Íþróttir

Fréttamynd

Maradona hefur grennst um 33 kíló

Knattspyrnugoðið Diego Armando Maradona, sem fór í magaaðgerð fyrir 50 dögum, hefur grennst um 33 kíló. Þetta segir læknir Maradona í viðtali við argentíska útvarpsstöð.

Sport
Fréttamynd

Lyfjamisnotendur lögsækja

Íþróttamenn í fyrrum Austur-Þýskalandi, sem voru fórnarlömb skipulagðrar lyfjamisnotkunar, ætla að lögsækja lyfjafyrirtækið Jenapharm sem framleiddi steralyf fyrir austurþýska ríkið. Prófmál verður höfðað í sumar þar sem farið verður fram á 3,2 milljónir evra í skaðabætur, eða 260 milljónir króna.

Sport
Fréttamynd

Faðir skaut þjálfara

Fótboltaþjálfari nokkur við gagnfræðaskóla í Tyler í Texas í Bandaríkjunum, fékk að kenna á því á dögunum þegar faðir eins leikmanns liðsins gerði sér lítið fyrir og skaut hann í kviðinn.

Sport
Fréttamynd

Unnusta Ronaldo missti fóstur

Ronaldo og unnusta hans, Daniella Cicarella, urðu fyrir miklu áfalli í fyrrakvöld þegar Cicarelli var flutt í skyndi á sjúkrahús í Sao Paolo í Brasilíu þar sem í ljós kom að hún hafði misst fóstur.

Sport
Fréttamynd

Hannes átti að fá 2 ára bann

Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Víking í Noregi, á skilið að fá tveggja ára keppnisbann fyrir að gefa Frode Kippe, varnarmanni Lilleström, viljandi olnbogaskot um helgina. Þetta segir Bård Bogersen, varnarmaður Start, eftir að horft á atvikið í norsku sjónvarpi.

Sport
Fréttamynd

Gautaborg sigraði Hammarby

Gautaborg sigraði Hammarby, 1-0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hjálmar Jónsson var í liði Gautaborgar og Pétur Hafliði Marteinsson í liði Hammarby. Gautaborg er í 4. sæti með sex stig eftir þrjá leiki en Hammarby í 9. sæti með fjögur stig.

Sport
Fréttamynd

KR og Þróttur áfram

KR og Þróttur tryggðu sér sæti í undanúrslitum deildarbikarkeppni KSÍ í gær. KR sigraði ÍBV, 2-0. Bjarnólfur Lárusson og Grétar Hjartarson skoruðu mörk KR-inga.

Sport
Fréttamynd

Renault óttast Ferrari

"Þeir verða bara betri og betri og þegar þeir eru farnir að aka hringina einni og hálfri til tveimur sekúndum hraðar, þarf ekki að eiga fleiri orð um það," sagði Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault, þegar hann var spurður út í aukna samkeppni frá ítalska liðinu.

Sport
Fréttamynd

Button gæti misst 3. sætið

Breski ökuþórin Jenson Button gæti átt yfir höfði sér að missa stigin sem hann hlaut fyrir að hafna í þriðja sæti á Imola í keppni síðustu helgar í Formúlunni.

Sport
Fréttamynd

Óánægja með Ferrari

Ralph Schumacher, ökumaður Toyota, er aðeins einn margra sem hafa gagnrýnt lið Ferrari harðlega á síðustu dögum, vegna stífra æfinga liðsins sem brjóta í bága við heiðursmannasamkomulag sem gert var í formúlunni.

Sport
Fréttamynd

Higgins úr leik á HM í snóker

John Higgins, sem varð heimsmeistari í snóker árið 1998, tapaði óvænt fyrir Shaun Murphy, 13-8 í annarri umferð heimsmeistaramótsins.

Sport
Fréttamynd

Magnús Bess í öðru sæti

Hinn nýkrýndi Íslandsmeistari Magnús Bess Júlíusson hafnaði í öðru sæti á Norðurlandamótinu í vaxtarrækt sem haldið var í Helsinki í Finnlandi um helgina.

Sport
Fréttamynd

Silja bætti árangur sinn

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, bætti sinn besta árangur í 400 metra grindahlaupi á háskólameistaramóti í Flórída í Bandaríkjunum um helgina þegar hún hljóp á 56,62 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Sigrún í öðru sæti í Georgíu

Sigrún Fjeldsted úr FH keppti í spjótkasti á móti í Athens í Georgíu í Bandaríkjunum um helgina og hafnaði í öðru sæti þegar hún kastaði spjótinu 49,87 metra.

Sport
Fréttamynd

Renault hræðist Ferrari

Lið Renault í Formúlu 1 kappakstrinum óttast nýja bifreið Ferrariliðsins eftir kappaksturinn í San Marino sem fram fór í gær.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur og Kristín unnu

Guðmundur Stephensen úr Víkingi og Kristín Á. Hjálmarsdóttir úr KR tryggðu sér um helgina stigameistaratitil vetrarins á Grand Prix mótaröðinni í borðtennis, þegar þau unnu bæði sigur á lokamótinu sem haldið var í TBR-húsinu.

Sport
Fréttamynd

Þriðji sigur Alonso í röð

Fernando Alonso hjá Renault og Michael Schumacher hjá Ferrari sönnuðu sig báðir á Imola-brautinni í gær þegar fjórða keppni formúlu tímabilsins fór fram.

Sport
Fréttamynd

Silja önnur í 400 m grind

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, varð í 2. sæti í 400 metra grindahlaupi á bandaríska háskólameistaramótinu í Tallahassie í Flórída í gær. Silja hljóp á 56,62 sekúndum og bætti met Clemson-háskóla um tvo hundraðshluta úr sekúndu en það met setti Nikkie Bouyer 1999. Silja varð einnig í 2. sæti í 400 metra grindinni í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Pétur Glímukóngur Íslands

Pétur Eyþórsson í KR varð í gær Glímukóngur Íslands þegar hann sigraði í Íslandsglímunni. Pétur sigraði Ólaf Odd Sigurðsson HSK í síðustu umferðinni og fékk sex og hálfan vinning en Ólafur Oddur varð annar með sex vinninga.

Sport
Fréttamynd

Kim fallinn af stallinum

Róbert Fannar Halldórsson varð í gær Íslandsmeistari í skvassi þegar hann sigraði Magnús Helgason 3-0 í úrslitum. Kim Magnús Nielsen, Íslandsmeistari í skvassi undanfarin 13 ár, beið lægri hlut fyrir Róberti í undanúrslitum.

Sport
Fréttamynd

Ásthildur með tvö

Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, skoraði tvö mörk þegar lið hennar, Malmö, sigraði Mallbacken, lið Erlu Steinu Arnardóttur, með fimm mörkum gegn engu á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í gær.

Sport
Fréttamynd

KR og Breiðablik áfram

Í deildabikarkeppni kvenna í knattspyrnu sigraði KR ÍBV 7-2 í gær. Breiðablik vann Stjörnuna með fjórum mörkum gegn einu.

Sport
Fréttamynd

PSV meistari í 18. sinn

PSV Eindhoven varð í gær hollenskur meistari í knattspyrnu í 18. sinn eftir 3-0 sigur á Vitesse Arnhem. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni en Ajax, sem er í öðru sæti, á ekki lengur möguleika á því að ná PSV.

Sport
Fréttamynd

JR sigraði í sveitakeppninni

Júdófélag Reykjavíkur sigraði í sveitakeppni á Íslandsmótinu í júdó í íþróttahúsi Hagaskólans í gær. Júdófélagið lagði KA að velli með fimm vinningum gegn tveimur.

Sport
Fréttamynd

Deildarbikar kvenna í dag

Tveir leikir verða í dag í deildarbikar kvenna í knattspyrnu. KR og ÍBV keppa á KR-velli klukkan 15 og á sama tíma mætast Stjarnan og Breiðablik á Stjörnuvelli.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmót í glímu og júdó

Íslandsglíman fer fram í Borgarleikhúsinu í dag og hefst keppni klukkan 13. Átta karlar keppa um Grettisbeltið og sæmdarheitið glímukóngur Íslands. Fimm konur keppa um Freyjumenið og sæmdarheitið glímudrottning Íslands. Íslandsmót fullorðinna í júdó fer fram í íþróttahúsi Hagaskólans.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmót í ólympískum lyftingum

Íslandsmót í ólympískum lyftingum verður í Snælandsskóla í Kópavogi í dag og hefst keppni klukkan 15. Fjögur ár eru síðan Íslandsmót í ólympískum lyftingum var síðast haldið.

Sport
Fréttamynd

Önnur viðureignin í dag

Annar leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí verður á Akureyri í dag og hefst hann klukkan 17. Skautafélag Reykjavíkur vann fyrsta leikinn á miðvikudagskvöld, 9-6.

Sport