Fréttir
Svikafyrirtæki eykur umsvifin hér Svikafyrirtækið European City Guide er enn að auka umsvif sín hér á landi. Forráðamenn fyrirtækja eru gabbaðir til að samþykkja skráningu í gagnabanka án endurgjalds en síðan rukkaðir um tugi þúsunda. Innlent 23.10.2005 14:59
Mál Auðar Laxness tekið fyrir Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málinu var vísað frá Héraðsdómi fyrr á árinu vegan ýmissa annmnarka á stefnunni að mati dómsins, m.a. að lýsing málsástæðna væri ágripskennd. Hæstiréttur vísaði svo málinu aftur í hérað í síðustu viku. Innlent 23.10.2005 14:59
Sakir aðeins fyrndar að hluta Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar enn möguleg brot stjórnenda Lífeyrissjóðs Austurlands þó svo að sakir stjórnarmanna vegna eftirlitsábyrgðar kunni að vera fyrndar. Aðstandendur kæru hafa eftir lögreglu að hylli undir lok rannsóknar. Innlent 23.10.2005 14:59
Skutu eldflaugum á Gasaborg Ísraelskar hersveitir skutu tveimur eldflaugum á Gasaborg í morgun með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í allri austanverðri borginni. Eldflaugarnar lentu á verksmiðjubyggingu þar sem Ísraelar segja að fari fram vopnaframleiðsla en Palestínumenn segja það ekki vera rétt. Enginn særðist í árásinni. Erlent 23.10.2005 14:59
Fékk 27 ára fangelsi Hæstiréttur Spánar dæmdi í dag meintan leiðtoga Al-Qaida á Spáni í 27 ára fangelsi fyrir samsæri í tengslum við hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Hann var sýknaður af ákærum um morð í árásunum. Erlent 23.10.2005 14:59
Hámaði í sig veiðihníf Jon-Paul Carew, dýralækni í bænum Plantation í Flórída, brá heldur betur í brún þegar hann skoðaði röntgenmyndir af St. Bernhardshvolpinum Elsie. Í ljós kom að í maga hennar var rúmlega 33 sentimetra langur veiðihnífur með hvössum oddi og sagarblaði. Erlent 23.10.2005 14:59
Áhugi á tungumálum minnkar eilítið Áhugi grunn- og framhaldsskólanema á erlendum tungumálum virðist hafa minnkað ef marka má nýjar tölur sem Hagstofa Íslands birtir á degi tungumála í Evrópu, sem er í dag. Þar kemur fram að skólaárið 2003-2004 lögðu 73,9 prósent nemenda á framhaldsskóla stund á nám í einhverju erlendu tungumáli en ári síðar hafði hlutfallið lækkað í 73,0 prósent. Frá árinu 1999 hefur nemendum sem læra erlend tungumál fækkað um 2,8 prósentustig. Innlent 23.10.2005 14:59
Ríkislögreglustjóri útskýri tafir Ríkislögreglustjóri verður að útskýra hvers vegna embættið hefur lítið eða ekkert aðhafst í nokkrum stórum málum á sama tíma og miklum tíma var varið í rannsókn Baugsmálsins segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, í pistli á heimasíðu sinni. Innlent 23.10.2005 14:59
Merkel vill leiða viðræðurnar Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi segir að stjórnarmyndunarviðræður við jafnaðarmenn geti ekki haldið áfram nema þeir fallist á að hún leiði viðræðurnar. Erlent 23.10.2005 14:59
Aftur fjallað um Halldór Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mál Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fyrir höfundarréttarbrot við ritun á bókinni Halldór, um Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness. Málinu hafði áður verið vísað frá, en var aftur vísað heim í hérað af Hæstarétti. Innlent 23.10.2005 14:59
Yrði nefndin óháð? Stjórnarskrá Íslands gerir ráð fyrir að Alþingismenn sitji í rannsóknarnefnd um Baugsmálið ef til þess kemur að slík nefnd verði skipuð. Sigurður Líndal lagaprófessor telur að það yrði mjög erfitt að sannfæra almenning um að nefndin yrði í raun og veru óháð. Slík nefnd var síðast skipuð fyrir fimmtíu árum. Innlent 23.10.2005 14:59
Spyr um einkaspæjara á vegum Baugs Styrmir Gunnarsson, ritstjóri <em>Morgunblaðsins,</em> varpar í dag fram þeirri spurningu hvort satt sé að einhverjir aðilar á vegum fyrrverandi viðskiptafélaga Jóns Geralds Sullenbergers hjá Baugi hafi ráðið einkaspæjara í Bandaríkjunum til þess að rannsaka einkahagi hans og eiginkonu hans og líf þeirra allt. Innlent 23.10.2005 14:59
Nokkur óhöpp vegna illviðriðs Slæm akstursskilyrði hafa verið á Hellisheiði og í Svínahrauni í morgun vegna krapa, hálku og hvassviðris. Bifreið fór út af og valt við Litlu-kaffistofuna, en ekki er vitað til að þar hafi orðið slys á fólki. Þá fór lítil fólksflutningabifreið út af veginum rétt ofan við Kamba. Fjórir farþegar voru í bifreiðinni og slasaðist einn lítils háttar. Innlent 23.10.2005 14:59
Yfirlýsing stangast á við viðtal Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Jón Steinar Gunnlaugsson, þá lögmaður Jóns Geralds Sullenberger í Baugsmálinu, hefði sent Styrmi Gunnarssyni gögn um málið án vitundar eða samþykkis Jóns Geralds. Jón Gerald staðfesti það í viðtali við Fréttablaðið, sunnudaginn 26. september, eins og fram kemur hér að neðan. Innlent 23.10.2005 14:59
Styrmir svarar Aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins vissi af afskiptum Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra blaðsins, af Baugsmálinu. Hann telur að ritstjórinn hafi gefið fullnægjandi skýringar á aðkomu sinni að málinu á starfsmannafundi sem haldinn var í dag. Ritstjóri Morgunblaðsins íhugar að birta gögn sem sýna innanhússsamskipti forsvarsmanna Baugs og viðskiptaaðila á Flórída. Innlent 23.10.2005 14:59
Verður ekki kærður fyrir neitt Lögreglan í Texas handtók Aron Pálma Ágústsson í nótt, að íslenskum tíma, þar sem hann var í neyðarskýli Rauða krossins. Aron Pálmi segir lögreglumenn hafa beðið sig um að koma út fyrir neyðarskýlið og sagt honum þar að hann mætti ekki dvelja í skýlinu. Eftir það hafi hann verið fluttur í fangelsi og verið sagt að hann mætti ekki yfirgefa það þó hann yrði ekki kærður fyrir neitt. Erlent 23.10.2005 14:59
Sigur fyrir Sharon Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, náði naumum sigri í gærkvöldi þegar kosið var um tillögu andstæðinga hans innan Líkúd-bandalagsins um að flýta aðalfundi og þar með formannskosningu. Erlent 23.10.2005 14:59
Hefði frekar haldið sig heima Aron Pálmi Ágústsson segir að hann hefði frekar haldið sig heima þegar fellibylurinn Ríta reið yfir en að fara burt með Rauða krossinum hefði hann búist við að verða handtekinn. Erlent 23.10.2005 14:59
Beindi Jónínu til yfirvalda Jónína Benediktsdóttir sagðist ætla að birta gögn frá Jóni Geraldi Sullenberger um Baug ef hún fengi ekki greiðslur sem hún taldi sig eiga inni hjá Baugi. Tryggvi Jónsson hvatti hana til að snúa sér til yfirvalda með gögnin. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 14:59
Olíuverð lækkar á heimsmarkaði Hráolíuverð fer nú lækkandi á heimsmarkaði eftir að ljóst er að fellibylurinn Ríta olli mun minna tjóni á olíumannvirkjum i Texas en óttast var. Nokkrar olíuhreinsistöðvar í Texas eru þó enn óvirkar vegna rafmagnsleysis en þær geta hafið framleiðslu um leið og rafmagn kemst aftur á. Bandarísk stjórnvöld ætla að setja eitthvað af varabirgðum sínum á almennan markað á meðan. Erlent 23.10.2005 14:59
Afvopnun Norður-Írlands staðreynd Mikilvægum áfanga í átt til endanlegs friðar á Norður-Írlandi var náð í gær þegar óháð vopnaeftirlitsnefnd lýsti því yfir að Írski lýðveldisherinn hefði afvopnast að fullu. Mótmælendur hafa þó efasemdir um afvopnunina. Erlent 23.10.2005 14:59
Stærsta jarðvarmahitaveita heims Fyrirhugað er að reisa sem til verður í heiminum í borginni Xianyang í Kína með þátttöku Íslendinga. Kínversk sendinefnd er nú í heimsókn á Íslandi til að kynna sér nýtingu jarðhita. Innlent 23.10.2005 14:59
Óveður á Vestfjörðum Vegagerðin varar við óveðri á Vestfjörðum auk þess sem ófært er á nokkrum stöðum. Óveður er á Klettshálsi þar sem jafnframt er ófært vegna snjóa og eins er óveður og hálka á Gemlufallsheiði. Þá er ófært á Hrafnseyrarheiði og eins á Eyrarfjalli. Á Suðurlandi er krapi á vegi frá Kirkjubæjarklaustri og vestur fyrir Vík í Mýrdal. Innlent 23.10.2005 14:59
Öllum vopnum eytt Írski lýðveldisherinn hefur eytt öllum vopnum sem samtökin notuðu í baráttunni gegn breska hernum á Norður-Írlandi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar sem hefur fylgst með því hvort lýðveldisherinn standi við loforð sínum um afvopnun. Erlent 23.10.2005 14:59
Latibær sýndur á BBC Latibær verður tekinn til sýninga á bresku sjónvarpsstöðinni BBC næsta mánudag. Samningar sem tryggja BBC sýningarrétt á þáttunum til næstu fimm ára verða undirritaðir fyrir hádegi í dag. Þættirnir verða sýndir á BBC og kapalrásum fyrirtækisins CBBC og CBeebis sem beint er að börnum. Innlent 23.10.2005 14:59
Kosningum flýttt í Grænlandi Kosningum í Grænlandi, sem fram áttu að fara 22. nóvember, hefur verið flýtt um viku til þess að ný landsstjórn komist fyrr til starfa. Hans Enoksen, formaður landsstjórnarinnar, boðaði til kosninganna fyrr í mánuðinum eftir deilur Síumútflokksins, sem Enoksen fer fyrir, og samstarfsflokksins Ínúíska bræðralagsins, um fjárlög, en auk þess voru tveir ráðherrar úr Síumútflokknum sakaðir um að sóa almannafé. Erlent 23.10.2005 14:59
Kennarar teknir af lífi Fimm grunnskólakennarar voru teknir af lífi í þorpinu Muelha, skammt suður af Bagdad í gær. Kennararnir, sem allir voru úr hópi sjía, voru á leið heim úr vinnu þegar uppreisnarmenn, dulbúnir sem lögreglumenn, stöðvuðu bifreið þeirra, leiddu þá aftur inn í kennslustofu og skutu til bana. Erlent 23.10.2005 14:59
Nafngiftir hafa áhrif á lyktarskyn Nafngiftir hafa áhrif á hvernig við skynjum lykt af ólíkum hlutum. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem greint er frá á vefsíðu BBC. Erlent 23.10.2005 14:59
Ástralir styðja Indónesa í baráttu Ástralar munu gefa Indónesum 50 þúsund skammta af lyfinu Tamilflu til þess að hjálpa þeim að berjast við fuglaflensu sem þegar hefur dregið sex manns til dauða í Indónesíu. Frá þessu greindi utanríkisráðherra Ástralíu í dag. Erlent 23.10.2005 14:59
Allt með vitund Jóns Geralds Jón Gerald Sullenberger segir að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi aldrei tekið neinar ákvarðanir varðandi mál sitt gegn Baugi, án fullrar vitundar og samþykkis Jóns Geralds. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Jón Gerald sendi fjölmiðlum rétt í þessu. Innlent 23.10.2005 14:59