Innlent

Fréttamynd

Forseti Alþingis gagnrýndur

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu forseta Alþingis harðlega í upphafi þingfundar í morgun fyrir stefnuleysi í störfum þingsins; fjöldi mála lægi fyrir þinginu en samt væri stefnt að því að ljúka þingstörfum 11. maí. Sérlega sárnaði þingmönnum að vera kvaddir út á laugardegi en ekki var gert ráð fyrir því í starfsáætlun þingsins.

Innlent
Fréttamynd

Kvartaði undan kviðverkjum

Spænskur sjómaður var fluttur með TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, um tíuleytið í gærmorgun eftir að hann hafði kvartað sáran undan kviðverkjum.

Innlent
Fréttamynd

Hæsta boðið stóðst ekki

Íslandsbanki keypti fótboltatreyjuna sem Eiður Smári Guðjohnsen, nýbakaður Englandsmeistari með Chelsea, gaf Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, í 10 ára afmælisgjöf á dögunum.

Innlent
Fréttamynd

Rætt um stækkun þjóðgarðs

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra fjallaði um áherslu sem lögð hefur verið á náttúruvernd og þjóðgarða og fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um enn frekari stækkun Skaftafellsþjóðgarðs og um þjóðgarð norðan Vatnajökuls í opnunarávarpi sínu á ráðstefnu í Skaftafelli um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Nágrannar skemmta sér

Íbúar Laugarneshverfisins í Reykjavík koma saman í dag á milli klukkan tvö og fjögur í og við Laugarneskirkju undir kjörorðinu "Laugarnes á ljúfum nótum!" í þriðju vorhátið hverfisins.

Innlent
Fréttamynd

Stelpuskákmót Olís og Hellis í dag

Í dag fer fram Stelpuskákmót Olís og Taflfélagsins Hellis í höfuðstöðvum Olís, Sundagörðum 2. Þátt taka væntanlega nokkrir tugir stelpna sem kljást um vegleg verðlaun. Mótið er opið fyrir allar stelpur 16 ára og yngri.

Innlent
Fréttamynd

Dísilolían lækkar um 5 krónur

Geir Haarde fjármálaráðherra lagði í gær fram frumvarp til laga um lækkun olíugjalds á dísilolíu, en að óbreyttu heimsmarkaðsverði hefði dísilolía orðið dýrari en bensín frá 1. júlí næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Óskað eftir stuðningi

Mæðradagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Samkvæmt niðurstöðu mæðraskýrslu samtakanna Barnaheill - Save the Children tengjast lífslíkur og velferð barna án vafa menntun og heilsu móður þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Olíugjald lækkað

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka olíugjaldið til að stuðla að frekari notkun díselbíla, sem viðurkennt er að menga síður umhverfið þar sem vélarnar eru sparneytnari en bensínvélar. Ríkisstjórnin kom saman í morgun og samþykkti að breyta lögum um olíugjald og kílómetragjald í þessu skyni.

Innlent
Fréttamynd

Hafa hugleitt að loka landinu

Nefnd ríkisstjórnarinnar stýrir viðbúnaði vegna nýs heimsfaraldurs inflúensu. Hugleitt hefur verið að "loka landinu," en slíkt er þó talið erfitt í framkvæmd. Viðbúnaður heilbrigðisyfirvalda miðast við að smit berist hingað.

Innlent
Fréttamynd

Líffæragjafir afar mikilvægar

Fyrsta íslenska konan sem fékk grætt í sig hjarta biður fólk að hugleiða vandlega þá þýðingu sem líffæragjafir geta haft fyrir aðra. Fyrir fimmtán árum var hún í hjólastól og beið dauða síns. Í dag lifir hún eðlilegu lífi.

Innlent
Fréttamynd

Óðinn fann bandarískt veðurdufl

Áhöfn varðskipsins Óðins fann á dögunum veðurdufl 99 sjómílur, eða 183 kílómetra, vestsuðvestur af Reykjanesi. Veðurduflið er í eigu bandarísku Hafrannsóknastofnunarinnar (NOAA).

Innlent
Fréttamynd

Héðinsfjarðargöng verði slegin af

Samgönguáætlun Gunnars I. Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng verði slegin af en göng gerð frá Fljótum yfir á Siglufjörð. Gunnari þykir súrt í brotið að meirihluti stjórnarliða í samgöngunefnd samþykki að einungis fimmtungur fjár til vegaframkvæmda á næstu árum renni til suðvesturhornsins.

Innlent
Fréttamynd

Þrjár milljónir til þroskahjálpar

Landsbankinn og Þroskahjálp á Suðurnesjum hafa undirritað samkomulag um stofnun Styrktarsjóðs Þroskahjálpar. Sjóðurinn er stofnaður fyrir tilstuðlan Landsbankans sem varðveitir sjóðinn og skipar formann sjóðsstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Þyrlan sótti veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, og flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, eru rétt í þessu að lenda á Reykjavíkurflugvelli eftir sjúkraflug út á Reykjaneshrygg þar sem veikur spænskur sjómaður var sóttur.

Innlent
Fréttamynd

Veiðarnar virðast hafa lítil áhrif

Hvalveiðar í vísindaskyni virðast lítil áhrif hafa haft á fjölda þeirra ferðamanna sem nýta sér hvalaskoðunarferðir. Tekjur af 82 þúsund slíkum ferðamönnum námu 1,9 níu milljörðum króna á síðasta ári, og hvalaskoðun er orðin vinsælasta afþreying ferðamanna hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Díselolía 5 krónum ódýrari

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka hið umdeilda olíugjald til að stuðla að frekari notkun díselbíla, sem viðurkennt er að menga síður umhverfið þar sem vélarnar eru sparneytnari en bensínvélar. Útsöluverð díselolíu verður fimm krónum ódýrara en ella í sex mánuði frá og með 1. júlí.

Innlent
Fréttamynd

60 ár frá lokum styrjaldar

Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, boðar til samkirkjulegrar minningar- og bænastundar í Hallgrímskirkju í dag kl. 17.00 til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Innbrotum og þjófnuðum fækkar

Innbrotum, þjófnuðum og umferðarslysum í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglunnar hefur fækkað á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við sama tímabil áranna 2000 til 2004.

Innlent
Fréttamynd

Börnin stimpluð sem lyfjafíklar

Þingmenn fá ákúrur frá foreldri barns sem gefið er rítalín vegna hegðunarvanda. Faðir stúlku, sem átt hefur við mikla ofvirkni að stríða frá sjö ára aldri, segir umræður um lyfjanotkun barna í þingsölum stimpla fólk í hans stöðu og börn þeirra sem lyfjafíkla og sníkjudýr í þjóðfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Ástand vegriða í lagi?

Vegamálastjóri segist ekki viss um að ástand vegriða hér á landi sé óviðunandi. Rannsóknarnefnd umferðarslysa rekur tvö banaslys sem urðu nýlega til stuttra eða gallaðra vegriða.

Innlent
Fréttamynd

Með 12 lítra af landa og fíkniefni

Tveir piltar, innan við tvítugt, voru gripnir af lögreglu með tólf lítra af landa og fíkniefni á Laugaveginum um klukkan þrjú í nótt. Þessa stundina er verið að yfirheyra mennina en lögregla komst á snoðir um landann og fíkniefnin í bifreið þeirra við hefðbundið eftirlit.

Innlent
Fréttamynd

Hans Markús áfrýjar

Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn, hefur kært úrskurð úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar til áfrýjunarnefndar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja segja þingmönnum upp

Unnið er að stofnun þverpólitískra samtaka til varnar Vestfjörðum og hvetur frumkvöðullinn að stofnun þeirra til þess að kjörnum fulltrúum Vestfjarða verði sagt upp störfum. 

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði í bílnum eftir veltu

Bíll fór út af á Breiðholtsbraut við Víðidal fyrir stundu. Við veltuna kviknaði í bílnum. Lögreglan er á staðnum en samkvæmt upplýsingum frá henni var einn maður meðvitundarlaus eftir slysið.

Innlent
Fréttamynd

Ekki eigin siðareglur

<em>Blaðið</em>, nýtt dagblað sem kom í fyrsta sinn út í dag, setur sér ekki sínar eigin siðareglur heldur styðst við siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Von er á sérreglum DV um siðamál á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Hornsteinn lagður í Reykjanesbæ

Í dag verður lagður hornsteinn að byggingu íþróttaakademíu í Reykjanesbæ sem mun hefja starfsemi næsta haust. Í íþróttaakademíunni mun fara fram kennsla í íþróttafræðum í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, auk námskeiða og fjarnáms.

Innlent
Fréttamynd

Vill efla sálfræðiþjónustu

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir áríðandi að bregðast við aukinni notkun lyfja við ofvirkni og athyglisbresti barna. Í upphafi þingfundar í gær sagðist hann taka undir áhyggjur þingmanna, en þeir höfðu meðal annars lýst stórfelldri notkun þessara lyfja hér á landi sem ískyggilegri og óhugnanlegri.

Innlent
Fréttamynd

82 þúsund komu í hvalaskoðun

Tæplega 82 þúsund ferðamenn komu hingað til lands í fyrra gagngert til að skoða hvali. Þetta kom fram á tíu ára afmælisfundi hvalaskoðunarsamtaka Íslands í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Fresturinn hefst við 18 ára aldur

Meirihluti allsherjarnefndar Alþingis leggur til að fyrningarfrestur vegna kynferðisbrota gegn börnum hefjist við átján ára aldur en ekki fjórtán ára aldur eins og nú er. Nefndin afgreiddi frumvarpið í dag og klofnaði nefndin í afstöðu sinni.

Innlent