Innlent
Lífeyrisgreiðslur TR 19 milljarðar króna Lífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar (TR) til ellilífeyrisþega nema 19 milljörðum króna á þessu ári samkvæmt fjárlögum. Í Vefriti fjármálaráðuneytisins kemur fram að greiðslur Tryggingastofnunar á hvern ellilífeyrisþega hafi hækkað um tæp 80 prósent á á árabilinu 1995 til 2005 en á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 41 prósent. Viðskipti innlent 12.4.2006 10:44
Verðmunur á bensínlítra allt að 13 krónur Allt að sex hundruð króna verðmununur var á því í morgun að fylla bensíngeymi á meðal fólksbíl, eftir því hvar bensínið var keypt og verðmunur á lítra fór upp í þrettán krónur. Hækkandi bensínverð hefur lyft verðbólgunni yfir fimm prósent, samkvæmt nýrri vísitölu neysluverðs. Innlent 12.4.2006 09:45
TM gerir tilboð í norskt tryggingafélag Tryggingamiðstöðin hf. hefur lagt fram formlegt kauptilboð í NEMI að fjárhæð 62,5 norskar krónur á hlut. Kaupverðið er greitt í reiðufé, að því er fram kemur í tilkynningu til kauphallarinnar. Tryggingamiðstöðin hefur þegar aflað sölusamþykkis meira en 2/3 hluthafa í félaginu. Viðskipti innlent 12.4.2006 10:20
Nagladekkin af, á með sumardekk Á laugardag eiga allir bifreiðaeigendur að vera búnir að skipta nagladekkjunum út fyrir sumardekk. Frá og með 15. apríl er ólöglegt að keyra um á nagladekkjunum og geta þeir sem það gera átt von á að vera sektaðir fyrir en sekt vegna aksturs á negldum hjólbörðum er 5000 krónur. Nagladekkin má svo setja aftur undir bílana 31. október Innlent 12.4.2006 08:08
Nýi Baldur ekki enn kominn til landsins Nýi Baldur er ekki enn kominn til landsins en til stóð að hann hæfi siglingar yfir Breiðarfjörð í dag. Skipið hefur lent í vonsku veðri á heimleiðinni og verður ekki á móts við Færeyjar fyrr en undir kvöld. Hugsanlega verður dokað þar eitthvað við þar sem spáð er stormi á suðausuturmiðum. Innlent 12.4.2006 08:13
Verðbólga orðin 5,5 prósent á ársgrundvelli Verðbólga í landinu er nú 5,5 prósent ársgrundvelli samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Vísitala neysluverðs mælist nú 255,2 stig og hækkaði um 1,14 prósent frá fyrra mánuði. Verðbólga hefur ekki mælst hærri í fjögur ár. Innlent 12.4.2006 09:19
Ökumaður slasast í bílveltu Ökumaður slasaðist og farþegi skrámaðist þegar bíll valt skammt frá Blönduósi í gærkvöld. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Hálka var á veginum og er slysið rakið til hennar. Víða um land er einhver hálka, sem ökumenn þurfa að gæta sín á þegar halda skal í ferðalög um páskana. Innlent 12.4.2006 08:06
100 kvennakórskonur á leið til Kúbu Um 100 söngkonur í Léttsveit Reykjavíkur munu leggja land undir fót eftir Páska og halda til Kúbu þar sem þær munu koma fram á alþjóðlegu kóramóti. Innlent 11.4.2006 23:43
Vilja fella niður skatta af styrkjum Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram lagafrumvarp um að styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga verði ekki lengur skattskyldir. Fram hefur komið að nær ellefu þúsund einstaklingar greiddu rúmar tvöhundruð og sextíu milljónir króna í skatta af sjúkrastyrkjum árið 2004. Innlent 12.4.2006 07:58
Sjálfstæðisflokkur tvöfaldar fylgi sitt í Árborg Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg frá síðustu sveitarstjórnarkosningum og næði hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Samfylkingin hrapar hinsvegar úr rúmum 40 prósentum niður í rúm tuttugu og fylgi Framsóknarflokksins lækkar úr 28 prósentum niður í 18 prósent. Vinstri grænir bæta heldur við sig, en næðu ekki inn manni og fylgi Frjálslynda flokksins er vart mælanlegt. Innlent 12.4.2006 07:49
Blúshátíð í Reykjavík sett Blúshátíð í Reykjavík var sett í dag og var söngkonan Andrea Gylfadóttir heiðruð við það tilefnið fyrir framlag sitt til blústónlistar. Innlent 11.4.2006 22:39
Vilja sleppa skatti af sjúkrastyrkjum Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram lagafrumvarp um að styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga verði ekki lengur skattskyldir. Fram hefur komið að nær ellefu þúsund einstaklingar greiddu rúmar 260 milljónir króna í skatta af sjúkrastyrkjum árið 2004. Innlent 11.4.2006 21:30
Öflugra og hagkvæmara fjölþjónustunet Og Vodafone hefur tekið í notkun MetroNet; nýja kynslóð af fjölþjónustuneti sem sameinar flutning á tali, mynd og gögnum yfir eina tengingu til fjölda starfsstöðva fyrirtækja. MetroNetið, sem hentar öllum gerðum fyrirtækja, er ný kynslóð gagnatenginga sem er bæði tæknilega fullkomnari, hagkvæmari og einfaldari en hefðbundnar tengingar. Flutningshraði netsins er frá 512 kb/s og upp í 1.000 Mb/s. Innlent 11.4.2006 21:30
Holtasóley verður þjóðarblóm Ekkert virðist nú geta komið í veg fyrir að holtasóley verði valin þjóðarblóm Íslendinga. Landbúnaðarnefnd Alþingis hefur mælt með því við þingheimur samþykki þingsályktunartillögu í þessa veru. Innlent 11.4.2006 20:58
Byggja björgunarmiðstöð Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Slysavarnadeildin Hraunprýði gengu í gær frá viljayfirlýsingu við Hafnarfjarðarbæ um uppbyggingu björgunarmiðstöðvar í bænum. Innlent 11.4.2006 20:29
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20
Dregur úr ferðatíðni á stofnleiðum í páskavikunni Nokkrir farþegar Strætó bs. hafa haft samband við Fréttastofuna vegna þess að stætisvagnar á stofnleiðum aka ekki á tíu mínútna fresti yfir annamesta tíma dagsins nú í páskavikunni. Eins og gefur að skilja hefur þetta valdið sumum vanda sem ferðast með strætó til vinnu sinnar. Innlent 11.4.2006 19:21
Samið um leigu á 800 fermetra húsnæði til 20 ára Starsfemi höfuðstöðva Landbúnaðarstofnunar á Selfossi flyst í nýtt 800 fermetra húnsæði á haustdögum. Leigusamningur til næstu 20 ára var undirritaður við eignarhaldsfélagið Merkiland í dag. Jafnframt var undirritaður samstarfssamningur við ráðgjafafyrirtækið Hið íslenska ráðgjafahús um aðstoð við stefnumótun og rekstur nýrrar stofnunar. Innlent 11.4.2006 20:52
Erfitt að sanna ákæru um rangar sakargiftir Jóhannes Jónsson í Bónus hefur kært Jón Gerald Sullenberger fyrir rangar sakargiftir, sem hann segir hafa orðið til þess að hann lenti í þriggja ára lögreglurannsókn. Verjandi Jóns Geralds segir að erfitt geti verið að sanna ákæru um rangar sakargiftir. Innlent 11.4.2006 19:08
ESSO hækkar bensínverð Olíufélagið ESSO hækkaði í dag verð á bensínlítranum um kr. 3,60 og dísel- og gasolíu um kr. 2,40. Innlent 11.4.2006 18:40
Vilja sérkjörin burt sem fyrst Engar efndir hafa orðið á því að eftirlaunalögum yrði breytt þó ár sé síðan forsætisráðherra lofaði að það yrði gert. Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, á þingi í dag og deildi á forsætisráðherra sem sagði málið ekki stranda á sér. Innlent 11.4.2006 17:15
Hæstiréttur staðfesti dóm vegna stórfellds gáleysis Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir íslenska ríkinu og fæðingarlækni vegna stófellds gáleysis þegar barn lést skömmu eftir að það fæddist. Bætur voru þó lækkaðar. Einn dómari skilaði séráliti og vildi hærri bætur. Innlent 11.4.2006 16:55
Hjördís Hákonardóttir skipuð í Hæstarétt Hjördís Björk Hákonardóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Suðurlands, hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra, verið skipuð dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 1. maí næstkomandi. Innlent 11.4.2006 16:25
Telja þorskstofninn í Barentshafi mun stærri Vísindamenn við VNIRO rannsóknastofnunina í Rússlandi segja að skipulagt vanmat hafi átt sér stað í mælingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, á þorskstofninum í Barentshafi á undanförnum árum. Innlent 11.4.2006 16:22
Engin ágreiningur um varnarmál Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja engan ágreining sín á milli um varnarmál. Stjórnarandstæðingar sökuðu utanríkisráðherra um að upplýsa ritstjóra Morgunblaðsins betur um gang varnarviðræðna við Bandaríkin en utanríkismálanefnd. Innlent 11.4.2006 16:01
LSH dæmt til að greiða bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítalann Háskólasjúkrahús til að greiða manni sem gekkst undir aðgerð á hné rúmar sex milljónir í bætur vegna varanlegrar örorku sem hann hlaut vegna hennar. Innlent 11.4.2006 14:42
Jón Gerald bar ljúgvitni gegn Jóhannesi Lögmaður Jóhannesar Jónssonar í Bónus segir Jón Gerald Sullenberger hafa borið ljúgvitni gegn Jóhannesi hjá lögreglu og á þeirri lygi hafi ákæra gegn honum verið byggð í Baugsmálinu. Jóhannes hefur kært Sullenberger til ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann kvartað undan yfirmanni efnahagsbrotadeildar lögreglunnar og ríkislögreglustjóra við umboðsmann Alþingis. Innlent 11.4.2006 12:12
Boða viku setuverkfall Starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem verið hafa í aðgerðum undanfarnar tvær vikur, samþykktu á fundi í gær að boða til viku setuverkfalls, sem tekur gildi 21. apríl. Boðaður hefur verið fundur starfsfólksins með forstöðumönnum hjúkrunarheimilisins þann 19. apríl. Ef samkomulag næst ekki eða ef fyrirhugaðar aðgerðir bera ekki árangur, er boðað að gripið verði til fjöldauppsagna. Innlent 11.4.2006 08:00
Lést í snjóflóði Vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hoffellsdal, fyrir ofan Fáskrúðsfjörð í kvöld, er látinn. Hann var á þrítugsaldri en ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Innlent 10.4.2006 23:20
Ekki kemur til greina að taka upp vegtoll Hugmyndir um vegtoll um Suðurlandsveg eru algjörlega óásættanlegar að mati Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Tryggingafélagið Sjóvá vill endurbyggja Suðurlandsveg með tveimur akreinum í hvora átt og en forstjóri fyrirtækisins segir að jafnvel megi fjármagna framkvæmdirnar með vegtolli. Innlent 10.4.2006 23:19