Rússland

Eldur í rússneska varnarmálaráðuneytinu
Eldur kviknaði í byggingu sem tilheyrir rússneska varnarmálaráðuneytinu í Moskvu í kvöld.

Íslendingar auka framlög sín til öryggis- og varnarmála
Fjárhagslegur stuðningur Íslands við Úkraínu í fyrra og á þessu ári er um 4,5 milljarðar króna. Ísland er að auka framlög sín almennt til öryggis- og varnarmála eins og önnur ríki Atlantshafsbandalagsins. Bandalagið hefur áhyggjur af auknu samstarfi Rússa og Kínverja og umsvifum Kína á Kyrrahafi.

Skemmdu sæstrenginn til Svalbarða í fyrra
Rússneskur togari skemmdi fjarskiptasæstrenginn sem liggur frá Noregi til Svalbarða í janúar árið 2022. Talið er að um viljaverk sé að ræða en togarinn sigldi fram og til baka með veiðarfærin yfir strenginn.

Bretar hindra útsendingu frá erindi eftirlýsts umboðsmanns barna
Bretar hafa beitt neitunarvaldi sínu til að koma í veg fyrir að sent verði út frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem umboðsmaður barna í Rússlandi mun flytja erindi í gegnum fjarfundarbúnað.

Rússnesk skip ógna nýjum íslenskum sæstreng
Írsk stjórnvöld telja að ferðir rússneskra skipa í nágrenni við borgina Galway á vesturströndinni grunsamlegar. Bæði írski flotinn og flugherinn fylgjast með skipunum. Nýlega var opnaður fjarskiptastrengur milli Íslands og Írlands, sem liggur milli Þorlákshafnar og Galway.

Finnar boðnir velkomnir í Atlantshafsbandalagið
Hvítur og blár fáni Finnlands var dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel til marks um inngöngu landsins í dag. Landamæri Rússlands og NATO tvöfaldast að lengd með inngöngu Finna.

Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni
Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn.

Kona handtekin vegna dráps á þekktum hernaðarbloggara
Rússnesk yfirvöld segjast hafa handtekið unga konu í tengslum við dráp á þekktum hernaðarbloggara á kaffihúsi í Pétursborg um helgina. Upptökur frá kaffihúsinu sýna að kona afhenti bloggaranum styttu af honum sjálfum rétt áður en sprengja sprakk.

Stuðningsmaður innrásar Rússa lést í sprengingu á veitingastað Prigozhins
Rússneski stríðsbloggarinn Vladlen Tatarsky lést eftir öfluga sprengingu á veitingastað í Pétursborg í dag. Veitingastaðurinn er sagður í eigu Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner-hópsins alræmda.

Rússneskir hermenn illa þjakaðir af áfengisneyslu
Fjölmörg slys meðal rússneskra hermanna, þar með talið dauðsföll, má rekja til óhóflegrar áfengisneyslu að sögn breska varnarmálaráðuneytisins.

Forysta Rússa í öryggisráðinu „versti brandari í heimi“
Rússar sitja nú í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir mótmæli Úkraínumanna og annarra landa. Síðast þegar Rússar gegndu sama embætti réðust þeir inn í Úkraínu.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Það er verið að slátra þeim“
Yfirmenn úkraínska hersins við Bakhmut segja bardaga þar hafa farið Úkraínumönnum í vil. Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna lýsti átökunum nýverið sem „slátrun“ á Rússum en úkraínskir hermenn segja varnir bæjarins þó hafa verið verulega kostnaðarsamar.

Segja Rússa ætla að bjóða Norður-Kóreu mat fyrir vopn
Rússar hyggjast gera út sendinefnd til Norður-Kóreu, sem mun bjóða þarlendum ráðamönnum mat fyrir vopn. Þetta sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær.

Gögnum um tölvuárásir Rússa lekið til fjölmiðla
Rússneska netöryggisfyrirtækið Vulkan hefur hjálpað herafla og leyniþjónustum Rússlands náið við netárásir og gagnaöflun. Auk þess hafa starfsmenn fyrirtækisins þjálfað starfsmenn leyniþjónusta Rússlands og tekið þátt í að dreifa falsfregnum og ýta undir upplýsingaóreiðu.

Rússar handtaka blaðamann Wall Street Journal fyrir njósnir
Rússneska leyniþjónustan FSB segist hafa handtekið blaðamann bandaríska blaðsins Wall Street Journal fyrir meintar njósnir. Blaðamaðurinn gæti átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi verði hann fundinn sekur um njósnir.

Muratov óttast að verið sé að undirbúa Rússa undir kjarnorkustyrjöld
„Tvær kynslóðir hafa lifað án ógnarinnar af kjarnorkustyrjöld. En það tímabil er liðið. Mun Pútín ýta á kjarnorkuhnappinn eða ekki? Hver veit? Enginn veit það. Það er enginn sem getur svara því.“

Kallar eftir samstöðu með Pútín
Rússar þurfa að fylkja liði um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, því stríðsrekstri ríkisins mun ekki ljúka í bráð. Þetta segir talsmaður Pútíns sem segir einnig að Rússar eigi í stríði við Vesturlönd.

Selenskí sagður uggandi vegna forsetakosninganna vestanhafs
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur áhyggjur af því að mögulegar breytingar á hinu pólitíska landslagi Vestanhafs muni hafa áhrif á gang stríðsins í Úkraínu. „Bandaríki skilja að ef þeir hætta að aðstoða okkur þá vinnum við ekki,“ sagði forsetinn í viðtali við AP.

Myndband af úkraínskum „nasistum“ tekið upp á yfirráðasvæði Rússa
Utanríkisráðuneyti Rússlands birti í gær myndband sem sagt var sýna úkraínska hermenn áreita konu og barn og skjóta á þau, fyrir að tala rússnesku. Myndbandið átti að vera til marks um að úkraínskir hermenn væru nasistar en ráðuneytið fjarlægði það eftir að í ljós kom að það var tekið upp á yfirráðasvæði Rússa í austurhluta Úkraínu.

NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn
Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands.

Rússar ráðast í landflutninga með kjarnorkuvopn
Rússar ætla að flytja kjarnorkuvopn yfir til Hvíta-Rússlands. Að minnsta kosti tíu flugvélar verða staðsettar í landinu sem borið geta kjarnaodda.

Hafa skráð tugi aftaka á stríðsföngum
Starfsmenn Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hafa skrásett fjölda aftaka á stríðsföngum, bæði úkraínskum og rússneskum, í átökunum í Úkraínu. Mun erfiðara sé þó að fá upplýsingar frá Rússum og fá aðgang að föngum í haldi þeirra.

Rússar skjóta föstum skotum á utanríkisráðherra
Rússneska sendiráðið í Reykjavík skýtur föstum skotum á „nýja tísku“ í orðfæri íslenskra embættismanna í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Sendiráðið nefnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sérstaklega, sem notaði orðin „þið megið fokka ykkur,“ í tengslum við baráttuanda Úkraínumanna gegn Rússum. Orðin voru ekki hennar eigin, að sögn ráðherrans.

Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá
John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani.

Selenskí þakklátur Íslandi
Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis.

Myndir af eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús
Rússar skutu eldflaug á fjölbýlishús í Zaporizhzhia í Úkraínu í dag. Sprengingin náðist á eftirlitsmyndavél og var mjög kröftug eins og þar sést.

Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína
Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda.

Funduðu í fjóra og hálfan tíma
Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan.

Xi lentur í Moskvu
Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð.

Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld
Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð.