Íþróttir Molar helgarinnar Sport 13.10.2005 15:04
Einar með 7 fyrir Großwallstadt Einar Hólmgeirsson skoraði 7 mörk þegar Großwallstadt tapaði 32-35 fyrir Wilhelmshavener í þýska handboltanum í gærkvöldi. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Großwallstadt. Gylfi Gylfason skoraði eitt mark fyrir Wilhelmshavener. Hamborg endurheimti fyrsta sætið í deildinni með 26-24 sigri á Nordhorn. Sport 13.10.2005 15:04
Tanja sigraði svig kvenna Hin finnska Tanja Poutiainen bar sigur úr býtum á heimsbikarmóti í stórsvigi kvenna sem fram fór í Colorado í Bandaríkjunum aðfaranótt laugardags. Sport 13.10.2005 15:04
40 stig Bryant dugðu Lakers ekki 13 leikir voru í NBA körfuboltanum í nótt. Meistararnir í Detroit mörðu sigur á Miami Heat í leik sem sýndur var beint á Sýn. Richard Hamilton skoraði sigurkörfu Pistons þegar rúm sekúnda var til leiksloka, úrslitin 78-77. Sacramento vann LA Lakers, 109 - 106. Kobe Bryant var stigahæsti leikmaðurinn í leikjunum 13 í gærkvöldi, skoraði 40 stig. Sport 13.10.2005 15:04
Læknir Juventus dæmdur í fangelsi Riccardo Agricola, læknir ítalska stórliðins Juventus, var í gær dæmdur í 22ja mánaða fangelsi fyrir að hafa dreift hinu ólöglega blóðaukandi lyfi EPO á meðal leikmanna liðsins fyrir nokkrum árum. Sport 13.10.2005 15:04
Blak: KA vann Þrótt KA sigraði Þrótt Reykjavík 3-2 í 1. deild kvenna í blaki á Akureyri í gærkvöldi. Þróttur komst í 2-0 en KA-konur unnu þrjár næstu hrinur. Liðin keppa aftur á Akureyri í dag klukkan 16.30. Sport 13.10.2005 15:04
Pacers græðir 8 milljónir dollara Indiana Pacers græðir um átta milljónir dollara á því að þrír leikmenn liðsins, Ron Artest, Jermaine O´Neal og Stephen Jackson, voru dæmdir í löng bönn fyrir slagsmál í leik Indiana og Detroit Pistons á dögunum Sport 13.10.2005 15:04
Jafnt hjá Þór og Fram Þór og Fram gerðu jafntefli, 28-28 í Norður Riðli Íslandsmótsins í handbolta karla nú undir kvöldið en leikið var í Höllinni á Akureyri. Liðin eru áfram í 4. og 5. sætum deildarinnar eftir leikinn, bæði með 10 stig en markatala Fram er mun betri. Fyrr í dag unnu KA-menn nauman sigur á HK í Digranesi, 29-30. Sport 13.10.2005 15:04
Keflavík Hópbílabikarmeistari Kvennalið Keflavíkur tryggði sér nú síðdegis Hópbílabikarinn í körfubolta með sigri á ÍS í úrslitaleik keppninnar, 76:65, en leikið var í KR-heimilinu. Staðan í hálfleik var 39-37 fyrir Keflavík. María Ben Erlingsdóttir og Anna María Sveinsdóttir voru stigahæstar Íslandsmeistaranna. Sport 13.10.2005 15:04
Keflavík vann Hópbílabikarinn Keflavík og ÍS mættust í úrslitum Hópbílabikarsins í körfuknattleik í gær. Jafnræði var með liðunum í fyrri háflleik en Keflavík tókst að stöðva lykilleikmenn í ÍS-liðinu í seinni hálfleik og vann öruggan sigur, 76-65. Sport 13.10.2005 15:04
Kaupum ekki Defoe, segir Mourinho Jose Mourinho, hinn portúgalski knattspyrnustjóri Chelsea, segir ekkert til í þeim sögusögnum að félagið ætli að kaupa enska landsliðsmanninn Jermain Defoe frá Tottenham fyrir fimmtán milljónir punda þegar leikmannamarkaðurinn opnar á nýjan leik í janúar. Sport 13.10.2005 15:04
Það mætir enginn Íslandsmeistarar Hauka í handknattleik munu ekki leika á heimavelli gegn króatíska liðinu Medvescak Infosistem Zagreb í Evrópukeppni bikarhafa. Sport 13.10.2005 15:04
KA sigldi yfir í leikslok Einn leikur fór fram í Norður riðli Íslandsmótsins í handbolta karla í dag þegar KA sigraði HK naumlega í Digranesi, 30-29. HK sem hefði getað tyllt sér á toppinn með sigri leiddi nánast allan leikinn þar til í lokin þegar norðanmenn sigldu yfir með marki Halldórs Sigfússonar úr vítakasti þremur sekúndum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 15:04
Sú finnska sigraði í stórsviginu Finnska stúlkan Tania Poutianen sigraði í stórsvigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Aspen Colorado í gær. Poutianen varð 9 hundraðshlutum úr sekúndu á undan Önju Person frá Svíþjóð sem varð önnur. Janica Kostelic Króatíu varð í þriðja sæti. Þetta var annar heimsbikarsigur Poutianen. Sport 13.10.2005 15:04
Orðaður við stórliðið Flensburg Forráðamenn danska handknattleiksliðsins Aarhus GF segjast ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til ad halda í Róbert Gunnarsson, línumann liðsins og íslenska landsliðsins. Sport 13.10.2005 15:04
Róbert frá fram í febrúar Handboltamaðurinn Róbert Sighvatsson leikur ekki með liði sínu Wetzlar næstu vikurnar. Hann fingurbrotnaði í leik gegn Flensburg í þýska handboltanum fyrir viku. Ekki er vitað hve lengi hann verður frá vegna meiðslanna en þýski netmiðilinn Sport1 segir að Wetzlar verði líklega án Róberts og félaga hans Kai Kieselhorst þar til í febrúar. Sport 13.10.2005 15:04
Keflvíkingar töpuðu Á meðan Keflvíkingar vinna hvern leikinn eftir annan í Evrópukeppninni í körfubolta gengur verr í Intersportdeildinni. Sameiginlegt lið Hamars og Selfoss lagði Keflavík að vígi í 8. umferðinni í gærkvöldi, 92-86. Það dugði Keflvíkingum ekki að Antony Glover skoraði 39 stig, þeir töpuðu samt. Sport 13.10.2005 15:03
Stelpurnar töpuðu í kvöld Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik steinlág fyrir stöllum sínum frá Makedóníu 30-21 í undankeppni heimsmeistaramótsins, en leikið var í Póllandi. Stúlkurnar frá Makedóníu höfðu mikla yfirburði í leiknum og leiddu til að mynda með ellefu mörkum í leikhléi. Á morgun mæta stelpurnar tyrknesku stelpunum. Sport 13.10.2005 15:04
Verðugur andstæðingur ÍS og Keflavík leika til úrslita í Hópbílabikar kvenna í körfuknattleik í dag. Keflavík er taplaust það sem af er í deildinni en ÍS er í öðru sæti þegar sjö umferðir eru búnir. Liðin mættust á heimavelli ÍS í síðasta mánuði og þá hafði Keflavík betur, 64-79. Sport 13.10.2005 15:03
ÍBV yfir í Eyjum Klukkan 19:15 hófst leikur ÍBV og Víkings í Suðurriðli úrvaldsdeild karla í handknattleik. Í hálfleik er staðan 12-10, ÍBV í vil. Sport 13.10.2005 15:04
Breyttar reglur innanhússfótbolta Um helgina verður keppt um Íslandsbikarinn í innanhússknattspyrnu bæði í karla- og kvennaflokki. Riðlakeppni 1. deildar karla fer fram í Laugardalshöll á laugardag og riðlakeppni 1. deildar kvenna í Austurbergi sama dag. Sport 13.10.2005 15:03
ÍBV sigraði Víkinga ÍBV sigraði í Víking 31-21 í Suðurdeild íslandsmótsins í handknattleik í kvöld, en leikið var í Eyjum. Með sigrinum eru Eyjamenn komnir með 11 stig, stigi minna en Víkingur, og þremur minna en ÍR og Valsmenn sem eru efst og jöfn með 14 stig. Á laugardag taka Valsmenn á móti Gróttu/KR á og ÍR-ingar á móti Stjörnunni. Sport 13.10.2005 15:04
Björgvin í 5. sæti Dalvíkingurinn Björgvin Björgvinsson varð í fimmta sæti í svigi á Evrópubikarmóti á skíðum í Landgraaf í Hollandi í gær. Mót þetta er nokkuð sérstætt því það fór fram innanhúss og keppt var með útsláttarfyrirkomulagi. Keppendur fengu ekki stig fyrir frammistöðuna en næst verður keppt í Levi í Finnlandi 1. og 2. desember, þar fara fram tvö stórsvigsmót. Sport 13.10.2005 15:03
Stelpurnar undir í hálfleik Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik er 11 mörkum undir gegn Makedóníu undankeppni HM, en rétt í þessu var flautað til hálfleiks. Sport 13.10.2005 15:04
Haukar úr leik í bikarnum Íslandsmeistarar Hauka í handbolta féllu í kvöld óvænt út úr bikarkeppninni þegar þeir töpuðu fyrir ÍR á heimavelli sínum í Hafnarfirði, 31-34 í átta liða úrslitum keppninnar. Fannar Þorbjörnsson var markahæstur Breiðhyltinga með 7 mörk en Andri Stefan skoraði mest heimamanna eða 8 mörk. Þar með hafa ÍR-ingar tryggt sér farseðilinn í undanúrslitin. Sport 13.10.2005 15:03
Molar um Hópbílabikarkeppni kvenna Í dag fer fram fimmti úrslitaleikur í Hópbílabikarkeppni kvenna milli Keflavíkur og ÍS og er búist við spennandi leik. Keflavíkurstelpur eru taldar líklegri til sigurs Sport 13.10.2005 15:03
Grindavík yfir í hálfleik Leikur Grindavíkur og Hauka í Intersportdeildinni í körfuknattleik stendur nú yfir í Grindavík og er staðan í hálfleik 40-31, heimamönnum í vil. Sport 13.10.2005 15:04
Úrslitin skulu standa Áfrýjunardómstóll KKÍ tók í gær fyrir áfrýjun í máli Fjölnis og Hauka í Intersportdeildinni þar sem biluð leikklukka er talin hafa ráðið úrslitum í leik liðanna í fyrstu umferð deildarinnar. Sport 13.10.2005 15:03
Læknir Juventus fundinn sekur Riccardo Agricola, yfirlæknir ítalska stórliðsins Juventus, hefur verið fundinn sekur af því að byrla leikmönnum liðsins ólögleg lyf á tíunda áratugnum. Agricola var dæmdur í 22 mánaða skilorðsbundið fangelsi af kviðdómi í Tórínó í dag Sport 13.10.2005 15:03
Leika vel þrátt fyrir bannið Það virðist engu breyta þó Indiana leiki án þriggja lykilmanna í NBA körfuboltanum. Frá því að þeir Ron Artest, Jermaine O´Neal og Stephen Jackson voru dæmdir í keppnisbann hefur Indiana unnið tvo af þremur leikjum sínum. Indiana vann Minnesota 106-102 í gærkvöldi. Jamaal Tinsley skoraði 20 stig og átti 14 stoðsendingar en Austin Croshere var stigahæstur með 25 stig. Sport 13.10.2005 15:03