Reykjavík

Sjáðu ljós jólakattarins tendruð
Jólakötturinn var tendraður á Lækjartorgi síðdegis í dag en kötturinn er orðinn einn helsti boðberi jóla í Reykjavík.

Fjórir til viðbótar í gæsluvarðhald og rúmlega tíu í felum
Þeir fjórir sem lögregla handtók í nótt í tengslum við rannsókn á hnífstunguárás sem var gerð á Bankastræti Club síðasta fimmtudagskvöld voru rétt í þessu úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Alls eru nú níu í gæsluvarðhaldi en lögregla hefur sleppt hinum fimm sem hún hefur handtekið við rannsóknina úr haldi.

Ólga meðal kennara í Hvassaleitisskóla og skólastjóri í leyfi
Óánægja og ókyrrð ríkir meðal starfsfólks Hvassaleitisskóla í Reykjavík. Óánægjan snýr að stjórnunarháttum skólastjórans og starfsaðstæðum í skólanum. Fjölmargir kennarar og starfsmenn skólans skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir vantrausti á hendur skólastjóranum. Hann er sem stendur í leyfi frá störfum.

Fjórtán handteknir og einn látinn laus
Lögregla handtók fjóra menn í tengslum við stunguárásina á Bankastræti Club í gærkvöldi og í nótt. Alls hafa nú fjórtán verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins og fimm verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Einum hefur verið sleppt úr haldi og býst lögregla við að fleirum verði sleppt í dag.

Lögregla lokið störfum á Bankastræti Club og djammið heldur áfram
Skemmtistaðurinn Bankastræti Club verður opnaður á nýjan leik á morgun, laugardag. Forsvarsmenn staðarins segja að rannsókn lögreglu á vettvangi hnífstungunnar á klúbbnum á fimmtudagskvöld sé lokið. Djammið haldi áfram á morgun enda bæri staðurinn ekki ábyrgð á atburðunum á fimmtudagskvöld.

Fimm í gæsluvarðhaldi og tveir til viðbótar handteknir
Fimm karlmenn á þrítugsaldri voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld grunaðir um aðild að hnífstunguárás hóps manna á skemmtistaðnum Bankastræti Club á fimmtudagskvöld. Tíu hafa verði handteknir.

„Skemmtilegt að opna í gömlu húsi með mikla sögu“
Í áratugi fór fólk með bréf og böggla á aðalpósthúsið í Austurstræti. En nú er öldin önnur og fyrr í kvöld var opnuð þar ný mathöll.

„Við erum ekki að fara að refsa okkur út úr þessum vanda“
„Það sem situr svolítið eftir hjá manni er að það skuli vera hópur þarna úti í okkar samfélagi sem einhvern veginn telur þetta bara vera í lagi,“ segir Helgi Gunnlaugsson prófessor í félags og afbrotafræði og vísar þar í fréttir af alvarlegri hnífstunguárás gegn þremur mönnum á skemmtistaðnum Bankastræti Club í gærkvöldi.

Uppbygging hafin á fjölbreyttri byggð á Heklureit
Tæplega tvö hundruð íbúðir verða í fyrstu tveimur húsunum af fimm sem fyrirhugað er að reisa á Heklureitnum og verða tilbúnar eftir um þrjú ár. Skipulagið tengist einnig borgarlínu og uppbyggingu Hlemmtorgs í næsta nágrenni.

Árásarmenn margir starfað sem dyraverðir
Fjórir til viðbótar voru handteknir í dag tengslum við hnífstunguárás sem gerð var inni á skemmtistaðnum Bankastræti Club í miðbæ Reykjavíkur í gær. Átta eru nú samtals í haldi en málið er rannsakað sem tilraun til manndráps. Lögregla mun fara fram á gæsluvarðhald yfir minnst þremur þeirra og skorar á hina sem voru viðriðnir árásina að gefa sig fram við lögreglu.

Pósthús mathöll opnuð og allir dansa kónga
Mathöllin í gamla pósthúsinu opnar í dag eftir sex ára undirbúning. Markmið mathallarinnar er að vera sú skemmtilegasta á landinu. Stór nöfn á borð við Yesmine Olsson, Hauk á Yuzu og Sigga Hall eru öll hluti af verkefninu og leiddi sá síðast nefndi alla í kónga í tilefni dagsins.

„Við þurfum að bregðast við af mikilli hörku“
Dómsmálaráðherra og forsætisráðherra eru sammála um að grípa verði til aðgerða gegn auknum vopnaburði og skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi. Fréttir af hnífstunguárás á Bankastræti Club í gærkvöldi séu virkilega óhugnanlegar.

Leita að vitnum að slysinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í morgun.

Á að fækka húsum?
Reykjavík er þekkt um heim allann fyrir nýtingu jarðhita. Margir hafa lagt þar hönd á plóginn, hér nægir að nefna tvö nöfn, Geir Hallgrímsson borgarstjóra og Jóhannes Zoega hitaveitustjóra.

Bókabíllinn: úti að aka
Síðustu vikur hef ég rétt eins og í skáldsögum blikkað augunum margoft og klórað mér í höfðinu til að fullvissa mig um að mig sé ekki að dreyma.

Um tuttugu grímuklæddir menn réðust inn á klúbbinn
Lögregla útilokar ekki að fleiri verði handteknir í dag í tengslum við alvarlega hnífstunguárás gegn þremur mönnum á skemmtistaðnum Bankastræti Club í gærkvöldi. Talið er að hátt í tuttugu grímuklæddir menn hafi ráðist inn á staðinn.

Ekið á gangandi vegfaranda við Kringlumýrarbraut
Ekið var á gangandi vegfarenda við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í morgun. Ekki er vitað um líðan þess sem keyrt var á.

Birgitta þakklát viðbragðsaðilum
Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi Bankastræti Club, segist þakklát fyrir viðbrögð þeirra sem komu að því að leysa atburðarás sem varð á skemmtistaðnum seint í gærkvöldi. Hún þakkar Guði að ekki fór verr.

Fjórir handteknir vegna árásarinnar á Bankastræti Club
Lögregla hefur handtekið fjóra vegna hnífsstunguárásarinnar á Bankastræti Club í Reykjavík í gærkvöldi. Þrír særðust í árásinni.

Hnuplað úr verslunum og kveikt í ruslatunnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölmörgum minniháttar málum í gærkvöldi og í nótt ef marka má yfirlit yfir verkefni vaktarinnar en þar er hvergi minnst á hnífsstungurnar á Bankastræti Club sem fréttastofa greindi frá í nótt.

Þrír fluttir á bráðamóttöku eftir hnífsstungur á Bankastræti Club
Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítalans eftir að til átaka kom á skemmtistaðnum Bankastræti Club við samnefnda götu í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í kvöld.

Handtekinn fyrir að ganga berserksgang í apóteki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling sem var sagður hafa gengið berserksgang í apóteki í Kópavogi í dag. Þá stóð lögregla innbrotsþjóf að verki í Hlíðahverfi.

Spurt hvort fjarlægja ætti stíflu Elliðavatns eftir lokun virkjunar
Spurningar hafa vaknað um hvort fjarlægja eigi stíflu Elliðavatns og koma vatninu í upprunalegt horf, eftir að rekstri Elliðaárstöðvar var hætt. Líffræðingur sem vaktar Elliðavatn segir að slíkt þyrfti að hugsa vandlega og að söknuður yrði af vatninu.

Breytingar framundan á póstþjónustu í Vesturbæ Reykjavíkur
Í lok janúar á næsta ári hyggst Pósturinn gera breytingar á póstþjónustu í Vesturbæ Reykjavíkur. Til stendur að loka pósthúsinu við Hagatorg en leggja þess í stað meiri áherslu á annars konar þjónustu.

Sparkað niður 23 steintröppur við veitingastað í Reykjavík
Landsréttur hefur úrskurðað mann í gæsluvarðhald til 8. desember vegna gruns um að hafa sparkað öðrum manni niður 23 steintröppur utandyra við inngang veitingastaðar í Reykjavík þann 29. október síðastliðinn.

Tölum um samgöngukostnað
Við undirritun sáttmála ríkis og sveitarfélaga um samgöngufjárfestingar á höfuðborgarsvæðinu fyrir þremur árum kom fram að næstu 15 árin yrði ráðist í einar umfangsmestu samgönguframkvæmdir sögunnar til að bæta samgöngur á svæðinu.

Reykjanesbraut opnuð tímabundið vegna óveðurs
Hlé hefur verið gert á malbikunarframkvæmdum á Reykjanesbraut vegna veðurs.

„Manni líður eins og maður sé bara heima“
„Tíminn er bara kominn. Það tekur allt sinn endi,“ segir Ragnar Guðmundsson stofnandi veitingastaðarins Lauga-Ás á Laugarásvegi í Reykjavík en staðnum verður lokað í næsta mánuði. Lauga-Ás hefur verið starfræktur síðan árið 1979 og hafa fastagestir staðarins tekið þessum tíðindum óstinnt upp.

Mikið líf í Gufunesinu þar sem True Detective og Snerting eru tekin upp
Eitt stærsta kvikmyndaver Evrópu, sem staðsett er í Gufunesinu í Reykjavík, er töluvert aðdráttarafl fyrir erlendar framleiðslur að sögn leikstjóra og eiganda þess sem segist viss um að kvikmyndaiðnaðurinn geti verið ein af stoðgreinum landsins. Gríðarlegt umfang er á svæðinu þar sem þættirnir True detective eru teknir upp.

„Við lögum ekki slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvarðanatöku“
Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir óráð að fylla upp í Árbæjarlón að svo stöddu en tæming þess var nýlega úrskurðuð ólögmæt. Ekki sé hægt að laga eina slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvörðun.