Lýtalækningar

„Þessir brjóstapúðar eru baneitraðir“
Ásta Erla Jónasdóttir markþjálfi hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum frá því að hún stofnaði síðuna Náttúruleg heilsuvegferð þar sem hún deilir sinni sögu með fylgjendum.

Spennt fyrir því að fjarlægja púðana
Saga B hefur gert garðinn frægan í tónlistarsenunni með lögum eins og Bottle service now en nú hefur hún ákveðið að hún ætli að láta fjarlægja brjóstapúðana sína. Hún segir að með breytingu líkamans í kjölfar líkamsræktar séu þeir ekki lengur í réttum hlutföllum.

Rassalyftiaðgerð sem byrjar á fitusogi
Í þættinum Spegilmyndin á Stöð 2 í gærkvöldi var fjallað um lýtalækningar hér á landi með Hannesi Sigurjónssyni lýtalækni sem starfar í Glæsibæ.

Vill vekja athygli á fylgikvillum brjóstastækkunar
Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins, lét á dögunum fjarlægja úr sér brjóstapúða sem hún fékk sér fyrir meira en áratug síðan. Hún vill vekja athygli á þeim fylgikvillum sem fylgt geta brjóstastækkun.

Sprenging í lýtaaðgerðum í heimsfaraldri
„Fólk er auðvitað að horfa í myndavélina á fjarfundum og sjá þá allar hrukkur og augnpoka sem hanga yfir augnlokin,“ segir Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir í samtali við Bítið í morgun.

Konur eigi rétt á bótum vegna PIP-brjóstapúðanna
Franskur áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að á þriðja þúsund kvenna sem fengu svonefnda PIP-brjóstapúða ættu að fá skaðabætur. Lögmaður íslenskra kvenna sem taka þátt í hópmálsókn vegna púðanna segir niðurstöðuna áfangasigur.

Aukaverkunin er að vöðvinn nær ekki að halda augnlokinu uppi
„Aldrei er góð vísa of oft kveðin,“ segir húðlæknirinn Jenna Huld um hrakfarir samfélagsmiðlastjörnunnar Whitney Buha.

Segir lækni hafa stækkað brjóst hennar án samþykkis
Bandaríska leikkonan Sharon Stone segir að skurðlæknir hafi sett í hana stærri brjóstapúða en hún hafði samþykkt, í aðgerð sem hún gekkst undir árið 2001, í kjölfar þess að góðkynja æxli voru fjarlægð úr brjóstum hennar.

Hannes lýtalæknir: „Maður er að skapa eitthvað“
„Að vera lýtalæknir, maður er hálfgerður listamaður. Það fer mikil orka og pælingar í það að fá sem fullkomnustu útkomu,“ segir Hannes Sigurjónsson lýtalæknir á Dea Medica. Hann segir að það hafi verið aukning í lýtalækningum hér á landi í Covid.

Arna Bára ætlar að borga upp 600 milljóna króna megavillu á tveimur árum
Arna Bára Karlsdóttir býr í 600 milljón króna megavillu á Spáni, hús sem er 1650 fermetrar. Arna hefur verið að gera góða hluti sem fyrirsæta en hún segist lengi hafa elskað erótískar myndatökur.

Áfangasigur 203 íslenskra kvenna í Frakklandi
Áfrýjunardómstóll í Frakklandi hefur staðfest bótaskyldu þýska eftirlitsfyrirtæksins TÜV Rheinland í máli 203 íslenskra kvenna og fleiri í PIP-sílikonmálinu svokallaða. Alls eru um níu þúsund konur hluti af tveimur málsóknum en konurnar krefjast skaðabóta fyrir heilsutjón sem þær telja púðana hafa valdið sér.

Fyrirspurnum um rasslyftingu hefur fjölgað
Rúmmálsaukandi aðgerðum á rasskinnum hefur fjölgað um 77,6 prósent á heimsvísu frá árinu 2015 og segir íslenskur lýtalæknir aðgerðunum einnig hafa fjölgað hér á landi. Margir vilja rekja vinsældir þessara aðgerða til raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, sem hefur verið ófeimin við að sýna stóran og myndarlegan rassinn.

Jenna segir galið að hver sem er geti sprautað efni inn í húð fólks
Fegrunarmeðferðir eru ekki nýjar á nálinni en vinsældir þeirra hafa aukist mikið undanfarið. Ein af vinsælustu meðferðunum sem hafa rutt sér rúm um allan heim eru meðferðir með fylliefni, og eru margir sem kjósa að láta setja slík efni til dæmis í varir sínar til að auka fyllingu þeirra og fegurð.

Léleg upplýsingagjöf lýtalækna til skoðunar í heilbrigðisráðuneytinu
Fáir lýtalæknar hafa skilað umbeðnum gögnum um starfsemi sína til landlæknis á undanförnum árum. Embætti landlæknis hefur send heilbrigðisráðuneytinu erindi vegna upplýsingaskortsins og er málið nú til skoðunar í ráðuneytinu.

Fimm yngri en átján ára farið í brjóstastækkun síðustu ár
Ellefu aðgerðir á skapabörmum stúlkna undir 18 ára aldri eru skráðar hjá heilbrigðisstofnunum landsins á tímabilinu 2011-2019.

„Ég hef áhyggjur af ungum konum sem eru hættar að sjá hvað er eðlilegt útlit“
„Þetta er vandamál hjá þeim sem eru að sprauta í varirnar, ekki kúnnunum. Það eru ekki til nein lög eða verklagsreglur á meðhöndlun fyllingarefna á Íslandi sem er mikið áhyggjuefni,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir í viðtali við Vísi.

Eftirspurn eftir kynleiðréttingaraðgerðum hefur tífaldast á tíu árum
Eftirspurn eftir leiðréttingu á kyni hér á landi hefur tífaldast á 10 árum að sögn lýtalæknis sem sérhæfir sig í kynleiðréttingaraðgerðum. Hann segir marga sem greinast með kynáttunarvanda einnig vera á einhverfurófi eða með ADHD.

Sílíkonbrjóst björguðu lífi konu sem varð fyrir byssuskoti
Kona sem lifði það af að vera skotin í brjóstkassann af návígi er talin hafa lifað skotið af vegna sílíkonbrjóstapúða sem hún var með.

Gerður festist í vítahring brjóstaaðgerða
Gerður Huld Arinbjarnardóttir er þrjátíu ára gömul og rekur fyrirtækið blush.is. Gerður hefur vakið mikla eftirtekt á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún talar opinskátt reynslu sína af fegrunaraðgerðum og fylgikvillum þeirra.

Árið hefur farið í bið eftir uppbyggingu á brjóstum
Konur sem greinast með brakkagenið þurfa oft að bíða mánuðum saman eftir viðtölum og aðgerðum. Varaformaður Brakkasamtakanna segir dæmi um að aðgerðum sé jafnvel frestað kvöldið áður. Konur utan af landi eru í sérstaklega erfiðri stöðu.