Íþróttir
ÍS lagði Grindavík ÍS lagði Grindavík að velli 62-47 í fyrstu deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld. Alda Leif Jónsdóttir var stigahæst í liði ÍS og skoraði 22 stig. Sólveig H.Gunnlaugsdóttir skoraði 15 stig fyrir Suðurnesjaliðið. Keflavík og ÍS eru jöfn með átta stig á toppnum en Keflavík á leik til góða gegn KR á heimavelli í kvöld og hefst leikurinn klukkan 19.15. Sport 13.10.2005 14:56
Kærður fyrir ölvun við akstur Bandaríski sundkappinn Michael Phelps, sem vann til átta verðlauna á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar, er í vondum málum. Sport 13.10.2005 14:56
Þurfum að hugsa um okkur sjálfar Landsliðsárið byrjaði einnig í Egilshöllinni þegar 5-1 sigur vannst á Skotum í afdrifaríkum æfingalandsleik en fyrirliðinn og landsleikjamethafinn Ásthildur Helgadóttir sleit krossbönd í leiknum og hefur ekkert spilað síðan. Sport 13.10.2005 14:56
Íslandsmeistararnir í Safamýrina Tveir leikir eru í fyrstu deild kvenna í handknattleik í kvöld. Stjarnan og FH takast á í Garðabæ og Fram mætir Íslandsmeisturum ÍBV í Framhúsinu. Flautað verður til leiks klukkan 19.15. Sport 13.10.2005 14:56
11 marka sigur Stjörnustúlkna Tveir leikir fóru fram í 1. deild kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan lagði FH 38-27 og ÍBV lagði Fram á útivelli, 24-34. ÍBV er í 2. sæti eftir 9 leiki með 14 stig eða tveimur stigum á eftir toppliði Hauka sem á leik til góða. Stjarnan fylgir í humátt á eftir með 13 stig. Sport 13.10.2005 14:57
Er að gera eitthvað rétt "Ég hef fengið að spila meira með liðinu en ég sjálfur átti nokkurn tíma von á á fyrsta tímabili og það hlýtur að þýða að Alfreð telji mig hafa eitthvað fram að færa," segir Arnór Atlason, handboltakappi með þýska liðinu Magdeburg. Þangað hélt hann í sumar eftir að hafa verið valinn handknattleiksmaður ársins hér á landi en þá lék hann með liði KA. Sport 13.10.2005 14:56
Keflavík með 2 stiga forystu Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Topplið Keflavíkur fór létt með botnlið KR, 81-56. Keflavík er á toppnum með 10 stig eftir fimm umferðir en ÍS í 2. sæti með 8 stig. Sport 13.10.2005 14:57
Emlyn Hughes látinn Emlyn Hughes fyrrverandi fyrirliði Liverpool og enska landsliðsins í knattspyrnu, er látinn, 57 ára að aldri. Banamein hans var heilaæxli. Hughes lék 62 landsleiki. Hann vann fjóra meistaratitla með Liverpool, tvo Evrópumeistaratitla, enska bikarinn og tvo UEFA-titla. Bill Shankly keypti Hughes til Liverpool árið 1967 fyrir 65 þúsund pund. Sport 13.10.2005 14:56
Tyrkland bætist við Formúluna Dagatalið fyrir næsta ár í Formúlu 1 kappakstrinum er því sem næst tilbúið en keppt verður á einni braut í Tyrklandi til viðbótar við þær brautir sem keppt var á í ár. Sport 13.10.2005 14:56
Misskiptar tekjur í enska boltanum Stóru liðin í ensku knattspyrnunni, Liverpool, Newcastle, Chelsea, Arsenal og Manchester United, fá samanlagt um 48 prósent allra tekna í ensku úrvalsdeildinni og sýnir könnun meðal þarlendra knattspyrnuáhugamanna að mikill meirihluti þeirra hefur gefið upp alla von um að önnur lið geti nokkurn tíma unnið titil vegna þessa. Sport 13.10.2005 14:56
Tryggvi hugsar sér til hreyfings "Það er alveg á tæru að ef þessi þjálfari verður áfram með liðið mun ég íhuga alvarlega að komast eitthvert annað," segir Tryggvi Guðmundsson, knattspyrnumaður með Örgryte í sænsku deildinni. Tryggvi var hetja liðs síns um helgina þegar hann skoraði sigurmark Örgryte á ögurstundu gegn Assyriska og tryggði þannig liðinu áframhaldandi setu í efstu deild í Svíþjóð. Sport 8.11.2004 00:01
Birgir Leifur á góðu skriði "Mér gekk mjög vel á síðasta hringnum um helgina og ef ég held áfram að spila þannig á ég að geta komist alla leið," segir Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, en hann tryggði sér um helgina þátttökurétt á lokastigi úrtökumótanna fyrir evrópsku mótaröðina í golfi en það mót hefst á fimmtudaginn kemur. Sport 13.10.2005 14:56
Goosen skaust fram úr Suður-Afríkumaðurinn Retief Goosen vann síðasta golfmót ársins í bandarísku mótaröðinni. Goosen lék lokahringinn á 64 höggum og var samtals á 269 höggum eða ellefu undir pari. Tiger Woods og Jay Haas voru efstir fyrir lokahringinn en léku illa í gærkvöldi. Sport 13.10.2005 14:56
Handknattleiksdeild Fram sagði upp Stjórn handknattleiksdeildar Fram hefur sagt upp störfum eins og hún leggur sig. Afsögn stjórnarmanna er vegna ágreinings við aðalstjórn félagsins. Aðalstjórn tók málið fyrir á fimmtudag og tók við afsögn stjórnarinnar. Sport 13.10.2005 14:56
Birgir Leifur komst í gegn Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, tryggði sér um helgina þátttökurétt á lokastigi úrtökumóts fyrir evrópsku mótaröðina. Birgir Leifur varð í 11. sæti. Mótið hefst á fimmtudag þar sem leiknir verða sex hringir. 170 kylfingar berjast um 35 sæti í evrópsku mótaröðinni. Sport 13.10.2005 14:56
Lakers vann Atlanta Þrír leikir voru í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöld. Los Angeles Lakers bar sigurorð af Atlanta Hawks 106-90. Kobe Bryant skoraði 24 stig fyrir Lakers. Seattle lagði San Antonio Spurs að velli 113-94 og loks vann Toronto Portland 101-97. Sport 13.10.2005 14:56
McCall farinn frá ÍR Lið ÍR er í Intersport-deildinni í körfuknattleik karla, hefur tekið þá ákvörðun að Herbert McCall verði leystur frá störfum. Sport 13.10.2005 14:56
Móður knattspyrnumanns rænt Ein bjartasta von Brasilíumanna í knattspyrnuheiminum, Robinho, varð fyrir áfalli um helgina þegar móður hans var rænt. Sport 13.10.2005 14:56
Lést í leik Sergei Zholtok, leikmaður Nashville Predators í NHL-deildinni, lést á miðvikudagskvöldið en óreglulegur hjartsláttur hafði hrjáð kappann síðustu árin. Sport 13.10.2005 14:56
Jol í stað Santini hjá Spurs Áætlað er að forráðamenn Tottenham muni tilkynna arftaka Jacques Santini í dag. Sport 13.10.2005 14:56
Fyrsti sigur Bobcats Nýliðar Charlotte Bobcats unnu sinn fyrsta sigur í NBA-deildinni í nótt með því leggja Orlando Magic á heimavelli, 111-100. Slóveninn Primoz Brezec, sem er orðinn ein helsta stjarna Bobcats, skoraði 20 stig og tók 10 fráköst og leiddi lið sitt til þessa sögulega sigurs. Cuttino Mobley var stigahæstur í liði Magic með 23 stig. Sport 13.10.2005 14:56
Sörenstram vann Mizuno Classic Hin sænska Annika Sörenstram heldur áfram að gera það gott í golfheiminum. Í nótt vann hún Mizuno Classic mótið i Japan í fjórða skiptið röð og náði þar með jafna met Lauru Davies hvað flesta sigra á PGA-mótaröð kvenna í röð varðar. Sörenstram lék lokahringinn einkar vel, á 65 höggum eða sjö undir pari, og tryggði sér þar með sigurinn Sport 13.10.2005 14:56
Dynamo tapaði sínum fyrsta leik Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Dynamo St. Pétursborg töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir lágu, 76-86, fyrir Unics Kazan á útivelli. Sport 13.10.2005 14:56
Svaf yfir sig en skoraði 33 stig Portland Trail Blazers var í heimsókn í Toronto og atti kappi við Raptors í NBA-deildinni í gær. Sport 13.10.2005 14:56
Safin vann í París Rússinn Marat Safin vann í dag opna Parísa-meistaramótið í tennis í þriðja sinn á ferlinum og jafnaði þar með met Borisar Becker. Safin, sem vann mótið einnig árin 2000 og 2002, sigraði Tékkann Radek Stepanek í þremur settum, 6-3, 7-6 og 6-3. Þetta var 14. stórmótið sem Safin vinnur á ferlinum, en hann er sem stendur í 6. sæti heimslistans. Sport 13.10.2005 14:56
Sprewell að deyja úr sjálfselsku Það vantar ekki loftið í Latrell Sprewell hjá Minnesota Timberwolves. Spree, eins og kappinn er oftast kallaður, hefur farið mikinn í fjölmiðlum varðandi tilboð Timberwolves-liðsins um að framlengja samninginn sem rennur út í vor. Sport 13.10.2005 14:56
Tryggvi hetja Örgryte Tryggvi Guðmundsson var hetja sænska úrvalsdeildarliðsins Örgryte í gær þegar hann tryggði liðinu áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni. Sport 13.10.2005 14:56
Fyrsti titill Ólafs Arnar Ólafur Örn Bjarnason og félagar hans í Brann tryggðu sér í gær norska bikarmeistaratitilinn í fótbolta þegar liðið bar sigurorð af Lyn, 4-1, í úrslitaleik á Ulleval-leikvanginum í Osló. Sport 13.10.2005 14:56
Guðmundur Norðurlandameistari Guðmundur Stephensen varð í morgun tvöfaldur Norðurlandameistari í borðtennis. Guðmundur gerði sér lítið fyrir og sigraði Eistann Alexander Smirnoff í úrslitum í einliðaleik 4-1 og þar með varð hann fyrsti Norðurlandameistari Íslendinga í borðtennis. Sport 13.10.2005 14:56
Haukar töpuðu stórt Haukar biðu stóran ósigur þegar þeir sóttu þýska stórliðið Kiel heim í Meistaradeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 39-23 eftir að staðan í háfleik hafði verið 21-9 heimamönnum í vil en þeir voru dyggilega studdir áfram af 5000 áhorfendum. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson voru markahæstir í liði Hauka með fimm mörk. Sport 13.10.2005 14:56