Fréttir

Fréttamynd

Frakkar hafna útspili Breta

Frakkar höfnuðu áðan nýjasta útspili Breta um fjárlagafrumvarp Evrópusambandsins fyrir árin 2007 - 2013. Utanríkisráðherra Frakka sagði að þeir gætu ekki samþykkt tillögur Breta, sem gera ráð fyrir að Frakkar gefi eftir stóran hluta landbúnaðarstyrkja sinna, nema endurgreiðslur sambandsins til Breta yrðu endurskoðaðar frá grunni.

Erlent
Fréttamynd

Michelin hættir eftir næsta keppnistímabil

Dekkjaframleiðandinn Michelin hefur gefið það út að hann muni hætta að framleiða hjólbarða fyrir Formúlu 1 eftir tímabilið 2006, en ákvörðun þessi kemur í kjölfar þess að alþjóða aksturssambandið, FIA, ákvað á dögunum að öll dekk í keppnum frá og með árinu 2008 skuli vera frá sama framleiðandanum.

Sport
Fréttamynd

Þrír Palestínumenn féllu á Gaza í dag

Þrír Palestínumenn létu lífið í loftárás Ísraelsmanna á Gaza ströndinni eftir hádegið í dag. Að sögn vitna var sprengju skotið úr flugvél og hafnaði hún beint á bifreið sem í voru palestínskir uppreisnarmenn. Fjórir slösuðust í árásinni. Bíllinn var hlaðinn sprengiefni og því myndaðist mikil sprenging þegar loftskeytið lenti á bílnum.

Erlent
Fréttamynd

Heilsaði aftur að hætti fasista

Hinn skrautlegi Paolo di Canio hjá Lazio er aftur kominn í fréttirnar á Ítalíu eftir að hann heilsaði áhorfendum að fasistasið með útréttri hendi í leik gegn Livorno um helgina, en hann var fyrir skömmu sektaður um háa fjárhæð fyrir að gera slíkt hið sama þegar hann fagnaði marki.

Sport
Fréttamynd

Segir helförina sögusögn

Helförin er sögusögn sem var notuð sem átylla til að skapa gyðingaríki í hjarta hins íslamska heims. Þetta sagði forseti Írans í morgun og tókst með því enn og aftur að fá leiðtoga heimsins upp á móti sér.

Erlent
Fréttamynd

Þriggja ára í piparkökubakstri

Yfir 720 klukkustundir fóru í piparkökubakstur fyrir Piparkökuhúsaleik Kötlu í Kringlunni. Leikurinn er fastur liður í jólaundirbúningnum. Börnum sem taka þátt fjölgar. Yngsti keppandinn er aðeins 3 ára gamall.

Lífið
Fréttamynd

Bjartsýnn á að Walcott skrifi undir nýjan samning

Huw Jennings, þjálfari ungmennaliðs Southampton, segist viss um að ungstirnið Theo Walcott muni taka af allan vafa um framtíð sína fljótlega með því að gera sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið, en Walcott þessi er aðeins 16 ára gamall og hefur verið orðaður við Chelsea og Arsenal.

Sport
Fréttamynd

Jarðskjálfti upp á 3 á Richter úti fyrir Grímsey

Jarðskjálfti upp á þrjá á Richter mældst um tólf kílómetra norður af Grímsey í nótt. Frá því í gær hafa 16 skjálftar mælst þar, flestir minni en tveir að stærð. Jarðskjálftahrinur eru algengar á þessu svæði.

Innlent
Fréttamynd

Fannst tveim mánuðum eftir skjálftann

Kona fannst á lífi í húsarústum í Pakistan, tveimur mánuðum eftir að jarðskjálfti, sem reið yfir Kasmírhérað, lagði hús hennar í rúst. Læknar segja kraftaverk að konan skuli vera á lífi.

Erlent
Fréttamynd

Verður frá út árið

Markvörðurinn Gianluigi Buffon hjá Juventus er meiddur og verður frá út árið eftir að hafa meiðst á tá á æfngu. Buffon mun því missa af í það minnsta tveimur leikjum en vonir standa til um að hann verði orðinn klár í slaginn þann 7. janúar þegar Juve sækir Palermo heim. Buffon hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili, en hann er einnig ítalskur landsliðsmaður.

Sport
Fréttamynd

Þrjú sæti laus í hópnum fyrir HM

Sven-Göran Eriksson hefur gefið það út að enn séu þrjú sæti laus í leikmannahópi sínum fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Eriksson hefur þegar nefnt 20 manna hóp, en hann ætlar sér að hafa 23 manna hóp á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Vodafone fer frá Ferrari til McLaren

Fjarskiptarisinn Vodafone hefur náð samningi við McLaren-liðið í Formúlu 1 um að verða aðal styrktaraðili liðsins frá og með árinu 2007. Vodafone hefur verið hjá erkifjendunum Ferrari síðan árið 2002 og hefur skaffað ítalska liðinu um 23 milljónir punda á ári, en nú er ljóst að þeir styðja við bakið á keppinautum þeirra eitthvað fram á næsta áratug. Ekki hefur enn verið gefið upp hve hár samningurinn er.

Sport
Fréttamynd

Celtic toppar listann í dag

Það nýjasta að frétta af írska miðjumanninum Roy Keane er það að uppáhalds lið hans í æsku, Glasgow Celtic, sé líklegasta liðið til að landa honum eftir að samningar sigldu í strand milli hans og Real Madrid.

Sport
Fréttamynd

Hefur brennt allar brýr og ætti að hætta strax

Breski almannatengslasérfræðingurinn Max Clifford telur að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United sé búinn að brenna allar brýr að baki sér í samskiptum sínum við fjölmiðla og telur að honum væri hollast að segja af sér á meðan hann haldi enn einhverri reisn.

Sport
Fréttamynd

Dregið í undanúrslit

Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í karlaflokki í bikarkeppninni. Það verða annarsvegar Stjarnan og ÍBV og hinsvegar Haukar og Fram sem mætast í undanúrslitunum. Leikirnir fara fram um miðjan febrúar.

Sport
Fréttamynd

Hjálmar leiðréttir misskilning sinn

Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir sér bæði ljúft og skylt að leiðrétta misskilning sinn um tímasetningu ráðgjafar ríkislögmanns í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, gegn ríkinu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hjálmar sendi frá sér í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ragnhildur Geirsdóttir ráðin forstjóri Promens hf.

Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrverandi forstjóri Flugleiða, hefur verið ráðin forstjóri Promens hf. frá 1. janúar næstkomandi. Ragnhildur starfaði hjá FL Group frá árinu 1999, sem framkvæmdastjóri rekstrarstýringar frá 2003 og sem forstjóri félagsins á árinu 2005.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Matvæli dýrust á Íslandi af löndum Evrópu

Matvæli er dýrust á Íslandi af löndum Evrópu. Matvöruverð hérlendis er 42 prósentum hærra en að meðaltali í löndum Evrópusambandsins. Innflutningshömlur á búvörum eru talin helsta skýringin, að því er fram kemur í skýrslu samkeppniseftirlita á Norðurlöndum, sem kynnt var í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Tap hjá Magdeburg

Magdeburg tapaði í gær fyrir Flensburg á heimavelli sínum 37-32 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg og Arnór Atlason tvö, en Magdeburg hefur ekki tekist að halda í við efstu liðin í deildinni undanfarið. Þá vann Lemgo auðveldan sigur á Delitzsch 34-24, en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað hjá Lemgo í gær.

Sport
Fréttamynd

Riley stýrði Miami til sigurs í fyrsta leik

Miami Heat bar sigurorð af Chicago Bulls í nótt í fyrsta leik Pat Riley sem þjálfara, en hann tók við af Stan Van Gundy á dögunum eftir að sá síðarnefndi ákvað að hætta af fjölskylduástæðum. Riley og félagar þurftu að hafa nokkuð fyrir sigrinum, en þriggja stiga skot frá Chicago sem hefði getað jafnað leikinn á lokasekúndunni vildi ekki ofan í.

Sport
Fréttamynd

Tíðni ungbarnadauða í heiminum lægst á Íslandi

Tíðni ungbarnadauða í heiminum er lægst á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem birt var í morgun. Hundruð milljóna barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum.

Innlent
Fréttamynd

Fréttablaðið fær ekki afhent gögnin

Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn gerði upptæk í máli Jónínu Benediktsdóttur, að sögn lögmanns Jónínu. Hann segir lögbann sýslumannsins í Reykjavík enn vera í gildi, en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Kára Jónasson af skaðabótakröfu Jónínu í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Fréttablaðið sýknað

Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að fullnaðarsigur hafi fengist í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu vegna birtinga þess á tölvupóstum hennar. Dómur var kveðinn upp í málinu fyrir stundarfjórðungi á þá leið að ritstjóri Fréttablaðsins, Kári Jónasson, var sýknaður af skaðabótakröfu Jónínu.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri vilja íslenskt vatn

Útflutningur á íslensku vatni hefur aukist um þriðjung frá síðasta ári, en það er þrátt fyrir að síðustu þrír mánuðir þessa árs séu ekki taldir með. Forstjóri stærsta vatnsútflytjandans á íslensku vatni segir þó langt því frá að fyrirtækið sé dottið í lukkupottinn.

Innlent
Fréttamynd

Dómur kveðinn upp í máli Jónínu Ben gegn Fréttablaðinu

Dómur verður kveðinn upp í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn Fréttablaðinu og Kára Jónassyni, ritstjóra blaðsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter í ellefu. Málið snýst um tölvupósta Jónínu sem Fréttablaðið birti upplýsingar úr snemma í haust. <b>Bein útsending NFS frá Héraðsdómi er aðgengileg á VefTV Vísis. Dómur verður kveðinn upp klukkan 10:30</B>

Innlent
Fréttamynd

Kaupa 115 Dreamliner-þotur frá Boeing

Ástralska flugfélagið Quantas ætlar að kaupa allt að 115 nýjar Boeing 787 Dreamliner-þotur áður en langt um líður í langþráðri endurnýjun vélaflota síns. Talsmaður flugfélagsins, sem er hið áttunda stærsta í heiminum, segist búast við að kostnaðurinn við kaup vélanna muni vera allt að tuttugu milljónir ástralskra dala, eða tæplega þúsund milljarðar króna.

Erlent