Menning

Allt sem þú þarft að vita um dag­skrána á Menningar­nótt

Íris Hauksdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifa
Dagskrá menningarnætur er gríðarlega fjölbreytt og skemmtileg í ár. 
Dagskrá menningarnætur er gríðarlega fjölbreytt og skemmtileg í ár.  Vísir/Vilhelm

Menningarnótt Reykjavíkurborgar er haldin hátíðleg laugardaginn 19. ágúst. Miðborgin breytist þá í iðandi vettvang menningar og lista og dagskráin er stútfull af viðburðum þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Menningarnótt var fyrst haldin hátíðleg árið 1996 og þar sem kastljósinu er beint að því fjölbreytta og ríkulega framboði af viðburðum og kraftmikilli menningarstarfsemi sem borgin hefur upp á að bjóða. Um kvöldið verða svo stórtónleikar Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum og Tónaflóð við Arnarhól. 

Hátíðin verður sett á Kjarvalsstöðum kl. 12.00. Hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir leika af sinni alkunnu spilagleði og dansarar frá Happy Studio fá gesti út á dansgólfið með sér. Í kjölfarið mun Listasafn Reykjavíkur bjóða gestum inn á Kjarvalsstaði á sýningaropnun þar sem sýningin Myndlistin okkar verður opnuð formlega í vestursal safnsins. Sýningin er afrakstur kosningar þar sem fólki gafst tækifæri til þess að velja listaverk úr safneigninni. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á Listasafni Reykjavíkur og Borgarsögusafni og er ókeypis aðgangur.

Hér fyrir neðan má finna yfirlit yfir hina og þessa viðburði sem verða í boði að degi til og um kvöldið.

Listinn er langt frá því að vera tæmandi en nánari upplýsingar um dagskrá Menningarnætur má finna hér.

Fjölskylduskemmtun

Klippismiðjan í anda Errós

Staður: Hafnarhús – Listasafn Reykjavíkur

Tími: 10:00–23:00

Gestum er boðið inn í samklippsheim listamannsins sem geta þá ímyndað sér hvernig sé umhorfs á vinnustofunni. Aðgangur er ókeypis.

Barnaskemmtun og tónleikar í Landsbankanum

Staður: Landsbankinn, Reykjastræti 6

Tími: 15:00 – 18:00

Landsbankinn býður upp á glæsilega barna- og fjölskylduskemmtun í nýju húsi bankans við Reykjastræti 6. Klukkan 15.00 munu Sylvía Erla og Árni Benedikt syngja og dansa með söngelskum börnum, klukkan 16.00 mun Karlakórinn Esja flytja söngperlur og klukkan 17.00 mun Diljá Pétursdóttir Eurovision stjarna flytja tónlist.

Víkingaheimur við Þjóðminjasafn

Staður: Þjóðminjasafn Íslands

Tími: 12:00–17:00

Víkingafélagið Rimmugýgur slær upp tjaldbúðum við Þjóðminjasafnið og skapar sannkallaðan miðaldaheim sem ævintýralegt er að lifa sig inn í.

Iceland of Winds – Nýstárleg miðlun menningararfs

Staður: Þjóðminjasafn Íslands

Tími: 11:00–16:00

Leikjafyrirtækið Parity Games, í samstarfi við Þjóðminjasafnið, mun miðla íslenskum menningararfi á nýstárlegri hátt í gegnum tölvuleikinn Island of Winds til gesta á Menningarnótt.

Coney Iceland fjölskyldu Sirkús Sýning

Staður: Iðnó

Tími: 13:00–13:30

Stígðu inn í heim dáleiðandi undurs og púlsandi spennu á Coney Iceland fjölskyldu sirkús sýningunni, þar sem Jelly Boy trúðurinn ríkir sem veislustjóri.

Festival Slippbarsins í samstarfi við PVBR

Staður: Slippbarinn, Mýrargata 2

Tími: 15:00 – 19:00

Slippbarinn býður gestum að koma og dansa á Menningarnótt en þar verður útifestival með plötusnúðum frá klukkan 15:00 til 19:00. Pop up bar, kandíflos fyrir börnin, matur að hætti Slippbarsins og Rauðskinna Tattoo-listakona verður á staðnum.

Bestu lög barnanna

Staður: Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Tími: 13:00–13:30

Tónlistarkonan Sylvía Erla og leikarinn Árni Beinteinn, sem stýra sjónvarpsþættinum Bestu lög barnanna í Sjónvarpi Símans, taka ýmis vel valin og skemmtileg lög sem krakkar halda upp á. Aðgangur ókeypis.

Barnasöngstund með Ólöfu Arnalds

Staður: Mengi

Tími: 13:00–15:00

Á Menningarnótt munu Mengi og söngvaskáldið Ólöf Arnalds standa fyrir barnasöngstund frá 13:00 til 15:00. Hugmyndin er að börn og foreldrar geti sungið ástsæl íslensk lög með Ólöfu sem börnin þekkja. Aðgangur ókeypis.

Fjölbreytt dagskrá er í boði, bæði um daginn og um kvöldið.Vísir/Vilhelm

Saga

Óðinn - velkomin um borð!

Staður: Grandagarður 8, 101 Reykjavík

Tími: 13.00-15.30

Varðskipið Óðinn verður opið á Menningarnótt milli kl. 13-18 og munu fyrrum varðskipsliðar standa vaktina og taka á móti gestum.

Vestmannaeyjar - Heiðursgestir Menningarnætur

Staður: Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargata 11, 101 Reykjavík

Tími: 13:00–17:00

Vestmannaeyjar eru sérstakir gestir á Menningarnótt Reykjavíkur sem er laugardaginn 19. ágúst. Verður dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 13.00 til 17.00.

Sett verður upp þjóðhátíðartjald þar sem Áttahagafélag Vestmannaeyinga í Reykjavík (ÁTVR) ætlar að standa vaktina og spjalla við gesti, bjóða uppá bakkelsi og fleira í þjóðhátíðarstíl. Ljósmyndir og myndbandsklippur frá gosinu verða til sýnis á meðan.

Býr í þér víkingur? – Búningahorn í Landnámssýningu

Staður: Aðalstræti 16, 101 Reykjavík

Tími: 13:00–19:00

Gestir Landnámssýningarinnar geta klætt sig í búninga og borið vopn eins og forfeður og mæður okkar báru. Hægt verður að stilla sér upp við flottan bakgrunn og smella af mynd.

Helga EA2

Staður: Fríkirkjan við Tjörnina, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík

Tími: 16:00–16:20

Á menningarnótt  verður verkið Helga EA2 flutt í Fríkirkjunni í Reykjavík en það var samið af tónskáldinu Ásbjörgu Jónsdóttur fyrir Heiðu Árnadóttur söngkonu. Ef veður leyfir verður verkið flutt fyrir utan kirkjuna.

VAXA vekur fólk til umhugsunar

Hvetjum alla til að kíkja á VAXA gróðurhúsið á Lækjartorgi um helgina.aðsend

VAXA hefur sett upp tímabundna vatnsræktun á þremur hæðum í gróðurhúsinu á Lækjartorgi. Einkunnarorðin, Ræktað í Reykjavík, er ætlað til þess að vekja fólk til umhugsunar um hvaðan grænmetið kemur, við hvaða aðstæður grænmetið hefur verið ræktað, hversu langa vegalengd hefur grænmetið þurft að ferðast og hversu ferskt grænmetið er. Gróðurhúsið ætti ekki að fara framhjá gestum og gangandi. 

Íbúar Þingholta bjóða upp á vöfflur og kaffi

Eftir nokkurra ára hlé verður sú skemmtilega hefð endurvakin þar sem íbúar í Þingholtunum bjóða gestum og gangandi í vöfflur og kaffi á milli kl. 14:00 og 16:00 á Menningarnótt. 

Götubitinn verður í Hljómskálagarðinum þar sem 16 matarvagnar verða á staðnum og bjóða fjölbreytt úrval af gómsætum réttum. Gestir og gangandi geta þrætt tónleika, bæði á skemmtistöðum og hjá íbúum, veitingastaðir, kirkjur og verslanir hafa farið sparifötin og bjóða til veislu.

Fræðsla

Listamaður að störfum - Unnur Ýrr

Staður: Gallerí Fold, Rauðarárstígur 12, 105 Reykjavík

Tími: 13:00–15:00

Á Menningarnótt munu fjórir listamenn vinna að verkum sínum í sýningarsölum Foldar og geta gestir notið þess að sjá þá að störfum, spjallað og fræðst um list þeirra og þær aðferðir sem þeir nota við listsköpun sína.

Leiðsögn í Húsi Ásgríms Jónssonar um sýninguna Gluggi í Reykjavík

Staður: Hús Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74, 101 Reykjavík

Tími: 16:00–17:00

María Margrét Jóhannsdóttir listfræðingur leiðir gesti um sýninguna Gluggi í Reykjavík. Sýningin samanstendur af úrvali verka eftir Ásgrím Jónsson sem eiga það sameiginlegt að tengjast nærumhverfi listamannsins í Reykjavík.

Fiskur og fólk - sjósókn í 150 ár

Staður: Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarður 8, 101 Reykjavík

Tími: 13:00–22:00

Grunnsýningin Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár fjallar um sögu fiskveiða á Íslandi, frá því árabátar viku fyrir stórskipaútgerð á síðustu áratugum 19. aldar og allt fram yfir aldamótin 2000. Þessi margslungna saga er sögð frá sjónarhóli stærsta útgerðarbæjar landsins, Reykjavíkur.

Porsche menningar-og bílasýning

Staður: 11:00-19:00

Tími: Gamla Kolaportið

Í tilefni af 75 ára afmæli Porsche hefur Porsche klúbburinn á Íslandi ákveðið að endurtaka leikinn og bjóða aftur til glæsilegrar menningar- og bílasýningar í gamla Kolaportinu við hlið Seðlabankans (undir Arnarhóli).

Þema viðburðarins er að dreyma í lit og hefur því verið sett mikil vinna í að finna litríkustu og flottustu bíla landsins sem sýndir eru í einstöku umhverfi gamla Kolaportsins þar sem götulistaverk setja skemmtilegt yfirbragð sem mótvægi við sjaldgæfa eðalvagna.

Húsið er opið á milli 11-19 en gengið er inn frá Kalkofnsvegi, gengt Landsbankanum.

Sviðslistir

Spunamaraþon Improv Ísland

Staður: Þjóðleikhúsið, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík

Tími: 15:00–22:30

Improv Ísland byrjar haustið af krafti með hinu árlega spunamaraþoni í Þjóðleikhúskjallaranum. Spunaleikarar Improv Ísland munu spinna ólíkar sýningar sem allar eru búnar til á staðnum. Ekkert er ákveðið fyrirfram og allt getur gerst þegar hver sýning er bæði frumsýning og lokasýning. Ókeypis aðgangur.

Prism: Hinsegin Hýrð

Staður: Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík

Tími: 15:00–19:00

Í Bíó Paradís verða tónleikar, drag sýningar og framkomur til að beina sviðsljósi á hæfileika og flóru hinsegin listafólks úr öllum áttum. Á viðburðinum Hýrlegheit verða umburðarlyndi, samkennd og fjölbreytileiki í forgrunni til að skapa öruggt og fallegt rými fyrir öll.

Danssprengja í Hallargarðinum

Staður: Hallargarðurinn, Fríkirkjuvegur Fríkirkjuvegur 11, 101 Reykjavík

Tími: 15:00–17:00

Listahópur Reykjavíkur - FWD danshópurinn býður upp á dans- og tónlistardagskrá á Menningarnótt.

Tangó á Bríetartorgi

Staður: Bríetartorg

Tími: 15:00–16:30

Unaðslegur tangó á Bríetartorgi -við Bríetarbrekku - á Menningarnótt. Félagar í Tangóklúbbi Reykjavíkur stíga dansinn milli kl 15:00-16:30. Áhorfendum gefst kostur á að reyna sporin að vild.

Myndlist

Sýningaropnun á Menningarnótt: Myndlistin okkar

Staður: Kjarvalsstaðir - Listasafn Reykjavíkur

Tími 10:00–22:00

Sýningin Myndlistin okkar verður opnuð á Kjarvalsstöðum og stendur opnunin yfir frá kl. 10-22 á Menningarnótt.

Hringrás – Listaverkasýning í Landsbankanum

Staður: Landsbankinn

Tími 11:00–17:00

Sýningin Hringrás er úrval verka úr listasafni Landsbankans. Á sýningunni er kannað hvernig áhrif og innblástur þróast með mismunandi miðlum og í meðförum ólíkra kynslóða listafólks. Aðgangur ókeypis.

Portrettstúdíóið

Staður: Hörpu, á 3. hæð, hægra megin við Eldborg

Tími: 11:00–15:00

Magnús Andersen ljósmyndari opnar portrettstúdíó í Hörpu þar sem hann býður gestum og gangandi að koma í myndatöku. Hann leikur með lýsingu og ljósmyndatækni til að skapa áhugaverðar andlitsmyndir sem draga fram persónuleika, brjóta upp staðalmyndir og fagna fjölbreytileikanum.

Hönnun

Menningarnótt í Yeoman

Staður: Yeoman

Tími: 16:00–18:00

Haustið kemur í Yeoman! Nýrri línu af fallegum haustflíkum frá Hildur Yeoman verður fagnað með partýi fyrir utan Yeoman á Menningarnótt. DJ Rósa Birgitta ásamt dönsurum í nýju línunni bjóða ykkur í partý milli 16-18. Opið verður í Yeoman á Laugavegi 7 frá 11-20. Léttar veitingar verða í boði frá Ölgerðinni 🩷Allir sem versla þennan dag fara í sérstakan happadrættispott.

Ása Tryggva, Guðrún Gísla og Þóra Björk Schram bjóða á opna vinnustofu að Vatnastíg 3

Staður: Stiklar

Tími: 14:00–20:00

Listkonurnar bjóða gestum og gangandi að njóta listar og ljúfra veitinga.

Tónlist

Lúðrasveitabardagi ársins

Staður: Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Tími: 14:00–15:00

Lúðrasveitabardagi ársins verður haldinn á Hörputorgi á Menningarnótt. Þar mætast þrjár fremstu lúðrasveitir landsins og berjast um Monthlemminn mikla.

Magnús Jóhann og Óskar Guðjónsson

Staður:  Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Tími: 14:00–14:30

Píanóleikarinn Magnús Jóhann og saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson leiða saman hesta sína í Kaldalóni á Menningarnótt til þess að flytja glænýtt efni úr þeirra smiðju. 

Perlur íslenskra sönglaga

Staður: Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Tími: 14:00–14:40

Á tónleikunum Perlur íslenskra sönglaga fá áheyrendur að kynnast sígildri íslenskri tónlist. 14, Flytjendur: Hallveig Rúnarsdóttir sópran Kristín Sveinsdóttir mezzósópran Bjarni Thor Kristinsson bassi Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó Sérstakur gestur: Cesar Alonzo Barreara tenór.

Ball á Kastrup

Staður: Kastrup

Tími: 17:00–19:30

Hljómsveitin Kastrup heldur ball í portinu á bak við húsið. Í bandinu eru meðal annars Högni Egilsson, Sigríður Thorlacius, Salóme Katrín Magnúsdóttir, Þorsteinn Kári og hinn eini sanni Valdimar Guðmundsson og svo er aldrei að vita nema fleiri stígi á stokk.

Nasasjón af óperu

Staður: Iceland Parliament Hotel

Tími: 18:00–20:30

Sviðslistahópurinn Óður flytur margar af þekktustu perlum óperusögunnar - sem allir þekkja og raula gjarnan með en fáir skilja um hvað snúast eiginlega - í glænýrri íslenskri þýðingu beint úr ofni Óðs.

Unnsteinn á KEX

Staður:  KEX Hostel

Tími: 19:00–19:30

Unnsteinn kemur fram á Menningarnæturtónleikum KEX.

Dans

Dansað um heiminn með allri fjölskyldunni

Staður: Ingólfstorg

Tími: 15:00–15:45

Dönsum saman við allskyns tónlist á Ingólfstorgi á Menningarnótt! Dansþjálfararnir Friðrik Agni og Anna Claessen leiða stutt danspartý fyrir alla fjölskylduna þar sem blandað er allskonar auðveldum danssporum við tónlist hvaðan að úr heiminum.

KramKarnival

Staður: Kramhúsið & Kramber

Tími: 15:00–23:00

Kramhúsið og Kramber bjóða í danspartý þar sem Kramhúsið flæðir út á götu.

Dans Afríka Iceland

Staður: Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Tími: 15:30–16:00

Dans Afríka Iceland kemur með hitann og gleðina frá Gíneu í vestur Afríku í Hörpuna. Þau verða með dans- og trommusýningu og áhorfendur geta svo tekið þátt og lært nokkur dansspor við lifandi trommuslátt.

Dansinn dunar með Blænum

Staður: Sjóminjasafnið í Reykjavík

Tími: 16:00–18:00

Gömludansarnir og latin dansar rúmba, samba og tja tja og línudansar frá kl. 16:00-18:00. Flestir finna eitthvað við sitt hæfi.

Fjölskylduball með Stórsveit Reykjavíkur og Sveiflustöðinni

Staður: Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Tími: 14:00–14:45

Stórsveit Reykjavíkur ætlar í samstarfi við Hörpu og Sveiflustöðina að leiða börn og fjölskyldur í sveifluballi þar sem Stórsveitin tekur gesti með sér í dillandi tónlistarferðalag og dansarar halda örnámskeið í einföldum danssporum sem allir geta lært. Dansleikurinn hefst klukkan 14:00 í Silfurbergi.

Yfirtaka: List án landamæra

Staður: Hafnarhús – Listasafn Reykjavíkur

Tími: 14:00–23:00

List án landmæra efnir til listaveislu í Hafnarhúsinu. Í Porti og Fjölnotarými verður fjölbreytt dagskrá og listsköpun. 

Líkt og venjan verður Menningarnótt slúttað með glæsilegri flugeldasýningu við Arnarhól.Vísir/Vilhelm

Tónleikar og flugeldasýning

Bylgjan á Menningarnótt

Staður: Hljómskálagarðurinn

Tími: 18 - 22.45

Bylgjan hefur staðið fyrir stórtónleikum í Hljómskálagarði á Menningarnótt frá árinu 2014 og í ár verður engin undantekning. Í samvinnu við Sjóvá, 7 up zero og Wolt verður Bylgjan með sannkallaða tónlistar og matarveislu og hefst dagskráin kl. 18.

Fram koma: Gústi B, Diljá, Una Torfa, Júlí Heiðar og Kristmundur Axel, Friðrik Dór, Guðrún Árný, Prettyboitjokko,  Á Móti Sól ásamt Gunna Óla og Páll Óskar. 

Nánari upplýsingar má finna á facebooksíðu viðburðarins.

Tónaflóð á Arnarhóli

Staður: Arnarhóll

Tími: 19:30 - 23:00

Tónaflóð Rásar 2 verður á sínum stað á Menningarnótt og verður í beinni útsendingu á RÚV og Rás 2 frá Arnarhóli. Á þessu 40 ára afmælisári Rásar 2 verður boðið upp á töfrandi tónlistarveislu, þar sem fram koma Flóni, Aron Can, Diljá, Una Torfa, HAM, Klara Elias , Ragga Gísla, Valdimar, GDRN og Mugison.

Flugeldasýning Menningarnætur

Staður: Arnarhóll

Tími: 23:00–23:10

Líkt og venjan er verður Menningarnótt svo slúttað með glæsilegri flugeldasýningu við Arnarhól og hefst hún kl 23:00.


Af öryggisástæðum verður miðborgin lokuð fyrir akandi umferð frá kl. 07.00 um morguninn og fram yfir miðnætti svo gangandi vegfarendur geti notið dagskrárinnar og eru gestir hvattir til að koma fótgangandi eða hjólandi í miðborgina eða með almenningssamgöngum. Allar nánari upplýsingar um áætlun strætó má finna á straeto.is

Strætóskutlur aka til og frá bílastæðum við Laugardalshöll um Borgartún að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi frá kl. 07.30–01.00.

Í samráði við rafskútufyrirtækin verður aðeins hægt að leggja rafskútum á ákveðnum svæðum á hátíðarsvæði Menningarnætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×