Leigubílar

Furðar sig á gagnrýni leigubílstjóra
Innviðaráðherra furðar sig á gagnrýni leigubílstjóra á frumvarp ráðherrans um leigubílaakstur. Með frumvarpinu er ætlað að rýmka mjög þau skilyrði sem þarf til að reka leigubíl.

Telja líklegt að ráðamenn séu undir áhrifum „undirróðursstarfsemi“ Uber
Tvö félög leigubílstjóra hafa sent frá sér harðorða umsögn um frumvarp innviðaráðherra til laga um leigubifreiðaakstur. Formaður þeirra telur að með frumvarpinu séu lögð drög að lagabreytingum sem munu gera út af við leigubílaakstur hér á landi.

Ofbeldismenning Uber
Síðustu daga hefur í öllum helstu miðlum heimsins mátt lesa ófagrar lýsingar á starfsemi alþjóðlega stórfyrirtækisins Uber, byggðar á gögnum sem Washington Post og fjörutíu aðrir fréttamiðlar höfðu komist yfir.

Ungir sjálfstæðismenn keyrðu djammara: „Þetta er bara það besta sem ég veit um“
Samband ungra sjálfstæðismanna stóð fyrir gjörningi í gærkvöldi þar sem fulltrúar þess keyrðu fólk í og úr miðborginni. Tilgangurinn var að sýna fram á það að þörf sé á breytingum á leigubílalöggjöf. Djammarar tóku vel í framtakið og var eftirspurn eftir ókeypis fari meiri en ungir sjálfstæðismenn höfðu ímyndað sér.

SUS-arar skutla djömmurum frítt og kalla eftir breytingum
Meðlimir Sambands ungra Sjálfstæðismanna ætla að keyra fólki í miðbænum ókeypis um í kvöld. Markmiðið er að varpa ljósi á það sem þau kalla fordæmalaust ástand á leigubílamarkaði hér á landi.

Leigubílstjórar eru ekki börn
Íslenskir leigubílstjórar hafa það ekkert sérstaklega gott. Á síðasta ári voru regluleg heildarlaun einka- leigu- og sendibifreiðastjóra kr. 579.000,- á mánuði, að meðaltali. Eins og við hin þurfa þeir að hafa í sig og á, borga af lánum og þvíumlíkt.

Höfnum nýjum lögum um leigubifreiðar
Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur svo sem kunnugt er af fréttum. Frami, félag leigubifreiðastjóra, og Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra hafa lagst gegn frumvarpinu. Gild ástæða er til að útlista betur röksemdir samtaka leigubifreiðastjóra þar sem misskilnings hefur gætt í umfjöllun fjölmiðla undanfarnar vikur.

„Öll umræða um afregluvæðingu er til að hleypa svindli að“
Formaður félags leigubifreiðastjóra líst illa á allar breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur sem hann segir fullkomin eins og þau eru. Hann gefur lítið fyrir gagnrýni á kerfið eins og það er í dag og telur hagsmuni neytenda best borgið með núverandi löggjöf.

Óþörf vistarbönd þjóni hvorki hagsmunum leigubílstjóra né neytenda
Viðskiptaráð hefur lagt fram umsögn um frumvarp innviðaráðherra um leigubifreiðaakstur á Íslandi. Þar er lagt til að ýmis skilyrði leigubifreðiaaksturs verði afnumin og að gamaldags gjaldmælar skuli heyra sögunni til.

Telja kynt undir ofbeldi í garð leigubílstjóra
Bandalag íslenskra leigubifreiðarstjóra leggst alfarið gegn frumvarpi innviðaráðherra um leigubílakstur, sem ætlað er að rýmka mjög þau skilyrði sem þarf til að reka leigubíl. Formaður félagsins segir að beinlínis sé kynt undir ofbeldi í garð leigubílstjóra.

Leigubílavandinn verður að leysast
Í tæplega þrjátíu ár hafa stjórnvöld haft þak á leyfum til að veita leigubílaþjónustu. Þrátt fyrir fólksfjölgun, og gríðarlega fjölgun ferðamanna, hefur fjölgun leyfa alls ekki náð að mæta aukinni eftirspurn.

Leigubílstjórinn undrast upptöku fimmtíu ára gamals máls
Skýrslur voru ekki teknar af ökumanni og farþega í bíl, sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 með þeim afleiðingum að annar farþeginn lést, fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu sem fréttastofa hefur undir höndum. Bílstjórinn segir það ekki standast, ekki hafi liðið nema nokkrir dagar þar til skýrsla hafi verið tekin af honum.

Föst á djamminu
Nú er flest ungt fólk búið í lokaprófum og þá fyllist miðbærinn af ungu fólki sem ætlar að fagna sumrinu, undirrituð er ein þeirra. Margir hafa þó rekið sig á það að erfitt getur reynst að fá leigubíl heim.

Fjölgar atvinnuleyfum fyrir leigubíla um hundrað
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að fjölga atvinnuleyfum fyrir leigubifreiðaakstur um hundrað á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, eða svokölluðu „takmörkunarsvæði I“.

Leigubílsstjórar í Róm svindla alltaf á Tomma
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um leigubíla nú síðdegis og þegar þetta er skrifað er það til umræðu á þinginu. Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, vakti athygli í umræðunni með því að deila með þingmönnum persónulegri reynslu sinni af leigubílum víðs vegar um veröldina.

Netverjar mótmæla niðurskurði hjá Strætó: „Á hvaða brengluðu tímalínu lifi ég?“
Netverjar eru síður en svo sáttir með breytta ferðaáætlun Strætó sem var kynnt í gær. Strætómál og leigubílaleysi hefur verið til mikillar umræðu, til að mynda á Twitter, og segja netverjar um öryggismál að ræða.

Bankið í ofninum: Leigubíla saknað á djamminu
Það heyrast hrakfallasögur úr miðborginni hverja helgi. Vandamálið er ekki að það þurfi að draga fólk af djamminu, heldur lendir það í því að verða innlyksa á djamminu og komast hvergi.

Ráðherra vill friðmælast við leigubílstjóra
Einar Hafsteinn Árnason, formaður Fylkis sem er félag leigubílsstjóra á Suðurnesjum, átti fund með Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra nýverið. Einar segir að ráðherra hafi gefið til kynna að hann myndi tala fyrir því að stöðvaskylda verði inni í nýju frumvarpi um leigubílaakstur.

Útlendingar upplifi Covid-flutninga sem niðurlægingu
Sigtryggur Arnar Magnússon leigubílstjóri hjá City Taxi segist hafa komist að því, í samtölum við farþega sína, að þeir telja sig smánaða með því að vera fluttir í einangrun með kyrfilega merktum covid-bílum.

Leigubílsstjórar telja Sigurð Inga hafa gengið á bak orða sinna
Afar þungt hljóð er í leigubílsstjórum vegna frumvarps Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra samgangna sem gengur í grófum dráttum út á að gefa starfsemi leigubílaaksturs frjálsa.