Innlent
Ung kona flutt á slysadeild Árekstur varð á Stórhöfða nú á sjötta tímanum. Að minnsta kosti einn var fluttur á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahús en ekki er vitað með meiðsl hans að svo stöddu. Innlent 26.4.2006 17:30
Fjármálaráðherra Svartfjallalands kynnir sér íslenskt efnahagslíf Igor Luksic, fjármálaráðherra Svartfjallalands, kom í dag í stutta heimsókn til Íslands. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér íslenska efnahagslífið og þær breytingar sem það hefur gengið í gegnum á síðustu árum. Innlent 26.4.2006 17:16
Hagnaður Nýherja 54 milljónir króna Hagnaður Nýherja hf. nam 54 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi eða 0,27 krónur á hlut. Þetta er 28 milljónum meira en á sama tímabili á síðasta ári. Þá jukust tekjur fyrirtækisins um 34 prósent á milli ára en þær námu 1,9 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam 158 milljónum króna á tímabilinu. Viðskipti innlent 26.4.2006 17:00
Gætu byrjað á tvöföldun á Kjalarnesi Samgönguráðherra telur koma til greina að byrja framkvæmdir vegna lagningar Sundabrautar á Kjalarnesi. Þannig megi losa Sundabrautina úr gíslingu borgarstjórnar Reykjavíkur. Innlent 26.4.2006 16:18
Málum fjölgar mjög hjá Samkeppniseftirlitinu Málum sem Samkeppniseftirlitið fær til meðferðar hefur fjölgað mikið undanfarnar vikur. Elsta málið sem er nú á borðum eftirlitsins er tæplega fimm ára gamalt. Þetta kom fram í máli viðskiptaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Innlent 26.4.2006 16:12
Lögð fram drög um hjónaband samkynhneigðra Á prestastefnu 2006 í dag voru lögð fram drög að ályktun kenningarnefndar Þjóðkirkjunnar um að staðfesta samvist samkynhneigðra. Drögin verða til umræðu á prestastefnunni. Innlent 26.4.2006 15:35
Eimskip og Kiwanis gefa öllum 7 ára börnum reiðhjólahjálma Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða sérstakt átak í samvinnu Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en auki nýtur verkefnið aðstoðar Lýðheilsustöðvar. Alls verður 4.500 reiðhjólahjálmum dreift í ár og er heildarverðmæti verkefnisins um 23 milljónir kr. Innlent 26.4.2006 15:31
RÚV-frumvarpið ekki afgreitt úr nefnd Frumvarp til laga um Ríkisútvarpið var ekki afgreitt úr menntamálanefnd Alþingis á fundi nefndarinnar í dag. Sigurður Kári Kristjánsson, formaður nefndarinnar, sagði fyrir fundinn að athuga ætti hvort unnt væri að lægja öldurnar á milli stjórnar og stjórnarandstöðu í afstöðunni til frumvarpsins. Innlent 26.4.2006 14:48
Byrji Sundabraut norðanfrá Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vill láta athuga hvort rétt sé að hefja lagningu Sundabrautar að norðanverðu, byrja á Kjalarnesi en ekki í Reykjavík. Innlent 26.4.2006 14:14
Formaður ÖBÍ vill skýr svör frá stjórnmálaflokkunum Enginn hefur komið vel út úr stríði stjórnvalda og öryrkja, og því nauðsynlegt að beita öðrum aðferðum í framtíðinni, að sögn formanns Öryrkjabandalagins. Hann vill skýr svör frá stjórnmálaflokkunum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor hvernig þeir hyggist taka þátt í mótun betra velferðarkerfis. Innlent 26.4.2006 12:39
Öldurnar lægðar í afstöðunni til RÚV-frumvarpsins? Frumvarp til laga um Ríkisútvarpið verður til umfjöllunar á fundi menntamálanefndar Alþingis í dag sem hefst klukkan hálf ellefu. Að sögn Sigurðar Kára Kristjánssonar, formanns nefndarinnar, verður athugað hvort unnt sé að lægja öldurnar á milli stjórnar og stjórnarandstöðu í afstöðunni til frumvarpsins. Innlent 26.4.2006 09:30
Vilja að hækkanir taki strax gildi Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu ákváðu að hækka laun ófaglærðs starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum eftir að það slitnaði upp úr viðræðum þeirra í dag. Talsmaður starfsmannanna segir þessa einhliða ákvörðun ekki eðlilega starfshætti og segir að hækkunin hefði strax átt að taka gildi. Innlent 25.4.2006 23:37
Línuhönnun hlaut umhverfisverðlaunin Kuðunginn Það eru hreinar línur hjá ráðgjafa- og verkfræðistofunni Línuhönnun en fyrirtækið hlaut í dag viðurkenningu umhverfisráðuneytisins, „Kuðunginn", fyrir að hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi í verkefnum sínum. Innlent 25.4.2006 22:31
Mótmæli við upphaf prestastefnu Hópur fólks var samankomin við Keflavíkur fyrr í kvöld til að mótmæla ráðningu séra Sigðurs Ólafssonar í embætti sóknarprests í Keflavíkurprestakalli í stað séra Sigfúsar Ingvarssonar, prests í Keflavík. Það voru því óblíðar móttökur sem biskup, prófastar og prestar fengu þegar þeir gengu til messu í Keflavíkurkrikju en setning prestastefnunar fór fram í kirkjunni. Innlent 25.4.2006 22:06
Allt að 180 dauðsföll vegna mistaka Samkvæmt niðurstöðum úr erlendum rannsóknum má gera ráð fyrir að um 180 dauðsföll eigi sér stað hér á landi árlega vegna mistaka á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, sé miðað við höfðatölu. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fram þingmál á Alþingi í dag þar sem hann lagði til að gerð verði úttekt á öryggi og mistökum í heilbrigðiskerfinu. Innlent 25.4.2006 21:12
Borgarstjórn fellir tillögu Ólafs Borgarstjórn Reykjavíkur felldi á fundi sínum í dag tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um að horfið yrði frá brottflutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni með 14 atkvæðum allra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og R-lista, gegn atvæði Ólafs. Innlent 25.4.2006 19:05
Hæstiréttur staðfestir dóm fyrir fíkniefnasmygl Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann á sextugsaldri, Romanas Strabeika, í þriggja ára fangelsi fyrir smygl á tæpum fjórum kílóum af metaamfetamíni. Maðurinn smyglaði fíkniefnunum ásamt félaga sínum í bíl með Norrænu en þeir komu til landsins í júní á síðasta ári. Efnið höfðu þeir falið í sér útbúnu geymsluhólfi í járnbita í undirvagni bílsins en talið er að það hafi verið ætlað til söludreyfingar hér á landi. Innlent 25.4.2006 18:04
Gríðarlega stórar sprungur við ketilinn Sprungurnar við sigketilinn, sem orsakaði Skaftárhlaupið sem hófst helgina, eru það stórar að það eru fá hús á Íslandi sem ekki kæmust fyrir í þeim. Þetta kom í ljós í könnunarflugi yfir jökul- og flóðasvæðunum í dag. Innlent 25.4.2006 17:58
Lýsa yfir stuðningi sínum Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar á Siglufirði lýsa yfir eindregnum stuðningi við aðgerðir starfsmanna á öldrunarstofnunum á höfuðborgarsvæðinu. Í ályktun frá starfsmönnunum segir að laun starfsmanna við umönnun, ræstingu og í eldhúsum, hafi degist aftur úr launum við sambærileg störf t.d. hjá sveitarfélögunum. Þessi störf, sem í flestum tilfellum eru unnin af konum, eru mjög mikilvæg en hafa verið vanmetin. Innlent 25.4.2006 17:33
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á ungan mann á tvítugsaldri við gatnamót Lyngháls og Stuðlaháls á fimmta tímanum í dag. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss og er hann nú í rannsóknum og myndatöku. Ekki er talið að maðurinn sé með alvarlega áverka og mun hann líklega fá að fara heim að skoðunni lokinni nú síðdegis. Innlent 25.4.2006 16:53
Eldri borgarar harma að samningar hafi ekki náðst Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni harmar að það að ekki skuli hafa tekist samningar við ófaglært fólk á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Félagið hefur sent frá sér ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar félagsins í dag. Innlent 25.4.2006 16:36
Fjölmiðlafrumvarp beinist aðeins gegn 365 Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir nýtt fjölmiðlafrumvarp aðeins beinast gegn 365 miðlum og segir enga þörf á lögunum. Verði það að lögum leiði það til lakari fjölmiðla hér á landi. Innlent 25.4.2006 16:22
Mikil farþega aukning hjá Norrænu Útlit er fyrir mikla aukningu farþega með Norrænu til landsins í sumar. Fréttavefurinn Austurlandið.is greinir frá því að mikil aukning sé í bókunum frá Þýskalandi en ástæða þess er meðal annars talin vera vegna nýrrar söluskrifstofu Smyril Line í Þýskalandi. Sumaráætlun Norrænu byrjar 3. júní og er fram til 2. september. Innlent 25.4.2006 16:26
Grásleppuvertíðin fer rólega af stað Grásleppuvertíðin fer rólega af stað en um þriðjungsminnkun er á veiði hér við land og við Grænland. Á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda segir að allt stefni í að heildarframboð grásleppuhrogna minnki annað árið í röð, en miklar verðslveiflur eru sagðar óæskilegar og skaða bæði framleiðendur grásleppukavíars og veiðimenn. Innlent 25.4.2006 15:59
Vildu fresta afgreiðslu RÚV-frumvarps vegna nýrra upplýsinga Stjórnarandstæðingar kröfðust þess á Alþingi í dag að afgreiðslu á bæði frumvarpi um Ríkisútvarpið og um eignarhald á fjölmiðlum yrði frestað fram á haust og þau rædd í samhengi vegna athugasemda fræðimanna við þau. Stjórnarliðar sögðu hins vegar enga ástæðu til þess enda hefði þegar verið haft mikið samráð við stjórnarandstöðu vegna beggja frumvarpa. Innlent 25.4.2006 16:12
Ný fjölmiðlasamsteypa á Akureyri Bæjarsjónvarpið á Akureyri, Samver, Traustmynd, Smit kvikmyndagerð og dagskrárblaðið Extra sameinuðust í eitt félag í dag undir nafninu N4. Nýja félaginu er ætlað að styrkja og bæta staðbundna fjölmiðlun á Akureyri. Innlent 25.4.2006 15:40
Krefst 20 milljóna króna í skaðabætur Fyrirtaka í máli Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings gegn Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfasyni, fyrrum ritstjórum DV, og gegn 365 prentmiðlum var fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 25.4.2006 15:31
Skuldir borgarinnar lækkuðu um 1,5 milljarð króna Hreinar skuldir borgarsjóðs lækkuðu um 1,5 milljarð króna árið 2005. Borgarstjóri segir gott að geta skilað af sér góðu búi en ársreikningar Reykjavíkurborgar voru ræddir í borgarstjórn í dag. Innlent 25.4.2006 15:22
Vefurinn Austurlandið.is kominn í loftið Nýr fréttavefur, austurlandið.is, var tekinn í gagnið nýverið. Vefurinn er frétta- og upplýsingaveita fyrir Austurland og íbúa þess, sem og aðra. Þar er að finna tengla á öll sveitafélög á Austfjörðum sem og á aðra fréttamiðla á svæðinu. Innlent 25.4.2006 14:59
Forsetahjónin í opinberri heimsókn á Hornafirði Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorrit Moussaieff komu í tveggja daga opinbera heimsókn til Hornafjarðar í dag. Innlent 25.4.2006 14:47