Innlent
Ratsjárstöðvunum líklega lokað Margt bendir til þess að ratstjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. Þegar stöðvarnar fjórar voru reistar með ærnum kostnaði undir lok níunda áratugar síðustu aldar var yfirlýstur tilgangur þeirra annars vegar að fylgjast með flugi óvinveittra flugvéla, sem eru hættar að koma hingað eftir fall Sovéttríkjanna, og hinsvegar að fylgjast með flugi herþotna frá Keflavíkurflugvelli, sem nú eru á förum. Innlent 16.3.2006 07:30
Sögulegur hagnaður Sparisjóðs Svarfdæla Sparisjóður Svarfdæla skilaði 403 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en um methagnað er að ræða í sögu sparisjóðsins. Þetta er 220 milljónum króna meira en árið 2004. Arðsemi eigin fjár var 58,3 prósent á síðasta ári en var 36,4 prósent árið á undan. Viðskipti innlent 15.3.2006 23:48
Fjármálaeftirlitið breytir áfallaviðmiðum banka Breytt hefur verið reglum um áfallaviðmið fjármálastofnana vegna innlendrar hlutabréfaeignar. Bankarnir stóðust settar kröfur í nýju álagsprófi. Ekki var tekið mið af nýtilkominni veikingu krónunnar. Fjármálaeftirlitið hefur breytt reglum um um áfallaviðmið fjármálastofnana vegna hlutabréfaeignar í innlendum félögum og bætt við lið í áfallapróf þar sem reiknuð eru áhrif breytinga á virði erlendra gjaldmiðla á eiginfjár- og áhættugrunn fjármálafyrirtækja. Viðskipti innlent 15.3.2006 23:48
Hagnaður KEA minnkar Hreinar rekstrartekjur Kaupfélags Eyfirðinga fyrir árið 2005 drógust saman vegna minni hagnaðar af hlutabréfum. Nam hagnaðurinn 263 milljónum króna samanborið við 1.959 milljónir króna árið 2004. Heildareignir félagsins nema 5.101 milljónum króna og skuldir og skuldbindingar 840 milljónum króna. Bókfært eigið fé er 4.261 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 84 prósent. Viðskipti innlent 15.3.2006 23:48
Rúmlega 200 þátttakendur á Glitnismótinu í hraðskák Rúmlega 200 manns á öllum aldri, áhugamenn jafnt sem stórmeistarar, höfðu skráð sig til þátttöku á Glitnismótinu í hraðskák sem hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Mótið er opið mót og haldið í minningu Haraldar Blöndal hæstaréttalögmanns, en mótinu lýkur á morgun. Innlent 15.3.2006 22:00
Íbúum hefur ekki fjölgað jafn mikið í rúm fjörtíu ár Á síðasta ári fjölgaði íbúum hér á landi meira en í rúm fjörtíu ár. Þar af fjölgaði íbúum hlutfallslega mest á Austurlandi og þar eru hvað mestu skekkjur í kynjahlutföllunum enda flestir nýbúar á Austurlandi karlmenn með erlent ríkisfang. Innlent 15.3.2006 21:41
Borgarholtshverfi án ADSL-sambands Borgarholtshverfi í Reykjavík og næsta nágrenni er án ADSL-sambands því ljósleiðari við Víkurveg rofnaði vegna framkvæmda sem þar standa yfir. Unnið er að viðgerð en henni lýkur líklega ekki fyrr en seint í kvöld. Innlent 15.3.2006 20:06
Vextir hæstir á Íslandi samkvæmt skýrslu Norðurlandaráðs Talsmaður neytenda segir að verði íbúðalánasjóður gerður að heildsölubanka verði að koma til mótvægisaðgerðir til að tryggja samkeppni á húsnæðislánamarkaði. Í skýrslu um norræna bankakerfið kemur fram að vextir á íbúðalánum og yfirdráttarlánum er miklu hærri á Íslandi en gerist á hinum Norðurlöndunum. Innlent 15.3.2006 19:10
Vill ræða varnarmál við nágrannaþjóðir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að Íslendingar þurfi að ræða varnarmál við nágrannaþjóðir eins og Norðurlöndin og Bretland í ljósi stöðunnar sem hefur komið upp í varnarmálum. Hann segir að varnarmál Íslands snerti ekki aðeins okkur heldur líka nágrannaþjóðir okkar. Innlent 15.3.2006 18:42
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald í hnífsstungumáli Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann á skemmtistað í Reykjvík aðfaranótt 5. mars síðastliðinn. Maðurinn skal sitja í gæsluvarðhaldi þar til réttað hefur verið í máli hans, þó ekki lengur en til 21. apríl næstkomandi. Maðurinn liggur undir grun um að hafa veitt öðrum manni fimm stungusár með vasahníf. Innlent 15.3.2006 18:25
KB-banki hækkar vexti á íbúðalánum KB-banki hefur ákveðið að hækka fasta vexti á íbúðalánum bankans um 0,15%. Vextir lánanna hækka því í 4,30%. Innlent 15.3.2006 17:41
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir unglingi Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Hérðaðsdóms Reykjavíkur um að unglingsstrákur sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til mál hans verður tekið fyrir að nýju fyrir Hæstarétti en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður úrskurðað drenginn í gæsluvarðhald fyrir að hafa svipt ungan manni frelsi, flutt hann nauðugan úr vinnu sinni og haft í hótunum við hann. Innlent 15.3.2006 18:07
Bónus fær Neytendarverðlaunin í ár Bónus fékk í dag afhent Neytendaverðlaun Neyendasamtakanna og Bylgjunnar árið 2006. Bónus er fyrirtæki ársins að mati neytenda en verðlaunin voru afhend á Hótel Centrum í dag. Þá fengu Atlantsolía og Iceland Express hvatningarverðaun neytenda. Innlent 15.3.2006 17:34
Umræðum um vatnalög senn að ljúka Annarri umræðu um vatnalögin á Alþingi var frestað klukkan fjögur í dag en hún hefst aftur klukkan sex. Reikna má með að umræðunni ljúki í kvöld og málinu verði þá vísað til þriðju umræðu. Innlent 15.3.2006 17:04
Þotur og þyrlur farnar í lok september Orrustuþotur varnarliðsins og björgunarþyrlur þess verða farnar frá Íslandi í síðasta lagi fyrir lok september. Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt ríkisstjórn Íslands að dregið verði stórlega úr starfsemi bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli síðar á þessu ári. Innlent 15.3.2006 17:58
Einn og hálfur milljarður til uppbyggingar fyrir geðfatlaða Einum og hálfum milljarði króna verður varið á næstu fjórum árum til uppbyggingar í búsetu- og stoðþjónustumálum geðfatlaðra. Þeir sem eru án húsnæðis og umönnunar munu njóta forgangs ásamt þeim sem búa hjá ættingjum og þeim sem eru tilbúnir til útskritfar af geðdeild. Innlent 15.3.2006 16:53
Jón Ásgeir segir skaðabótamál koma til greina Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sagði á Fréttavaktinni eftir hádegi, að sýknudómur Héraðsdóms í baugsmálinu í dag, sýni að málið allt sé mikill áfellisdómur yfir þeim sem stóðu að því og sóttu. Það væri sorglegt að ríkið þyrfti að standa í þeim mikla kostnaði sem fylgdi því að sækja þetta mál, á sama tíma og ekki væru til peningar til að halda björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar á lofti. Jón Ásgeir sagði einnig að til greina kæmi að fara í skaðabótamál við ríkið vegna málaferlanna. Innlent 15.3.2006 16:27
Segir flokkinn verða að skoða stöðu sína Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna harmar og hafnar hugmyndum Kristins H. Gunnarssonar í þá veru að huga að sameiningu Framsóknarflokks og Samfylkingar og líkir hugmyndinni við pólitíska hryðjuverkastarfssemi. Kristinn segir sama mann standa að ályktun um að reka hann úr flokknum og boði sérframboð gegn flokknum á Akureyri. Innlent 15.3.2006 16:26
Starfsfólk bíður þess að fá að fara í vinnu á ný Starfsfólk frystihússins Fossvíkur á Breiðdalsvík fundaði á öðrum tímanum í dag um stöðu mála og framtíð frystihússins. Allt starfsfólk frystihússins mætti á fundinn. Innlent 15.3.2006 15:51
Málsvarnarlaun og sakarkostnaður nema á sjötta tug milljóna Þau málsvarnarlaun og sakarkostnaður sem greiðast úr ríkissjóði vegna sýknudóms í Baugsmálinu sem féll í dag nema vel á sjötta tug milljóna króna. Innlent 15.3.2006 15:45
Sýknað í öllum ákæruliðum í Baugsmálinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað alla sakborninga í Baugsmálinu af öllum ákæruliðum. Dómurinn var kveðinn rétt um klukkan þrjú í dag. Settur saksóknari í málinu segir ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar og heldur ekki ákveðið hvort kært verði á ný í þeim 32 ákæruliðum málsins sem Hæstiréttur hefur vísað frá dómi. Innlent 15.3.2006 14:47
Forseti Íslands vottar ekkju Meri samúð sína Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent frú Helle Meri og forseta Eistlands, Arnold Rüütel, samúðarkveðjur vegna andláts Lennart meri, fyrrverandi forseta Eistlands. Innlent 15.3.2006 14:08
Dóms að vænta í Baugsmálinu Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan korter í þrjú í dag. NFS mun sýna beint frá héraðsdómi í dag og hefst útsendingin skömmu áður en dómurinn verður kveðinn upp. Innlent 15.3.2006 13:24
Engin ákvörðun um hvort frystihús verður endurbyggt Engin ákvörðun hefur verið tekin um það á þessari stundu hvort frystihúsið á Breiðdalsvík, sem stórskemmdist í eldi í gærkvöldi, verður endurbyggt. Það hefur verið langfjölmennasti vinnustaðurinn í plássinu. Innlent 15.3.2006 13:03
Forsetahjón til Hornafjarðar í lok apríl Forsetahjónin eru væntanleg í opinbera heimsókn til Hornafjarðar í síðustu viku apríl. Frá þessu greinir á Hornafjörður.is. Þar segir að forsetinn hafi óskað eftir að koma þangað í opinbera heimsókn og var þeim óskum vel tekið. Áætlað er að forsetinn og fylgdarlið hans komi með flugvél til Hornafjarðar 27. apríl og fari til baka 28. apríl. Innlent 15.3.2006 11:53
Segir Morgunblaðið spinna pólitískan lopa á kostnað framsóknarmanna Morgunblaðið er farið að spinna pólitískan lopa til að reyna að koma að fulltrúa frjálslyndra í borgarstjórn á kostnað framsóknarmanna og tryggja þannig sjálfstæðismönnum öll völd í málefnum Reykvíkinga. Þetta segir Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, á heimasíðu sinni. Innlent 15.3.2006 11:43
Neytendaverðlaunin veitt í dag Neytendaverðlaun Bylgjunnar og Neytendasamtakanna fyrir árið 2006 verða veitt í dag klukkan fjögur í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar. Það voru neytendur sjálfir sem völdu fyrirtæki ársins með netkosningu á vegum Bylgjunnar. Innlent 15.3.2006 10:29
Íslendingum ekki fjölgað meira í um hálfa öld Íbúum á Íslandi fjölgaði meira í fyrra en mörg undanfarin ár og reyndar hefur þeim ekki fjölgað jafnmikið á einu ári í hátt í hálfa öld. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofan birti í dag. Innlent 15.3.2006 10:06
Þungatakmarkanir á öllum hringveginum Þungatakmarkanir eru nú á öllum hringveginum og ýmsum leiðum út frá honum og eru það óvenju víðtækar takmarkanir af hálfu Vegagerðarinnar. Gripið er til þessa þar sem klaki er að fara úr jörðu og þá verður undirlag veganna veikt. Innlent 15.3.2006 09:38
Tugmilljóna tjón í bruna í Garðinum Slökkviliði Brunavarna Suðurnesja tókst á áttunda tímanum að slökkva eld sem kviknaði í stóru atvinnuhúsi í svonefndum Kothúsum í Garðinum á Reykjanesi um klukkan hálf fjögur í nótt. Enn er er þó verið að slökkva í glæðum á nokkrum stöðum. Ljóst er að þar hefur orðið tuga milljóna tjón því hluti hússins er rústir einar. Innlent 15.3.2006 09:45