Fréttir
Sættir innan Fatah-flokksins? Sættir virðast hafa náðst innan Fatah-flokksins í Palestínu. Einn armur hans hótaði á dögunum að kljúfa sig úr flokknum. Erlent 28.12.2005 12:00
Halda prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga Sjálfstæðisflokkurinn á Fljótsdalshéraði hefur ákveðið að halda prófkjör þann 4. og 5. febrúar vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Alls hafa borist framboð frá níu einstaklingum. Innlent 28.12.2005 11:19
Innheimtufyrirtæki sameinast Innheimtufyrirtækin AM-Kredit og Premium hafa komist að samkomulagi um samruna. Fimm sparisjóðir eiga hlut í sameinuðu fyrirtæki. Fyrirtækið mun áfram sinna innheimtuþjónustu en einnig leggja áherslu á að fjármagna viðskiptakröfur. Viðskipti innlent 28.12.2005 11:14
Landspítalinn stendur sig ágætlega Stjórnendum Landspítala-háskólasjúkrahúss hefur gengið allvel að halda niðri kostnaði við rekstur spítalans undanfarin ár. Spítalinn stendur ágætlega í samanburði við breska spítala þegar litið er til afkasta og gæða. Innlent 28.12.2005 10:43
Bilun í símkerfi NFS Bilun er í símkerfi NFS í augnablikinu en unnið er að viðgerð. Innlent 28.12.2005 10:29
Heróín ekki algengt hérlendis Samkvæmt upplýsingum frá bæði SÁÁ og fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík heyrir enn til undantekninga að fíklar hér á landi noti heróín og ekki virðist vera mikið um að efnið gangi kaupum og sölum á fíkniefnamarkaði. Innlent 28.12.2005 10:12
Fyrsta gervihnettinum í sérstöku ESB verkefni skotið á loft í morgun Fyrsta gervihnettinum í sérstöku verkefni Evrópusambandsins var skotið á loft í Kazakstan í morgun. Verkefnið, sem gengur undir nafninu Galíleó, er sagt vera mótsvar Evrópu við GPS-staðsetningartækni Bandaríkjamanna sem byggist á móttöku merkja frá gervitunglum í sérstaka móttakara og staðsetur þá með mikilli nákvæmni í heiminum. Erlent 28.12.2005 09:44
440 hafnfirskir íþróttamenn unnið til Íslandsmeistaratitla á árinu Alls hafa 440 hafnfirskir íþróttamenn unnið til Íslandsmeistaratitla á árinu í 20 greinum, átta hópar hafa unnið Bikarmeistaratitla og fjórir einstaklingar hafa orðið Norðurlandameistarar. Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2005 verður krýndur í dag á viðurkenningarhátíð sem haldin verður í íþróttahúsinu við Strandgötu. Sport 28.12.2005 09:27
Penninn hf. gerir samning um rekstur verslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Penninn hf. hafa gert samning um rekstur verslunnar undir nafni Eymundsson. Penninn hf. mun taka við sölu blaða, tímarita, bóka og annarra vara af Íslenskum markaði, en verslunin verður lögð niður í núverandi mynd þegar búið verður að gera samninga við nýja aðila um um rekstur verslanna með þá vöruflokka sem þar eru seldir í dag. Viðskipti innlent 28.12.2005 09:11
Varað við mikilli hálku á Lágheiði Vegagerðin varar við mikilli hálku á Lágheiði en á Norðurlandi er víða nokkur hálka eða snjóþekja. Á Vesturlandi eru sumsstaðar hálkublettir, einkum á Snæfellsnesi en þar er éljagangur. Á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði er hálka og éljagangur. Víðast hvar eru vegir auðir á Vestfjörðum en þó er snjóþekja, hálka og hálkublettir á heiðum. Innlent 28.12.2005 08:59
Ísraelskar herþotur gerðu árás á búðir herskárra Palestínumanna suður af Beirút Ísraelskar herþotur gerðu árás á búðir herskárra Palestínumanna suður af Beirút í Líbanon í morgun. Ekki hafa borist fréttir að mannfalli en að sögn talsmanns ísraelshers var árásin gerð eftir að þremur flugskeytum var skotið á ísraelska bæinn Kirjat Shemona seint í gærkvöldi þar sem að minnsta kosti einn særðist. Erlent 28.12.2005 07:53
Fuglalíf við Reykjavíkurtjörn í hættu Andar- og kríustofnu við Reykjavíkurtjörn hefur hrakað mikið og hefur afkoma unga ekki verið verri frá því að mælingar hófust. Í skýrlsunni Fuglalíf tjarnarinnar eftir Ólaf K. Nilsen og Jóhann Óla Hilmarsson kemur fram að um mánaðarmótin júlí-ágúst hafi einungis 18 stokkandarungar verið á lífi og aðeins hafi fundist 15 kríuhreiður en engir ungar komust á legg. Innlent 27.12.2005 22:02
Atlanta segir upp 35 erlendum flugmönnum Atlanta hefur sagt 35 flugmönnum upp vegna samdráttar og breytinga á flugflotanum. Samkvæmt fréttavef Morgunblaðsins eru flugmennirnir flestir erlendir og ráðnir í gegnum áhafnaleigur, en fastráðnir og innlendir flugmenn missa ekki vinnuna. Áformað er að fjölga flugmönnum á ný á næsta ári. Innlent 28.12.2005 07:50
Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist milli ára Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist á milli ára en ef litið er til fyrstu ellefu mánaða ársins nema nettókaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum 105 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð aukning miðað við sama tímabil síðasta árs, en þá námu nettókaup á erlendum verðbréfum 65,4 milljörðum krónan. Samkvæmt Vegvísi greiningardeildar Landsbankans má rekja stóraukinn áhuga innlendra aðila á erlendum verðbréfum að hluta til til styrkingar krónunnar á árinu. Innlent 28.12.2005 07:48
Tólf létust í sprengingu í vopnaverslun í Venesúela Að minnsta kosti tólf létust þegar eldur kom upp í vopnaverslun í suðausturhluta Venesúela í gær. Þegar eldurinn kom upp varð mikil sprenging í versluninni með fyrrgreindum afleiðingum. Talið er að nokkuð magn flugelda hafi verið geymt í versluninni. Fimm verslanir í nágrenninu urðu fyrir töluverðu tjóni við sprengingunna. Hugsanlegt er að mannfallið hafi verið nokkru meira og herma sumar fregnir að allt að átján hafi látist. Erlent 28.12.2005 07:46
Mótmæla fyrirhuguðu framboði í þingkosningunum í Palestínu Stuðningsmenn Fatah-flokksins í Palestínu mótmæltu í gærkvöldi því að sumir eldri og reyndari áhrifamenn innan flokksins hafa hótað að kljúfa flokkinn og bjóða fram nýtt framboð í fyrirhuguðum þingkosningum. Deilurnar innan Fatah eru til talsverðra vandræða fyrir Mahmoud Abbas forseta heimastjórnar Palestínumanna sem reynir nú hvað hann getur til að sameina fylkingar innan flokksins fyrir kosningarnar. Erlent 28.12.2005 07:44
Björgólfur maður ársins í íslensku viðskiptalífi Björgólfur Thor Björgólfsson er maður ársins samkvæmt dómnefnd Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins. Björgólfur þykir hafa verið fremstur meðal íslenskra viðskiptamanna í ár. Aðrir íslenskir viðskiptamenn sem komust á blað á eftir Björgólfi voru Pálmi Haraldsson, bræðurnir í Bakkavör og Jón Ásgeir Jóhannsson. Innlent 28.12.2005 07:38
Eldur í íbúð á Grenimel Slökkviliðið var kallað út vegna elds í íbúð á Grenimel í Reykjavík upp úr klukkan fimm í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldri hjón sem voru sofandi í íbúðinni voru flutt á slysadeild vegna. Innlent 28.12.2005 07:08
Harður árekstur á Akureyri Kona var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt norðan við Akureyri um klukkan átta í gærkvöld. Í öðrum bílnum var kona ásamt tveimur börnum og var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið og er hún hugsanlega beinbrotin. Börnin sakaði ekki. Í hinum bílnum var aðeins ökumaður og kvartaði hann undan eymslum undan bílbeltinu. Innlent 28.12.2005 06:47
Bandaríkjamenn versluðu meira fyrir jólin en áður Aukning er í jólaverslun í Bandaríkjunum en tölur um jólaverslun þar í landi voru birtar í Wall Street Journal í dag. Tölurnar benda til þess að aukning í jólverslun milli ára hafi verið 8,7% en þarna vegur þungt mikill vöxtur í sölu húsbúnaðar ásamt aukinni sókn bandarískra neytenda í raftæki á borð við sjónvörp, MP3 spilara og stafrænar myndavélar. Erlent 27.12.2005 22:43
Mikil ofankoma Íbúar í austurhluta Englands eru hvattir til að láta bílferðir eiga sig næsta sólarhringinn vegna mikillar ofankomu og flughálku á vegum. Í Frakklandi hefur líka víða kyngt niður snjó í allan dag. Erlent 27.12.2005 22:14
Skotið úr sprengjuvörpum á borg í Ísrael Uppreisnarmenn úr röðum hryðjuverkasamtakanna Hizbollah skutu úr sprengjuvörpum á borg í norðurhluta Ísraels nú í kvöld. Að sögn vitna slösuðust nokkrir og jafnvel er talið líklegt að einhverjir hafi týnt lífi, en lögregla á svæðinu hefur ekki staðfest það. Erlent 27.12.2005 21:50
Aukin kaup á erlendum verðbréfum Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist á milli ára en ef litið er til fyrstu ellefu mánaða ársins nema nettókaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum 105 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð aukning miðað við sama tímabil síðasta árs, en þá námu nettókaup á erlendum verðbréfum 65,4 milljörðum krónan. Innlent 27.12.2005 21:49
Stjórnarandstaðan setur fyrirvara við væntanlega endurskoðun Kjaradóms Stjórnarandstaðan styður að hálfu leyti þá ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar að skipa Kjaradómi að endurskoða ákvörðun sína varðandi laun þjóðkjörinna fulltrúa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill aðkomu Alþingis að málinu og Ögmundur Jónasson vill einnig sjá endurskoðun á launum dómara. Innlent 27.12.2005 21:29
Siglfirðingar geta skellt sér skíði Siglfirðingar gátu skellt sér á skíði í dag en opið var á skíðasvæði Siglfirðingar í Skarðsdal milli eitt og fjögur í dag. Stefnt er að því að hafa skíðasvæðið opið út vikuna ef veður leyfir. Innlent 27.12.2005 21:27
Pólska herliðið verður áfram í Írak Pólska ríkisstjórnin hefur ákveðið að halda herliði sínu í Írak út næsta ár. Til stóð að allt herlið Pólverja yrði kallað heim frá Írak í byrjun næsta árs, en nú hafa stjórnvöld í Póllandi skipt um kúrs og ákveðið að styðja við bakið á bandarískum og írökskum hersveitum í óöldinni sem ríkir í Írak. Erlent 27.12.2005 21:14
Harður tveggja bíla árekstur Kona var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt norðan við Akureyri nú um klukkan átta í kvöld. Í öðrum bílnum var kona ásamt tveimur börnum og var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og er hún hugsanlega beinbrotin. Innlent 27.12.2005 21:12
Lyfjaþegar ákveðins blóðþrýstingslyfs fá frítt í World Class Lyfjafyritækið Novartis hefur ákveðið að gefa öllum sjúklingum sem fá ávísað blóðþrýstingslyfi frá þeim fría líkamsrækt í World Class. Þrátt fyrir fjölmargar athugasemdir gaf Lyfjastofnun samþykki sitt og segir markaðsátakið nýstárlegt. Innlent 27.12.2005 21:54
Fóstureyðingum fjölgar sífellt á Spáni Fóstureyðingum hefur fjölgað um meira en sjötíu prósent á Spáni undanfarinn áratug. Hvergi í Evrópu hefur fóstureyðingum fjölgað jafnmikið undanfarinn áratug, en engu að síður er hlutfall fóstureyðinga minna á Spáni en í sjö Evrópulöndum. Erlent 27.12.2005 20:50
Öldruð kona finnst látin Tæplega áttræð kona fannst látin á heimili sínu í Vesturbænum á aðfangadag. Að sögn lögreglu er ekki hægt að segja til um hversu langt er síðan konan lést fyrr en að krufningu lokinni en ljóst sé að það hafi verið fyrir þó nokkru. Það voru nágrannar konunnar sem kölluðu til lögreglu þegar torkennileg lykt var farin að berast frá íbúðinni. Innlent 27.12.2005 20:48