Sport

Vodafone fer frá Ferrari til McLaren

Ferrari-bíllinn mun bera merki Vodafone út næsta keppnistímabil, en prýðir eftir það bíla McLaren
Ferrari-bíllinn mun bera merki Vodafone út næsta keppnistímabil, en prýðir eftir það bíla McLaren NordicPhotos/GettyImages
Fjarskiptarisinn Vodafone hefur náð samningi við McLaren-liðið í Formúlu 1 um að verða aðal styrktaraðili liðsins frá og með árinu 2007. Vodafone hefur verið hjá erkifjendunum Ferrari síðan árið 2002 og hefur skaffað ítalska liðinu um 23 milljónir punda á ári, en nú er ljóst að þeir styðja við bakið á keppinautum þeirra eitthvað fram á næsta áratug. Ekki hefur enn verið gefið upp hve hár samningurinn er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×