Íþróttir
Lee stal sigrinum í Tælandi Richard Lee frá Nýja-Sjálandi vann í gær opna tælenska mótið í golfi með því að stela sigrinum af Ástralanum Scott Barr í bráðabana. Barr, sem leitt hafði mótið lengst af, var álitinn sigurstranglegastur en lék illa á lokahringnum á meðan Lee kom sterkur inn. Sport 13.10.2005 18:52
Hellir Íslandsmeistari í skák Taflfélagið Hellir vann öruggan sigur á Íslandsmóti skákfélaga sem lauk í gær. Taflfélag Reykjavíkur varð í öðru sæti og Taflfélag Vestmanneyja í því þriðja. A-sveit Skákdeildar Hauka sigraði í 2. deild og fer upp í fyrstu deild ásamt Taflfélagi Selfoss sem varð í öðru sæti í annarri deild. Sport 13.10.2005 18:52
Eigandi Red Bull ánægður Christian Horner, eigandi Red Bull liðsins í Formúlu 1 er í skýjunum eftir frábæran árangur liðs síns í fyrstu keppni ársins í Ástralíu um helgina Sport 13.10.2005 18:52
Fisichella sigraði í Ástralíu Ítalinn Giancarlo Fisicella sem ekur á Renault sigraði í Formúlu 1 kappakstrinum í Ástralíu í nótt. Þetta er annar sigur hans á ferlinum. Rubens Barichello, sem ekur á Ferrari, varð annar og Fernando Alonso, félagi Fisichella hjá Reanault, varð í þriðja sæti. Heimsmeistarinn Michael Schumacher þurfti að hætta keppni þar sem bíll hans bilaði eftir árkestur. Sport 13.10.2005 18:52
Maier vann risasvigið Austurríski skíðakappinn Hermann Maier bætti í morgun enn einni skrautfjöðurinni í hatt sinn er hann vann risasvigskeppni heimsbikarmóts í Kvitfjell í Noregi. Þetta var 50. heimsbikarsigur Maiers á ferlinum, en kappinn vann einnig brunkeppnina sem fram fór í gær. Sport 13.10.2005 18:52
Fisichella sigraði í Melbourne Ítalinn Giancarlo Fisichella var maður helgarinnar í Formúlunni, en hann sigraði nokkuð örugglega í fyrstu keppni ársins í Melbourne í Ástralíu Sport 13.10.2005 18:52
Els vann í Dubai Ernie Els frá Suður-Afríku vann í dag Desert Classic mótið í golfi sem fram fór í Dubai, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í þriðja sinn á ferlinum. Sigur Els var dramatískur í meira lagi og segja má að hann hafi rænt honum af Spánverjanum Miguel Angel Jimenez, sem hafði verið í forystu lengst af. Sport 13.10.2005 18:52
Maier vann í Lillehammer Brunkappinn víðfrægi, Hermann Maier frá Austurríki, vann í morgun heimsbikarmót í bruni sem fram fór á óltmpíubrautinni í Lillehammer, Noregi. Maier, sem vann þar með sína fyrstu keppni í Noregi síðan 2001, vann á tímanum 1:46.10 mínútur en landi hans, Mario Scheiber, varð annar á 1:46.23. Ambrosi Hoffmann frá Sviss hreppti svo bronsið á 1:46.41. Sport 13.10.2005 18:52
Meistararnir úr leik Slóvakar unnu í dag Spánverja í Davis-bikarnum í tennis þegar Karol Beck og Michael Mertinak báru sigurorð af Albert Costa og Rafael Nadal í tvíliðaleik. Þar með var ljóst að 3-0 forysta Slóvaka nægir þeim til að komast í 8-liða úrslit keppninnar og núverandi meistarar, Spánverjar, eru úr leik. Sport 13.10.2005 18:52
Jimenez leiðir í Dubai Spænski kylfingurinn Miguel Angel Jimenez hefur eins höggs forystu á Ernie Els frá Suður-Afríku þegar þrír hringir hafa verið leiknir á "Eyðimerkurmótinu" svokallaða í Dubai, Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Jimenez lék þriðja hringinn á 68 höggum og er á 200 höggum samtals. Sport 13.10.2005 18:52
Mickelson efstur á Ford-mótinu Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur tveggja högga forystu eftir tvo hringi á Ford-mótinu í golfi sem fram fer í Miami, en hann er á 14 höggum undir pari. Billy Andrade, sem einnig er frá Bandaríkjunum, er í öðru sæti á 12 höggum undir pari. Sport 13.10.2005 18:52
Kahlon og Barr efstir í Tælandi Harmeet Kahlon frá Indlandi og Ástralinn Scott Barr deila með sér forystunni eftir þrjá hringi á opna tælenska mótinu í golfi sem fram er í Phuket. Kahlon lék þriðja hringinn vel, á 5 höggum undir pari og náði þannig Barr sem byrjaði þriðja hringinn mjög illa en náði þó að bjarga sér fyrir horn og enda á 3 höggum yfir pari. Sport 13.10.2005 18:52
Serena í undanúrslit í Dubai Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams er komin í undanúrslit á Opna meistaramótinu í Dubai. Sport 13.10.2005 18:51
Fjórir jafnir á Ford-mótinu Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson er á átta höggum undir pari á Ford-mótinu í golfi sem hófst í gær, en hann deilir efsta sætinu með Jose Maria Olazabal frá Spáni, Brian Davis frá Bretlandi og landa sínum Marco Dawson. Tiger Woods er á sjö höggum undir pari en Vijay Singh er í 15.-31. sæti. Sport 13.10.2005 18:51
Williams vill Tyson aftur Breski hnefaleikakappinn Danny Williams hefur farið þess á leit við Mike Tyson að þeir mætist á nýjan leik í hringnum. Sport 13.10.2005 18:51
Davenport og Jankovic í úrslit Hin bandaríska Lindsay Davenport mætir Jelenu Jankovic frá Serbíu- og Svartfjallalandi í úrslitum á tennismóti sem fram fer í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Davenport sigraði Patty Schnyder frá Sviss, 4-6, 7-5 og 6-1 eftir að sú síðarnefnda hafði verið í kjörstöðu með forystuna 6-4 og 5-4 í öðru settinu. Sport 13.10.2005 18:51
Safin jafnaði metin fyrir Rússa Rússinn Marat Safin, sem vann opna ástralska meistaramótið fyrir skömmu, vann í dag Adrian Garcia frá Chile 6-1, 3-6, 6-3 og 7-6 og jafnaði þar með metin í viðureign þjóðanna í fyrstu umferð Davis-keppninnar í tennis sem fram fer í Moskvu. Sport 13.10.2005 18:52
Kluft sigraði í fimmtarþraut Ólympíu- og heimsmeistarinn í sjöþraut, hin sænska Carolina Kluft, vann í dag fyrstu gullverðlaunin á heimsmeistaramótinu innanhúss er hún vann fimmtarþraut með 4,948 stig. Kluft leiddi eftir fjórar þrautir og þurfti að hlaupa 800 metrana í lokin á undir 2:10.40 mínútum. Það tókst henni og gott betur, hljóp á 2:13.47. Sport 13.10.2005 18:52
Armstrong á leið til Frakklands Hjólreiðarmaðurinn þrautseigi, Lance Armstrong frá Bandaríkjunum, kemur á morgun til Frakklands til þess að hefja formlega undirbúning sinn undir hina víðfrægu Tour de France-keppni sem hefst í júlí. Armstrong, sem hefur sigrað keppnina sex ár í röð, mun taka þátt í París-Nice keppninni sem hefst á sunnudaginn. Sport 13.10.2005 18:52
Tapar Woods fjórða árið í röð? Boxarinn Clinton Woods er vongóður um að næla sér í sinn fyrsta titil í kvöld er hann mætir Rico Hoye í viðureign um IBF-heimsmeistaratitilinn í léttþungavigt. Sport 13.10.2005 18:51
Gauti komst ekki áfram Gauti Jóhannesson, millivegalengdarhlaupari úr UMSB, féll í dag úr keppni í 1500 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu innanhúss, sem fram í Madríd. Gauti hljóp á 3 mínútum og 50.67 sekúndum í undanrásarriðli 1, sem er nokkuð frá hans besta. Gauti varð í 11. sæti í sínum riðli og 22. sæti samtals. Sport 13.10.2005 18:51
Annað gull Klassen Cindy Klassen frá Kanada vann í dag sín önnur gullverðlaun á heimsbikarmóti í skautahlaupi sem fram fer í Inzell í Þýskalandi. Klassen vann 3000 metra skautahlaupið á 4:10.37 mínútum en heimastúlkan Claudia Pechstein varð önnur á 4:10.89. Landa Klasssen, Clara Hughes, varð svo þriðja á 4:11.97. Sport 13.10.2005 18:51
Magnús og Heiðar hafa lokið leik Magnús Lárusson og Heiðar D.Bragason úr GKJ hafa lokið leik í dag á opna spænska áhugamannamótinu í golfi. Magnús lék á 81 höggi í dag og samtals á 157 höggum, en hann lék á 76 höggum í gær. Heiðar hinsvegar spilaði mjög vel og lék á 76 höggum í dag og 73 í gær og samtals á 149 höggum. Sport 13.10.2005 18:51
Tyson aftur í hringinn Mike Tyson, fyrrum heimsmeistari í þungavigt í hnefaleikum, hefur staðfest að hann muni snúa í hringinn á nýjan leik í sumar. Sport 13.10.2005 18:51
Rinus Michels látinn Einn frægasti knattspyrnuþjálfari síðari ára, Hollendingurinn Rinus Michels, lést í gær, 77 ára að aldri. Michels, sem kallaður var „hershöfðinginn“, stýrði liði Hollendinga í úrslitum á HM 1974 og gerði Hollendinga að Evrópumeisturum 1988. Sport 13.10.2005 18:51
Tyson snýr aftur í júní Mike Tyson boðaði í gær endurkomu sína í hringinn en ekki var minnst einu orði á mögulegan andstæðing. Sport 13.10.2005 18:51
Öll NHL-liðin seld? Tvö fyrirtæki, Bain Capital Partners og Game Plan International, hafa gert amerísku íshokkídeildinni NHL tilboð í kaup á öllum 30 liðum deildarinnar fyrir um tvo milljarða Bandaríkjadala. Sport 13.10.2005 18:51
Íshokkímaður í lífstíðarbann Rúmenskur íshokkímaður, Bogdan Dina hjá Dinamo Búkarest, hefur verið dæmdur í lífstíðarkeppnisbann. Dina réðst á dómara í leik um helgina og lét höggin dynja á honum. Í síðasta mánuði réðst sami leikmaður á áhorfendur og aganefnd rúmenska sambandsins fannst komið nóg. Sport 13.10.2005 18:51
23 ára Ástrali með forystu 23 ára Ástrali, Jarrod Lyle, hefur forystu eftir fyrsta hringinn á Dubai Classic mótinu í golfi en það er liður í Evrópsku mótaröðinni. Lyle lék í morgun á 4 höggum undir pari en fyrsta hring er ekki lokið. Sport 13.10.2005 18:51
Schumacher nískur á vasapening Michael Schumacher, heimsmeistari í kappakstri, verður víst seint sakaður um að ofdekra börnin sín tvö. Schumacher, sem þénar andvirði fimm milljarða íslenskra króna á ári, segir að börn sín, átta og sex ára, fái tvær evrur eða 160 krónur í vasapening á viku. Sport 13.10.2005 18:51