Innlent

Fréttamynd

Ríkið sýknað af bótakröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið í morgun af tíu milljóna króna bótakröfu manns sem var ákærður fyrir tryggingabótasvindl fyrir þrettán árum.

Innlent
Fréttamynd

Forstjórar prófaðir í lögum markaðarins

Nýir forstjórar og stjórnarmenn í bönkum og verðbréfafyrirtækjum verða eftirleiðis prófaðir í lögum og reglum markaðarins, segir forstjóri Fjármáleftirlitsins. Misbrestur hefur verið á því að fyrirtækin veiti fullnægjandi upplýsingar um þátttöku sína í atvinnurekstri.

Innlent
Fréttamynd

3 á slysadeild eftir bílveltu

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu á Suðurlandsvegi nærri Bláfjallaafleggjaranum laust fyrir miðnætti í gær. Bílinn fór út af veginum og valt eftir að annar bíll keyrði aftan á hann.

Innlent
Fréttamynd

Annasöm nótt hjá lögreglu

Ráðist var á pitsusendil í Miðbænum í nótt og bíll hans skemmdur. Þá eru tveir menn í haldi lögreglu vegna innbrota eftir nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Segir Vilhjálm fulltrúa gamla íhaldsins

Stefán Jón Hafstein, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir að niðurstaða Prófkjörs Sjálfstæðismanna gefi kjósendum Reykjavíkurlistans sem hafi hallast að Sjálfstæðisflokknum í könnunum, góða ástæðu til að snúa aftur heim. Stefán segir Vilhjálm Þ Vilhjálmsson fulltrúa gamla íhaldsins sem Reykvíkingar hafi kosið burt fyrir áratug. Hann telur að það fólk sem hafi verið tilbúið að ljá nýjum manni stuðning í prófkjörinu, hafi ekki minnsta áhuga á Vilhjálmi og eigi því að snúa sér að öðrum kosti.

Innlent
Fréttamynd

Sparkað í mann fyrir utan Select

Sparkað var í andlit manns að tilefnislausu fyrir utan Select í Breiðholti um klukkan sjö í morgun. Vitni að atburðinum segir að fórnarlambið hafi verið á leið út úr versluninni þegar árásarmaðurinn, sem var með öðrum manni, hafi sparkað framan í hann.

Innlent
Fréttamynd

Vilhjálmur sigraði örugglega

Vilhjálmur Þ. Vilhjámsson sigraði örugglega í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem lauk í gær. Hann hlaut fimmtíu og eitt komma sex prósent atkvæða í fyrsta sætið, en Gísli Marteinn Baldursson hlaut tæp fjörutíu og tvö prósent.

Innlent
Fréttamynd

Hanna Birna með flest atkvæði

Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur fengið flest atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna en röð efstu manna helst áfram óbreytt. Þegar talin hafa verið 8.458 atkvæði. Hanna Birna hefur fengið flest atkvæði alls, 7.289 af 8.458 eða 86,2% allra greiddra atkvæða.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að stela bensíni

Þrír lögreglubílar stöðvuðu för ökumanns sem reyndi að komast hjá því að greiða fyrir bensín sem hafði verið dælt á bíl hans á bensínstöð Skeljungs við Vesturlandsveg í dag. Eftir að hafa dælt bensíninu á bílinn ók ökumaðurinn í burtu án þess að greiða fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Búið að telja 2.077 atkvæði

Staða í prófkjöri Sjálfstæðismanna er á þann veg að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson heldur áfram fyrsta sætinu með 1.162 atkvæði, þegar 2.077 atkvæði höfðu verið talin fyrir stuttu. Hanna Birna Kristjánsdóttir er í 1.-2. sæti og Gísli Marteinn Baldursson er í 1.-3. sæti.

Innlent
Fréttamynd

Vilhjálmur áfram í 1. sæti

Klukkan 19 var búið að telja 1.342 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er áfram í fyrsta sætinu.

Innlent
Fréttamynd

Minniháttar bruni í heimahúsi

Slökkvilið Reykjavíkur fékk tilkynningu um bruna í heimahúsi við Laugaveg rétt fyrir klukkan sex nú undir kvöldið. Um minniháttar bruna var að ræða en kveiknað hafði í sjónvarpi og voru glæringar frá tækinu. Ekki reyndist þörf á að reykræsta íbúðina vegna brunans.

Innlent
Fréttamynd

Villandi auglýsingar

Verslanir sem auglýsa að þær felli niður virðisaukaskattinn af vörum sínum eru að vissu leyti að blekkja viðskiptavini sína segir Ríkisskattstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Sala á Tamiflu tekur kipp

Sala á flensulyfinu Tamiflu hefur tekið kipp hér á landi vegna frétta af fuglaflensu undanfarið. Læknar segja marga ruglaða í rýminu og ekki vita að flensan berist ekki enn á milli manna.

Innlent
Fréttamynd

Blekkingar í auglýsingum

Verslanir sem auglýsa að þær felli niður virðisaukaskattinn af vörum sínum eru að vissu leyti að blekkja viðskiptavini sína segir Ríkisskattstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Kjörsókn með besta móti

Tæplega fjögur þúsund sjálfstæðismenn höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar kjörfundi lauk klukkan níu í gærkvöld. Kjörsókn fór vel af stað í morgun og útlit er fyrir að mun fleiri kjósi í prófkjörinu nú en fyrir fjórum árum.

Innlent
Fréttamynd

Sofnaði undir stýri á Reykjanesbrautinni

Bíll fór út af Reykjanesbrautinni á öðrum tímanum í nótt, þar sem ökumaðurinn sofnaði undir stýri. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum slapp ómeiddur, en bíllinn skemmdist töluvert.

Innlent
Fréttamynd

Umgengni hindruð í góðri trú

"Mál þar sem forsjárforeldrið neitar hinu foreldrinu um að hitta barn þeirra eru kannski ekki algeng, en þau eru heldur ekkert óalgeng," segir Ingimundur Sveinn Pétursson, formaður Félags einstæðra foreldra, en félagið býður lögfræðiaðstoð í deilum sem þessum.

Innlent
Fréttamynd

Sameiginleg forsjá leysir oft ágreining

"Í sambúð er gert ráð fyrir að báðir foreldrar taki ábyrgð á börnunum. Ýmsar rannsóknir benda til þess að sameiginlegt forræði leysi úr ágreiningi foreldra í mörgum tilvikum. Þegar svo er ekki, þá er ágreiningurinn oftar en ekki jafn harður," segir Garðar Baldvinsson, fyrrum formaður Félags ábyrgra feðra, sem segist hafa árlega fengið yfir 400 forræðis- og umgengnismál inn á borð til sín.

Innlent
Fréttamynd

Leggja á ráðin um aðgerðir

"Við erum að safna liði og undirbúa okkur fyrir uppsögn samninga, það er best að segja það hreint út," segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins kemur saman til fundar þann 16. nóvember næstkomandi til þess að ræða hvort segja beri upp kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins og leggja á ráðin um aðgerðir félaganna komi til þess að samningar verði lausir um áramót.

Innlent
Fréttamynd

Tveir takast á um efsta sætið

Samfylkingin á Akureyri heldur prófkjör í dag vegna sveitarstjórnarkosninganna á næsta ári og eru kjörstaðir tveir, á Akureyri og í Hrísey. Skráðum félögum hefur fjölgað um 17,5 prósent á undanförnum tveimur vikum og eru alls 843 flokksfélagar á kjörskrá.

Innlent
Fréttamynd

800 milljónum varið í hestinn

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur varið nær 800 milljónum króna í verkefni tengd íslenska hestinum í ráðherratíð sinni. Það þýðir að árlega, frá árinu 2000, hafi um 130 milljónum af opinberu fé verið veitt í íslenska hestinn. Til viðbótar við þessar 800 milljónir er fjárveiting frá samgönguráðuneytinu vegna reiðvegagerðar. Stærstu upphæðirnar fóru í hrossabraut Hólaskóla og ráðunaut, sem sér meðal annars um skýrsluhald, eða rúmar 270 milljónir í hvort. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Eiðfaxa.

Innlent