Icelandair
1 2 3 4 5 6 … 62 ›
Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segist bjartsýnn á að lausn náist í kjaradeilum þeirra. Samningsaðilar hafa fjórar vikur til að ná samkomulagi. Innlent 23.9.2026 15:06
Flugvirkjar aflýsa verkfalli Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Vísi. Innlent 23.9.2026 11:13
Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Ríkisstjórn Íslands afgreiddi frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um lög um bann við verkfallsaðgerðum flugvirkja í morgun, áður en flugvirkjar aflýstu verkfalli sínu í kjölfarið. Innlent 23.9.2026 09:37
Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Verkfall flugvirkja stóð í um ellefu klukkustundir en var aflýst rétt fyrir hádegi. Icelandair aflýsti fjölda flugferða áður en Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair komust að samkomulagi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni á Vísi. Innlent 23.9.2026 08:29
„Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Allt hefur gengið sinn vanagang á Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir að 26 flugferðum Icelandair hafi verið aflýst vegna verkfalls flugvirkja segir upplýsingafulltrúi Isavia. Hann biðlar til fólks að mæta ekki á Keflavíkurflugvöll ef flugi þess er aflýst. Innlent 23.9.2026 07:34
Fella niður 26 flugferðir Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík á miðvikudagsmorgun, í dag, eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Um er að ræða 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands frá Reykjavík og til baka. Innlent 23.9.2026 00:17
Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Flugfreyjufélag Íslands auk Félags íslenskra atvinnuflugmanna lýsa yfir fullum stuðningi við Flugvirkjafélag Íslands í yfirstandandi kjaraviðræðum við forsvarsmenn Icelandair. Félögin skora á samningsaðila að finna samningsgrundvöll svo afstýra megi verkfalli. Innlent 22.9.2026 20:14
Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innviðaráðherra vísar á bug því að Icelandair hafi fengið vilyrði stjórnvalda um inngrip í verkfall flugvirkja. Hann segir þær ásakanir furðulegar. Innlent 22.9.2026 11:53
Verkfallið skaði orðspor Íslands Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir boðað verkfall flugvirkja ekki einungis hafa tímabundin áhrif á rekstur Icelandair og ferðaþjónustu landsins heldur gæti það haft töluverð áhrif á orðspor bæði fyrirtækisins og Íslands. Hann á von á því að stjórnvöld grípi í taumana ef kemur til verkfalls. Viðskipti innlent 22.9.2026 08:55
Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Frestun verkfalls flugvirkja myndi ekki draga úr skaða heldur framlengja óvissutímabil og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta segja stjórnendur Icelandair um þá tillögu flugvirkja að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Þær hefjast að óbreyttu á miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Innlent 21.9.2026 18:47
Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara. Innlent 21.9.2026 17:16
Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma. Innlent 21.9.2026 14:28
Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september. Viðskipti innlent 21.9.2026 13:03
„Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Ásdís Eir Guðmundsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA), segir stjórnvöld verða að skoða hvernig sé hægt að tryggja meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir geti með verkfallsréttinum valdið svo miklum samfélagslegum skaða. Hún segir það ekki samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum flugvirkja. Viðskipti innlent 19.9.2026 13:32
Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls á flugvirkja. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi þegar fengið fjölda afbókana vegna verkfallsins. Innlent 19.9.2026 12:25
Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Sáttasemjari hefur hvatt fulltrúa Icelandair til að leggja áherslu á færri mál í kjaraviðræðum við flugmenn, að sögn samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Nefndin telur umfangsmikinn kröfulista félagsins hindra framgang viðræðnanna. Innlent 18.9.2026 16:19
Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Fundur flugvirkja og Icelandair hjá ríkissáttasemjara lauk án árangurs í dag. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall flugvirkja aðfaranótt miðvikudagsins 23. september, eftir fimm daga. Innlent 18.9.2026 13:52
Fundað í flugvirkjadeilu Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari við fréttastofu. Hann segist hafa verið í stöðugu sambandi og átt í samráði við báðar samninganefndir undanfarna daga. Innlent 18.9.2026 06:26
Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Viðskipti 17.9.2026 11:35
Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Að öllu óbreyttu verða allar flugferðir með Icelandair frá landinu dagana 23. og 24. september felldar niður vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Farþegum stendur til boða að breyta bókuðum ferðum en eru þær breytingar háðar sætaframboði. Innlent 16.9.2026 17:39
Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra. Viðskipti innlent 16.9.2026 12:02
Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Friðrik Árnason, eigandi Hótels Breiðdalsvíkur, segir erfitt að flugstéttir hafi slíkt vald að þær geti lokað landinu í verkfalli. Hann óttast gríðarlegt tap fyrir ferðaþjónustuna í heild verði af verkfalli flugvirkja í næstu viku. Viðskipti innlent 16.9.2026 08:21
Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeildu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair að svo stöddu, enda séu engir formlegir samningafundir fyrirsjáanlegir að svo komnu máli. Innlent 16.9.2026 07:51
„Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Innviðaráðherra segir boðað verkfall flugvirkja hjá Icelandair alvarlegt mál og að algjört grundvallaratriði sé að deiluaðilar finni lausn á deilunni áður en til verkfalls kemur. Þó hafi möguleikinn á því að setja lög á verkfall flugvirkja ekki komið til umræðu. Innlent 15.9.2026 11:43
Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. Viðskipti innlent 15.9.2026 08:09
Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu ekki skrifa undir samninga í dag líkt og stefnt var á með verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara. Nefndirnar eru þó enn í virku samtali. Viðskipti innlent 14.9.2026 16:38
Telur yfir milljarð á dag í húfi Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Viðskipti innlent 14.9.2026 16:14
Gengið aldrei verið lægra Við lokun markaða í dag stendur hlutabréfaverð Icelandair í 0,64 krónum. Virðið hefur aldrei verið lægra og lækkaði um 5,87 prósent í dag eftir að flugvirkjar tilkynntu að þeir ætluðu að hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september. Viðskipti innlent 14.9.2026 15:48
Hafa samband við farþega Icelandair segir að komi til verkfallsaðgerða flugvirkja muni það hafa veruleg áhrif á flugáætlun félagsins þó að ekki sé hægt að meta umfang mögulegra fjárhagslegra áhrifa verkfallsins á félagið. Komi til breytinga á flugáætlun muni starfsmenn félagsins hafa samband við farþega. Ítrekað hafi það verið lagt til að leggja málið fyrir gerðardóm. Viðskipti innlent 14.9.2026 15:36
Flugvirkjar fara í verkfall Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. Viðskipti innlent 14.9.2026 14:35