í landinu liðin tíð.

Innlent
Fréttamynd

Banaslys við Víðidal

Banaslys varð á Breiðholtsbraut við Víðidal í gærmorgun. Fólksbíll ók á vegrið þar sem undirgöng eru fyrir gangandi umferð og hesta, rann eftir því smáspotta og féll svo fram af vegriðinu og var það hátt fall.

Innlent
Fréttamynd

Rengir ekki Hróbjart

"Það er veigamikill munur hvað löggjöfina varðar á tóbaki annars vegar og áfengis hins vegar," segir Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis og tóbaksverslunar ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Ný Vestfjarðagöng

Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins krefst yfirlýsingar frá ríkisstjórninni um að ráðist verði í gerð jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Staðsetning ganganna liggur fyrir og verða þau 5,1 kílómetri að lengd. Áætlaður kostnaður við gerð þeirra er um þrír milljarðar króna.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur á Akureyri

Harður árekstur varð á gatnamótum Gránufélagsgötu og Glerárgötu á Akureyri laust eftir hádegi í gær. Þar rákust saman jeppabifreið og fólksbíll með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins slasaðist nokkuð. Var hann fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en slapp þó við alvarleg meiðsli.

Innlent
Fréttamynd

Útboð borgarinnar fyrirsláttur

"Þau svör sem við höfum fengið eru að okkar mati ófullnægjandi með öllu og þessi ákvörðun því enn jafn óskiljanleg," segir Guðmundur Gestsson, framkvæmdastjóri Hvalstöðvarinnar ehf. Telur hann ótvírætt að fyrirtæki sitt hafi átt hagstæðasta tilboðið í áframhaldandi áætlunarsiglingar til Viðeyjar.

Innlent
Fréttamynd

Með þriggja ára samning

Skrifað hefur verið undir kjarasamning Samtaka atvinnulífsins, Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags Íslands. Um er að ræða framlengingu gildandi kjarasamnings með ákveðnum breytingum. Kjarasamningurinn gildir fram til 31. maí 2008.

Innlent
Fréttamynd

Mikill bílafjöldi fluttur frá BNA

Gríðarleg ásókn er nú í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum því þeir eru tollafgreiddir inn í landið á því gengi dollara sem gildir daginn sem afgreiðslan fer fram. Í undirbúningi er að senda hingað bílaflutningaskip til að stytta biðlistann og biðlisti eftir að flytja hingað bíla í flugi er orðinn allt að sex vikur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þýskur vitnisburður dreginn í efa

Mál tvíburabræðranna Rúnars Ben og Davíðs Ben Maitsland kom fyrir Hæstarétt í gærmorgun. Fjölskipaður héraðsdómur dæmdi í nóvember Rúnar í fimm ára fangelsi og Davíð í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelldan innflutning á hassi frá Þýskalandi.

Innlent
Fréttamynd

Vilja ekki hella olíu á eldinn

Fjárhagslegir hagsmunir ríkissjóðs og ótti við að hella olíu á eldinn réð því að þingflokkar ríkisstjórnarinnar höfnuðu því að hleypa í gegn frumvarpi um að afnema stimpilgjald við endurfjármögnun lána.

Innlent
Fréttamynd

Undirrituðu samning við VÍ

Skrifað var undir nýjan kjarasamning Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka atvinnulífsins við Vélstjórafélag Íslands í dag. Kjarasamningurinn gildir til þriggja ára, til 31. maí 2008.

Innlent