Fréttir

Fréttamynd

Gríðarlegur áhugi á flugfélögum

Hlutabréf í FL-Group hækkuðu um fjögur komma átta prósent í dag. Bréf í félaginu hafa meira en tvöfaldað sig á síðustu 12 mánuðum. Þá er gríðarlegur áhugi á öðru flugfélagi, Avion Group, en hlutafjárútboði félagsins lauk í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fengu kæsta skötu í leikskólanum

Börnin á leikskólanum Urðarhóli í Kópavogi fengu öllu lyktmeiri mat í hádeginu í dag en þau eru vön. Þar var, líkt og svo víða, boðið upp á skötu á Þorláksmessunni. Viðbrögð barnanna voru mismunandi. Sum biðu spennt eftir að fá fisk diskinn sinn en önnur virtust full efasemda um þetta lyktsterka sjávarmeti.

Innlent
Fréttamynd

Nautgriparækt rekin með bullandi tapi

Nautakjötsframleiðendur hafa litlar eða engar tekjur haft af búum sínum og halda þetta ekki út miklu lengur nema samkeppnisstaða þeirra verði bætt. Landbúnaðarráðherra segir það koma til greina að því gefnu að forystumenn bænda séu hlynntir styrkjum til þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Friðargangan að hefjast

Árleg friðarganga friðarhreyfinga í Reykjavík hefst nú klukkan sex. Búist var við að um fimm þúsund manns myndu mæta í gönguna en ófriðurinn í Írak og fleiri stöðum í heiminum er mörgum tilefni til að krefja ráðmenn heimsins um friðsamlegar lausnir deilumála. Þá verða einnig farnar friðargöngur á Akureyri og á Ísafirði í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Einn á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Akureyri

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir nokkuð harðan árekstur á gatnamótum Tryggvabrautar og Hjalteyrargötu á Akureyri skömmu eftir hádegi í dag. Að sögn lögreglu var maðurinn ekki talinn alvarlega meiddur en þó var talið æskilegt að hann gengist undir læknisskoðun.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Alþingi komi saman milli jóla og nýárs

Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna eru reiðubúnir að koma saman til fundahalda milli jóla og nýárs vegna nýgengins úrskurðar Kjaradóms um laun æðstu embættismanna. Þessu er lýst yfir í bréfi sem formenn stjórnarandstöðuflokkanna sendu forsætisráðherra í dag.

Innlent
Fréttamynd

Jólin undirbúin í Bagdad

Undirbúningur jólanna er nú í hámarki nánast um allan heim, þar með talið í hinu stríðshrjáða Írak. Þrátt fyrir að langstærsti hluti íbúa landsins sé íslamstrúar má finna kristið fólk hér og þar, ekki síst í höfuðborginni, Bagdad.

Erlent
Fréttamynd

Lögregla lýsir eftir stolinni bifreið

Aðfaranótt síðastliðins þriðjudags var bifreiðinni LV 026 stolið af bifreiðastæði við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Bifreiðin er svört Audi A4. Þeir sem hugsanlega verða varir við bifreiðina eru beðnir að láta lögreglu vita.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú innbrot í Reykjavík í morgun

Tilkynnt var um þrjú innbrot í Reykjavík í morgun. Brotist var inn í húsnæði í endurbyggingu í austurborginni í einu tilvikinu. Þaðan var stolið miklu magni rafmagnsverkfæra og annarra verkfæra. Þá var brotist inn í íbúð á Grettisgötu og tækjum stolið úr Borgarholtsskóla, þar sem reyndar var farið inn um opnar dyr.

Innlent
Fréttamynd

Hver að verða síðastur að ná sér í jólatré

Jólatré eru að seljast upp, í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu, og fer hver að verða síðastur til að ná sér í slíkt stofustáss. Mikil aukning hefur verið á sölu jólatrjáa milli ára og nú er svo komið að kaupmenn sjá fram á að þau seljist upp.

Innlent
Fréttamynd

Búist við að velta í verslun aukist um þriðjung milli ára

Kaupmenn búast við að veltan í jólamánuðinum aukist um þriðjung að meðaltali á milli ára. Aukinn kaupmáttur er sagður aðalástæða þess. Lausleg og óformleg könnun fréttastofu NFS leiðir hins vegar í ljós að flestir eru á svipuðu róli og í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Nýr sýslumaður á Hólmavík

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur skipað Kristínu Völundardóttur, deildarstjóra í dómsmálaráðuneytinu, sýslumann á Hólmavík frá og með 1. janúar n.k.

Innlent
Fréttamynd

Helstu þjóðvegir færir

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að allir helstu þjóðvegir landsins séu færir, en búast má við hálku eða hálkublettum víða um land.

Innlent
Fréttamynd

Atlantsskip undirrita samning við DFDS Transport

Atlantsskip hafa undirritað samstarfssaming við flutningsfyrirtækið DFDS Transport um flutninga fyrirtækisins í Skandinavíu. DFDS Transport er öflugasti forflutningsaðilinn á þessu svæði og er samningurinn því mikil viðurkenning fyrir Atlantsskip og ljóst að flutningsgeta fyrirtækisins mun aukast til muna frá því sem áður hefur verið.

Innlent
Fréttamynd

Vann til silfurverðlauna á EM í kranastjórnun

Ingi Björnsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í kranastjórnun, hlaut nýverið silfurverðlaun í Evrópukeppni Liebherr í kranastjórnun sem fram fór í Suður-Þýskalandi þann 30. nóvember síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Í gæsluvarðhald vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls

Tveir menn, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnasmygls með ferjunni Norrænu, reyndust vera með fjögur kíló af hassi og eitt kíló af amfetamíni. Mönnunum hefur nú verið sleppt úr gæslu en þeir hafa úrskurðaðir í farbann til 20. janúar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Dagur víki sæti sem borgarfulltrúi

Ungir framsóknarmenn krefjast þess að Dagur B. Eggertsson víki sæti sem borgarfulltrúi, þar sem hann sé ekki lengur óháður frambjóðandi. Hann hafi fengið sæti sitt á silfurfati sem fulltrúi óháðra kjósenda en nú séu forsendur fyrir framboði hans brostnar.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun Kjaradóms ábyrgðarleysi og skapar þrýsting

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, segir að ákvörðun Kjaradóms um launahækkun æðstu embættismanna sé tekin af algeru ábyrgðarleysi og skapi þrýsting á vinnumarkaði. Ef ákvörðunin fái að standa grafi það undan getu og vilja verkalýðshreyfingarinnar til að stuðla að langtímasamningum.

Innlent
Fréttamynd

Jólatrén að seljast upp

Jólatrén eru að seljast upp og fer hver að verða síðastur til að ná sér í fallegt jólatré. Mikil aukning hefyr verið á sölu jólatrjáa milli ára og margir eru að kaupa sér fleiri en eitt tré

Innlent
Fréttamynd

Erlendum jólagestum fer fjölgandi

Á undanförnum tveimur árum hefur jólaferðamönnum fjölgað um helming. Sjö til átta hundruð erlendir ferðamenn gista á hótelum í Reykjavík yfir jólahátíðina. Ekkert eitt þjóðerni er áberandi fjölmennt í ferðamannahópnum, en þó virðist sem Bandaríkjamönnum og Bretum sé að fjölga og talsvert er um Japani og Evrópubúa.

Innlent
Fréttamynd

Árlega friðargöngur í kvöld í Reykjavík og Akureyri

Íslenskir friðarsinnar standa að blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu. Safnast verður saman á Hlemmi og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og sjötta í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfssonar kórstjóra tekur að vanda þátt í blysförinni sem endar með stuttum fundi á Ingólfstorgi. Þar mun séra Bjarni Karlsson halda stutt ávarp. Fundinum lýkur síðan með friðarsöng. Friðargöngur verða einnig á Akureyri og Ísafirði á Þorláksmessukvöld. Gangan á Akureyri verður þó seinna en sú í Reykjavík en þar verður lagt af stað frá Menntaskólanum á Akureyri, Eyrarlandsvegi 28 klukkan 22. Göngunni lýkur með fundi þar sem Margrét Heinreksdóttir lögfræðingur flytur ávarp og kór Akureyrarkirkju syngur.

Innlent
Fréttamynd

175 þúsund afskorin blóm flutt inn næsta hálfa árið

Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað tollkvóta vegna innflutnings á afskornum blómum og pottaplöntum. Fimm tilboð bárust vegna innflutnings a afskornum blómum í tvö hundruð þúsund stykki á meðalverðinu tuttugu og sjö krónur.

Innlent
Fréttamynd

Akranes tengist leiðakerfi Strætó

Í lok ársins verða undirritaðir samningar um almenningssamgöngur á milli Reykjavíkur og Akraness, en þessir samningar hafa verið í burðarliðnum um nokkurt skeið.

Innlent
Fréttamynd

NSÍ vill frekari friðlýsingu í Þjórsárverum

Náttúruverndarsamtök Íslands fagna ákvörðun umhverfisráðherra um friðlýsingu Guðlaugstungna, Svörtutungna og Álfgeirstungna norðan Langjökuls og Hofsjökul og skora á ráðherra að halda áfram á sömu braut.

Innlent
Fréttamynd

Gefa lýtaaðgerðir í jólagjöf í Danmörku

Skartgripir og snyrtivörur virðast á útleið sem jólagjafir danskra karla til eiginkvenna sinna ef marka má dagblaðið URBAN. Í þeirra stað eru komin gjafakort í lýtaaðgerðir. Haft er eftir yfirlækni á einkasjúkrahúsi í Velje að gjafakortin hafi aldrei verið fleiri en í ár og er um að ræða allt frá hrukkuaðgerð til brjóstastækkunar.

Erlent
Fréttamynd

Tugir látnir eftir gassprengingu í Kína

Að minnsta kosti fjörutíu og tveir létust í gassprengingu í göngum í Suðvestur-Kína í gær. Flestir hinna látnum voru verkamenn sem unnu að gerð ganganna og þá slösuðust að minnsta kosti ellefu í sprengingunni. Björgunarmenn leita enn að fólki á staðnum en óttast er að tala látinna kunni að hækka.

Erlent