Flug

Fréttamynd

„Ég elska þennan flug­völl“

Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins.

Innlent
Fréttamynd

Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust

Ráðamenn Icelandair tilkynntu í dag að flugáætlun félagsins yrði skorin niður um fimm prósent í haust vegna stórhækkunar eldsneytisverðs. Samhliða skoða þeir alvarlega að hætta rekstri Boeing 757-véla félagsins eftir sumarið.

Innlent
Fréttamynd

Gætu lagt 757-þotunum í haust

Icelandair ætlar að draga flugframboð sitt saman um tæp fimm prósent í haust vegna hækkandi eldsneytisverðs. Samdrátturinn verður hlutfallslega meiri á Norður-Ameríkumarkaði en í Evrópu. Félagið hafði þegar brugðist við kostnaðarhækkunum með því að skera framboð niður um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi, hækka fargjöld og herða aðhald í rekstri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ætla að draga enn úr fram­boði Icelandair í haust

Stefnt er að því að Icelandair dragi úr framboði sínu á flugferðum um fimm prósent í haust til þess að bregðast við snörpum verðhækkunum á eldsneyti. Flugfélagið hefur þegar dregið úr framboði, hækkað fargjöld og kostnaðaraðhaldi vegna hækkananna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Það yrðu gríðar­leg von­brigði ef svo væri“

Forstjóri Icelandair telur ekki líkur á því að áhafnarskortur sem leiddi til þess að flugferð til Kaupmannahafnar var aflýst í dag tengist kjaraviðræðum við flugmenn og flugvirkja. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir engar aðgerðir í gangi á vegum félagsins.  Formaður Flugfreyjufélags Íslands tekur í sama streng.

Innlent
Fréttamynd

Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri

Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Telja „tíma­spursmál“ hve­nær Icelandair fer í frekari niður­skurð á flug­fram­boði

Óveðurskýin í rekstrarumhverfi flugfélaga hrannast upp núna þegar verð á þotueldsneyti hefur meira en tvöfaldast frá því að stríðsátökin brutust út við Persaflóa í lok febrúar og að óbreyttu er útlit fyrir, að mati sumra greinenda, að Icelandair þurfi að grípa til sömu aðgerða og aðrir keppinautar með því að skerða enn meira framboð flugsæta til Keflavíkur. Það mun „óhjákvæmilega“ setja mark sitt á innlenda ferðaþjónustu.

Innherji
Fréttamynd

Af­koman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri elds­neytis­kostnaðar

Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.

Innherji
Fréttamynd

Boða fjölgun flug­ferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður

Stjórnvöld hyggjast framlengja samning um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og verður flugferðum tímabundið fjölgað í tvær á dag. Þetta er hluti af aðgerðum til að bregðast við erfiðri stöðu í samgöngumálum Eyjamanna. Fyrirtæki felldi í dag niður bátsferðir sem fyrirhugaðar voru næstu helgi.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna

Flugfélagið Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er minna tap í krónum talið en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam 6,1 milljarði króna. Jákvæð gengisáhrif komu til lækkunar á tapi síðasta árs en Icelandair gerir upp í bandaríkjadölum. Ef horft er til þess þá eykst tap milli ára og fer úr 44,1 milljón dala í 45,3 milljónir dala í ár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aug­lýsa eftir sér­fræðingum í Litáen og endur­skipu­leggja deild

Icelandair stofnaði fyrr á árinu nýtt dótturfélag, Icelandair Third Party Technical Services, í Vilníusi í Litáen, sem annast mun skipulag og eftirlit með viðhaldi flugvéla sem eru í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum Loftleiða, leiguflugsarms Icelandair. Dótturfélagið hefur meðal annars auglýst eftir sérfræðingum í viðhaldsstjórnun. Unnið er að endurskipulagningu deildarinnar sem sinnt hefur sömu verkefnum hér á landi en engum hefur verið sagt upp störfum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Far­þegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir far­angurinn

Flugfarþegar sem sjá handfarangur sinn fara í gegnum öryggisskoðun á Keflavíkurflugvelli átta sig fæstir á því að starfsmennirnir sem rýna í innihaldið sitja á allt öðrum stað í flugstöðinni. Sömu starfsmenn skoða einnig hvað leynist í stóru töskunum sem farþegar innrituðu.

Innlent
Fréttamynd

Mætti hættu­legasta dýri Afríku og hélt að það væri „ein­hver belja“

„Það var einmitt í þetta eina skipti sem flóðhestur tók upp á því að ráðast á bátinn, velta honum og fleygja mér út í vatnið,“ segir hinn 31 árs gamli Torfi Ólafsson sem hefur undanfarin ár starfað sem þyrluflugmaður í Botswana í Afríku. Hann hefur sannarlega lifað ævintýraríku og einstöku lífi, meðal annars verið að stöðva veiðiþjófa á svæðinu og ræddi við blaðamann um sitt daglega líf.

Lífið
Fréttamynd

Lítilli flug­vél hvolfdi við lendingu

Svo virðist sem betur hafi farið en á horfði þegar lítilli tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu á Norðfjarðarflugvelli í dag og hvolfdi. Einn var í flugvélinni og slapp hann án meiðsla, samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Flug með for­tíð og fram­tíð

„Áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, Bíldudals og Gjögurs eru mikilvægustu almenningssamgöngur Vestfirðinga og lífæð byggðanna stóran hluta ársins. Brýnt er að standa vörð um þá þjónustu og öryggi sem flugsamgöngur veita íbúum á Vestfjörðum.”

Skoðun
Fréttamynd

Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni

Eldsneytisbirgðastaða Icelandair er góð og birgjum félagsins standa fjölbreyttar flutningsleiðir til boða. Samkvæmt skýrslu Alþjóðaorkumálastofnunarinnar átti Evrópa aðeins sex vikna birgðir af flugvélaeldsneyti vegna lokunar Hormússunds. Sundið hafði að mestu verið lokað í sex vikur þegar það var opnað á ný í dag í tengslum við tíu daga vopnahlé Ísraelsmanna og Líbana.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samningur um Ísa­fjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair

Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.

Innlent
Fréttamynd

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Innlent
Fréttamynd

CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið

Lágflug farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ síðastliðinn laugardag heldur áfram að vekja heimsathygli en bandarísku sjónvarpsstöðvarnar CNN og ABC hafa nú báðar fjallað um flugið.

Innlent
Fréttamynd

Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll

Grænlendingar fagna á morgun opnun nýs flugvallar við bæinn Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis verður flugvellinum í Narsarsuaq lokað en hann hefur í gegnum áratugina komið mikið við sögu íslenskra flugmála.

Erlent
Fréttamynd

„Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“

„Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, og hlær þegar við spyrjum um mikilvægi flugbrautaljósanna í rekstri vallarins. Flugmennirnir treysta á ljósadýrðina til að hitta á réttan stað.

Innlent