Fréttir

Fréttamynd

5-10 aðilar fá að bjóða í smíði nýs varðskips

Farið verður í forval á skipasmíðastöðvum sem uppfylltu ákveðin skilyrði m.t.t. rekstrarstöðu og reynslu af sambærilegum verkefnum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Þetta tilkynnti Björn Bjarnason á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í kjölfar forvals verða valdir 5-10 aðilar sem síðan fá að bjóða í smíði á nýju fjölnota varðskipi.

Innlent
Fréttamynd

Ívar og félagar á toppinn

Reading, lið Ívars Ingimarssonar í ensku fyrstu deildinni, komst í gærkvöld á toppinn þegar það vann góðan 3-0 sigur á Ipswich á útivelli. Ívar var að venju í byrjunarliði Reading og átti stóran þátt í einu marka sinna manna.

Sport
Fréttamynd

Skilyrðum símapeninga við lagningu Sundabrautar aflétt

Vegagerðin er tilbúin að aflétta skilyrðum sem fylgdu símapeningunum við fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut. Vegagerðin telur nauðsynlegt að skoða allt málið í heild sinni í ljósi ákafra mótmæla íbúasamtaka Grafarvogs og Laugardals.

Innlent
Fréttamynd

Heiðurslaun til 27 listamanna á næsta ári

27 listamenn munu fá heiðurslaun á næsta ári samkvæmt tillögu menntamálanefndar sem lögð hefur verið fram. Hver listamaður fær 1,6 milljónir króna og því nema launin samtals 43,2 milljónum.

Innlent
Fréttamynd

Sirleaf lýst sigurvegari í forsetakosningum í Líberíu

Ellen Johnson-Sirleaf varð í dag fyrsta konan sem kjörin er þjóðarleiðtogi í Afríkuríki þegar kjörstjórn í Líberíu lýsti hana sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru 8. nóvember síðastliðinn. Sirleaf, sem var áður fjármálráðherra landsins og er menntaður hagfræðingur, bar sigurorð að fyrrverandi knattspyrnuhetjunni George Weah sem hefur haldið því fram að svindlað hafi verið í kosningunum.

Erlent
Fréttamynd

Vopnaðir menn drápu feðga í Bagdad

Vopnaðir menn í einkennisbúningi íraskra hermanna skutu og drápu í nótt sjötugan súnníta og þrjá syni hans á heimili þeirra í Bagdad. Konurnar á heimilinu voru látnar í friði.

Erlent
Fréttamynd

Ekið á unglinsstúlku við Suðurlandsbraut

Ekið var á unglingsstúlku þar sem hún var á gangi við Suðurlandsbraut á tíunda tímanum í morgun. Ekki er ljóst hver aðdragandi slyssins varð en stúlkan slapp vel að sögn lögreglu. Hún var þó flutt með sjúkrabíl á slysadeild en meiðsli hennar reyndust minni háttar.

Innlent
Fréttamynd

Átta milljónir án vatns í Harbin í Kína

Yfir átta milljónir manna eru nú án vatns í borginni Harbin í Kína. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa borgarinnar þegar ákveðið var að loka fyrir vatnsveitu borgarinnar en ástæðan var sprenging í efnaverksmiðju sem varð á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Pallbíll og lest skullu saman í Tyrklandi

Að minnsta kosti níu manns fórust og um tuttugu slösuðust þegar farþegalest skall á pallbifreið í suðurhluta Tyrklands í dag. Pallbifreiðin var að flytja vinnumenn á bóndabæ, en allir þeir sem létust voru í bifreiðinni. Bifreiðin var að aka þvert yfir lestarteina þegar slysið varð. Lestarslys eru tíð í landinu en þetta var það fjórða í landinu á síðustu tveimur árum.

Erlent
Fréttamynd

Enn einu sinni bilun á Farice-streng

Farice-strengurinn hefur enn einu sinni farið í sundur við Skotland, nú á milli Elgin og Inverness. Bilanaleit er þegar hafin en bilunin hefur áhrif á netumferð til útlanda og gæti einnig valdið truflunum á símasambandi við útlönd.

Innlent
Fréttamynd

Orðalagið ekki við hæfi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýnir Morgunblaðið fyrir umfjöllun blaðsins um veru forsetans við embættistöku furstans af Mónakó, í athugasemdum við skrif blaðsins sem birtust í Staksteinum í Morgunblaðinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ísraelskir hermenn særðu palestínska unglinga

Sex palestínskir unglingar særðust alvarlega þegar ísraelskir hermenn skutu þá eftir áhlaup á borgina Jenín á Vesturbakkanum í morgun. Þá særðust einnig þrír hermenn í átökunum við uppreisnarmennina. Jenín hefur verið vettvangur blóðugustu átakanna sem hafa átt sér stað frá því að Palestínumenn hófu uppreisn fyrir fimm árum.

Erlent
Fréttamynd

Ísraelsþing samþykkir nýjan flokk Sharons

Ísraelska þingið lagði í dag blessun sína yfir hinn nýja miðjuflokk Ariels Sharons forsætisráðherra sem hann stofnaði á mánudaginn eftir að hann sagði sig úr Likud-bandalaginu. Flokkurinn hefur enn ekki fengið nafn en hefur stuðning sextán þingmanna á ísraelska þinginu, 15 sem áður voru í Likud-bandalaginu og eins úr Verkamannaflokknum.

Erlent
Fréttamynd

Tyrkir vilja loka dansk-kúrdískri sjónvarpsstöð

Tyrknesk yfirvöld krefjast þess að dönsk yfirvöld hlutist til um að loka dansk-kúrdísku útvarpsstöðinni Roj TV sem sendir út frá Danmörku. Sjónvarpssöðin er til rannsóknar grunuð um tengsl við hryðjuverkasamtök og er sögð taka við fé frá PKK, aðkilnaðarsinnarsinnum Kúrdíska verkamannaflokksins. Sjónvarpsstöðin hefur undanfarið sent út áróður PKK, gegn tyrknesku ríkisstjórninni þar sem hvatt er til uppreisna. Utanríkisráðherra Dana, Per Stig Möller, segir að hann ætli ekki að blanda sér í málið, heldur leyfa lögreglunni að ljúka rannsókninni.

Innlent
Fréttamynd

Sífellt fleiri rottur ónæmar fyrir eitri í Danmörku

Æ fleiri rottur í Danmörku eru verða ónæmar fyrir þeim eiturefnum sem notuð hafa verið til að drepa þær. Greint er frá því í Politiken í dag að stórum hluta landsins hafi meindýraeyðar fundið rottur sem þola vel þrjú af sex eiturefnum sem finnast á markaðnum.

Erlent
Fréttamynd

Barir lengur opnir á Bretlandi frá miðnætti

Ný lög um afgreiðslutíma vínveitingastaða í Bretlandi taka gildi á miðnætti í kvöld en þá verður eigendum staðanna leyft að hafa opið allan sólarhringinn kjósi þeir það. Hingað til hafa barir aðeins mátt vera opnir til klukkan 11 en frá og með morgundeginum geta bjórþyrstir Bretar setið lengur að sumbli á fjölmörgum stöðum.

Erlent
Fréttamynd

Virðisaukaskattur ofáætlaður

Nær allur virðisaukaskattur sem skattayfirvöld áætluðu á fyrirtæki og einstaklinga sem ekki töldu fram á síðasta ári var látinn niður falla að því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Innlent
Fréttamynd

Tveir flokkar og hærri vextir

Íbúðalánasjóður býður upp á tvo lánaflokka frá og með deginum í dag. Fólk getur valið þau lán sem hafa staðið til boða hingað til og bera hér eftir 4,6 prósenta vexti sem er hækkun upp á 45 punkta, eða lán sem ekki er hægt að greiða upp nema gegn sérstakri uppgreiðsluþóknun og þá eru vextirnir 4,35 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Tölvuþrjótar breyta aðferðum sínum

Tölvuþrjótar hafa í auknum mæli snúið sér frá því að ráðast á stýrikerfi tölva og kjósa frekar að ráðast á ýmis önnur forrit til þess að fá aðgang að netjónum sem og tölvum. Samkvæmt nýlegri rannsókn Bandaríska heimavarnarráðuneytisins og innra öryggiseftirlits bresku ríkisstjórnarinnar eru alls kyns afspilunarforit og vírusvarnarforrit meðal þeirra forrita sem þeir einbeita sér að í auknum mæli.

Innlent
Fréttamynd

Fangar pakka inn jólakortum

Fangar í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og Fangelsinu á Akureyri eru nú teknir til við hjálparstarf í þágu munaðarlausra barna í Úganda, Indlandi, Pakistan og á Filippseyjum.

Innlent
Fréttamynd

SPRON hækkar íbúðalánavexti

SPRON hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána úr 4,15 prósentum í 4,35 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjónunum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Samkynhneigðir ótækir sem prestar, segir Vatíkantið

Vatíkanið segir að samkynhneigðir menn sem stundi kynlíf séu ótækir til að gegna prestsembættum nema þeir hafi haft taumhald á samkynhneigðinni í að minnsta kosti þrjú ár. Kemur þetta fram í skjali sem ítalska fréttastofan Adista hefur birt á netinu.

Erlent
Fréttamynd

Þingkosningar í Ísrael 28. mars

Þingkosningar verða haldnar í Ísrael þann 28. mars á næsta ári. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Jerúsalem í gær. Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, sagði sig úr Likud-bandalaginu í vikunni en hann hyggst stofna nýjan flokk og hefur boðið Simoni Perez um að ganga til liðs við sig í flokki, sem hann kallar hófstilltan miðjuflokk.

Erlent
Fréttamynd

Sakfelldur fyrir aðild að al-Qaida í Bandaríkjunum

Hinn 24 ára gamli Ahmed Omar Abu Ali var í gær fundinn sekur af alríkisdómstól í Bandaríkjunum um aðild að hryðjuverkasamtökunum al-Qaida og samsæri um að ætla að ráða George Bush Bandaríkjaforseta af dögum.

Erlent
Fréttamynd

Ítalskir hermenn heim frá Írak

Ítalir ætla að draga herlið sitt heim frá Írak. Áætlanir um brottflutning hersins verða kynntar í janúar á næsta ári. Varnarmálráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, hitti Antonio Martino, varnarmálaráðherra Ítalíu, í gær þar sem Martino tilkynnti honum um áætlanir Ítala.

Erlent