Erlent
Þverrandi von um fólk á lífi Vonin um að finna einhvern á lífi á hamfarasvæðinu í Suður-Asíu fer þverrandi. Hjálpargögn berast nú hraðar en verið hefur en marga skortir þó enn alla hjálp. Það var fyrst í gær sem hjálpargögn tóku að berast í einhverju magni til Islamaban og nú hafa helstu vegir á hamfarasvæðinu verið ruddir og því von til að hægt verði að flytja gögnin þangað sem þeirra er þörf hratt. Erlent 23.10.2005 15:03
18 lögreglumenn drepnir í Helmand Átján afganskir lögreglumenn létust og fjórir særðust í fyrirsát uppreisnarmanna í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans í gærkvöld. Ekki hafa borist fregnir af því hvaða hópur uppreisnarmanna stóð að tilræðinu en haft er eftir talsmanni innanríkisráðuneytis Afganistans að til bardaga hafi komið milli lögreglu og uppreisnarmanna í kjölfarið. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í þeim átökum. Erlent 23.10.2005 15:03
Ósætti vegna bókmenntaverðlauna Einn af nefndarmönnum í sænsku Nóbelnefndinni sem veitir bókmenntaverðlaunin hefur sagt af sér í mótmælaskyni. Knut Ahnlund er ósáttur við að austurríski rithöfundurinn Elfriede Jelinek skyldi hljóta verðlaunin í fyrra, en Ahnlund segir í grein í Sænska dagblaðinu í dag að verk Jelinek séu gersneydd allri listrænni uppbyggingu og að það hafi valdið óbætanlegum skaða á orðstýr bókmenntaverðlauna Nóbels um ókomna framtíð að hún skyldi hljóta verðlaunin. Erlent 23.10.2005 15:03
Mannskæðar árásir í Írak í morgun Sjálfsmorðssprengjuárás kostaði ekki færri en 25 lífið í Bagdad í morgun. Björgunarlið gat ekki farið á staðinn þar sem stórhætta þótti á frekari árásum á sama stað. Þrjátíu fórust í annarri bílsprengjuárás, í bænum Tal Afar, skammt frá landamærunum við Sýrland. Erlent 23.10.2005 15:03
Schröder ekki í nýrri ríkisstjórn Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, gaf í skyn í dag að hann yrði ekki hluti af nýrri ríkisstjórn landsins. Í gær var greint frá því að Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata, yrði næsti kanslari Þýskalands. Innlent 23.10.2005 16:58
Fuglaflensa greinist í Kólumbíu Yfirvöld í Kólumbíu hafa staðfest fuglaflensutilfelli í landinu en segja þó að engin alvarleg hætta sé á ferðum. Fuglaflensa fannst á þremur alifuglabæjum í vesturhluta landsins og hafa viðeigandi ráðstafanir verið gerðar til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar, að sögn talsmanns ríkisstjórnarinnar. Erlent 23.10.2005 15:03
Hryllilegt ástand í Pakistan Engin von þykir til þess að nokkur finnist á lífi á hamfarasvæðunum í Suður-Asíu. Þegar björgunarmenn og hjálpargögn tóku loksins að berast þangað fór að rigna, og nú er það vatnsflaumur sem hamlar björgunarstarfinu. Erlent 23.10.2005 15:03
Ný tilskipun um neytendalán Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út nýja tillögu að tilskipun um neytendalán. Evrópusamtök neytenda telja meðal annars að með nýju tillögunni séu ekki settar strangar reglur um ýmis atriði eins og yfirdráttarlán og kreditkort þrátt fyrir að þörf sé á reglum á þessum sviðum. Erlent 23.10.2005 15:03
Búist við dauðadómi Í dag hófust á Balí réttarhöld yfir níu Áströlum sem ákærðir eru fyrir stórfengleg á heróíni. Afbrot þeirra eru litin alvarlegum augum og magnið sem haldlagt var í apríl síðastliðnum, rúm átta kíló, þykir svo mikið að jafnvel er búist við dauðadómi. Erlent 23.10.2005 15:03
Stefna ráðherra vegna Íraksstríðs 24 Danir hafa stefnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sem fulltrúa ríkisins fyrir að hafa brotið stjórnarskrána með aðild Danmerkur að innrásinni í Írak fyrir um tveimur og hálfu ári. Erlent 23.10.2005 15:03
Vandræði Merkel strax hafin Angela Merkel er ekki einu sinni orðin kanslari - formlega séð - en vandræðin eru strax byrjuð. Verðandi samstarfsflokkurinn, jafnaðarmannaflokkurinn, grefur undir henni og systurflokkurinn í Bæjaralandi, undir leiðsögn Edmunds Stoiber, gerir slíkt hið sama. Erlent 23.10.2005 15:03
Mikið manntjón í Mið-Ameríku Tæplega 800 manns hafa fundist látnir af völdum náttúruhamfara í kjölfar stormsins Stans í Mið-Ameríku og Mexíkó. Verst er ástandið í Gvatemala, en þar hafa 652 fundist látnir og er óttast að sú tala muni hækka mikið á næstunni. Björgunarsveitir frá Spáni og Gvatemala vinna að björgunarstörfum en eru vonlitlar um að finna fleira fólk á lífi því fimm dagar eru síðan aurskriður féllu frá San Lucas eldfjallinu á bæi í grend við fjallið. Erlent 23.10.2005 15:03
Fundu fjögur lík í Mexíkó Lík fjögurra manna, þar á meðal 13 ára drengs, fundust á búgarði í borginni Nuevo Laredo í norðurhluta Mexíkós í gær en allir höfðu mennirnir verið skotnir til bana. Lögreglan segir morðin líklega tengd eiturlyfjasölu. Á morðstaðnum voru tæki og tól til viðgerða á dekkjum en þau eru notuð í miklum mæli til að smygla eiturlyfjum frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Erlent 23.10.2005 15:03
Forsætisráðherranum stefnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur verið stefnt sem fulltrúa ríkisins fyrir að hafa brotið stjórnarskrána með aðild Danmerkur að innrásinni í Írak fyrir um tveimur og hálfu ári. Erlent 23.10.2005 15:03
Handtaka á Balí vegna árásar Lögreglan í Indónesíu handtók í dag mann sem grunaður er um aðild að sprengjuárásunum á Balí fyrr í þessum mánuði. Handtakan fór fram á Austur-Jövu og lögregluyfirvöld á staðnum segja sterkar vísbendingar benda til þess að hann hafi tekið þátt í sprengjuárásunum án þess að rökstyðja það nánar. Erlent 23.10.2005 15:03
Lögreglan fór inn á sautján staði Lögregla fór inn á sautján staði á Íslandi og í Bretlandi í rannsókn sinni á falþjóðlegu peningaþvætti, sem meðal annars tengist íslenskum aðilum. Erlent 23.10.2005 15:03
Segist ekki hafa verið drukkinn Hinn 64 ára gamli Robert Davis, sem í fyrradag var barinn var af lögreglunni í New Orleans, sagði í samtali við fjölmiðla í gær, að hann hafi ekki drukkið í 25 ár og hafi því ekki verið ölvaður eins og lögreglan heldur fram. Þá segir lögreglan hann hafa streist á móti þegar hann var settur í handjárn en myndband sem náðist af atburðinum sýnir þó annað. Erlent 23.10.2005 15:03
Vonin um að finna slasaða dvínar Björgunaraðgerðir í Pakistan stóðu yfir í alla nótt en þrír dagar eru síðan jarðskjálfti upp á 7,6 á Richter reið yfir landið. Höfuðborg landsins, Islamabad, er svo gott sem rústir einar og eru menn vonlitlir um að finna mikið fleira fólk á lífi. Þó fundust kona og barn í gær í rústum eins hússins þar sem þau höfðu verið föst í yfir 60 klukkustundir. Erlent 23.10.2005 15:03
Handteknir fyrir að smygla fólki Breska lögreglan hefur handtekið tíu menn sem eru grunaðir um að hafa rekið gríðarstórt og vel skipulagt smygl á tugþúsundum Tyrkja, fyrst og fremst Kúrdum, til Bretlands. Mennirnir voru fluttir til Bretlands með flutningabílum og í flugi. Mennirnir í glæpagenginu eru sjálfir Kúrdar en þeir höfðu fengið hæli í Bretlandi. Erlent 23.10.2005 15:03
Léstust þegar ekið var á hús Fjórar eldri konur létust þegar bifreið sem þær voru farþegar í hafnaði inni í húsi í Wisconsin í Bandarískjunum um helgina. Svo virðist sem bílstjóri bifreiðarinnar hafi ekki virt stöðvunarskyldu, tekist á loft og hafnað inni í húsinu. Ekki er vitað hvað olli slysinu en enginn vitni urðu að því. Bílstjórinn, sem er 89 ára, slasaðist alvarlega en íbúar í húsinu sluppu þó allir ómeiddir. Erlent 23.10.2005 15:03
The Times segir dóminn áfall Þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur lýst því yfir að hann haldi sér til hlés í fjárfestingum á meðan málaferli gegn honum standa yfir er ákvörðun Hæstaréttar Íslands í fyrradag áfall. Þetta segir Lundúnablaðið Times í umfjöllun sinni. Erlent 23.10.2005 15:03
Forsetakjör í Líberíu Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afríkulýðveldisins Líberíu eftir fjórtán ára borgarastyrjöld var kjörinn í dag. Niðurstaðan liggur ekki fyrir en knattspyrnuhetjan George Weah er meðal þeirra sem þykja líklegir. Innlent 23.10.2005 15:03
Haglél tefur hjálparstarfið Neyðaraðstoð til bágstaddra á jarðskjálftasvæðunum í Kasmír berst nú víðs vegar að en óveður hamlaði hins vegar hjálparstarfi í gær. Rúmlega fjörutíu þúsund manns eru taldir látnir. Erlent 23.10.2005 15:03
Kafbátur í minningu Lennons John Lennon hefði orðið sextíu og fimm ára á þessu ári. Til að minnast þess tóku nokkrir frumlegir Rússar sig til og smíðuðu gulan kafbát. Báturinn er þriggja metra langur og gerður úr gosdósum og plasti. Í einu kýrauganu má sjá Lennon gægjast út. Lífið 23.10.2005 15:03
Fiskur kemur í veg fyrir minnistap Fiskmeti kemur í veg fyrir heilarýrnun, minnistap og önnur öldrunareinkenni sem fylgja hækkandi aldri að því er nýleg bandarísk rannsókn sýnir. Í niðurstöðum þeirrar rannsóknar kemur fram að að borði fólk fisk einu sinni í viku minnkar minnistap einstaklinga um 10-13 %. Erlent 23.10.2005 15:03
Vaxandi reiði í garð yfirvalda Vaxandi reiði gætir hjá eftirlifendum á hamfarasvæðunum í Asíu vegna seinagangs yfirvalda eftir jarðskjálfta upp á 7,6 á Richter sem skók svæðið á laugardag. Óöld ríkir á sumum stöðum þar sem ræningjar hafa látið til sín taka, þar á meðal í Muzaffarabad í Pakistanshluta Kasmírhéraðs sem varð mjög illa úti í skjálftanum, en talið er að allt að ellefu þúsund manns hafi látist þar. Erlent 23.10.2005 15:03
Tíu menn handteknir Breska lögreglan framkvæmdi á laugardaginn húsleit í Derby, Wolverhampton og Croydon Erlent 23.10.2005 15:03
Sleppt úr gíslingu Flestum starfsmönnum Afríkusambandsins sem var rænt í Darfurhéraði í Súdan fyrr í dag hefur verið sleppt. Noureddine Mezni, talsmaður Afríkusambandsins, treysti sér þó ekki til að fullyrða að þeim hefði öllum verið sleppt og sagði óvíst hversu margir væru í raun frjálsir ferða sinna. Óstaðfestar fréttir herma að sextán hafi verið sleppt. Erlent 23.10.2005 16:58
Flóðasvæði verða kirkjugarðar Stjórnvöld í Gvatemala velta því fyrir sér hvort ekki sé ráðlegast að líta á flóðasvæðin sem kirkjugarða og leyfa hinum látnu að hvíla undir aurskriðunum Erlent 23.10.2005 15:03
Gagnrýndi stjórn Berlusconis Romano Prodi, leiðtogi ítölsku stjórnarandstöðunnar, gagnrýndi Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, harkalega á fjöldafundi í gær. Prodi sakaði Berlusconi um að nota stjórnvöld til að koma eigin hugðarefnum á framfæri og gagnrýndi fjárlög ríkisstjórnarninnar. Erlent 23.10.2005 15:03