Innlent
130 einbýlishúsalóðir runnu út 130 einbýlishúsalóðir sem Reykjanesbær auglýsti í vikunni eingöngu til einstaklinga runnu út á tveimur dögum. Mikill uppgangur er í bæjarfélaginu og hefur lóðum fyrir vel á annað þúsund íbúðir verið úthlutað að undanförnu. Innlent 28.1.2006 12:49
350 búnir að kjósa í prófkjöri Framsóknar á hádegi Góð mæting hefur verið á kjörstað í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík í morgun og voru 350 manns búnir að kjósa á hádegi. Formaður kjörstjórnar segir þetta stóran dag í sögu flokksins en þetta er fyrsta prófkjör Framsóknarflokksins í borginni í sextán ár. Innlent 28.1.2006 12:30
Opið í Hlíðarfjalli í dag Opið er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag frá kl. 10-17. Skíðafærið er unnið harðfenni. Veðrið kl. 8 var nánast logn og 3. stiga hiti. Í tilkynningu frá starfsfólki í fjallinu segir að það sé ágætis snjór í Hlíðarfjalli þrátt fyrir hlýtt veðurfar undanfarna daga. Flestar lyftur séu í notkun. Innlent 28.1.2006 10:05
Velti bíl á Þorlákshafnarvegi Ung kona velti bíl sínum á Þorlákshafnarvegi norðan við Eyrarbakkaveg um klukkan hálfellefu í gærkvöld. Hún meiddist þó ekki alvarlega en var flutt á slysadeild Landspítalans þar sem hún kvartaði undan verkjum í hálsi. Bíllinn sem konan ók er illa farinn og óökufær. Innlent 28.1.2006 10:00
Skipar starfshóp vegna nýrra framhaldsskóla Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur skipað starfshóp til að yfirfara og meta fýsileika þeirra kosta sem til staðar eru varðandi byggingu nýrra framhaldsskóla. Fram kemur á heimasíðu ráðuneytisins að starfshópurinn muni skoða sérstaklega kosti á höfuðborgarsvæðinu og við utanverðan Eyjafjörð. Innlent 28.1.2006 09:58
Segir áhrifahóp vilja ráða hver leiði lista Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að áhrifamikill hópur innan flokksins vilji ráða því hverjir leiði lista Framsóknarflokksins í Reykjavík og hafi beitt sér hart í þeim efnum fyrir prófkjör sem fram fer í dag. Innlent 28.1.2006 09:55
Siglfirðingar og Ólafsfirðingar kjósa um sameiningu Siglfirðingar og Ólafsfirðingar greiða um það atkvæði í dag hvort sameina beri sveitarfélögin, en íbúar beggja sveitarfélaga samþykktu tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga við Eyjafjörð þann 8. október. Kjörstaðir voru opnaðir nú klukkan tíu og þeir verða opnir til klukkan átta í kvöld. Innlent 28.1.2006 09:52
Framsóknarmenn í Reykjavík ganga til prófkjörs Framsóknarmenn í Reykjavík velja í dag sex efstu fulltrúa sína á lista fyrir borgarstjórnarkosningar í vor með prófkjöri sem fram fer í anddyri Laugardalshallarinnar. Það hefst nú klukkan tíu og lýkur klukkan sex. Innlent 28.1.2006 09:49
Þrír bankar hagnast yfir 100 milljarða Hagnaður Landsbanka Íslands í fyrra nærri tvöfaldaðist frá fyrra ári og hefur aldrei verið meiri. Samanlagður hagnaður þeirra þriggja stóru banka sem birt hafa afkomutölur sínar í fyrra nemur meira en hundrað milljörðum króna. Innlent 27.1.2006 23:23
Herra Ísland sviptur titlinum Ólafur Geir Jónsson hefur verið sviptur titlinum Herra Íslands en Ólafur var kosinn Herra Ísland árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Fegurðarsamkeppni Íslands sem slíkt er gert. Innlent 27.1.2006 23:15
90 prósent ferðamanna höfðu góða reynslu af Reykjavík Níu af hverjum tíu erlendu ferðamönnum sem heimsóttu Reykjavík á síðasta sumri voru höfðu góða reynslu af borginni. Þá er sama hlutfall af gestum menningarstofnana borgarinnar ánægður með starfsemi þeirra. Þetta sýna niðurstöður tveggja kannana sem kynntar voru í dag Innlent 27.1.2006 23:08
Kynferðisbrot gegn þroskaheftri stúlku Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í dag fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára þroskaheftri stúlku. Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir vinnubrögð og rannsókn lögreglu í málinu og segir hana hafa brotið gegn stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála Evrópu. Innlent 27.1.2006 22:39
Biskup misskilur frumvarp Biskup Íslands virðist misskilja frumvarp ríkisstjórarinnar um réttarstöðu samkynhneigðra að því er varðar þann hluta þess sem fjallar um tæknifrjóvganir. Ef svo er ekki þá er ekki annað að sjá en að um útúrsnúning sé að ræða að sögn Ragnars Aðalsteinssonar, hæstarréttarlögmanns. Innlent 27.1.2006 22:37
Efnahagsuppbygging á Íslandi einna hröðust í heiminum Hagvöxtur hér á landi var rúmlega fimm prósent í fyrra, sem er nánast einsdæmi á Vesturlöndum. Hástökkvararnir í hagvexti eru hins vegar risarnir í Asíu, Kína, þar sem hagvöxturinn var níu prósent í fyrra, og Indland þar sem hagvöxturinn var rúm sjö prósent. Ísland er þannig í flokki þeirra landa þar sem efnahagsuppbygging hefur verið einna hröðust í heiminum. Innlent 27.1.2006 22:33
Umhverfismat gleymdist Borgin gleymdi umhverfismati fyrir bílastæðahús við tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem rísa á við Reykjavíkurhöfn. Öll viðvörunarljós loga, segja sjálfstæðismenn, og að ekki séu öll kurl komin til grafar enn. Innlent 27.1.2006 22:17
Eldur í bílum Tveir eldsvoðar urðu í bílum í kvöld. Rétt fyrir klukkan 20 kviknaði í heyrúllu á vörubíl í Garðabæ. Bíllinn var að koma utan af landi með rúllur á pallinum og í vagni sem var í eftirdragi. Það kviknaði í rúllunni sem var næst bílstjórahúsinu og þurfti að hífa rúllurnar af bílnum til að slökkva eldinn. Þá kom upp eldur í bíl við Dugguvog um hálf tíu. Í hvorugu tilvikinu urðu meiðsl á fólki. Innlent 27.1.2006 22:06
Meiri áhætta að fara ekki í stóriðjuuppbyggingu Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir meiri áhættu tekna fyrir íslenskt efnahagslíf með því að fara ekki í stóriðjuuppbyggingu. Hann telur verkefnið vel viðráðanlegt út frá hagstjórn og að of mikið sé gert úr hættu sem því fylgi. Ný skoðanakönnun sýnir að 56 prósent þeirra sem afstöðu taka séu hlynnt frekari uppbyggingu áliðnaðar í landinu. Innlent 27.1.2006 22:01
Íbúðalánavextir muni standa í stað Viðskiptabankarnir skeyta engu um vaxtahækkanir Seðlabankans og almennir íbúðalánavextir standa í stað. Ef vextir hér verða of háir, sækja bankarnir einfaldlega peninga til útlanda, segir forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans. Innlent 27.1.2006 21:30
Álver á Norðurlandi eina glóran Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðarbyggðar, sagði í hádegisviðtalinu á NFS í dag að eina glóran sé að reisa álver á Norðurlandi. Álver í Fjarðarbyggð hafi breytt sveitarfélaginu frá því að vera samfélag í vörn í að vera samfélag í sókn. Innlent 27.1.2006 21:03
Mörg tækifæri ónýtt Greiðar samgöngur til þéttbýliskjarna Vesturlands hafa breytt framtíðarásjónu landshlutans. Sumir vilja meina að landshlutinn sé orðinn tvískiptur milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Framtíð Vesturlands var rædd á ráðstefnu á Bifröst í dag. Innlent 27.1.2006 19:13
Biskup Íslands braut stjórnsýslulög Biskup Íslands braut stjórnsýslulög við ráðningarferli sendiráðsprestsins í Lundúnum. Tengdasonur hans hreppti stöðuna. Innlent 27.1.2006 19:01
Hagnaður Avion Group 2,6 milljarðar Heildartekjur Avion Group á fjárhagsárinu, sem var frá ársbyrjun til loka október 2005, námu rúmum 86 milljörðum króna. Rekstrargjöld voru rúmir 80 milljarðar og rekstrarhagnaður rúmir 3,7 milljarðar. Hagnaður félagsins á þessu tímabili nam rúmum 2,6 milljörðum. Innlent 27.1.2006 18:44
Landsbankinn hagnaðist um 25 milljarða í fyrra Hagnaður Landsbanka Íslands í fyrra nærri tvöfaldaðist frá fyrra ári, úr 12,7 milljörðum króna í 25 milljarða. Í afkomutilkynningu frá bankanum kemur enn fremur fram að hreinar vaxtatekjur hafi numið 22,9 milljörðum króna samanborið við 14,7 milljarð króna á árinu 2004 og jukust þær um 56 prósent. Innlent 27.1.2006 17:59
Ásgeir Sverrisson nýr ritstjóri Blaðsins Ásgeir Sverrisson hefur verið ráðinn ritstjóri Blaðsins og mun hefja störf 1. febrúar næstkomandi. Ásgeir hefur starfað á ritstjórn Morgunblaðsins í tæp 20 ár og verið fréttastjóri erlendra frétta á Morgunblaðinu frá árinu 2001. Innlent 27.1.2006 18:04
Þúsund hafa kosið utan kjörstaðar í prófkjöri framsóknarmanna Um þúsund manns hafa kosið utan kjörstaðar fyrir prófkjör framsóknarmanna í borginni sem fram fer á morgun. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla hefur staðið yfir frá því á mánudag en henni lauk nú klukkan fimm. Innlent 27.1.2006 17:57
Segir skatta hafa lækkað umtalsvert frá 1994 Að sögn fjármálaráðuneytisins hafa skattar lækkað umtalsvert frá árinu 1994 og munu lækka enn frekar fram til ársins 2007 þegar allar ákvarðanir um skattalækkanir hafa tekið gildi. Þá segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu að skattleysismörk á sama verðlagi séu nánast þau sömu og þau voru árið 1994 og að þau muni verða talsvert hærri árið 2007. Innlent 27.1.2006 17:49
Karl og kona úrskurðuð í viku gæsluvarðhald Karl og kona voru í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald í viku í tengslum við umsvifamikla kannabisræktun í atvinnuhúsnæði sem upp komst um í gær. Á þriðja hundrað kannabisplöntur fundust í húsnæðinu, sumar allt að tveggja metra háar, og einnig smáræði af hassi og amfetamíni. Innlent 27.1.2006 17:29
Osta- og smjörsalan fjarlægir osta úr verslunum Osta- og smjörsalan hefur innkallað í dag og fjarlægt þrjú vörunúmer úr verslunum vegna gerlagalla sem greindist í Búra og Havarti-ostum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfissviði borgarinnar. Þær vörutegundir sem um er að ræða eru vörnúmer 4011 Búri, vörunúmer 3905 Havarti 32% og vörunúmer 3915 Krydd-Havarti 32%. Innlent 27.1.2006 16:58
Tveir fluttir til aðhlynningar eftir harðan árekstur Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi um þrjúleytið og voru tveir aðilar fluttir með sjúkrabifreið til aðhlynningar á sjúkrahús. Ekki er enn vitað hvort alvarleg slys hafi orðið á fólki en að sögn læknis virðist sem svo sé ekki. Áreksturinn átti sér stað við svokallað vigtunarplan á Vesturlandsvegi þegar jeppabifreið var ekið undir vörubílspall. Innlent 27.1.2006 16:33
Fjallað um upphaf aðalmeðferðar í Baugsmálinu Fjallað verður um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur nú klukkan tvö hvort aðalmeðferð í Baugsmálinu hefjist 9. eða 10. febrúar, eða síðar. Settur ríkissaksóknari í málinu hefur sótt um frestun á að aðalmeðferð hefjist. Innlent 27.1.2006 13:34