Erlent
Byrjaði með því að nokkrar töskur hrundu Farangur hrundi úr rútum á ferð í veg fyrir innganginn að Jamarat-brúnni í Sádi-Arabíu í gær. Nokkrir pílagrímar duttu og ekki þurfti að spyrja að leikslokum. Svona var atburðarásin þegar vel á fjórða hundrað manns fórst á Hajj-hátíðinni nærri hinni heilögu borg Mekka í gær. Erlent 13.1.2006 20:38
Íranar æfir vegna viðbragða vesturlanda Íranar eru æfir vegna áætlana um að vísa kjarnorkuáætlun þeirra fyrir Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. Stjórnvöld í landinu hóta að hætta öllu samstarfi við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina. Íslendingur sem er yfirmaður þar segir þetta slæm tíðindi, sem þýði að ekki verði hægt að fylgjast með þróun mála í Íran. Erlent 13.1.2006 19:10
Bush neitaði að loka Guantanamo George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði í dag tillögu Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, um að fangabúðunum í Guantanamo yrði lokað. Erlent 13.1.2006 18:30
Minntust átaka við Sovétmenn Litháar minntust þess í dag að fimmtán ár eru frá umsátrinu um sjónvarpsturninn í Vilníus. Fjórtán manns létust í átökum við sovéska hermenn en þrátt fyrir það er sú stund talin marka endalok sovéskra yfirráða í landinu. Erlent 13.1.2006 17:38
Herforingi rekinn vegna yfirlýsinga hans Spænskur herforingi var rekinn úr starfi í dag eftir að hann sagði að herinn gæti látið til sín taka í innanríkismálum ef Katalóníuhérað fengi aukna sjálfsstjórn. Erlent 13.1.2006 16:09
Herþyrla skotin niður í Írak Uppreisnarmenn í Írak skutu niður bandaríska herþyrlu nærri Mosul í norðurhluta landsins í dag. Tveir voru í áhöfn hennar og eru báðir taldir af. Þetta er önnur bandaríska herþyrlan sem er skotin niður á viku, tólf fórust með þyrlu sem var skotin niður síðasta laugardag. Erlent 13.1.2006 15:52
Vara við að láta öryggisráðið úrskurða Það gæti gert illt verra að vísa deilunni vegna kjarnorkuáætlunar Írana til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sagði sendiherra Kína hjá Sameinuðu þjóðunum rétt í þessu. Hann sagðist óttast að slík aðgerð gerði deiluna flóknari og herti deilandi fylkingar í afstöðu sinni. Erlent 13.1.2006 15:36
Óttast mikið mannfall vegna fuglaflensu Óttast er að þúsundir manna látist vegna fuglaflensunnar sem vísindamenn segja ekki spurningu hvort heldur hvenær verði að faraldri. Þjóðir heimsins verða að vera betur undirbúnar þegar og ef fuglaflensan verður að faraldri að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Erlent 13.1.2006 15:00
Hóta að slíta öllu samstarfi Íranar hafa hótað að hætta samstarfi sínu við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, verði þeir kvaddir fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar sinnar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vill fresta refsiaðgerðum en utanríkisráðherrar Evrópusambandsins segja enga aðra leið í stöðunni. Erlent 13.1.2006 14:56
Kostnaður við meðferð og greiningu HIV lækkar í þróunarlöndum Samtök sem Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er í forsvari fyrir hafa gert samning við nokkur lyfjafyrirtæki sem felur í sér að kostnaður við meðferð og greiningu HIV-smitaðra í þróunarlöndum lækkar gríðarlega. Erlent 13.1.2006 10:28
Ritstjórn norska blaðsins Magazinet berast morðhótanir Ritstjórn og blaðamönnum norska dagblaðsins Magazinet hafa borist morðhótanir með tölvupósti hvaðanæva úr heiminum eftir að það birti teikningar af Múhameð spámanni í vikunni. Þessar sömu myndir birtust í danska Jótlandspóstinum á nýliðnu hausti og fengu starfsmenn þar einnig morðhótanir í framhaldinu. Erlent 13.1.2006 10:22
350 pílagrímar létust í Mekka Að minnsta kosti 350 íslamskir pílagrímar létust og um 300 eru taldir hafa slasast þegar þeir hrösuðu um farangur annarra pílagríma og tróðust undir er þeir voru á leið að steinsúlu til að kasta í hana steinum í gær. Erlent 13.1.2006 07:56
Vill alþjóðlegt bann við vopnavæðingu í geimnum Paul Martin, forsætisráðherra Kanada og leiðtogi Frjálslynda flokksins vill alþjóðlegt bann við vopnavæðingu í geimnum. Stjórnvöld í Bandaríkjunum er sögð ósátt við afstöðu Frjálslynda flokksins, sem hefur neitað að verða aðili að geimvarnaráætlun Bandaríkjanna. Erlent 13.1.2006 08:14
Olmert ræðir við Bush um stjórnmálaástandið í Ísrael Ehud Olmert, sitjandi forsætisráðherra Ísraels, ræddi í gær við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í síma um ástand Sharons, undirbúning að kosningum til þings Palestínumanna, sem haldnar verða í lok janúar, og stjórnmálaástandið í Ísrael en kosningar þar í landi fara fram í lok mars. Erlent 13.1.2006 08:10
Íranar hafa samþykkt að hefja samningarviðræður Íranar hafa samþykkt að ganga að samningaborðinu með Bretum, Frökkum og Þjóðverjum um kjarnorkuáætlun landsins. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í gær. Erlent 13.1.2006 07:54
20 manna hópur sérfræðinga skipaður Þjóðir heimsins verða að vera betur undirbúnar ef fuglaflensan verður að faraldri að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Það gæti skipt sköpum hvað varðaði heilsufar jarðarbúa. Erlent 13.1.2006 07:59
Bandaríkin með 24 þúsund milljarða halla Ríkissjóður Bandaríkjanna verður rekinn með 24 þúsund milljarða króna halla í ár samkvæmt áætlun fjárlagadeildar Hvíta hússins sem var birt nú í kvöld. Erlent 12.1.2006 21:28
Fá að kjósa blóðsugu Kjósendur í Minnesotaríki í Bandaríkjunum fá að öllum líkindum tækifæri til að kjósa blóðsugu í embætti ríkisstjóra í kosningum sem fram fara í nóvember næstkomandi. Eða svo má ætla af því hvernig Jonathan Sharkey kynnir sig. Erlent 12.1.2006 21:14
Íranar vilja halda viðræðum áfram Íranar hafa enn áhuga á að semja af alvöru við Evrópusambandið um kjarnorkuáætlun sína, sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, eftir 40 mínútna langt viðtal við Ali Larijani, aðalsamningamann Írana í kjarnorkumálum nú í kvöld. Erlent 12.1.2006 20:43
Danir dæmdir fyrir mannréttindabrot Danskur herforingi og fjórir danskir hermenn voru í dag fundnir sekir um að hafa brotið mannréttindi við yfirheyrslur á föngum í Írak í fyrra. Refsingu yfir þeim var hins vegar frestað, þar sem þeir höfðu ekki fengið nægilega skýr fyrirmæli um hvað væri leyfilegt við yfirheyrslur. Erlent 12.1.2006 19:43
Tilræðismaður við páfa fær frelsi Tyrkinn sem reyndi að myrða Jóhannes Pál páfa annan fyrir aldarfjórðungi var í dag látinn laus úr fangelsi. Tyrkneskir þjóðernissinnar fögnuðu Mehmet Ali Agca eins og þjóðhetju þegar hann kom út úr fangelsinu. Erlent 12.1.2006 19:32
Annað áfallið á hajj trúarhátíðnni Síðasti dagur trúarhátíðar múslíma í borginni Mekka breyttist í blóðbað í dag. Talið er að yfir 300 manns hafi látist í miklum troðningi við brú þar sem fjölmargir höfðu safnast saman til að grýta veggi sem eiga að tákna djöfulinn. Erlent 12.1.2006 19:26
Vilja draga Íran fyrir öryggisráðið Utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjalli um kjarnorkuáætlun Írana. Þeir komu saman til fundar í Þýskalandi í dag og fóru yfir stöðu mála. Erlent 12.1.2006 17:03
Bachelet sigurstrangleg Vinstrisinninn Michelle Bachelet, sem stefnir að því að verða fyrsti kvenkyns forseti Síle, hefur fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Sebasitan Pinera þremur dögum fyrir kosningar samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Erlent 12.1.2006 16:53
Ráðherrar Likud segja sig úr stjórn Þrír ráðherrar úr Likudbandalaginu sögðu sig í dag úr ísraelsku ríkisstjórninni. Búist er við að fjórði og síðasti ráðherra flokksins segi af sér embætti á ríkisstjórnarfundi næsta sunnudag. Erlent 12.1.2006 16:23
345 tróðust undir Heilbrigðisráðherra Sádi-Arabíu staðfesti rétt í þessu að 345 hefðu látist í troðningnum í Mena þar sem hundruð þúsunda manna biðu þess að taka þátt í trúarathöfn þar sem ímynd djöfulsins er grýtt. Erlent 12.1.2006 16:11
Grænlenskir ísbirnir eitraðastir Meiri eiturefni safnast upp í ísbjörnum á Austur-Grænlandi en á nokkrum öðrum stað í heiminum samkvæmt rannsóknum sem Danmarks Miljøundersøgelser tóku þátt í fyrir skemmstu. Áður höfðu rannsóknir sýnt að mest var af eiturefnum í ísbjörnum á heimskautssvæðinu norðan Svalbarða. Erlent 12.1.2006 15:11
Sprengdi sig í loft upp Palestínskur maður sprengdi sig í loft upp nærri ísraelskum hermönnum í borginni Jenín á Vesturbakkanum. Hermennirnir höfðu gengið hús úr húsi í leit að palestínskum vígamönnum sem þeir hugðust handtaka þegar maðurinn réðist að þeim. Maðurinn lést en hermennirnir sluppu ómeiddir. Erlent 12.1.2006 15:02
Á fjórða hundrað létust í troðningi Talið er að yfir 300 manns hafi látið lífið í miklum troðningi við Jamaratbrú í Mena í Sádi-Arabíu þar sem fjöldi fólks tók þátt í trúarathöfn á síðasta degi Haj, árlegrar trúarhátíðar múslima. Erlent 12.1.2006 14:50
Krefjast afsagnar menntamálaráðherrans Íhaldsmenn á breska þinginu og fjölmargir foreldrar í Bretlandi krefjast nú afsagnar menntamálaráðherra landsins, Ruth Kelly, eftir að í ljós kom að dæmdur kynferðisbrotamaður fékk vinnu sem kennari í skóla þar í landi. Erlent 12.1.2006 09:57