Flug
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 171 ›
Heimferðin frá Tenerife algjör martröð Hjón í Svarfaðardal segja farir sínar ekki sléttar eftir ferðalagið heim úr sólinni á Spáni. Eftir níu klukkustunda bið á flugvellinum á Tenerife sáu Norðanmenn rúmið í hyllingum þegar flugstjórinn tilkynnti um breytingar. Lent yrði á Keflavíkurflugvelli en boðið upp á rútuferðir norður. Innlent 13.10.2025 15:47
Flugnördar heims kveðja fegurstu flugvél Íslands Það er fullyrt að hún sé fegursta flugvél í heimi. Og hún er heimsfræg meðal flugnörda, sem flykktust til Íslands úr öllum heimshornum til að kveðja hana í dag. Innlent 12.10.2025 22:12
Hekla Aurora kveður með útsýnisflugi frá Reykjavík Boeing 757-þotan Hekla Aurora, eða Norðurljósaþotan, er að ljúka ferli sínum hjá Icelandair. Af því tilefni efnir félagið til sérstaks kveðjuflugs frá Reykjavíkurflugvelli í hádeginu á morgun, sunnudag. Innlent 11.10.2025 21:21
Gengst við því að hafa grandað farþegaþotunni Vladímír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi þátt rússneskra loftvarna í hrapi aserskrar farþegaþotu í lofthelgi Rússlands í desember á síðasta ári. Þrátíu og átta fórust með flugvélinni. Erlent 10.10.2025 19:59
Vill að nýtt flugfélag taki á loft næsta sumar Eigandi ferðaþjónustufyrirtækjanna Glacier Ventures og Glacier Heli vill að nýtt flugfélag Glacier Airlines hefji flug til og frá Íslandi næsta sumar. Hann segir um að ræða rekstrarmódel þar sem einblínt verður á erlenda ferðamenn og pakkaferðir en ekki að selja Íslendingum flugferðir. Viðskipti innlent 10.10.2025 15:01
Ekki ósanngjarnt af flugfélagi að láta viðskiptavin greiða eigin mistök Kærunefnd hafnaði kröfu viðskiptavinar flugfélags um endurgreiðslu eftir að hann bókaði sjálfur ranga ferð fyrir mistök. Viðskiptavinurinn taldi það ósanngjarnt að fá ekki að lagfæra bókunina. Neytendur 10.10.2025 14:21
Umhverfis- og orkustofnun sektar þrotabú Play um 2,3 milljarða Umhverfis- og orkustofnun mun sekta þrotabú flugfélagsins Play um 2,3 milljarða vegna þess að félagið greiddi ekki losunarheimildir sem það skuldaði og voru á gjalddaga daginn eftir að tilkynnt var um gjaldþrot þess. Viðskipti innlent 8.10.2025 19:13
Risagjalddagi vegna losunarheimilda daginn eftir gjaldþrot Daginn eftir gjaldþrot Play átti flugfélagið að standa skil greiðslu vegna losunarheimilda fyrir rúman milljarð króna. Sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun segir að Ísland njóti sérstöðu hvað varðar greiðslu losunarheimilda. Viðskipti innlent 6.10.2025 16:18
Boeing sagt byrjað að þróa arftaka 737 max-þotunnar Boeing-fyrirtækið er byrjað að þróa nýja gerð mjóþotu með einum miðjugangi í farþegarými til að leysa af 737 max-þotuna í framtíðinni. Markmiðið er að ná til baka markaðshlutdeild sem Boeing hefur verið að tapa til Airbus í þessari stærð flugvéla. Þetta fullyrti bandaríska blaðið Wall Street Journal í liðinni viku og hafði þetta eftir ónafngreindum heimildarmönnum sem sagðir eru þekkja til málsins. Viðskipti erlent 6.10.2025 11:22
Fimm prósenta aukning í september Icelandair flutti alls 479 þúsund farþega í september sem er aukning um fimm prósent á milli ára. Vöxturinn var mikill á markaðnum til Íslands, þar sem farþegafjöldi jókst um 15 prósent milli ára, og á markaðnum frá Íslandi þar sem aukningin var 12 prósent, sem er sagt endurspegla áherslu félagsins á þá markaði. Viðskipti innlent 6.10.2025 08:11
Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Þjóðarflugfélag Grænlendinga, Air Greenland, hefur orðið fyrir stórfelldu fjárhagstjóni vegna metfjölda aflýstra flugferða til nýja flugvallarins í Nuuk. Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir félagið aldrei hafa lent í öðru eins í yfir sextíu ára sögu sinni. Erlent 5.10.2025 22:40
Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Hið gjaldþrota flugfélag Play er sagt skulda Isavia um hálfan milljarð króna. Þrátt fyrir það fengu kínverskir eigendur síðustu Play-vélarinnar á Keflavíkurflugvelli leyfi til að fljúga með vélina úr landi í dag. Innlent 5.10.2025 20:01
Síðasti fuglinn floginn Síðasta flugvélin merkt flugfélaginu Play er farin úr landi og stefnir nú til Noregs. Vélin er í eigu kínversks félags og átti hún að standa á vellinum þar til útistandandi skuldir Play yrðu greiddar samkvæmt nýrri reglugerð innviðaráðherra. Skuldirnar hafa enn ekki verið greiddar. Innlent 5.10.2025 14:15
Segir lítinn sóma af verðhækkunum Icelandair Formaður Neytendasamtakanna segir engan brag af verðhækkunum hjá Icelandair í kjölfar gjaldþrots Play. Þrátt fyrir mikið framboð af flugferðum til og frá Íslands hafa ferðaskrifstofur lent í vandræðum með endurskipulagningu ferða. Neytendur 4.10.2025 21:31
Flogið á ný í München eftir mögulegt drónaflug Flogið er á ný í München eftir að flugvellinum var lokað tvisvar sinnum á einum sólarhring vegna tilkynninga um drónaflug yfir vellinum. Ekki er búið að staðfesta hvaðan drónarnir komu. Lokunin kemur í kjölfar fjölda tilkynninga um drónaflug yfir flugvelli í Evrópu. Erlent 4.10.2025 10:37
Stólarnir fastir í München Leikur Vals og Tindastóls í Bónus-deild karla hefur frestast fram á mánudag. Leikmenn Tindastóls komust ekki heim frá München í Þýskalandi í gær vegna drónaumferðar á flugvellinum. Körfubolti 3.10.2025 13:30
Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Eva Brink hefur verið ráðin forstöðumaður rekstrarstýringar hjá Icelandair og Guðrún Olsen hefur verið ráðin forstöðumaður stefnu og umbreytinga. Viðskipti innlent 3.10.2025 12:59
Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Innviðaráðherra hefur breytt reglum um afskráningu loftfara þannig að framvegis þarf umráðamaður loftfara að leggja fram staðfestingu á að flugvallagjöld hafi verið greidd. Viðskipti innlent 3.10.2025 12:28
Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Sautján flugferðir voru felldar niður og fimmtán vélum vísað annað eftir að loka þurfti flugvellinum í München í gærkvöldi, þegar drónar sáust við völlinn. Erlent 3.10.2025 06:42
Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Eina Play-flugvélin sem er eftir á Íslandi er í eigu kínversks félags en óljóst er hvort, og þá hvenær, eigendurnir geti sótt vélina til Íslands þar sem Play skuldar Isavia lendingargjöld. Innlent 2.10.2025 22:27
„Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Lögfræðingur segir tilfærslu á starfsemi félags frá einu til annars vera skilgreint sem kennitöluflakk samkvæmt gjaldþrotalögum. Forstjóri Play sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem hann hafnar sögusögnum um fyrirfram ákveðna fléttu. Viðskipti innlent 2.10.2025 19:04
Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Fyrrverandi forstjóri Play segir eðilegt að sögusagnir og getgátur fari á flug þegar stórt og þekkt félag fellur. Fólk telji að að baki maltneska dótturfélagi Play sé mikil og úthugsuð flétta. Málið sé þó allt mun einfaldara og því miður dapurlegra en kenningarnar bera með sér. Viðskipti innlent 2.10.2025 17:08
Nýr stjóri Icelandair vildi bara Airbus þegar hann stýrði Play Nýráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, Arnar Már Magnússon, var í lykilhlutverki í ákvörðun flugfélagsins Play að reka eingöngu þotur frá Airbus í A320-línunni. Arnar var í hópi stofnenda Play, gegndi stöðu forstjóra í fyrstu en var einnig flugrekstrarstjóri. Innlent 2.10.2025 15:33
„Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Framkvæmdastjóri Birtu Lífeyrissjóðs telur enga ástæðu til að ætla að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað í tengslum við flutning flugfélagsins Play til Möltu. Þá hafi fjárfestingu sjóðsins í flugfélaginu verið stýrt þar sem vitað var að hún væri áhættusöm. Viðskipti innlent 2.10.2025 12:09
Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Staða framkvæmdastjóra rekstrar hjá Icelandair hefur verið lögð niður og tvö svið sem heyrðu undir hann heyra nú beint undir forstjóra. Samhliða því taka Leifur Guðmundsson og Arnar Már Magnússon sæti í framkvæmdastjórn. Arnar Már var einn af stofnendum Play og gengdi bæði stöðu forstjóra og framkvæmdastjóra rekstrar þar á bæ. Viðskipti innlent 2.10.2025 11:28
Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Flugöryggissérfræðingur sem vann hjá bæði WOW og Play segir að fyrrnefnda félagið hafi hugsað betur um starfsfólk sitt en hið síðarnefnda. Það hafi einkum orðið ljóst eftir breytingar á stjórn Play í fyrra. Hún sakar stjórnendur Play um að reyna að skilja skuldirnar eftir á Íslandi og hefja rekstur upp á nýtt á Möltu. Viðskipti innlent 1.10.2025 23:43
Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. Innlent 1.10.2025 21:40
Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Skuldabréfaeigendur í Play keppast nú við að bjarga dótturfélagi flugfélagsins á Möltu með því að ná samningum á ný við flugvélaleigusala svo starfsemin geti haldið þar áfram. Í upptöku af starfsmannafundi dótturfélagsins á Möltu sem fréttastofu hefur undir höndum kemur fram að leigusalarnir hafi kippt að sér höndum við fall Play á Íslandi og staðan sé flókin. Viðskipti innlent 1.10.2025 12:11
Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og maltneska dótturfélagsins, fékk uppsagnarbréf hvað íslenska félagið varðar afhent fimmtán mínútum eftir starfsmannafund maltneska félagsins og sagði í kjölfarið upp störfum á Möltu. Á fundinum sagði hann að hann væri einn tveggja starfsmanna félagsins á Íslandi sem héldi vinnunni og hann væri viss um að starfsemin á Möltu væri fjármögnuð. Viðskipti innlent 1.10.2025 11:20
Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Sigurður Kolbeinsson, forstjóri Kólumbus ævintýraferða og Ferðaskrifstofu eldri borgara, hvetur stjórnvöld til að fara sömu leið og í Covid og lána ferðaskrifstofum pening svo þau geti greitt fyrir tap vegna gjaldþrots Play. Minni fyrirtæki sérstaklega geti farið illa út úr gjaldþroti Play. Viðskipti innlent 1.10.2025 09:35