Erlent
Ríta: 500 milljarða tjón Talið er að fellibylurinn Ríta hafi valdið um fimm hundruð milljarða króna tjóni í suðurríkjum Bandaríkjanna. En þótt tjónið sé mikið létti mönnum við það að ekki urðu miklar skemmdir á olíuhreinsunarstöðvum og öðrum tengdum mannvirkjum. Erlent 23.10.2005 14:59
Skotbardagi við herskáa sjíta Byssumenn hollir herskáa sjíaklerknum Muqtada al-Sadr veittu íröskum hermönnum á eftirlitsferð fyrirsát í austurhluta Bagdad í gærmorgun. Bandarískir hermenn komu til liðs við þá írösku í skotbardaga sem stóð í einn og hálfan tíma. Um átta árásarmannanna voru felldir. Erlent 23.10.2005 14:59
Vopnahléinu lokið? Vopnahlé Ísraelsmanna og Palestínumanna, sem staðið hefur frá því snemma á þessu ári, virðist endalega vera að líða undir lok. Tveir Palestínumenn létust nú síðdegis í loftárás ísraelska hersins á bifreið sem þeir voru í. Fjórir eru sárir að sögn vitna. Erlent 23.10.2005 14:59
Líbönsk sjónvarpskona særðist Líbönsk sjónvarpskona særðist mjög alvarlega þegar sprengja sprakk í bifreið hennar skammt norður af Beirút í dag. Konan var flutt í skyndi á sjúkrahús en ekki liggur fyrir hvort hún sé í lífshættu. Erlent 23.10.2005 14:59
Sátt um smókinginn Samkynhneigður nemandi við miðskóla í Bandaríkjunum hefur fengið uppreisn æru sex mánuðum eftir að útskriftarmynd af henni var dregin út úr árbók skólans vegna þess að hún var íklædd smóking á myndinni Erlent 23.10.2005 14:59
Minna tjón en óttast hafði verið Fellibylurinn Ríta náði landi í morgun við fylkjamörk Texas og Louisiana. Þar fór hann yfir Galveston, Houston, Lake Charles og New Orleans. Þrátt fyrir ógnarkraft olli Ríta ekki jafn miklu tjóni og óttast hafði verið. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Houston í Texas. Erlent 23.10.2005 14:59
Sprengingar skekja Gaza Sprengingar skóku Gazaströndina í morgun. Ísraelski loftherinn varpaði sprengjum á svæði í norðurhluta Gaza og sagði talsmaður hersins að þetta væri gert til að stöðva palestínska árásarmenn sem hafa notað svæðið til að skjóta flugskeytum á Ísrael. Engin meiðsl á fólki hafa verið tilkynnt. Erlent 23.10.2005 14:59
Hefðum ekki getað sloppið betur Ólafur Árni Ásgeirsson ræðismaður Íslands í Houston segist vera alveg hissa hvað borgin slapp vel. Erlent 23.10.2005 14:59
Skárra en óttast var Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður segir að sem stendur sé ástandið heldur skárra en óttast hafi verið í Houston vegna fellibylsins Rítu. Verst sé ástandið líklega þar sem miðja fellibylsins fór yfir í morgun í kringum bæina Beaumont og Lake Charles en þaðan hafi nánast engar fréttir borist. Að minnsta kosti hálf milljón íbúa er rafmagnslaus. Erlent 23.10.2005 14:59
Komu af stað skógareldum Skógareldar hafa geisað á Suður-Spáni frá því í fyrradag og brennt meira um 2600 hektara lands. Tveir ferðamenn á sextugsaldri, breskur karlmaður og frönsk kona, hafa viðurkennt að hafa orðið völd að bálinu óviljandi þegar þau ætluðu að orna sér við bálköst og senda merki um leið eftir að hafa týnst í skóglendinu. Erlent 23.10.2005 14:59
Afl Rítu komið niður í einn Afl fellibylsins Rítu hefur minnkað mjög og er nú aðeins einn á fellibyljakvarðanum en var kominn upp í fimm þegar mest var áður en hann náði ströndum Bandaríkjanna. Engar fréttir hafa borist af manntjóni. Erlent 23.10.2005 14:59
Tíu fótboltamenn hurfu Leikmenn fótboltaliða frá Zimbabwe „hurfu“ á ferð liðs þeirra til Bretlands. Talið er að mennirnir, sem eru tíu talsins, hafi ákveðið að stinga af með það í huga að gerast ólöglegir innflytjendur í Bretlandi og eiga þar með von um nýtt og betra líf. Erlent 23.10.2005 14:59
Írönum gefið lokatækifæri Stjórn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), sem í sitja fulltrúar 35 ríkja, samþykkti í gær ályktun sem gæti leitt til þess að Íransstjórn verði stefnt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna meintra brota á alþjóðasáttmála um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Erlent 23.10.2005 14:59
Tveir Palestínumenn drepnir á Gaza Að minnsta kosti tveir Palestínumenn létust þegar tvær bifreiðar með meðlimi Hamas-samtakanna innanborðs var sprengd í loft upp á Gaza í dag. Haft er eftir vitnum að ísraelskar herþotur hafi skotið á bifreiðarnar. Erlent 23.10.2005 14:59
Gömlum Kínverjum fjölgar Eldri borgarar í Kína eru nú um 130 milljónir og meira en tíu prósent íbúanna þar, samkvæmt upplýsingum frá ríkisstjórn Kína Erlent 23.10.2005 14:59
Minna tjón en óttast var Fellibylurinn Rita gekk á land í Texas og Louisiana í gær. Tjón virtist ætla að verða minna en óttast var enda dró allhratt úr veðurhamnum. Mikil úrkoma olli þó flóðahættu, meðal annars í New Orleans. Rafmagnslaust varð hjá yfir milljón manns. Erlent 23.10.2005 14:59
Henti handsprengju að unglingum Þrír unglingspiltar létust og að minnsta kosti átta aðrir særðust þegar maður henti handsprengju að hópi unglinga á bæjarskemmtun á suðurhluta Filippseyja í dag. Lögregla segir að einn drengjanna hafi áður hent grjóti í manninn sem brást við fyrrnefndum afleiðingum. Erlent 23.10.2005 14:59
Tveir særðir eftir vegsprengju Tveir bandarískir hermenn særðust þegar sprengja í vegkanti sprakk í þann mund sem hersveit þeirra ók fram hjá henni í suðurhluta Afganistans í morgun. Skotbardagi upphófst í kjölfarið á milli hermanna og uppreisnarmanna sem endaði með því að þrír skæruliðar voru handsamaðir, að því er talsmaður Bandaríkjahers greindi frá. Erlent 23.10.2005 14:59
Afsögn ráðherra veldur ólgu Stjórnarkreppa blasir við á Ítalíu í kjölfar þess að forsætisráðherrann, Silvio Berlusconi krafðist þess á föstudag að bankastjóri Seðlabanka Ítalíu segði af sér. Erlent 23.10.2005 14:59
Ríta gengin á land Fellibylurinn Ríta gekk á land í Texas og Louisiana klukkan hálfátta í morgun að íslenskum tíma. Auga fellibylsins skall á suðvesturströnd Louisiana, rétt austan við borgina Sabine Pass í Texas. Vindhraðinn er tæpir tvö hundruð kílómetrar á klukkustund. Erlent 23.10.2005 14:59
Khodorkovskí-mál til Strassborgar Saksóknarar í Moskvu lýstu því yfir í gær að dómsmáli olíuviðskiptajöfursins Mikhaíl Khodorkovskí væri lokið. En lögmenn hans hétu því að málinu yrði skotið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Erlent 23.10.2005 14:58
Hóta að sprengja olíuborpalla Það er ekki nóg með að fellibylurinn Rita valdi usla á olíumörkuðum því olíuframleiðsla í Nígeríu dróst enn saman í dag vegna hótana uppreisnarmanna um að sprengja olíuborpalla og -leiðslur í loft upp. Erlent 23.10.2005 14:58
Þrír Palestínumenn drepnir Ísraelskir hermenn skutu í nótt þrjá herskáa Palestínumenn til bana við Vesturbakkann. Að sögn vitna eltu ísraelskir herjeppar Palestínumennina, sem hófu skothríð á flótta sínum. Erlent 23.10.2005 14:58
Leggur 6000 heimili í rúst Búist er við að fellibylurinn Ríta muni leggja um 6000 þúsund heimili í rúst í Texas ríki þegar hún gengur þar á land og að borgin Port Arthur munu öll fara undir vatn, samkvæmt síðustu tíðindum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Erlent 23.10.2005 14:58
Bílsprengja sprakk í Bagdad Bílsprengja sprakk í Bagdad, höfuðborg Íraks, núna í morgun. Enn liggur ekki fyrir hvort mannfall hafi orðið. Erlent 23.10.2005 14:58
Bíllaust í miðborg Kaupmannahafnar Lögregla hefur lokað götum í miðborg Kaupmannahafnar fyrir bílaumferð í þrjá daga frá og með gærdeginum. Erlent 23.10.2005 14:58
Þrýstingur á Berlusconi eykst Enn eykst þrýstingurinn á Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að reka seðlabankastjórann Antonio Fazio eða segja sjálfur af sér ella. Í gær sagði fjármálaráðherrann Domenico Sinisalco af sér í mótmælaskyni við það að seðlabankastjórinn Fazio sæti sem fastast án þess að nokkur gerði neitt. Erlent 23.10.2005 14:58
Einn árásarmannanna framseldur Hússein Osman, einn mannanna sem gerðu misheppnaðar árásir á London tuttugasta og fyrsta júlí, mun á næstu dögum fara í fyrsta sinn fyrir rétt í Bretlandi. Hann var framseldur frá Ítalíu í gær en þar hafði lögregla uppi á honum eftir árásirnar. Erlent 23.10.2005 14:58
Óttast staðbundið regn Aðeins var byrjað að hvessa í Houston í Bandaríkjunum en ekki byrjað að rigna seint í gær, að sögn Ólafs Árna Ásgeirssonar, ræðismanns sem ætlar að halda kyrru fyrir meðan fellibylurinn Rita gengur yfir. Erlent 23.10.2005 14:59
Ætlaði að festa pakkann á vélina? Svo virðist sem maðurinn, sem handtekinn var með grunsamlegan pakka við flugvöllinn í Manchester í morgun, hafi ætlað að koma pakkanum fyrir á skrokki einnar flugvélarinnar sem beið á stæðinu, samkvæmt fréttavef BBC. Ekki hefur verið gefið upp hvort um sprengju var að ræða eða ekki. Erlent 23.10.2005 14:58