Innlent

Fréttamynd

Söluaukning um 13,3 prósent

Sala Marels fyrstu níu mánuði þessa árs nam 94,3 milljónum evra, eða jafnvirði 7,5 milljarða íslenskra króna. Þetta er um 13,3 prósenta aukning frá fyrra ári.

Innlent
Fréttamynd

554 milljónir í hagnað

554 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir tekjuskatt fyrstu níu mánuði þessa árs samanborið við 367 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Krónan styrkst enn frekar

Krónan hefur styrkt sig um núll komma tuttugu og eitt prósent í dag og hefur gengisvísitalan að líkindum aldrei verið jafn sterk, að minnsta kosti ekki frá 1992.

Innlent
Fréttamynd

Víða hálka og hálkublettir

Nokkur éljagangur er með Norðausturströndinni. Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum um allt norðanvert landið.Að mestu er greiðfært um Suðurland og Vesturland.

Innlent
Fréttamynd

Refsing vegna líkamsárásar felld niður

Tuttugu og átta ára gamall karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af líkamsárás í ágúst í fyrra í miðbæ Reykjavíkur. Hann var árkærður fyrir að hafa slegið annan karlmann hnefahöggi í andlitið og veitt honum talsverða áverka.

Innlent
Fréttamynd

Ástþóri dæmdar bætur vegna frelsissviptingar

Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða Ástþóri Magnússyni 150 þúsund krónur vegn frelsissviptingar, en Ástþór var handtekinn og sat í gæsluvarðhaldi í fjóra daga síðla nóvember 2002 fyrir að hafa sent orðsendingu um að hætta væri á hryðjuverkaárás á íslenska flugvél.

Innlent
Fréttamynd

45 daga fangelsi fyrir líkamsárás

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 45 daga fangelsi fyrir tvöfalda líkamsárás. Og einnig til greiðslu þjáningar- og miskabóta til beggja þolenda. Líkamsárásin var framin á veitingastaðnum Klúbbnum í október í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Tillögur að deiliskipulagi áfram til sýnis

Ákveðið hefur verið að framlengja sýningu á tillögum sem bárust í samkeppninni um deiliskipulag fyrir nýtt sjúkrahús á lóð Landspítalans við Hringbraut um nokkrar vikur vegna mikils áhuga.

Innlent
Fréttamynd

Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði

Næstkomandi laugardag fer fram lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Nú þegar eru tvö þúsund manns á kjörskrá og leyfilegt er að skrá sig í flokkinn fram að kjörfundi. Kjörfundur hefst klukkan tíu og stendur til sex og kjörgengir eru þeir sem orðnir eru sextán ára á kjördag.

Innlent
Fréttamynd

Vilja rannsókn á þróun valds og lýðræðis

Efnahagsleg völd eru að færast á hendi færri manna og því er mikilvægt að lýðræðið sé virkt og Alþingi samþykki reglur til að geta veitt framkvæmdavaldinu aðhald við samningu reglna fyrir samfélagið. Þetta kom meðal annars fram í máli þingmanna Samfylkingarinnar við umræður um þingsályktunartillögu sem þeir leggja saman fram um að fram skuli fara rannsókn á þróun valds og lýðræðis í íslensku samfélagi.

Innlent
Fréttamynd

Október í kaldara lagi

Veður í október var í kaldara lagi en meðalhiti í Reykjavík mældist 3 stig og er það 1,4 stigum undir meðallagi. Októbermánuður í ár var sá kaldasti síðan árið 1998.

Innlent
Fréttamynd

Sundabrautarmálið aftur á byrjunarreit?

Meirihlutinn í borgarstjórn er kominn aftur á byrjunarreit í Sundabrautarmálinu að mati fulltrúa sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Fulltrúi meirihlutans vísar þessu á bug og kennir prófkjörsskrekk um yfirlýsingagleði sjálfstæðismanna.

Innlent
Fréttamynd

Í berhögg við íslensku stjórnarskrána

Það er brot á alþjóðlegum samningum og gengur í berhögg við íslensku stjórnarskrána að heimila flug um íslenska lofthelgi með fanga, til yfirheyrslu í löndum þar sem þeir geta átt von á pyntingum. Þetta segir meðal annars í greinargerð með þingsályktun sem Össur Skarphéðinsson og níu aðrir Samfylkingarmenn ætla að leggja fyrir Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Lofar lögum um starfsmannaleigur

Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill strax láta setja lög um starfsmannaleigur og undrast hægagang ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Félagsmálaráðherra lofar lögum um starfsmannalegur fyrir jólafrí.

Innlent
Fréttamynd

Innheimtumiðstöð sekta á Blönduósi

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar verði sett upp á Blönduósi. Markmiðið með þeim breytingum er að samræma, einfalda og efla innheimtu sekta og sakarkostnaðar í öllu landinu og stuðla að eflingu sýslumannsembættisins.

Innlent
Fréttamynd

Baugsmál: Óvíst hvenær málið verður tekið fyrir

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær ákæruliðirnir átta, sem eftir standa í Baugsmálinu, verða teknir fyrir í Héraðsdómi. Ákæruliðirnir varða meint brot á almennum hegningarlögum, tollalagabrot og lög um ársreikninga.

Innlent
Fréttamynd

Jón hafnar því að hafa svikið samkomulagið

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hafnar því alfarið að hann eða ríkisstjórnin hafi svikið samkomulag sem Jón gerði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við forystumenn öryrkja árið 2003, að sögn aðstoðarmanns hans.

Innlent
Fréttamynd

Vonbrigði ASÍ með viðbrögð atvinnurekenda

Miðstjórn ASÍ hefur lýst yfir vonbrigðum með viðbrögð atvinnurekenda og ríkisstjórnar við áherslum ASÍ í viðræðum um endurskoðun kjarasamninga. Miðstjórnin kom saman í gær í fyrsta skipti eftir ársfund ASÍ í október og ræddi stöðu kjarasamninga.

Innlent
Fréttamynd

Olís og Esso lækkuðu verð

Olís og Esso lækkuðu í gær verð á bensíni og dísilolíu um sextíu aura. Samkvæmt heimasíðu Skeljungs hefur engin lækkun orðið þar. Bæði Esso og Skeljungur lækkuðu verð á bensíni og dísilolíu, einnig um sextíu aura, í fyrradag.

Innlent
Fréttamynd

Meiri afgangur en búist var við

Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður Kópavogs verði rekinn með tvöfalt meiri aðgangi í ár en stefnt var að þegar fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

62 prósent borgarbúa vilja fremur Vilhjálm

Sextíu og tvö prósent borgarbúa vilja heldur sjá Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna í næstu borgarstjórnarkosningum en Gísla Martein Baldursson samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Vilhjálms.

Innlent
Fréttamynd

Starfsmaður Impregilo tekinn með 600 grömm af hassi

Lögreglumenn frá Seyðisfirði lögðu á mánudag hald á 300 grömm af hassi í söluumbúðum, við húsleit í íbúðaskála hjá Impregilo við Kárahnjúka. Einnig var lagt hald á tölvu og 300 þúsund krónur í peningum. Eigandinn var svo handtekinn á Egilsstaðaflugvelli á mánudag og fundust þá önnur 300 grömm af hassi á honum.

Innlent
Fréttamynd

Mega áfram gæta fimm barna

Ekkert verður af því að hugmyndum um að fækka börnum í umsjón dagforeldris úr fimm í fjögur verði hrint í framkvæmd. Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð þar sem dagforeldrum er eftir sem áður heimilt að gæta fimm barna í senn.

Innlent
Fréttamynd

Vinda verður ofan af íbúðalánaruglinu

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að vilji stjórnvöld slá á þensluna í íslensku efnahagslífi verði þau að vinda ofan af því sem hann kallar íbúðalánarugl. Hann segir ekkert vit í því að hækka vexti, það murki einfaldlega lífið úr útflutningsfyrirtækjum.

Innlent
Fréttamynd

Óleyfileg framboðsauglýsing

"Okkur hefur borist formleg kvörtun vegna þessa skiltis og hún verður rædd á bæjarráðsfundi í dag og að honum loknum á ég von á því að bæjarstarfsmenn rífi það niður," segir Hansína Á. Björgvinsdóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi. Þar í bæ hefur Ómar Stefánsson, sem sjálfur situr í bæjarráði og er prófkjörsframbjóðandi á lista Framsóknarflokksins, hengt auglýsingaskilti á girðingu í eigu bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Bubbi krefst milljónabóta

Bubbi Morthens hefur stefnt 365 prentmiðlum og Garðari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Hér og nú, vegna umfjöllunar um sig og myndbirtingar henni tengdri. Bubbi krefst þess að ummæli sem fram koma í fyrirsögnum blaðsins verði dæmd dauð og ómerk auk skaðabóta upp á tuttugu milljónir.

Innlent
Fréttamynd

Sjaldan opnað jafn snemma

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, ofan Akureyrar, verður opnað klukkan 10 á laugardaginn. Guðmundur Karl Jónsson, staðarhaldari í Hlíðarfjalli, segir að svo snemma vetrar hafi svæðið ekki verið opnað í hartnær aldarfjórðung eða frá árinu 1981 en þá var svæðið opnað 17. október.

Innlent
Fréttamynd

Fangaflutningar til Alþingis

Þingsályktunartillaga um fangaflutninga í íslenskri lögsögu verður lögð fram á Alþingi á næstu dögum. Tilefni hennar eru meintir fangaflutningar bandarísku leyniþjónustunnar um íslenska lofthelgi en sumar flugvélanna á hennar vegum hafa haft viðdvöl hér á landi á undanförnum árum.

Innlent
Fréttamynd

Mannræningjarnir neita sakargiftum

Forsprakki fimmmenninga sem rændu sautján ára pilti neitar að þeir hafi neytt hann til að taka út peninga í hraðbanka. Hann játar hins vegar að hafa hleypt af skotvopni nærri piltinum. Hinir neita sök að hluta eða öllu leyti.

Innlent