Þjóðadeild karla í fótbolta

Fréttamynd

Hundur truflaði sigur Skota í Skopje

Það getur ýmislegt gerst í Þjóðadeildinni í fótbolta og í gærkvöldi þurfti að stöðva leik Norður-Makedóníu og Skotlands þegar óboðinn gestur – hress og vinalegur hundur – komst einhvern veginn inn á völlinn.

Fótbolti
Fréttamynd

„Mikael Ander­son kom inn með því­líka orku“

„Þetta var sterkur sigur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir annan 3-0 sigur Íslands í röð. Liðið vann Búlgaríu í dag á Laugardalsvelli og er efst í sínum riðli með sjö stig eftir þrjá leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

„Lærði bara mikil­væga reglu“

„Þetta var drulluskemmtilegt. Gaman að spila á Laugardalsvelli með svona mikið af fólki og strákarnir í gírnum. Þetta var geggjað,“ sagði Orri Steinn Óskarsson eftir frábæra frammistöðu í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

„Erum að spila á móti of­boðs­lega slöku liði“

„Tja, það er fjölbreytni í leiknum…“ sagði Bjarni Guðjónsson á Sýn Sport í hálfleik, ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu manna í fyrri hálfleik í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ég get al­veg sagt þér að hann er ekki sáttur“

„Áhættusamt. Óhætt að segja það,“ sagði Kári Árnason í umræðum á Sýn Sport um það byrjunarlið sem Arnar Gunnlaugsson hefur valið fyrir leikinn við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag. Kári botnar lítið í þeirri ákvörðun að taka Gylfa Þór Sigurðsson út úr byrjunarliðinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis

Sérkennilegar spurningar ísraelskra blaðamanna, þar á meðal einhverjar sem áttu ekkert skilt við fótbolta, ollu því að blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var slitið snemma. Þá þurfti að koma einum blaðamanni burt í öryggisfylgd.

Fótbolti
Fréttamynd

Klopp býður við rasískum á­sökunum

Fullyrðingar fulltrúa öfgahægriflokksins AfD í Þýskalandi um að landslið Þjóðverja sé ekki nægilega hvítt á hörund fylla landsliðsþjálfarann Jürgen Klopp viðbjóði.

Fótbolti
Fréttamynd

Er katastrófa að vinna ekki í dag?

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segir mikilvægt fyrir leikmenn liðsins að mæta einbeittir til leiks gegn Búlgaríu í dag og hleypa engu vanmati að.

Fótbolti
Fréttamynd

Étur hatt sinn vegna um­mæla um Gylfa

Stefán Árni Pálsson játaði að hann þyrfti að éta hatt sinn vegna ummæla sem hann hefur viðhaft um Gylfa Þór Sigurðsson, landsliðsmann karla í fótbolta í Besta sætinu.

Fótbolti