Malta
1 2 ›
Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Skuldabréfaeigendur í Play keppast nú við að bjarga dótturfélagi flugfélagsins á Möltu með því að ná samningum á ný við flugvélaleigusala svo starfsemin geti haldið þar áfram. Í upptöku af starfsmannafundi dótturfélagsins á Möltu sem fréttastofu hefur undir höndum kemur fram að leigusalarnir hafi kippt að sér höndum við fall Play á Íslandi og staðan sé flókin. Viðskipti innlent 1.10.2025 12:11
Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og maltneska dótturfélagsins, fékk uppsagnarbréf hvað íslenska félagið varðar afhent fimmtán mínútum eftir starfsmannafund maltneska félagsins og sagði í kjölfarið upp störfum á Möltu. Á fundinum sagði hann að hann væri einn tveggja starfsmanna félagsins á Íslandi sem héldi vinnunni og hann væri viss um að starfsemin á Möltu væri fjármögnuð. Viðskipti innlent 1.10.2025 11:20
Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Unnið er að því að færa átta þotur Play yfir til maltneska dótturfélagsins Fly Play Europe, og stefnt er að því að hefja starfsemi á ný í síðasta lagi eftir tíu vikur. Kröfuhafar sem tóku þátt í skuldabréfaútboði Play í ágúst geta óskað eftir því að fá maltneska félagið leyst til sín. Boðað hefur verið til kröfuhafafundar mánudaginn 6. október. Viðskipti innlent 30.9.2025 21:45
Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirritaði í dag yfirlýsingu með leiðtogum sex annarra ríkja þar sem þeir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa. Ísland átti frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins og veitti því forystu ásamt Spáni að hópurinn náði saman. Innlent 16.5.2025 16:00
Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Aðgerðasinnar um borð í skipi sem er á leið til Gaza strandarinnar með hjálpargögn segja að drónaárás hafi verið gerð á skipið þar sem það var statt á alþjóðlegu hafsvæði undan ströndum Möltu í nótt. Erlent 2.5.2025 07:51
Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Maltnesk stjórnvöld þurfa að hætta að falbjóða erlendum auðmönnum ríkisborgararétt samkvæmt dómi sem féll í Evrópudómstólnum í dag. Auðmenn gátu í reynd keypt sér rétt til að búa og starfa í Evrópu með því að kaupa vegabréf af Möltu. Erlent 29.4.2025 11:29
Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Play hefur náð samkomulagi um rekstur fjögurra véla úr flota flugfélagsins til ársloka 2027 fyrir erlendan flugrekanda með svonefndri ACMI leigu. Flugreksturinn mun fara fram í gegnum Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Til þess að anna eftirspurn yfir sumarmánuðina verður ein flugvél tekin á leigu. Viðskipti innlent 8.4.2025 16:45
Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., fékk í morgun afhent flugrekstrarleyfi frá flugmálayfirvöldum á Möltu. Félagið mun leigja út þrjár vélar til austur-evrópsks flugfélags. Viðskipti innlent 28.3.2025 11:53
Bjóða fyrstu freyju 217 þúsund á mánuði og fimm veikindadaga á ári Maltneskt dótturfélag flugfélagsins Play hefur auglýst í lausar stöður flugliða, svokallaðra fyrstu freyja. Launin sem boðið er upp á eru 217 þúsund krónur á mánuði og veikindadagar eru fimm á ári. Ekki er um að ræða flugliða sem fljúga til og frá Íslandi. Viðskipti innlent 21.3.2025 17:03
Sækja um leyfi á Möltu Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:57
Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja. Innlent 24.5.2024 08:09
Maðurinn ríkisborgari Möltu Maðurinn sem grunur er um að hafi verið frelsissviptur í heimahúsi í Reykholti í Bláskógabyggð er með maltneskt ríkisfang. Fjögur eru í haldi vegna málsins, grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13.5.2024 12:32
Bræður dæmdir fyrir morðið á Galizia George og Alfred Degiorgio voru í gær dæmdir í fjörutíu ára fangelsi hvor um sig fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017. Þriðji maðurinn, Vince Muscat, hafði þegar játað á sig aðild að morðinu. Erlent 15.10.2022 08:21
Landsliðsþjálfari Möltu grunaður um að hafa áreitt landsliðsmann kynferðislega Landsliðsþjálfari Möltu í fótbolta hefur verið settur til hliðar vegna ásakana um að hann hafi áreitt leikmann landsliðsins kynferðislega. Fótbolti 28.9.2022 10:02
Hlíf af mótor flugvélar Atlanta lenti í innkeyrslu í Belgíu Hlíf féll af mótor flugvélar frá flugfélaginu Atlanta ehf. sem var á leið frá Liége í Belgíu til Möltu síðastliðinn fimmtudag. Hlífin lenti í innkeyrslu við íbúðarhúsnæði í Waremme í Belgíu. Viðskipti innlent 14.9.2022 16:54
Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Erlent 24.6.2022 07:46
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. Erlent 23.6.2022 07:49
Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2.3.2022 15:14
Maltverji nýr forseti Evrópuþingsins Hin maltneska Roberta Metsola var í morgun kjörin nýr forseti Evrópuþingsins. Hún tekur við stöðunni af hinum ítalska David Sassoli sem lést á dögunum. Erlent 18.1.2022 10:51
Maltneska ríkið bar ábyrgð á dauða blaðamannsins Daphne Caruana Galizia Niðurstöður sjálfstæðrar rannsóknar á dauða maltnesku blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia segja að maltnesk yfirvöld þurfi að taka ábyrgð á dauða hennar, eftir að hafa skapað menningu refsileysis í landinu. Erlent 29.7.2021 23:21
Malta borgar ferðamönnum til að koma í sumar Yfirvöld í Möltu stefnir á að greiða erlendum ferðamönnum, sem halda til á eyjunni í meira en þrjá daga í sumar, allt að 200 evrur, sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Þau segja aðgerðirnar til þess gerðar að koma ferðaþjónustu eyjunnar á réttan kjöl en atvinnugreinin hefur tekið dýfu niður á við vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 9.4.2021 19:26
Játar að hafa ráðið blaðakonuna Daphne Caruana Galizia af dögum Vince Muscat, einn af þremur mönnum sem ákærðir hafa verið fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017, hefur viðurkennt að hafa átt aðild að morðinu. Verjandi Muscat hefur upplýst dómara um að Muscat viðurkenni nú sök í öllum ákæruliðum. Erlent 23.2.2021 14:22
Atlanta stofnar nýtt flugfélag á Möltu Forsvarsmenn íslenska Flugfélagsins Atlanta ehf. hafa ákveðið að stofna nýtt flugfélag á Möltu, sem hlotið hefur nafnið Air Atlanta Europe. Viðskipti innlent 14.10.2020 09:25
Vilja fá tönn sem Attenborough gaf prinsinum aftur Yfirvöld á Möltu munu mögulega krefjast þess að beingervingi hákarlatannar verði skilað til landsins. Hinn víðfrægi David Attenborough gaf Georg prinsi tönnina en hann fann hana í fríi á Möltu fyrir rúmum fimmtíu árum. Erlent 28.9.2020 15:01
Fjörutíu dagar á sjó og þrjár neitanir Hópur flóttafólks er nú kominn í land á Ítalíu eftir að hafa varið yfir 40 dögum á sjó. Danska skipinu sem flutti hópinn var meinað að leggjast að landi í þremur ríkjum. Erlent 13.9.2020 11:08
Sagði af sér eftir að hafa líkt Angelu Merkel við Hitler Sendiherra Möltu í Finnlandi hefur sagt af sér eftir að hann birti Facebook-færslu þar sem hann bar Angelu Merkel saman við Adolf Hitler. Erlent 10.5.2020 22:13
Robert Abela nýr forsætisráðherra Möltu Robert Abela hefur tekið við sem nýr formaður Verkamannaflokksins þar í landi og mun taka við stóli forsætisráðherra eftir að Joseph Muscat sagði af sér embætti í síðasta mánuði. Erlent 12.1.2020 09:50
Aðstoðarmaður forsætisráðherra Möltu neitar sök vegna morðs blaðakonu Keith Schembri, fyrrverandi aðstoðarmaður Josheph Muscat, forsætisráðherra Möltu, segist ekki hafa lekið upplýsingum um rannsókn á morði blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia til mannsins sem grunaður er um að hafa skipulagt morð hennar. Erlent 18.12.2019 16:20
Forsætisráðherra Möltu segir af sér í skugga morðmáls Joseph Muscat, forsætisráðherra Möltu, mun láta af embætti á nýju ári. Kallað hefur verið eftir uppsögn hans í kjölfar morðs á maltneskri blaðakonu árið 2017. Einstaklingar með sterkt tengsl inn í ríkisstjórn Muscat eru grunaðir um aðild að morðinu. Erlent 1.12.2019 20:03
Maltneskur viðskiptajöfur ákærður fyrir aðild að morði á blaðakonu Maltneski viðskiptamaðurinn Yorgen Fenech hefur verið ákærður í heimalandi sínu. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa átt þátt í dauða blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia, sem var myrt árið 2017. Erlent 30.11.2019 20:47