Fréttir

Fréttamynd

Fyrsta barn ársins

Þrjátíu og fjórum mínútum eftir að nýja árið gekk í garð kom fyrsta barn ársins í heiminn. Barnið, sem er drengur, var sextán merkur og fimmtíu og tveir sentimetrar og gekk fæðingin vel.

Innlent
Fréttamynd

Áramótin gengu að mestu slysalaust fyrir sig.

Áramótin gengu að mestu slysalaust fyrir sig þetta árið og víðast um land segir lögregla áramótin óvenjugóð þetta árið. Maður situr í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík vegna gruns um nauðgun á skemmtistað í Austurborginni. Ungur drengur var fluttur með sjúkraflugi frá Patreksfirði til Reykjavíkur vegna áverka í andliti eftir flugeldaskot.

Innlent
Fréttamynd

Mikill eldur gaus upp í flugeldasölu í Hveragerði á Gamlársdag

Mikill eldur gaus upp í flugeldasölu í Hveragerði á gamlársdag. Tjón björgunarsveitarinnar á staðnum er gríðarlegt, en húsið er ónýtt og allur búnaður hjálparsveitarinnar. Þrír fengu snert af reykeitrun og einn brákaðast á fæti þegar hann braut sér og börnum sínum leið út úr húsinu.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta barn ársins í Reykjavík

Þrjátíu og fjórum mínútum eftir að nýja árið gekk í garð kom fyrsta barn ársins í heiminn. Barnið, sem er drengur, var sextán merkur og fimmtíu og tveir sentimetrar og gekk fæðingin vel.

Innlent
Fréttamynd

Matvælaverð óviðunandi hærra að mati forsætisráðherra

Forsætisráðherra telur óviðunandi að matvælaverð hér á landi sé hærra en í nágrannalöndunum. Hann tilkynnti þjóðinni í gærkvöld að gerðar yrðu ráðstafanir til að leiðrétta það. Þá boðar forsætisráðherra að átak verði gert í málefnum öryrkja.

Innlent
Fréttamynd

Gleðilegt ár !

Starfsfólk Vísis sendir lesendum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gæfuríkt ár. Við þökkum móttökurnar á árinu sem er að líða og hlökkum til áframhaldandi samstarfs með ykkur.

Innlent
Fréttamynd

Skemmtanahaldi frestað

Slökkvistarfi í flugeldasölu hjálparsveitar skáta í Hveragerði er nú að ljúka en ljóst er að tjón af völdum eldsvoðans er mikið. Stór hluti búnaðar hjálparsveitarinnar er ónýtur og þá urðu miklar skemmdir á verkstæði við hlið flugeldasölunnar. Ný grafa sem var þar inni er ónýt. Opinberu skemmtanahaldi, þar með talið áramótabrennu Hvergerðinga, hefur verið frestað.

Innlent
Fréttamynd

Búnaður björgunarsveitarinnar nær ónýtur

Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í flugeldum í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Hveragerði í dag. Um tíu manns voru inni í húsinu að versla flugelda fyrir kvöldið þegar slysið varð.

Innlent
Fréttamynd

Svipað veður fram á þorra

Félagar í Veðurklúbbi Dalbæjar telja að veður verði svipað og það er nú fram á þorra. Þeir segja að það gæti kólnað dálítið frá 20. janúar og jörð hvítnað eitthvað en telja ekki ástæðu til að búast við vonskuveðri.

Innlent
Fréttamynd

Freyðivín fyrir börn selst vel

Freyðivín fyrir börnin rokselst í verslunum Hagkaupa fyrir áramótin. Framkvæmdastjóri Hagkaupa segir freyðivínið á boðstólum til gamans svo börnin geti skálað með fullorðnum og fagnað nýju ári. Taka skal fram að freyðivínið er óáfengt.

Innlent
Fréttamynd

Afli íslenskra skipa hefur ekki verið minni í tíu ár.

Afli íslenskra skipa hefur ekki verið minni í tíu ár. Aflinn er áætlaður 1.667 þúsund lestir en svo lítill hefur hann ekki verið síðan 1995 þegar hann var 1.605 þúsund lestir. Mestur var aflinn árið 1997 eða 2.199 þúsund lestir

Innlent
Fréttamynd

Segir Assad hafa hótað Hariri

Bashar Assad Sýrlandsforseti og fleiri háttsettir sýrlenskir embættismenn höfðu í hótunum við Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, áður en hann var myrtur í febrúar síðastliðnum.

Erlent
Fréttamynd

40 manns sem fengu meðferð á Vogi létust á árinu

Fjörutíu manns sem fengu meðferð á Vogi á árinu létust fyrir aldur fram á fyrstu átta mánuðum ársins vegna ofneyslu vímuefna. Þar af létust níu fyrir fertugt. Margt þessa fólks hlaut voveiflegan dauðdaga að sögn yfirlæknis á Vogi. Þá bendir hann á að því fjölgi nú ört fullorðnu fólki, komið yfir þrítugt, sem leiti sér hjálpar vegna dagdrykkju.

Innlent
Fréttamynd

Fer enn í reglulegar lýtaaðgerðir

Piltur sem slasaðist í andliti þegar flugeldur sprakk framan í hann fyrir þremur árum fer enn reglulega í augnaðgerðir til þess að laga lýti í kringum augun. Hann var svo heppinn að halda sjóninni og vill hann minna fólk á að fara varlega því allir geti lent í slysi sem þessu.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina hafa farið illa með tímann

Laun embættismanna hækka um tvö og hálft prósent eftir mánuð, en fram að því gildir úrskurður Kjaradóms. Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina hafa farið illa með tímann og leysa hefði mátt málið fyrir áramót. Forseti ASÍ fagnar niðurstöðunni en skilur ekki hvers vegna beðið er með að láta hana taka gildi.

Innlent
Fréttamynd

Árið sekúndu lengra en venjulega

Árið 2005 verður óvenjulangt því á miðnætti annað kvöld verður hlaupasekúndu bætt við árið. Klukkur heimsins ganga í samræmi við frumeindaklukkur, sem mæla tímann með mikilli nákvæmni, en jörðin hefur snúist óvenjuhægt um öxul sinn að undanförnu. Því þarf í fyrsta sinn í sjö ár að bæta sekúndu við árið til að næsta ár geti byrjað á hárréttum tíma.

Erlent
Fréttamynd

Hamfarir og stríð fréttir ársins

Árið 2005 var ár hamfara og stríðs og margir kveðja það með litlum söknuði. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem var gerð í 27 löndum með viðtölum við rúmlega 30 þúsund manns.

Erlent
Fréttamynd

Tvöfalda stærri hluta Reykjanesbrautar

Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar en verkið er unnið í samráði við bæjaryfirvöld í Kópavogi og Garðabæ.

Innlent
Fréttamynd

Má heita Súla og Þrastar en ekki Arnsted

Súla og Beníta eru tvö nýjustu nöfnin í mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd ákvað á síðasta fundi sínum að nöfnin tvö uppfylltu skilyrði laga um mannanöfn þar sem þau fallbeygjast og bætti þeim því í mannanafnaskrá.

Innlent
Fréttamynd

Sex yfir þúsund tonnin

Sex krókaaflamarksbátar veiddu meira en þúsund tonn á árinu samkvæmt upplýsingum á vef Landssambands smábátaeigenda. Guðmundur Einarsson ÍS veiddi mest, alls 1.360 tonn, en næstur kom Hrólfur Einarsson ÍS með 1.346 tonn.

Innlent
Fréttamynd

Keyptu fasteignir fyrir 300 milljarða

Landsmenn keyptu og seldu fasteignir fyrir um 300 milljarða króna á árinu sem nú er að líða að mati Fasteignamats ríkisins. Veltan í ár er sú mesta sem hefur nokkru sinni verið skráð hjá Fasteignamati ríkisins á einu ári. Í fyrra seldust fasteignir fyrir 226 milljarða króna en aukningin milli ára nemur 76 milljörðum eða þriðjungi heildarsölunnar í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Erill hjá slökkviliði

Erill hefur verið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag. Dælubílar hafa fimm sinnum verið kallaðir út, slökkva hefur þurft eld í tveimur blaðagámum og bíl í Kirkjuteigi auk þess sem eldur kom upp í íbúð við Kambsveg en íbúa tókst að slökkva hann áður en slökkviliðið kom á staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Sextíu bíla árekstur í Ungverjalandi

Átta ára gamall drengur lést og tíu slösuðust í sextíu bíla árekstri á harðbraut í Ungverjalandi í dag. Mjög slæm færð var á brautinni þegar áreksturinn varð. Ökumaður flutningabíls missti stjórn á bíl sínum, sem rásaði til á veginum og lenti síðan utan í vegriði.

Erlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin klúðraði málinu

Klúður er orðið sem stjórnarandstæðingar nota yfir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við úrskurði kjaradóms. Þeir eru afar ósáttir við að forystumenn ríkisstjórnarinnar vildu ekki kalla þing saman til að fresta gildistöku launahækkunar þingmanna og ráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Landamærum Gaza og Egyptalands lokað

Landamærum Gaza og Egyptalands var lokað í morgun, þegar palestínskir lögreglumenn réðust inn í landamærastöð og hröktu evrópska eftirlitsmenn á flótta.

Erlent