Erlent

Fréttamynd

Stjórnarandstaða Kanada vill fella stjórnina

Stjórnarandstaðan í Kanada mun að öllum líkindum fella frjálslynda minnihlutastjórn Paul Martin og koma af stað nýjum kosningum. Samkvæmt samkomulagi sem Íhaldsflokkurinn hefur gert við tvo aðra stjórnarandstöðuflokka verður forsætisráðherrann, Paul Martin, beðinn um að leysa upp þingið í janúar og hafa kosningar í febrúar. Verði hann ekki við þessari beiðni mun stjórnarandstaðan lýsa yfir vantrausti á stjórnina. Forsætisráðherrann er ekki andsnúinn kosningum en vill fremur hafa þær í apríl í þeirri von að reiði almennings vegna hneykslis er varðar misnotkun stjórnarflokksins á almannafé hafi rénað.

Erlent
Fréttamynd

Átök um framtíð internetsins

Aðgangur að upplýsinga­hraðbrautinni er viðfangsefni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í Túnis. Í gær tókst Bandaríkjamönnum að tryggja sér áfram­haldandi yfirráð yfir mikilvægasta stjórntæki netsins, úthlutun léna, eftir þrýsting nokkurra ríkja um að SÞ færu með þau völd.

Lífið
Fréttamynd

Hótar hryðjuverkaárásum

Maður sem talinn er vera einn alræmdasti hryðjuverkamaður í Asíu, segir á myndbandi sem hann sendi frá sér í gær að Ástralía, Bandaríkin og Bretland verði skotmörkin í næstu árásum Jemaah Islamiya samtökunum, sem tengjast Al Qaida.

Erlent
Fréttamynd

Boðað til kosninga í febrúar

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels hefur tilkynnt Amir Peretz, leiðtoga verkamannaflokksins, að hann styðji að boðað verði til nýrra kosninga í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Kastró með Parkinson-veiki?

Leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, hefur dregið þá ályktun að Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, sé með Parkinsons-veikina.

Erlent
Fréttamynd

Bretar framselja fanga

Stjórnvöld í Bretlandi hafa heimilað að breskur ríkisborgari, Babar Ahmad, verði framseldur til Bandaríkjanna. Babar Ahmed, sem er tölvunarfræðingur, er ákærður fyrir peningaþvætti og að reka vefsíður sem styðja hryðjuverk og hvetja múslima til að fara í heilagt stríð.

Erlent
Fréttamynd

Forsetakosningar í Sri Lanka

Í dag eru forsetakosningar á Sri Lanka. Kosið er milli tveggja ólíkra frambjóðenda. Annars vegar er það hinn vinstri sinnaði forsætisráðherra Mahinda Rajapakse sem vill taka hart á frelsissveitum Tamil-tígranna. Hins vegar er það fyrrum forsætisráðherrann og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Ranil Wickremesinghe, sem kom á friði eftir langa borgarastyrjöld árið 2002 og er sáttarfúsari gagnvart tamílska minnihlutanum.

Erlent
Fréttamynd

Nýr seðlabankastjóri í Bandaríkjunum

Ben Bernanke, hefur verið tilnefndur af bankaráði Seðlabanka Bandaríkjanna, sem næsti seðlabankastjóri landsins en Bernanke hefur verið helsti ráðgjafi Bandaríkjaforseta í efnahagsmálum.

Erlent
Fréttamynd

Geðlæknar yfirheyra fanga í Guantanamo

Bandarískir læknar segja þátttöku geðlækna og sálfræðinga við yfirheyrslur fanga í Guantanamo fangelsinu vekja upp alvarlegar siðferðilegar spurningar. Siðanefnd bandaríska læknafélagsins skoðar hvort geðlæknar, sem tekið hafa þátt í yfirheyrslum fanga, hafi brotið gegn Hippókratesar-eið sínum.

Erlent
Fréttamynd

Ísraelar voru varaðir við árásunum

Hópi Ísraela sem dvaldi á Radisson SAS hótelinu í Amman, höfuðborg Jórdaníu, virðist hafa verið forðað út af hótelinu skömmu áður en sprengja sprakk þar fyrir viku. Alls létust 57 manns í árásum á þrjú hótel í borginni að kvöldi 9. nóvember.

Erlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir fíkniefnasmygl

Gísli Ingi Gunnarsson var nú í vikunni dæmdur í tveggja ára og eins mánaðar fangelsi fyrir þjófnað, innflutning og sölu á eitur­lyfjum í Finnlandi.

Erlent
Fréttamynd

Svartur listi yfir flugfélög

Sé öryggi ábótavant í flugvélum sem um Evrópu fljúga í framtíðinni verður viðkomandi flugfélagi bannað að fljúga til eða frá álfunni. Evrópuþingið samþykkti ályktun þess efnis í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

Krefja CIA um svör

Stjórnvöld margra Evrópuríkja þrýsta nú á yfirvöld í Washington að upplýsa um meint fangaflug á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA um evrópska flugvelli og lofthelgi. Fátt hefur orðið um svör fram til þessa.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnarskrá Ítalíu breytt

Efri deild ítalska þingsins lagði í gærkvöld endanlega blessun sína yfir stjórnarskrárbreytingar sem ríkisstjórn Silvio Berlusconi hefur barist fyrir. Stjórnarliðar á þingi fögnuðu samþykktinni ákaft.

Erlent
Fréttamynd

Ástandið er nærri eðlilegt

Ástandið í óeirða­hrjáðum hverfum ­franskra­ borga er nú að færast í nærri eðlilegt horf að því er talsmenn franskra lögregluyfirvalda ­greindu­ frá í gær. Í fyrrinótt voru spellvirki framin í 79 sveitarfélögum en þau voru um 300 þegar óeirðaaldan var í hámarki.

Erlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir rauða stjörnu

Dómstóll í Búdapest staðfesti í gær fyrri dóm undirréttar, sem dæmdi stjórnmálamanninn Attila Vajnai í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bera rauða stjörnu kommúnista í barminum á almannafæri.

Erlent
Fréttamynd

Hefur viðræður við Atassut

Úrslit kosninganna til grænlensku landsstjórnarinnar komu verulega á óvart því að Siumut-flokkurinn hélt sínu. Honum hafði verið spáð afhroði. Miðflokkurinn Demókratar vann ekki jafn mikið á og búist var við.

Erlent
Fréttamynd

Jafnaðarmenn sigurvegarar

Jafnaðarmenn komust í lykilstöðu í þremur af fjórum stærstu borgunum í Danmörku í sveitarstjórnarkosningunum í fyrradag. Í höfuðborginni fengu jafnaðar­menn um 35 prósent atkvæða og er fastlega búist við að þeir myndi meirihluta með sósíalistum og Radikale Venstre. Ritt ­Bjerre­gaard­ verður næsti borgarstjóri, fyrst kvenna sem gegnir því starfi.

Erlent
Fréttamynd

Austur-Þjóðverji í formannsstólinn

Matthias Platzeck, forsætisráðherra (fylkisstjóri) austur-þýska sambandslandsins Brandenborgar, var nær einróma kjörinn nýr formaður þýska Jafnaðarmannaflokksins, SPD, á flokksþingi á þriðjudag. Þar með eru Austur-Þjóðverjar komnir í formannsstól beggja stóru flokkanna í þýskum stjórn­málum, en þeir eru nú að hefja stjórnarsamstarf í annað sinn í sögu þýska sambandslýðveldisins.

Erlent
Fréttamynd

Bretar beittu hvítum fosfór í Írak

Bandaríkjamenn hafa viður­kennt að hafa notað sprengjur fylltar hvítum fosfór gegn uppreisnarmönnum í Falluja á síðasta ári. Bretar hafa einnig notað efnið en aðeins til reykframleiðslu.

Erlent
Fréttamynd

Lífríkið nær sér aldrei

Þúsundir manna gengu fylktu liði um götur borgarinnar Santiago de Compostela í byrjun vikunnnar. Þeir minntust þess að þrjú ár eru liðin síðan olíuskipið Prestige sökk undan vesturströnd Spánar með þeim afleiðingum að þykk olíuslikja lagðist yfir stóran hluta strandlengju norðvestanverðs landsins.

Erlent
Fréttamynd

Fjármálaráðherra ásakaður um spillingu

Fjármálaráðherra Brasilíu, Antonio Palocci, verður yfirheyrður í dag af öldungadeild þingsins vegna gruns um spillingu. Palocci, sem er ásakaður um mútuþægni þegar hann var borgarstjóri í Ribeirao Preto, neitar allri sök. Framtíð hans í starfi er óviss sem stendur og veldur það miklum óróa í fjármálaheiminum í Brasilíu. Antonio Palocci er náinn samstarfsmaður forsetans, Luiz Inacio Lula da Silva, en verkamannaflokkur hans hefur einnig setið undir ásökunum um spillingu undanfarna mánuði

Erlent
Fréttamynd

Kosningaúrslit á Grænlandi

Jafnaðarflokkurinn Siumut hélt velli sem stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands í kosningunum í gær. Flokkurinn hélt sínum tíu þingmönnum með 30,7% atkvæða. Hægri flokkurinn Atassut og vinstri flokkurinn Inuit Ataqatigiit misstu báðir einn mann en Demókratar bættu við sig tveimur.

Erlent
Fréttamynd

14 létust af völdum jarðsprengju í Kambódíu

Að minnsta kosti 14 Kambódíumenn létust þegar flutningabíll sem þeir voru í ók yfir jarðsprengju í norðurhluta landsins. Bíllinn var að flytja fólkið heim af hrísgrjónaökrum og létust 13 mannanna samstundis

Erlent
Fréttamynd

Umdeild en vinsæl

Ritt Bjerregaard verður næsti borgarstjóri í Kaupmannahöfn eftir stórsigur Jafnaðarmannaflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í Danmörku í gær. Endurkoma hennar í embætti þykir merkileg fyrir margra hluta sakir en hún hefur tvívegis verið neydd til að segja af sér embætti og verið mjög umdeildur stjórnmálamaður.

Erlent